Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1982, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1982, Síða 16
r Myndir teknar á skemmsta degi ársins, 21. desember Hádegissólin skín næstum lárétt á hluta Laugardalsins og nýju kirkjuna, sem er í smíðum utan í Laugarásnum. Hvergi snjóföl. Þetta var aö minnsta kosti óskatíö fyrir umferðina; ekki einu sinni hálkublettir. Hvern einasta dag í svartasta skammdeginu skein sólin meö vægu frosti og höfðu margír á oröi, aö óvenjuleg fegurð ríkti á þess- um árstíma. Fyrripartur vetrarins var meö þeim köldustu á öldinni. En hitatölur segja aðeins hálfan sannleikann. Þótt hitinn sé í kringum núllið, skiptir þaö ekki máli, ef sólskin er og logn; þá er blíða. Þannig var dag eftir dag í kringum vetrarsólhvörfin á suðvesturhorni landsins og þeir sem komu að noröan höföu orð á, að það væri eins og aö koma í annað land. Hér eru fjórar myndir úr Reykjavík, teknar skemmsta dag ársins, 21. des. Aö ofan til vinstri: Hér sést yfir hluta af Grjótaþorpinu, Herkastalann og út á Tjörnina í hálfgerðu rökkri, en 16 sólin baöar Vatnsmýrina og Reykjanesfjallgaröinn gulbrúnu skini. Til hægri: Jafnvel á Esjunni og öðrum fjöllum í nágrenninu var aöeins örlítiö snjóföl að sjá — harla óvenjulegt á þessum árstíma. Að neðan: Á myndinni til vinstri sést strönd Seltjarnarnessins og austur á Ægisíðu — en sólin varpar fölgulu skini á ísinn næst ströndinni. Til hægri: Þótt frost væri, létu menn það ekki aftra sér frá því aö setja upp sölubúðir úti undir beru lofti við Lækjartorg, en voru bara meö vettlinga viö afgreiösluna.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.