Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1979, Qupperneq 7
verða æ meðvitaðra um orðnotkun
sína.
Leikfangaframleiðendur hafa
vissulega tekið mið af þörfum
barna til að heyra og tileinka sér
hvers konar hljóð. Þau eru ófá,
leikföngin sem hægt er að hrista,
skoppa, velta, slá á, berja og snúa
og fá eitthvað hljóð úr þeim um
leið. Því miður er það hins vegar
oft þannig, að þeir, sem freistast
til að kaupa þessi leikföng handa
barninu, fara fremur eftir útliti
leikfanganna en hljómi þeirra.
Barninu er það hins vegar meira í
mun að hafa hljóðin af fjölbreyti-
legra taginu, heldur en þó ásýnd
leikfanganna sé skrautleg. Það
skiptir líka afar miklu máli, að
þeir sem kaupa leikföng af þessu
tagi, geri sér grein fyrir, til hvers
á að nota þau. Á að berja á þau,
bara eins og hugarflugið býður til
að fá hljóm úr þeim, eða á að vera
hægt að spila á þau? Og ef á að
vera hægt að spila á þau, er þá
hægt að leika einhver raunveruleg
lög sem barnið þekkir, eða eru
nóturnar falskar og óáheyrilegar?
Reyndar er annar valkostur
fyrir hendi en sá að kaupa hljóð-
færi handa barninu, og hann er sá
að hjálpa því til að búa til eigin
hljóðfæri. Þau geta verið af marg-
víslegu tagi: blásturshljóðfæri,
ásláttarhljóðfæri, strengjahljóð-
færi og skröpur, hristur og smell-
ur. Bara það að flokka hljóðfærin í
ofantalda og jafnvel fleiri flokka
er tónlistaruppeldi af ákveðnu
tagi. En börn eru ennfremur stolt
og ánægð yfir því sem þau búa til
sjálf. Því er mikilvægt að örva
sköpunargleði þeirra, án þess að
innræta þeim gildismat af því tagi
að eitthvert eitt hljóðfæranna,
sem þau búa til, sé best, fallegast
osfrv. Meira að segja eldspýtna-
stokkur með nokkrum grjónum í
getur verið merkilegt hljóðfæri í
augum þess, sem hefur búið til, þó
sumir myndu kalla það „rusl". Það
er varhugavert að setja einkunn á
ímyndun barnsins á þennan hátt.
Það getur orðið til þess að barnið
glati sjálfstraustinu gagnvart eig-
in sköpunarhæfni.
Það er líka hægt að búa til
tónverk eftir stuttum sögum eða
ævintýrum. Þá er sérhverjum
atburði í sögunni gefinn sérstakur
hljómur, og barnið örvar ímyndun
sína og hugarflug með því að
tengja ákveðna atburðarás saman
í tónverkinu. Ennfremur má
skrifa tónverkið niður, og þannig
má leika tónverkið aftur og aftur.
Hvert hljóðfæri er þá merkt með
ákveðnum táknum, og hvort leikið
er hart eða mjúklega á hljóðfærið
getur svo ráðist af því, hvort
táknið er skrifað feitu eða grönnu
letri. Úr þessu geta orðið margir
skemmtilegir tónlistarleikir.
Smám saman ætti að vera hægt
að fá börnin til að teikna svipuð
tákn við tónlist sem þau heyra af
plötum, og biðja þau á þann hátt
að lýsa með litum og táknum
hvernig þau túlka tónlistina sem
þau heyra. Þannig, ættu börnin að
geta smátt og smátt gert upp við
sig hvað þeim finnst „góð“ tónlist
óg hvað ekki. Allt miðar að því, að
þau geti þegar fram líða stundir
þroskað sinn eigin, sjálfstæða
tónlistarsmekk.
Fastir liðir voru eins og venju-
lega: Búizt var viö mikilli umferö á
Þjóövegum landsins á verzlunar-
mannahelginni og allur undirbún-
ingur pottbéttur og helzt í líkingu
viö hnitmiöaða innrásaráætlun.
