Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.1980, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.1980, Blaðsíða 3
listamanna og takmarkalaus þrælk- un er vanþökkuð í lífinu. Stundum hefir fólk sagt við mig: Hvernig er það með hann Pál vin þinn ísólfs- son eöa hann Halldór Kiljan gera þeir eiginlega nokkuð. Ég svara nú ekki svona spurningum um vinnu- tíma listamanna, þaö er ekki til neins. Ef þessum mönnum væri bara greitt tímakaup, væru þeir hæstu skattgreiðendur landsins, svo mikið er fast starf þeirra reiknað í klukkustundum, þó listin sjálf væri metin eins og vegavinna. Svo er um alla menn, sem mikil afrek vinna, þeir hafa langan vinnudag og lífið ann þeim engrar hvíldar, næðis eða (áæginda. Viö því er ekkert aö segja, hitt er harður kostur er við, sem njótum afreka þeirra tökum í sama strenginn. Mikið listaverk krefst meiri áreynslu, meiri fórna og meiri þjáninga en nokkuð annað, sem heimurinn þekkir. Það var ekki fyrr en ég kom í leikfimi til þess frábæra manns, Jóns Þorsteinssonar íþróttakennara, að ég áttaði mig verulega á því að listin væri eitthvað annað og meira en landslagið í kringum okkur og söngraddir brimsins við ströndina. Hjá Jóni, sem er einn einlægasti listunnandi, sem ég þekki, var ekki unnt aö sleppa undan að gera sér grein fyrir hlutun- um. Hann gerði sér ekki að góðu að æfingin væri rétt gerð, það mátti ekki vera nein tilviljun, heldur hugsuð hreyfing. Hann leit á líkams- íþróttir, sem við köllum svo, sem frumstig andlegrar þjálfunar. Mörkin á milli íþrótta í takmarkaðri merkingu og andlegra íþrótta eru mjög óljós. Um leiö og tjáning kemur til greina eins og í listdansi og raunar mörgum-fleiri íþróttum, er það oröin list. En alltof margir líta á íþróttir í takmarkaðri merkingu, og fyrir mörgum þeirra fara þær útí sorglegar öfgar, eins og t.d. í boxi, sem ætti að banna eins og aðrar óspektir á almannafæri. íþróttamál unga fólksins í Rvk. eru á margan hátt að komast í gott horf. Annars álít ég að í fyrsta bekk barnaskólanna ætti ekkert að kenna annað en íþróttir, kenna börnunum ýmiskonar fagrar hreyf- ingar, kenna þeim að koma boðum frá heilanum til ýmsra útlima, hreyfa sig eftir músik, taktmæli og æfa þau í að koma fallega fram. Krakki sem búinn er að fá slíkan skóla einn vetur undir handleiöslu góðs kennara vinnur tímann fljótt upp í skrift og lestri og er miklu betur undirbúinn undir annað nám. Listin, sem er íþrótt hjarta og hugar, þarf að vera í sem ríkustum mæli takmark allra manna, og aldrei byrja börnin of snemma að iðka listir. Þau börn eru fremur undantekning sem ekki hafa ein- hverja hæfileika til þátttöku í list- um. Listin er eina — alls eina leiöin til þess aö lyfta manneskjun- um uppúr því volæði heimsku, slæp- ingsháttar og hégóma, sem alltof margir una við. Og íþróttir eru fyrstu einföldu sporin til þjálfunar hinna æðri tauga, innri skynjana, heyrnar, sjónar og tilfinningar. Þátttaka mín í músikmálum meö stofnun Tónlistarfélagsins og Tónlistarskólans var fyrir áeggjan vina minna, sem vissu að ég var sporléttur, fremur en af eigin Matthías Johannessen hvötum, og alltof mikið hefir verið gert úr mínu starfi þar, því miöur. Það fer ekki á milli mála hver hefir unnið þar mest, það er að sjálfsögðu Páll ísólfsson og Björn Jónsson í upphafi, ásamt öllum félögum okkar í Tónlistarfélaginu, en síðari árin eru það kennarar . Tónlistarskólans ásamt ýmsum tónlistarmönnum. En ég held að ég hafi helst orðið að liði sem bókaút- gefandi og ástæöan fyrir því að ég fór að gefa út bækur, þó að ég hafi vitanlega engan veginn unnið þar neitt brautryðjendastarf al- mennt, var að mér rann til ryfja aö sjá, eftir að allt hafði fengið hér á sig furðumikinn menningarbrag í þeim efnum, aö ýmsu leyti, að fín bók, sem seld var fyrir hundraö krónur, skyldi oft og tíðum ekki geta skilað höfundi sínum fyrir einni máltíð, allt fór í prentarann, bók- bindarann og pappírssalann. Ég gerði fyrstu tilraunina fyrir kunn- ingja minn og hún misheppnaðist náttúrlega vegna þess að ég hafði þá ekki gert mér grein fyrir því í hverju þetta lá, hélt að prentarinn og bókbindarinn hefðu bara okrað á mér og að af þeim ætti aö taka eitthvað handa höfundinum, en þeir reyndust ekki borgunarmenn fyrir ritlaunum.