Lesbók Morgunblaðsins - 27.09.1980, Blaðsíða 2
Er hugsanlegt aö samband sé milli
eldgosa í Heklu og virkjunarfram-
kvæmda í nágrenni hennar? Líklegar
orsakir þess hvaö þaö er stutt á milli
eldgosa í Heklu nú, gætu verið
þessar: Jafnvægisröskun jaröskorþ-
unnar, vegna hækkunnar í Þórisvatni
og Sigöldulóni og aukin grunnvatns-
þrýstingur vegna leka úr þessum
vatnsuppistööum. Hvor þessara
þátta fyrir sig, eöa saman.
Þó aö þetta Heklugos sé stórbrot-
iö, er vel hugsanlegt aö þá sé innan
þeirra stæröarmarka, aö virkjunar-
framkvæmdir geti valdiö eldgosinu.
Erlendis er það þekkt, aö uppistööu-
lón hafa valdiö jarðlagaröskun og
jaröskjálftum. Þar er þó byggt á
20—30 km. þykkri jarðskorpu, og
Haraldur E.
Logason
Flýta
Heklugos borin saman við veðurfarsbreytingar
uppistöóulón
fvrir Heklugosum?
ekki á gossvæöum, þannig aö þær
jaröraskanir tengjast ekki gosvirkni.
Þess vegna er ekki óiíklegt aö
uppistööulón, á jarðskorpu sem ekki
er meira en 5—10 km. þykk og auk
þess krosssprungin eins og hér er,
geti haft veruleg áhrif á jarðskorpuna
undir og umhverfis lónin og þegar
uppistööulónin eru á eldvirknisvæöi,
meö Heklu skammt undan, er
ástæöa til aö athuga máliö frá
ýmsum hliöum.
Þegar Heklugos frá landnámi og
fram aö þessu gosi, eru borin saman
viö veöurfarslínurit, þá er áberandi
aö flest gosin veröa á tímabilum, sem
Höfundurinn er áhugamaður
um jarðfræði og hefur áður í
Lesbók haldið því fram, að vatn
sem kemst niður í berggrunn-
inn geti flýtt fyrir gosi, en
einkum og sér í lagi valdið
öskugosi. Samkvæmt kenningu
hans er samhengi á milli
virkjunarframkvæmdanna á
hálendinu og öskufallsins, sem
varð í nýliðnu Heklugosi.
Lónið við Sigölduvirkjun
eru yfir meöalárshita. Þaö gæti bent
til þess að Hekla sé viökvæm fyrir ytri
þáttum, svo sem aukningu grunn-
vatns, eöa þyngdarröskun jaröskorp-
unnar vegna breytinga á stærö jökla
eöa jökullóna.
Vatnsmiölunarlón viröast nú vera
aö bætast viö þá þætti, sem geta
sennilega aukiö virkni Heklu meira en
grundvallar jaröskorpuhreyfingar
gefa tilefni til. í grein um Heklugosið
1970, lesbók Mbl. 26. tbl. 45. árg.,
benti ég á aö virkjunarframkvæmd-
irnar kæmu til meö aö hafa áhrif á
Heklu í framtíðinni. Þar lagöi ég til að
boraö yröi við Heklu, til aö fylgjast
meö þróun mála og Hekla gefur
tilefni til aö ítreka þaö núna.
Heklugosið gefur ástæöu til aö
athuga öryggi og afkomu lands-
manna frá fleiri sjónarhornum, en
þeim er snúa aö virkjanamannvirkj-
um eingöngu, þegar virkjaö er á
eldvirknisvæðum. Þó aö öruggt sé aö
áfram muni gjósa, hvort sem virkjun-
arlón eru á svæöinu eöa ekki, bæöi í
Heklu og annarsstaöar. Þó er umtals-
veröur munur á einu gosi á öld, eöa
tíu. Og þaö er ekki líklegt aö hagstæö
vindátt veröi alltaf þegar Hekla gýs.
Þess vegna þarf aö koma á
rannsóknum á því hvort hvort hægt
sé aö draga úr líklegri ofvirkni Heklu,
meö því aö ná hugsanlegu grunn-
vatnsstreymi upp sem gufu, áður en
þaö kemur af staö öskugosum, eöa
leita annarra ráða sem draga svo úr
þeim þáttum, sem valda öskumynd-
un, að Hekla gjósi ekki oftar en hún á
vanda til ótrufluð. Þaö er meira en
nóg.
Mörg atriöi sem snerta þetta mál
er hægt aö tína til. En ég vil aðeins
endurtaka aö þaö þarf aö huga aö
fleiri þáttum en öryggi virkjunar-
mannvirkja þegar ráöist er í fram-
kvæmdir á aöal gossvæöum lands-
ins.
©