Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1981, Side 15
spámannlegu orð árið 1801 um gjöf
sína til mannkynsins: „Gereyöing bólu-
sóttar, hræöilegustu plágu mannkyns,
verður aö vera hinn endanlegi árangur
þessarar aðferðar.“
Hann hlýtur að hafa veriö fyrsti
maðurinn til að boða útrýmingu bólu-
sóttar. En sá hann það jafnvel fyrir, að
bólusetningunni sjálfri gegn sjúkdóm-
inum myndi Ijúka aö fullu?
Hvað sem því líður, þá hefur þaö
gerzt. Fyrsta sinn sem opinberlega var
bent á, aö útrýming sjúkdómsins
myndi einnig tákna lok bólusetningar
gegn honum, var árið 1958 í ályktun
11. ársþings Heilbrigöismálastofnun-
arinnar. í henni var lagt til, að hafin
yrði áætlun um útrýmingu sjúkdómsins
um heim allan og á það bent af
bjartsýni, en þó réttilega, að „með
útrýmingu bólusóttar myndi bólusetn-
ing gegn henni og öll útgjöld samfara
þeirri aðferð verða óþörf“.
Þannig hefur sigur unnizt á bólusótt-
arsýklinum. Um aldir fór bólan mis-
kunnarlaust um heiminn og drap
a.m.k. einn af hverjum fimm, sem
sýktust, og oft tvo af hverjum fimm og
blindaði milljónir varanlega.
Dr. D.A. Henderson, sem stjórnaöi
útrýmingarhernum gegn bólusóttinni,
segir sigri hrósandi: „I dag eru bólu-
sóttarsýklarnir fangar, lokaðir inni í
glösum, sem geymd eru í öruggri
gæzlu í sex rannsóknarstofum.....
Aö sjálfsögðu er Henderson himin-
lifandi yfir árangri manna sinna í
baráttunni gegn „fyrsta sjúkdómnum,
sem maðurinn hefur útrýmt“. Hann
segir: Þeir sem gleggst muna þján-
ingar fórnarlamba hans, hjúkrunarfólk,
sem af mikilli kostgæfni annaðist
skipulegar bólusetningar, og sóttvarnir
eftirlitsfólks, sem kannaði vandlega öll
bólusetningarskírteini, á bágt með að
trúa því, að „einstök" tilfelli séu
nokkurs staðar til. Trúveröug gögn,
sem tugþúsundir manna og kvenna í
heilbrigðisþjónustu hafa aflaö, bera
því nú vitni, aö bólusótt sé sjúkdómur,
sem heyri sögunni til.“
Dr. Halfdan Mahler, aðalforstjóri
WHO, horfir langt fram á veginn, þegar
hann segir: „Endalok bólusóttarinnar
er fyrir WHO aðeins endirinn á byrjun-
inni. Sigurinn yfir bólunni táknar miklu
meira heldur en þaö, sem varðar þá
einstaklinga, sem hlut eiga að máli.
Hann sýnir fram á, aö við getum breytt
heiminum í kringum okkur til hins
betra meö samvinnu og sameiginlegu
átaki, með beitingu mannlegs máttar
og sigurvilja. Sigurinn kemur sem
ferskur blær til seglskips, sem of lengi
hefur legiö í logni, og verður okkur
hressileg hvatning, um leið og við
tökum stefnuna á „Heilbrigði öllum til
handa árið 2000“.
Eitt af mörgum fórnarlömbum bólusóttar.
„Núverandi ástand í Þriöja heimin-
um er allsendis óviðunandi. Það er lítil
lífshamingja eða nokkurt réttlæti til
handa barni aö vera dæmt til að þola
sjúkdóma eða bráðan dauða fyrir þá
sök eina að fæðast í þróunarlandi.
Útrýming bólusóttar er tákn —
merki um það, hvað áunnizt getur með
því að brjótast út úr hring sjúkdóma
og fátæktar.“
Og vissulega tákn um það, sem
hefur áunnizt og er að nást á mörgum
sviðum í baráttunni við banvæna
sjúkdóma.
