Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1982, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1982, Qupperneq 14
Myrkur er i minni sál i þætti fyrir nokkru voru birtar vísur eftir Valdemar K. Benónýsson. Ein byrjaöi svona: Njóttu lengi gota góös. Ég skildi ekki gotakenninguna og sagöi því, ætli þaö merki ekki „líf“? Tveir Húnvetningar hafa nú leiörétt þetta, goti merkir þarna hestur. Þaö er eflaust rétt. Gott aö eiga þá félaga aö, ef ég segi fleiri vitleysur og ef þeir kynnu aö geta gefiö upplýsingar um höf- unda og vísur. Ég sendi Húnvetningum kveöju mína og þeim og öðrum vísnavinum eftirfarandi stökur eftir Jón S. Bergmann, sem var úr- valsmaður í sinni grein. Um frostaveturinn fræga 1917—1918 orti hann: Grimmd er haldin grund og ver, gjólur kaldar vaka, blátær aldan bundin er björtum ffaldí klaka. Þakti aö vanda bárubeð bitur strandafjandi, klakalandió kvaddi meö köldu handabandi. Og þegar loks tók aö vora: Hefur völdin vetur misst, vefjast kvöldin blænum. Vorið földum fanna yst fórnar köldum snænum. Enginn háttur hljómar þungt, heyrist kátt í runni. Hrört og lágt er orðiö ungt allt í náttúrunni. Jón féll frá 1927 á góöum aldri. Hann var úr Miðfiröi, og eru hér aö lokum tvær stök- ur hans: Ekki er gæfan öllum jöfn, ótal sker að grandi. Þrælar ná í þráða höfn þó aö hetjur strandi. Sýknir þola sumir menn sekt á öllum þingum. Grettis böl er arfgengt enn ýmsum Miðfirðingum. Ekki höföu íslenskir vesturfarar lengi veriö í Ameríku þegar þeir hófust handa um aö gefa út blaö. Fyrsta rit þeirra af því tagi kom út seint á árinu 1877 í Lundar- byggö í Kanada. Þaö bar nafniö Framfari, nokkuö stórt í broti, fjórar síöur þéttprent- aðar og átti aÓ koma út þrisvar sinnum í mánuöi. j fyrsta blaöinu birtist þessi vísa og bar heitiö Ráögáta. Hvaö er lífið? Hverfull leikur. Hvaö er ástin? Heitur hver. Hvað er vonin? Hún er reykur. Hvað er heimur? Flæðisker. Þetta er greinilega heimanfylgja frá ís- landi og gæti raunar veriö eftir Kristján Fjallaskáld. Myndi nokkur nema íslending- ur hafa komið jafnmiklu efni í fjórar Ijóðlín- ur eöa endaö á orðinu flæöisker? En hér kemur vísa, sem örugglega er eftir Kristján, og þó munu margir halda aö þetta sé aldagömul höfundarlaus þjóövísa: Myrkur hylur mararál, myrk sig skýin hringa. Myrkur er í minni sál myrkra hugrenninga. Kristján varö ekki gamall maður, fæddur 1842, dáinn 1869. Hér eru til viöbótar tvær vísur eftir hann: Ég er fús og ég er trauður, ég ber glaður votan hvarm. Ég er lífs og ég er dauður, ég er sæll og bý við harm. Ég er óður, ég er hægur, ég kýs allt og neitt ei vil. Ég um alla jörö er frægur, ég hef aldrei verið til. Og þaö er erfitt aö hætta þegar Kristján á hlut aö máli. Hér eru enn tvær: Á ævi minni er engin mynd, hjá austanvérum slyngum. Ég er eins og kláðakind í klóm á Húnvetningum. Ort 1869. Síöasta vísan aö þessu sinni er ein af hinum kunnustu eftir Kristján: Við skulum ekki víla hót þaö varla léttir trega. Og þaö er þó alltaf búningsbót að bera sig karlmannlega. J.G.J. Síðasta umferðin var örlagarík Eftir 16. — Rf6, 17. Re5 standa öll spjót á peöinu á c6. 17. Re5 — Dc8, 18. Hc1 — c5,19. dxc5 — Bxc5? Á Evrópumeistaramóti unglinga í Groningen um áramótin leit lengi vel svo út sem Alon Greenfeid frá Israel myndi vinna veröskuldaðan yfirburða- sigur. Hann hafði teflt af öryggi, ekki tapað skák, en unniö margar vel tefldar skákir. Meöal annarra hafði hann lagt að velli hættulegasta keppinaut sinn, Danann Curt Hansen og að auki þá Jó- hann Hjartarson og Rússann Sokolov, en fyrir sigur sinn yfir þeim síðast- nefnda voru honum veitt feguröarverð- launin á mótinu. Staðan fyrir síðustu umferð var síð- an þessi: 1. Greenfeld 9Vi v. af 12 mögulegum, 2.