Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1982, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1982, Qupperneq 13
gott var. Hann gat hlaupiö hraöar en nokk- ur annar drengur í bekknum. Gufan af andardrætti hans stóö út úr munninum eins og reykurinn úr löngu pip- unni hans pabba. Hann saug upp i nefiö og skipti aftur um hönd á körfunni. Svo gaf hann sér tíma til aö þurrka sér um nefið á peysuerminni. Nú var skógurinn ekki leng- ur eins og neitt fjall og hann gat séð reyk- inn úr reykháfnum á húsinu. Hann heyröi líka axarhögg, faöir hans var aö fella tré. Landeigandinn merkti sjálfur hin dauöa- dæmdu tré. Svo stóðu þau þarna og vissu ekki neitt þar til þau fundu öxina fara gegn- um stofninn. Fram að þeirri stundu líktust þau öllum öörum trjám og héldu aö þau mundu standa þarna i þaö óendanlega og blakta i vindinum, skjóta nýjum sprotum á vorin og missa svo allt þegar kuldinn kom, svo aö vesalings íkornarnir sáust langa leið. Hann kenndi í brjóst um þessi tré, en tré finna víst ekki neitt til, sagöi móöir hans. Litlu íkornarnir vissu ekki heldur aö átti aö skjóta þá, og þaö var ekkert sárt aö fá kúlu í hjartaö. Aöeins veiöiþjófarnir voru vondir af þvi aö þeir hittu oft illa og létu svo dýrin liggja og þjást þar til faðir hans fann þau. Faöir hans elskaði dýr, þau áttu þrjá veiðihunda og einn smáhund sem bráðum átti að skjóta, afþvi aö hann var aö fara úr hárum og litli bróöir fékk hósta af öllu þessu hundahári. Það haföi læknirinn sagt. John þótti annars mjög vænt um þennan hund. Það var engin smáræðistruflun sem sá litli hafði í för meö sér. Um miöja nótt var maður vakinn af þvi að hann grenjaöi svo mikið, og jafnvel þegar John setti nýtt hraðamet á leiðinni frá bakaranum eöa heim úr skóla, henti það aö móöir hans gleymdi aö hrósa honum. I vonbrigöum sínum vakti hann þá sjálfur athygli á þessu: i dag var ég bara tíu minútur, mamma. — Þá leit hún snöggvast til hans og sagöi: Ó, drottinn minn, þú ert svei mér duglegastur af öllum, hvað gætum viö gert án þín? En þaö var ekki sami gamli galsinn yfir þvi. Án þess aö hugsa út í þaö, hægöi dreng- urinn á sér síöasta spölinn. Mjólkin gutlaði i flöskunni. Þaö er ótrúlegt hvaö þessi kút- ur getur svolgraö í sig, sagöi móöirin þegar barnið lá viö brjóstið. í allt öörum tón en þegar þau sögðu (þaö var nú aðallega faö- irinnj: hvað þessi strákur getur boröaö, hann étur okkur út á gaddinn. En þá var það John sem hann átti við. Og maturinn stóö fastur í hálsinum á honum og roöi hljóp fram í kinnarnar. Þá hló móöirin og klappaði á kollinn á honum: Bara aö hann geti stækkaö aö sama skapi, sagöi hún vingjarnlega. Og faöirinn hafði þá sem sagt ekki meint neitt illt méö þessu. Og þó! Hann stökk upp á snjódyngju í vegar- kantinum og renndi sér niöur, svo upp á næstu. Hann hló aö þessum litla leik og gleymdi því aö hann var störfum hlaöinn. Heima lá mamma veik vegna litla bróöur, innan skamms kom pabbi heim úr skógin- um og þurfti sjálfur að matreiöa meöan John lagöi á borö. Þaö var svo undarlegt að boröa meö honum einum. Þegar hann var i góöu skapi stnddi hann drengnum. Jæja, John