Útrýming bólusóttarinnar tókst fyrir
tilstilli bólusetningar, sem hugvits-
samlega var upp fundin 14. maí 1796,
þegar enskur sveitalæknir, Jenner, tók
efni úr kúabólusári á hendi mjaltakonu
og sprautaði því í handlegg átta ára
gamals drengs — og reyndi svo tveim
mánuðum síðar að sýkja drenginn
með kúabólu, en komst að raun um,
að það var ekki hægt.
Hvorki Jenner né neinn annar gat
læknað bólusótt meö lyfjum, en þeir
gátu komið í veg fyrir hana.
—Svá— úr „To the Point“
hann og velta honum upp úr duftinu.“ Þeir
flettu upp lögbókinni, fundu hann sekan —
og dæmdu hann.
Hann skyrpti á dóminn.
Loksins fór að honum sveit manna og
yfirbugaöi hann, því aö þarna riðu hetjur
um héruð eins og fyrri daginn. Þær gáfust
ekki upp fyrir sakamanninum, heldur tókst
þeim með guðs hjálp að koma honum í
tukthúsiö syðra og svelta hann þar í fimm
sólarhringa. Síðan eru liðin 90 ár.
Kominn er tími til aö gera upp reikn-
ingana viö samtíð hans, og við mannorös-
veiðibjöllurnar, sem lagt hafa drít sinn á
leiði hans — og falið Þjóðskjalasafni til
varðveislu.
Bókin um Daníel er felld í form skáldsög-
unnar þó að sönn sé. Formið er stakkur
sem verkinu er skorinn. Hann veröur að
fara því vel. Tilmynda er mikilvægt, að
Ijúka því á réttum staö. Ég lauk „Bókinni
um Daníel" þar sem hann kemur heim úr
tukthúsinu og heilsar Guðrúnu konu sinni,
sem aliö hefur barn meöan hann var
fjarverandi og liggur nú á sæng. Liönir voru
níu dagar síðan liö sýslumannsins yfirbug-
aði hann og flutti hann burt. Þá hafði hár
Guðrúnar verið svart. Nú sá hann ekki
betur en þaö heföi skipt um lit. Þaö var
orðiö hrímgrátt að lit. „Annaö hafði ekki
breyst í Kaldárholti." Á þessum oröum
endar bókin.
En ég var búinn að skrifa meira —
nokkur blöð sem ég sneiö aftan af verkinu
— formsins vegna, því að form skáldsög-
unnar kraföist þess, sjónarmið fróöleiks-
miðlunar varð að víkja. Hér eru fáeinir
punktar úr því sem ég sneið burt:
„. . . Það breyttist ekki að marki fyrr en
rúmum áratug seinna — þá gerbreyttist
það — eftir að Guölaug Melbýs var fallin
frá. Fáum mánuöum eftir að heföarkonan
var gengin til moldar barst Daníel útbygg-
ingarbréf frá manni nokkrum í fjarlægri
sveit. Hann var búinn að kaupa Kaldárholt-
iö af Árna leturgrafara. Útbyggingarsökin
var sú, aö Daníel heföi oftsinnis lánaö
nágrönnum sínum siægjur án þess aö leita
leyfis landeigandans.
Nýi jarðeigandinn lagði svo fyrir, að
Kaldárholtið allt skyldi rýmt næsta vor
snemma. Honum lá á. Hann hafði ásett sér
að verða mestur bóndi í héraðinu og gera
Kaldárholtið að einbýlisjörð aftur, eins og
hún hafði verið fyrir hundrað árum, í tíð
Árna Þorsteinssonar.
Fjölskyldu Daníels brá í brún, en Daníel
geröi ekki annað en kipra augu sín og
bregöa við grönum lítið eitt.