Þeir höfðu nóg með sig. Bækurnar uröu að hækka að minnsta kosti í svipinn fyrir ritlaununum og það hætti ég á að gera. En þá eignaðist ég marga óvini og (Dað meðal greindra manna. Margir trúðu á það að nauösynlegt væri aö skáld væru mjög hungruö, skáldskapurinn væri sultardropar snillingsins. Ef útgefandi reiknaði með handriti, sem útgjaldalið í bókaútgáfu, varö að skoða það sem ölmusu. Bók var pappír og prentsverta, það var allt og sumt. Við sem kaupum bækur til þess að lesa þær, til þess að skyggnast inní hugarheim lista- mannsins og hlýða á þaö sem hann hefir að segja, af sinni blóðugu lífsreynslu, skiljum það mætavel, að þær skrifa sig ekki sjálfar, og að það er ekki hægt að ráða menn til þess að skapa listaverk fyrir sig. Þær þjóöir sem hæst meta listir og gera mest til þess að efla þær í landi sínu, hafa orðið forustuþjóðir í heiminum, en þær sem hafa kúgað og vanmetið listina, hafa horfið af landabréfinu smám saman. í svipinn viröist mér að gróska sé í íslenskri list, sérstaklega skáld- skap. Ástæðan er kannski að nokkru leyti sú að þjóðin hefir komist í vanda vegna átakanna í heiminum, sem viö höfum oröiö þátttakendur í meira en áður, en listin er samviska þjóðanna. Hitt er einnig mjög áberandi með listina, engu síður en iðnaðinn að sam- keppnin hefir sett mönnum haröa kosti. Meðan engar vörur fengust hér var hægt að selja leiöinlegar bækur og lélega iðnaöarfram- leiðslu. Nú er hvorugt hægt að bjóöa. Miklir listamenn eru að vísu óháðir slíku vöruframboði, en hinir minni spámenn margir að nokkru leyti. Nú eru að koma fram ung skáld meö skemmtilegar bækur, virðist mér. Fólk talar oft um féleysi til þess að koma upp menningarstofnun- um. En þetta er að nokkru leyti Framhald á bls. 14. 1 | Þú ert kvöldsól á heiðinni... (Úr Hólmgönguljóðum) / þú ert kveöja frá veröld sem vitjar mín enn þar sem ég bíö lognblár himinn augu og hyldjúpur dagur í senn II þú ert ár og dagar dropar í hafi lögöum við saman af stað inní svarbláan himin tveir dropar af blaði á blaö þessar kveljandi blikur þetta kul þessi koldimma gríma og kyrrstæöa þögn þessi tíma- skekkja og svo þessi dul III þú ert hlédrægt spyrjandi vor og Ijósin kvikna á kyrlátum morgni og blikna viö sólarlag guö milli þín og okkar auga sem fylgist meö hjarta okkar hjarta okkar hvern dag sem þú gefur IV þú ert þögult gljúfur og vatniö rennur um veröld þína, hugsun sem kliöar í mér það er niöur í lofti af fugli sem flytur mér kveöju frá þér V þú ert augabragö líkt og skin milli skúra fer kliöur skálds af sköröum grettismána ÞÍN hraun storkna og grána af mosa eldfjöll blána af himni og vatna- niö VI þú ert freisting mín og senn verö ég úti í aprílbyl þinna brosandi augna þú ert ögurstund í ævi minni og senn verö ég aöeins til í ótta og freistingu þinni, farínn á fund minna hörðu drauma VII þú ert augu á hverjum fingri mér tvö augu einn himinn angist í báöum tveim og þangbrúnt rótið þangbrún viö tíma og sker blikar sólin í þeim VIII þú ert húm sem leitar húmi sínu langra daga og Ijóss eins og vatniö leiti vatni sínu vænghvítra stranda hafs sem hljóönar við ós hafs ígreip sinna hvítu handa IX þú ert þessi langa ferö um leynda dóma míns innra manns og vornóttin fléttar í vitund okkar sitt lynggróna teppi sinn draum og sinn haustlega blómakrans 1977/1980, maí. VERÖLD

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.