framtönn, sagöi hann, hefurþér liöiö vel i dag? Hann haföi misst tvær fram- tennur og pabbi hans fullyrti aö þær kæmu aldrei aftur. Þvaöur, sagöi móöir hans gremjulega, barniö gæti haldiö aö þetta væri satt! Ó, mamma hans. Svo mjúk, svo hlý, svo góö. Siöasta spölinn hljóp hann aftur, fram hjá dælunni sem liktist kvefuðum gömlum manni þar sem hún var dúöuö druslum svo hún frysi ekki og húsagaröinum þar sem hlaði af eldiviöi stóð og beiö þess aö veröa stungiö í ofninn. Hann haföi tekið þátt í aö hlaöa þessu brenni i sumar. Hann haföi leikið aö eldiviöarbútarnir væru hermenn og vildi helst raða þeim öllum upp á end- ann, i reglulegar fylkingar. Vinnan var leik- ur hans, og leikur hans var vinna. Allt gekk þannig vel þar til litli bróðir kom. Þá voru blautu bleiurnar sjóræningjaflögg, en hann var þreyttur lítill sjóræningi sem haföi of marga óvini aö fást viö. Og sá litli var prins sem eitt sinn átti aö erfa kóngsriki. John var þræll hans sem hann leitaöi alltaf ráöa hjá í mikilvægum málum. Spyrjiö þræl minn, mundi hann segja, hann hefur séð um pelann minn svo að hann á aö ákveða allt. Hann lyfti klinkunni á hurðinni og gekk inn í eldhúsið. Svo setti hann körfuna á eldavélina og stóð stundarkorn og lagði viö hlustir aö stofunni. Þaöan heyröist kven- rödd önnur en móður hans. Þær höföu ekki heyrt hann koma. Hann heyröi aö þaö var nágrannakona þeirra, frú Petersen, sem oft kom inn og fékk bolla af kaffi. „Já, en eruö þér ekki himinlifandi yfir því aö þaö skyldi loks heppnast?“ Hvaö haföi heppnast? Það var Ijótt að hlusta, en þetta var svo spennandi. „Hvort viö erum, og þér spyrjiö um þaö, eftir öll þessi ár. “ „Þetta heföuö þér bara þurft aö vita þegar þér tókuð John aö yöur!“ Það var kvörtunarhreimur í röddinni og drengurinn stirönaöi upp viö að heyra nafn sitt nefnt. „Ja,“ sagöi móöir hans hikandi, „þess höfum viö aldrei iörast, hann er líka svo góöur og duglegur drengur. “ „Já, gagn hafið þér af honum. “ Þaö var eitthvað í röddinni sem olli nag- andi sársauka innst inni í drengnum. „Nú, frú Petersen, honum er svei mér ekki ofþjakaö, og hann er aldrei ánægöari en þegar hann getur hjálpaö okkur eitt- hvað.“ Nú var mamma móðguð, og John langaöi til aö þjóta inn í stofu og halda meö henni. En hann vildi gjarnan heyra meira hrós um sjálfan sig. „Nei, auðvitaö, “ sagöi hin röddin i hækk- andi tón, „og Guö veit hvaö oröiö hefði um þaö barn ef ykkar heföi ekki notiö viö. Er hann ekki þakklátur? Ja, hann veit þetta vel, er þaö ekki?“ „ Vist er hann þakklátur, “ sagði mamma stutt, og frammi við eldhúsdyr stóö John og var samhuga og þakklátur svo aö augun ætluðu út úr honum, „og auövitað höfum viö sagt honum þaö, slíkt fá börn hvort sem er aö vita fyrr eöa síöar, og manninum mínum fannst þaö vera best. “ Hann tók af sér vettlingana og hlustaöi ekki meira. Hann haföi ákafan hjartslátt. Hann haföi ekki hlaupiö nógu hratt, hann var ekki nógu þakklátur. Hann var ekki eins og regluleg börn. Hann var „pelabarn“. Slæm samviska magnaöist i honum eins og þung, seig leöja. Hann ætlaöi aö kveikja upp i eldavélinni, áður en pabbi kæmi heim. Hann ætlaöi að útbúa pelann handa litla bróður og hræra egg með sykri handa mömmu. Hann ætlaöi aö fara á fætur í nótt þegar sá litli gréti, svo aö mamma gæti legiö áfram, hann ætlaöi — „Guö hjálpi mér, stendur þú þarna John.