—3. Hansen og Sokolov 9. Næstu menn höföu 7'h v. Þaö var því Ijóst að jafntefli myndi tryggja Greenfeld a.m.k. deilt efsta sæti. I síöustu umferö átti hann aö tefla viö Rúss- ann Salov, Hansen viö Karolyi frá Ung- verjalandi og Sokolov viö írann Delaney. En eftir aö allt hafði gengiö ísraelsmann- inum í haginn fyrr á mótinu rann lán hans nú skyndilega út. Honum uröu snemma á herfileg mistök og andstæöingur hans náöi að króa drottningu hans inni og vinna hana fyrir hrók. Svart: Salov (Sovétríkjunum) Hvítt: Greenfeld (ísrael) 15. Da6?? Eftir 15. Dc2 er staöan u.þ.b. í jafnvægi. — c41,16. Bf4 Drottningin sleppur ekki út. T.d. 16. Bg5 — ha8,17. Bxf6 — gxf6. — Ha8,17. Db5 — Ha5,18. Dxa5 — Dxa5 og stuttu síðar gafst hvítur upp. Öll von var þó ekki úti þrátt fyrir þetta því Delaney vann óvæntan sigur á Sokolov og Karolyi virtist eiga góða jafnteflismögu- leika gegn Hansen. En Daninn, sem kunnur er fyrir þrautseigju sína, tefldi endatafliö af mikilli nákvæmni og sigraöi um síöir. Hann varö því Evrópumeistari unglinga og hlaut jafnframt alþjóðlegan meistaratitil aö laun- um, dönskum skákunnendum til mikillar ánægju. Lokastaðan varö þessi: 1. Hansen 10 v., 2. Greenfeld 9Vz v., 3. Sokolov 9 v., 4. Salov 8V2 v., 5.-6. Cuijpers (Hollandi) og Stohl (Tékkóslóvakíu) 8 v., 7.-9. Jóhann Hjartarson, Wiedenkeller (Svíþjóö) og Del- aney 7'h v. Þátttakendur voru alls 30 tals- ins. Greenfeld sat því eftir meö sárt ennið, en Hansen veröskuldaöi engu að síður efsta sætiö, þó ekki væri nema fyrir þann taugastyrk, sem hann haföi greinilega framyfir keppinauta sína. Aö lokum skulum við líta á feguröarverö- launaskákina sem er afburöa vel tefld af hálfu Greenfelds: Hvítt: Greenfeld (ísrael) Svart: Salov (Sovétríkjunum) Drottningarindversk vðrn I. d4 — Rf6, 2. Rf3 — e6, 3. c4 — b6, 4. a3 Þessi hægfara leikur, sem komst í tísku fyrir fjórum árum, viröist ætla að verða langlífari en flestir spáöu. — Ba6, 5. Dc2 — d5, 6. cxd5 — exd5, 7. Rc3 — c6, 8. Bg5 — Be7, 9. g3 — 0-0 Hér kemur einnig vel til greina aö leika 9. — Rbd7 til aö geta drepið til baka á f6 meö riddara. Eftir 9. — Rbd7, 10. Bg2 — 0-0, II. 0-0 — He8,12. He1 er komin upp sama staöa og í sjöttu einvígisskák Petrosjans og Korchnois i hitteðfyrra. 10. Bxf6! — Bxf6,11. Bg2 — He8,12.0-0 — Rd7, 13. He1 — Bb7, 14. e4 — dxe4, 15. Rxe4 — Be7?f Eftir þetta veröur svarta staöan afar þröng. Hór kom sterklega til greina aö leika 15. — c5l? og allar líkur eru á því aö staö- an leysist fljótlega upp í jafntefli. T.d. 16. Rxf6+ — Dxf6, 17. Rg5 — Dxg5, 18. Bxb7 — Hxe1+, 19. Hxe1 — Hd8 o.s.frv. 16. Had1 — Rf8 Nú gefst hvítum kostur á afar snjöllum leik sem kemur svörtum í opna skjöldu. Nauösynlegt var því 19. — bxc5, því eftir 20. Db3 — Re6, 21. Rd6?! — Bxd6, 22. Bxb7 — Hb8 lifir svartur af. Rólegur leikur á borö viö 20. Rc4 tryggir hvítum hins veg- ar yfirburðastöðu. 20. Rxf7ll Þessi riddari er friöhelgur, því eftir 20. — Kxf7, 21. Rd6+! — Bxd6, 22. Db3+ — Re6, 23. Hxc8 — Haxc8, 24. Bxb7 vinnur hvítur auöveldlega. — Df5, 21. Rfg5 — h6? Tapar strax. Svartur heföi getaö lengt líf sitt töluvert meö því aö leika 21. — Had8, þó bætur fyrir peðið hafi hann engar. 22. Db3+ — Kh8 Eöa 22. — Bd5, 23. Rf6+ 23. Rf7+ — Kh7,24. Rfd6 — Bxd6,25. Rxd6 — Hxe1+, 26. Hxe1 — Da5, 27. Dd3+ — Kg8, 28. b4 og svartur gafst upp, því hann tapar manni. 14

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.