Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1981, Qupperneq 8
Ekki er ótrúlegt, aö fólk sem nú er komið
á miöjan aldur eöa meira minnist erlendrar
útvarpsstöövar einnar, sem truflaöi mjög
íslenska útvarpið. Ríkisútvarpiö var þá enn
á barnsaldri og vanviða, ef svo má segja.
Afl íslensku stöövarinnar var þá mjög lítið,
og var langt í frá að alls staöar heyrðist
nægilega vel. Úr þessu var fyrst bætt, að
mig minnir 1938, er afl stöðvarinnar var
aukið stórlega. Þá var haldin ráðstefna
evrópskra útvarpsstöðva, og voru þá þar til
samninga fyrir okkar hönd útvarpsstjórinn,
Jónas Þorbergsson, og verkfræðingur út-
varpsins, Gunnlaugur Briem. Útvarpið fékk
þarna hagstæöari langbylgju en það haföi
áður, og truflunum að utan, sér í lagi frá
einni stöö, gætti stórum minna. Þetta var
góð lausn, enda fögnuðu henni margir,
ekki síst Austfirðingar, sem einna verst
voru leiknir hvað þetta snerti.
En hver var þá þessi leiða útvarþsstöð,
er truflaöi svo mjög útsendingar okkar
ágætu, en veikbyggðu útvarþsstöðvar?
Þetta var Kalundborg. En hvar er þá þessi
borg? Ég geri ráð fyrir að allir, sem komnir
eru í barnaskóla viti það nokkurn veginn.
Nánar tiltekiö er Kalundborg á vestur-
strönd Sjálands, nokkurn veginn þar mið-
svæðis. Næstum beint í vestur frá Kaup-
mannahöfn. Liggja tvö nes þar út í
Stórabelti. Inni á milli þessara nesja liggur
bærinn, sem ég ætla að gera tilraun til að
lýsa fyrir lesendum þessa rits. Nyrðri
skaginn eöa nesiö heitir Rosnæs, og nær
Sjáland þar lengst í vestur, en hinn syðri
nefnist Asnæs. Hann er langtum stýttri en
sá fyrrnefndi.
Viö gerum ráð fyrir, að þú, lesandi
góður, sért kominn til Kaupmannahafnar.
Þú ert búinn að dveljast þar í nokkra daga
og skoða það sem hugurinn girnist og
skemmta þér á ýmsan hátt. En nú kemur
þér allt í einu í hug, aö líklega sé
Kaupmannahöfn ekki öll Danmörk. Gerum
einnig ráö fyrir, að sumar sé og sólskin. Þá
langar mann upp í sveit, ^eöa aö minnsta
kosti þangaö sem meira er um opin svæði
en gengur og gerist í stórborgum. Menn
vilja hrista af sér borgarrykið og allt sem
því fylgir. Sagt hefur veriö að allar
stórborgir séu eins. Þjóðverjar segja: „Alle
grossen Stádte sind gleich."
Þú hefur nú gert alvöru úr því að bregöa
þér út úr stórborginni meö öllum sínum
strætum, stórbyggingum og turnum. Þeir
eru að vísu ekki víða fegurri en í Khöfn,
enda er hún oft nefnd „borgin með fögru
turnana".
Þægilegast er fyrir þig aö bregða þér
þetta í járnbrautarlest. Þú ferö inn á
Hovedbanegárden og heldur síðan niður á
brautarpall, þar sem sþor 3 og 4 eru hvoru
megin. Þú leggur t.d. af stað kl. 8,04 og ert
kominn til Kalundborgar kl. 9.43. Farið er
um Valby, Tástrup, Roskilde, Lejre,
Hvalse, Holbæk og fleiri bæi. Þetta er
fagurt landslag, smá sveitaþorp og stærri
bæir á víð og dreif. Skógarlundir hér og
þar. Sveitabæirnir hvíla eins og í skjóli
þessara trjálunda. Allt er landið ræktað, og
víðast hvar einhvers konar korntegundir.