^_ Frú Petersen batt á sig klútinn og horföi tortryggin á hann. Haföi hann heyrt eitt- hvað? Hann var nú ekki eins laglegur og sá litli þarna inni, fannst henni, svona börn veittu aldrei þá sönnu gleöi, en hann strit- aöi eins og hestur daginn út og daginn inn meðan önnur börn léku sér. Allir töluöu um þaö og hneyksluöust á þvi en fannst þaö innst inni ekki nema sanngjarnt. Drengurinn beygði sig og var hræddur um aö hún tæki i höndina á sér. Hendur hennar voru slyttulegar og illa þefjandi af uppvaski og ööru sulli. Þær minntu hann á dauöu dýrin á eldhúsboröinu, íkornann og skógarmúsina sem faöir hans fékk peninga fyrir aö drepa, og stundum lítið rádýr meö blíö, stirðnuö augu og útstandandi fætur eins og þeir gætu ekki náö sér eftir þá undrun sina yfir því aö allt skyldi vera horf- ið um aldur og ævi. Aö vera skotinn er bara eins og að sofna, sagði móöir hans sem eitt sinn haföi kennt i brjósti um þessi smá- dýr. Frú Petersen fór og drengurinn flýtti sér inn i stofuna. Móðirin lá á legubekknum og virtist þreytt, meö lokuö augu. Sá litli svafi vöggunni viö ofninn. „Var ég ekki fljótur?“ spuröi hann var- lega. Hún opnaöi hægt augun: „Ó, ert það þú, “ sagöi hún, „þú ert sann- arlega duglegur drengur. “ Svo hallaði hún sér aftur. Fyrir utan heyröi drengurinn föö- ur sinn sparka af sér tréskónum og hund- arnir hlupu geltandi til dyra. Hann stóö og horföi á móöur sína opnum munni. Hann ætlaði aö vera ennþá duglegri og hlaupa ennþá hraöar. Hann vissi að hann stóö í skuld viö mannkyniö en greiddi hana meö afborgunum af litlum efnum. Bara að ég væri bráöum oröinn stór, hugsaöi hann og varö syfjaöur af hit- anum í stofunni. Dapur læddist hann fram hjá fööur sínum i litlu forstofunni og fram i eldhúsiö. Faöir hans heilsaði honum ekki, máski sá hann hann alls ekki. „Hvernig líður litla kút?“ kallaði hann. „Suss,“ hvislaöi móðirin bliölega, „hann sefur. “ Svo fór drengurinn aö kveikja upp i elda- vélinni. Kaldir járnhringirnir brenndu sem eldur lopna fingur hans. Þegar þaö sýndi sig, að hinir þá helst til greiöviknu læknar í Kaugmannahöfn voru alvarleg hætta fyrir heilsu mína, keyptum viö hús í Birkerod. Viö fengum lánaöa pen- inga fyrir útborguninni hjá útgefanda mín- um, en hann reiknaöi sér sannarlega okurvexti. Hann geröi sér víst ekki lengur miklar vonir um hagnaö af bókum mínum. Áriö 1949 hafði hann gefið út snotra útgáfu af ástarljóöum mínum, og þó aö sú útgáfa seldist vel var hún ekki sérlega heppileg af því aö hún gerði aö engu endurútgáfu upp- haflegu Ijóðasafnanna. Ég geröi mér þess ekki grein þá og yfirleitt hef ég aldrei haft vit á aö breyta gáfum mínum í beinharöa peninga. Fyrstu árin vorum við fátæk þó aö Victor heföi um tíma ekki færri en fjórar stööur til aö geta staöiö undir erfiöum af- borgunum. En viö kunnum aö spara því aö Victor var líka frá fátæku heimili þar sem þurft haföi