Umferðarráö var alltaf annaö veif-
iö í útvarpinu eins og hvert annaö
herforingjaráö, Þaöan sem innrás-
inni yröi stjórnaö á D-dag. Hver
sérfræðingurinn á fætur öörum
ræddi meö alvöruÞunga um nauö-
syn Þess aö taka nú með sér auka
viftureim og FÍB var Þátttakandi í
innrásinni og tilkynnti um Þjón-
ustu- og viðgerðabíla, sem yrðu á
Þönum á vegunum.
Á undanförnum árum hef ég
ekki Þurft á Þessari frábæru
Þjónustu aö halda, einfaldlega
vegna Þess aö ég hef forðast að
standa í ferðalögum Þessa helgi.
Nú höguöu atvikin Því hins vegar
svo, aö ég Þurfti aö komast
noröur til Húsavíkur Þessa miklu
farandhelgi, Þegar manni skilst,
aö Þjóöin unni sér ekki hvíldar, en
sé á einni Þeysireiö á vegunum.
Á sunnudagsmorgni, Þegar átti
aö leggja íann, haföi lekiö úr
dekki og Þótti óráölegt aö fara án
varadekks. En Þegar búiö var aö
hringja í öll dekkjaverkstæöi í
símaskránni, kom í Ijós, að ekki
eitt einasta Þeirra var opiö. Mér
datt í hug aö spyrja herforingja-
ráöiö, sem stýröi innrásinni. En
Því miöur; Þaö svaraöi ekki hjá
Umferöarráöi, — Þeir voru víst
ekki komnir á fætur. Og lögreglan
vissi ekki neitt um Þetta. Hjá FÍB
Þuldi símsvari eitthvaö sem eng-
inn stoö var í, og ekki var Þar
minnst einu oröi á, hvernig sá
vandi yröi leystur aö gera viö
bilaö dekk. Kannski stæöi ein-
hversstaöar eitthvaö í dagblööun-
um um sérstaka Þjónustu á verzl-
unarmannahelgi. En eftir aö hafa
pælt í gegnum pau öll, var Ijóst aö
Þar var ekki minnst einu orði á
neitt slíkt. Þaö leit helzt út fyrir,
aö Þetta yröi förin, sem aldrei var
farin, vegna Þess aö einhver
nauösynlegasta Þjónusta, næst
Því aö fá bensín á bílinn, var ekki
til. Máliö fékk Þó óvæntan og
farsælan endi; Nýbaröi í Garöabæ
opnaöi dyr sínar Þegar lengra leiö
framá. En Þeim haföi ekki pótt
taka Því aö auglýsa Þaö og herfor-
ingjaráöunum hefur ekki Þótt taka
Því aö nefna Það.
Nú virtist allt í stakasta lagi;
sólin skein á hnjúka og falleg
sumarský mynduðu flöktandi
skugga í hlíðum fjallanna. Uppi á
Kjalarnesi var byrjaö aö aka í
mekki, sem varö líkastur dimmri
Þoku í Hvalfiröinum. Eftir aö hafa
komizt framúr nokkrum lestar-
stjórum bar ekki til tíðinda unz
komiö var á Holtavörðuheiöi. Þá
kviknaöi rautt viðvörunarljós í
mælaboröi, svona rétt til aö iáta
vita af Því, aö ekki væru nú
hemlarnir alveg eins og skyldi.
Enda leyndi Þaö sér ekki: Fetinn
fór í botn að aöeins Þar öriaöi fyrir
hemlun.
Maöur reyndi nú samt aö pota
sér áfram, enda hlutu pessir
margauglýstu FÍB-bílar aö vera á
næstu grösum; af einhverjum
ástæöum höföum viö pó ekki
rekizt á neinn Þeirra allar götur úr
Reykjavík. Þar aö auki hlaut aö
vera opin einhver neyöarpjónusta
noröan heiöa, Þó ekki væri nema
Þessa einu helgi ársins, Þegar
Þjóöin heldur sig á vegunum.