Akrarnir bera því ýmsa liti, allt eftir því
hvaö á þeim vex.
En nú ert þú kominn til Kalundborgar,
lesandi minn. Þú hefur ekki fundið mikið
fyrir ferðinni. Það er nefnilega afar rólegt
og áhyggjulaust að ferðast með lest. Þú
verður bara aö gæta þess að vera kominn
inn í lestina áöur en flautað er til brottfarar.
Dyrunum er þar næst harölæst með
sjálfvirkum útbúnaði. Sama gildir, þegar
numiö er staðar. Þá verður þú að vera
snöggur að koma þér út, því að víöast er
viðstaöan mjög stutt. Þá er betra að
gleyma ekki einhverju af farangrinum inni í
lestarklefanum. Ekki er minna stoliö þarna
en hér heima. Líklega heldur meira, eftir
því sem blöðin herma.
Löngu áður en þú ert kominn til
Kalundborgar, sérðu háa byggingu með
fjórum háum reykháfum uppaf. Þetta er
Asnæsværket, risavaxið orkuver, sem er
hið stærsta í Danmörku og sér meginhluta
Sjálands fyrir raforku. Þegar þess er gætt,
að hér er um orkuver, sem framleiöir 806
þúsund kílóvött brúttó, þarf mikið af kolum
8
Höfnin í Kalundborg er góð frá náttúr-
unnar hendi. Einnig hefur hún verið dýpkuö
mjög og er nú hægt aö afgreiöa þar skip,
er rista allt upp í 13 metra. Þar frýs sjór
atdrei. Ferjur ganga í sambandi viö járn-
brautarlestir frá Kalundborg til Sámseyjar
og Árósa, einnig til Juelsminde. Oft er því
margt um manninn í þessum bæ. Þetta er
mikill feröamannabær. Og margt að sjá
og skoða. Hér eru haldnar ráðstefnur,
fleiri en taldar verði. Minjar frá miðöldum
heilla þá, sem sögu og fróðleik unna.
Kalundborg var ein best varða borg í
Danmörku. Þá var hún fjórða stærsta
borg landsins. Hluti borgarvirkjanna sést
enn, en mestur hluti þeirra er kominn
undir byggingar. Rústir þessara borgar-
virkja eru friðaðar, eins og að líkum
lætur. Líkan hefur verið gert af Kalund-
borg, eins og hún leit út um miðja
sautjándu öld. Stærsta bygging innan
borgarmúranna var höllin. En svo réöust
Svíar á borgina í styrjöldinni 1658—1660
og lögöu hana svo aö segja í rústir. Innan
þessara borgarmúra er gamli bærinn með
- Auðunn Bragi Sveii
Úr rósagarðinum við Lerchenborgarhöll. Höllin í baksýn.
Kírkjan fræga í Kalundborg með turnana fimm.
og olíu til aö knýja það. Hér er ekki um
vatnsorku að ræða.
Þá sést gamla kirkjan úr nokkurri
fjarlægö, vegna þess hversu há hún er og
stendur hátt. Þessi kirkja er með fimm
turna. Einstök í Danmörku og þótt víðar sé
leitaö. Guöshús þetta lét Esbern Snare
byggja seint á 12. öld. Hann var uppi
1128—1204. Hann var bróðir Absalons
biskups, sem tallnn er faöir Kaupmanna-
hafnar. Esbern Snare studdi Valdimar
mikla, en hann var uppeldisbróöir hans.
Baröist gegn Vindum, herskáum þjóö-
flokki, er hélt sig kringum Eystrasalt.