aö velta viö hverjum fimmeyring áöur en hann var látinn af hendi. Þaö styrkti einnig samheldni okkar aö uppruni okkar var hinn sami. Þar aö auki var ég barnslega stolt af því að vera orðin aftur „venjuleg manneskja" eftir þessi ofsalegu hliðarstökk mín. Svo var ég hvött til að skrifa útvarps- sögu, og þó aö þaö hentaöi mér ekki aö skrifa eftir pöntun, haföi ég ekki ráö á aö neita því. Mér fannst líka ósanngjarnt aö láta Victor til langframa næstum einan um aö sjá fyrir tveimur börnum sem hann var ekki faöir aö. Mér fannst líka ósanngjarnt aö taka við peningum til þess frá mönnum sem ég haföi yfirgefiö. Ég kæröi mig koll- ótta um hver væru væntanlega réttindi mín lögum samkvæmt. Útvarpssaga mín kom til meö að heita „Viö höfum aöeins hvort annað“. Hún kom út í bókarformi 1954, næstum samtímis og yngsti sonur minn fæddist. Þá voru hin 12 og 8 ára, svo hann kom sem maöur segir „meö seinni skipun- um“. En við höföum alla tíö óskaö þess aö eignast barn saman. I þessari stuttu skáldsögu tókst mér í fyrsta sinn aö lýsa karlmanni, þar aö auki aöalpersónu sögunnar, sem sæmilega lif- andi manneskju. Efniö í hann fékk ég í frásögnum Victors af fortíð sinni. Allt ást- fangiö fólk segir hvert ööru af fortíð sinni, en hann haföi lag á aö gera frásögn sína svo lifandi aö fortíö hans eins og samlag- aðist hugarheimi mínum og blandaöist á furöulegan hátt minni eigin fortíð. Einhvern veginn haföi ég aldrei skynjað fyrri eigin- menn mína öðruvísi en sem leiftur frá þokuhjúpaöri plánetu í fjarska. Þó aö ég, eftir aö æðisgengin ást okkar var farin aö réna eins og hver annar sjúkdómur, héldi samt áfram aö kanna skapgerö Victors af enn meiri atorku en mína eigin, var þaö ekki vegna þess aö ég væri vísvitandi aö safna efni til aö nota siðar i bókmennta- verk. Þaö var mér aöeins nauðsyn á sama hátt og ég haföi eitt sinn reynt aö finna ástæöuna fyrir geðbrigðum móöur minnar í þeirri eilífu von, þó árangurslaust reyndist, aö losna viö óþægilegustu afleiöingar þeirra. Þau líktust hvort ööru alveg ótrúlega, þessar tvær manneskjur, sem höföu og áttu eftir aö hafa svo mikil áhrif á iíf mitt og þar með ritstörf mín. Yfir þeim báöum var eitthvaö ástríðuþrungið og óheillavænlegt sem var vel til þess fallið aö hræða börn og ístöðulítiö fólk. Þaö lá í eðli þeirra án þess aö þau vissu af því. Sameiginlegt meö þeim var einnig aö þau skorti sjálfsstjórn. Þau gátu í andartaks æsingi sagt skelfilegustu hluti viö aöra og í næstu ándrá gleymt því algerlega. Þetta var fremur af (algerum) skilningsskorti en af mannvonsku. Þetta var einkum áberandi hjá Victor því aö hann var annars vel greindur. Ég tala um hann í þátíö þó aö hann — svona til tilbreytingar — sé ennþá lifandi. Viö skildum eftir tutt- ugu og eins árs hjónaband, sem mörg síö- ustu árin var sannkallað helvíti. Engu síöur hef ég aldrei iðrast þess. Viö áttum 7—8 hamingjurík ár í Birkerod, þar sem viö lifð- um einangruð meö börnunum eins og á eyöiey. Frh. á bls. 15. Tove ásamt Halfdan Rasmussen við útdeilingu á bókmennaverðlaunum bókaverzlana, 1956. 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.