Æ, Það var nú ekkert svoleiöis í
Hrútafiröinum enda gerir maður
sér yfirleitt ekki vonir um eitt eöa
neitt í Hrútafiröinum og bezt aö
vera sem fijótastur Þar í gegn og
um aö gera aö ergja sig ekki á Því
að líta á landslagið. Áfram var
staulast, alla leið á Þann stóra
staö Blönduós.
„Hér er allt lokaö“ sögöu Þeir í
sjoppunni á Blönduósi. En hjálp-
samur strákur bauöst til aö hvíla
sig á plokkmaskínunni og fylgja
mér til manns vestur í piássi, sem
væri laginn viö vélar. Hann geröi
Þaö sem hann gat; leit á kramið
og sá, aö Það var nógur bremsu-
vökvi á báðum kerfunum. „Það
hlýtur aö vera vakúmið“, sagði
hann, „loftkúturinn hlýtur aö hafa
bilaö“. En meira gat hann ekki
gert.
Næst var aö athuga málið í
Varmahlíð og Þar var merkilegt
nokk, opið verkstæöi fyrir trakt-
ora og landbúnaðarvélar. En
leyndardóma hinna æöri hemla-
kerfa kváðust menn ekki Þekkja
Þar. Einhverra hluta vegna var
enginn FÍB-bíll í Varmahlíð, en i
útvarpinu glumdu tilkynningar frá
herforingjaráöinu syöra, um aö
menn skyldu nú hafa meö sér
auka viftureim.
Mér var um og ó aö leggja á
Öxnadalsheiöina en höfuöstaöur
Noröurlands var nú eina vonin úr
Því sem komiö var. Þá var komið
kvöld og ekki vissi neinn tii Þess
aö FÍB-bílar heföu sóst Þar. Og
hafi eitthvert verkstæöi haft opið
aö deginum, sem ekki er víst,
voru allsstaöar lokaðar dyr.
Leigubílstjórar á Akureyri vissu
ekki til Þess að neina Þjónustu
væri aö fá af Þessu tagi; Þaö væri
enginn heima, allir akandi ein-
hversstaöar úti á vegum.
Þaö var ekki fyrr en á Þriðju-
dagsmorgni eftir verzlunar-
mannahelgi og Þá á Húsavík, að
hægt var aö fá viögerð. Loft haföi
komizt inná hemlakerfiö aö fram-
an; Þaö var nú allt og sumt, en
nóg til Þess aö maður veröur
hálfpartinn meö lífiö í lúkunum að
paufast áfram í mekkinum. Aö
sjálfsögöu er paö eitt af pví, sem
alls ekki á aö geta komiö fyrir. En
Það á heldur ekki aö geta komið
fyrir, að mótorar detti undan
Þotum á flugi. Þannig er tæknin;
hún bregst einatt, Þegar verst
gegnir og hérumbil víst aö Þá
springur einmitt, Þegar varadekk-
iö er ekki meö.
Vonandi hafa viögeröarbílar frá
FÍB veriö til annarsstaðar en í
útvarpstilkynningum, Þótt ekki
yröi Þeirra vart fyrir mestöllu
Noröurlandi. Umferðarráð og um-
feröarnefndir hafa örugglega í
samráöi viö FÍB og samtök bif-
reiðaverkstæöa, séö til Þess aö
neyöarÞjónustu væri haldiö
uppi Þessa helgi, Þegar Þjóöin
berst í rykmekki Þjóðveganna
ellegar svaöinu, sem er hinn
valkosturinn. Mér tókst bara ekki
aö finna Þessa Þjónustu í 5 sýsl-
um og enginn sem ég ræddi viö,
vissi til Þess aö hún væri til.
Þess konar aukaatriöi eru hins-
vegar ekki á dagskrá í tilkynning-
um herforingjaráöanna og Þeir
sem ekki geta reddaö helztu
bilunum meö extra viftureim, eiga
ekki betra skiliö en sitja í súp-
unni.
Gísti Sigurösson.
©