Miöturn kirkjunnar, en hann er langhæstur,
hrundi árið 1827. Kirkjan var síöan endur-
byggð á árunum 1867—71. Þaö sem vekur
einna mesta athygli gestsins er þó ekki
sjálf kirkjan, heldur hinir snyrtilegu og
fögru smárunnar sem eru fyrir framan
hana. Ekki finnst mér nú kirkjan tiltakan-
lega fögur hiö innra, en aö utan er hún
einstæð í sinni röð. Merki bæjarins er fimm
turnar rauðir á Ijósum grunni. Er þaö vel
viö hæfi. Ef þú, lesari minn, kemur til
Kalundborgar, ættir þú aö skoöa þessa
kirkju. En aöra kirkju vil ég benda þér á, en
hún nefnist Nyvangskirkjan. Nýlegt guös-
hús — úr Ijósum múrsteini. Hún er ávöxtur
nútíma byggingarlistar, þaö er greinilegt.
Enn birtast augum háir turnar. Eru þaö
möstur útvarpsstöövarinnar. Þau eru
geysihá. Sjálf útvarpsstööin er úti við
sjóinn, þar sem heitir Gisselore. Þar er
baöströnd mjög góð. Þar gefur aö líta um
sumartímann fjölda fólks ýmist liggjandi í
heitum sandinum eða buslandi í sjónum,
glóðvolgum. Hér gefur fólkiö sér tíma til að
njóta veðurblíðunnar og náttúrunnar. Hér
er ekki þessi yfirþyrmandi vihna eins og hér
heima, þar sem enginn hefur helst tíma til
neins nema aö vinna og sofa.
allar sínar fornu byggingar, er hafa veriö
endurreistar. Hér er Lindegárden. Löng
bygging. Þar er fornminjasafn mikiö, sem
komið var á fót 1910 og hefur síöan veriö
opið almenningi. Ailt er vel um gengiö. Viö
göngum stofu úr stofu og sjáum húsgögn
þau, sem notuö voru af gengnum kynslóð-
um. Úti á hlaöinu er gömul fallbyssa, af
minni gerðinni. Skotiö er úr henni púður-
skotum fyrir ferðamenn. Þá er þarna að
finna alveg einstætt safn kvenbúninga frá
Rasnæs. Gegnir furöu, hversu fjölbreyti-
legir þeir hafa verið.
Skammt frá kirkjunni gömlu er gamalt
hús, Gyths Gárd. Á þessu húsi er minn-
ingartafla, þar sem á stendur, að rithöfund-
urinn Sigrid Undset hafi fæöst hér áriö
1882. Var hún dóttir virts fornleifafræö-
ings. Fór ung til Noregs, og er talin norskur
rithöfundur. Þessi merka kona varð þess
heiðurs aönjótandi aö hljóta bókmennta-
verðlaun Nóbels áriö 1928. Allir kannast
viö bækur hennar um Kristin Lavransdatt-
er, sem þýddar hafa verið á íslensku. Er
Noregur var hersetinn af Þjóöverjum í
síðustu heimsstyrjöld, flýöi Sigrid Undset til
Bandaríkjanna, gegnum Svíþjóð. Heim
kom hún eftir stríöiö, en liföi stutt eftir það.
Andaöist áriö 1949. — Á næsta ári er öld
liðin frá fæðingu þessarar merku skáld-
konu. Er þegar byrjaö að undirbúa hátíöa-
höld í fæðingarborg hennar af því tilefni.
Þá veröur ekki svo lítið um dýröir. Danir
eigna sér nokkuð í þessum fræga rithöf-
undi, þar eð hún var oröin 11 ára, er hún
hvarf til Noregs og bjó aö mestu upp frá
því. Bernskuminningar Sigrid Undset heita
Elleve ár. Trúiega veröur einhverjum ís-
lenskum rithöfundi boöiö til Kalundborgar,
þegar þessi hátíöahöld fara þar fram á
næsta ári.
Þá vil ég minna á Lerchenborg úti á
Asnæs. Þetta er í aöeins 8 km fjarlægð frá
Komíð
Kalundborear