„Ekki vonum fyrr, aö leturgrafarinn sýni
okkur sitt rétta andlit,“ varð honum að
oröi. „Betra er seint en aldrei.“
Það höföu oröið tíð prestaskipti í
Guttormshaga undanfarin ár. Eftir séra
Ólaf (ísleif) kom séra Ófeigur, eftir séra
Ófeig kom Ríkharður Torfason. Á útmán-
uöum árið 1904 fór séra Ríkharður og
enginn prestur væntanlegur í staðinn. Búið
var aö sameina Upp-Holtaþing og Land-
prestakall og sálusorgarinn sestur aö á
Fellsmúla. Landsjóður átti Guttormshag-
ann, jörðin var mikils metin, nú var hún
laus.
Tveir synir Daníels, þeir Þorsteinn og
Daníel, riöu suöur á góu og föluðu
Guttormshagann til ábúöar. Þaö ótrúlega
gerðist: Þeir fengu hann.
Þeir létu hjá líöa að heimsækja frænda
sinn á Skólavöröustígnum í þessari ferö.
Enginn annar en hann gat hafa lagt nýjum
eiganda Kaldárholtsins upp í hendur gilda
útbyggingarsök, svo að hægt væri aö gera
Daníel útlægan þaðan.
Þegar hér var komiö, var fjölskylda
Daníels þessi: Kona hans og tengdamóöir,
þrír synir og sá yngsti þeirra vangefinn að
nokkru, sá sem fæöst haföi 1891, auk þess
dóttirin Guðrún tólf ára. Sigurður var farinn
til Eyrarbakka, gullið og silfrið hafði
freistaö hans, hann var orðinn lærisveinn
meistarans í Regin — aö yrkja skartgripi í
dýran málm.
Sagt er að Davíö konungur hafi gengiö
berfættur og grátandi yfir lækinn Kedron,
þegar Afsalon sonur hans hafði hrakiö
hann út úr borg hans, Síon. Daníel gekk
einnegin berfættur út úr sinni borg,
Kaldárholti, rekinn þaðan fyrir tilverknað
Árna fóstbróður síns, sjötíu og þriggja ára
að aldri, á einmánuöi 1904. Þá var snjóföl á
jöröu og klakaskarir á hvurjum polli í
mýrinni. Enda þótt hann hefði alla ævi
óskað sér héöan burt, hafði hann í
veruleikanum aldrei fundiö sér neinn staö
annan. Margsinnis höfðu spor hans legið
frá Kaldárholti, stefnulaust út í óvissuna, en
jafnoft heim þangað aftur. Aflið, sem
stendur dýpri rótum en vit mannsins, dró
hann til baka. Hann laut þessu afli án þess
að geta réttlætt það. Það varð svo að vera.
Þangað til núna. Nú lágu spor hans þaðan
burt, og aldrei til baka meir. Óvíst er hvort
þau spor hafi veriö honum léttari heldur en
spor biblíukonungsins höföu forðum verið
honum. Hugraun beggja gæti hafa verið
sambærileg, en þurr og hörö voru augu
Daníels.
Og er kominn á nýjan stað núna — fyrir
einum mánuði. Kvöldsett er orðið og loft
heiðskírt. Daníel er fluttur í timburhús
prestanna. Hann stendur viö austurglugga
og horfir á skuggann af burstinni, sem sker
stærri og stærri sneiðar af sólskini varp-
ans. Egg skuggans sneiðir niöur bjart
bæjarhlaöið, og bráðum er ekkert eftir af
því. Nema það er dökk mold í skugga og
eitt og eitt fótspor mótað í hálfhring —
hans eigin spor hálfmánalöguð stigin
snemma í vor, meðan ennþá var grunnt á
klaka og mikil for. Bráölega munu þau
mást út og arfinn gróa yfir þau. Heimili
mannsins er þar sem hjarta hans finnur fró.
Þangað er ferðinni heitiö. En aldrei ná
sumlr þangað alla leiö — og deyja á fjallinu
Nebó.
10.5. 1981.
15