Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.1982, Page 11
Zf Hvað
yitl segja
þýskir um
Mazda 929
Samantekt úr bílablaðinu
Auto Motor und Sport
Japanska fyrirtækið Toyo legustu stöðu fyrir sig við stýrið
Kogyo í Hiroshima hefur lagt
sig mjög í líma við að láta beztu
gerðina af bílaframleiðslu sinni,
Mazda 929, ganga ennþá betur í
augu manna og gera hana meira
aðlaðandi á allan hátt. Á fimm
árum hafa þrisvar sinnum verið
gerðar útlitsbreytingar á þess-
ari rúmgóðu fólksbifreið frá
Austurlöndum fjær.
Með algjörlega nýjum Mazda
929 vonast Japanir núna fast-
lega eftir betri viðtökum hjá
evrópskum kaupendum. í ytra
útliti Mazda 929 er ekkert, sem
minnir lengur á útflúr og þung;
lamalegar línur fyrri gerða. í
stað barok-línunnar, sem meira
var sniðin að smekk banda-
rískra kaupenda, eru það nú
mjúkir, einfaldir drættir og lát-
leysi í formi línunnar, sem ein-
kennir nýju Mazda-gerðina. Til
að sjá er 929 orðin einkar evr-
ópsk útlits með stórum glerflöt-
um, lægra settum miðjulista og
ofurlítið uppsveigðu skotti. Nýja
Mazda-gerðin er því ekki aðeins
orðin mun nýtízkulegri útlits en
fyrri útgáfurnar, heldur hefur
hún einnig miklu minni loft-
mótstöðu í akstri. Við mælingar
tæknimanna Toyo Kogyo reynd-
ist hún hafa vindstuðulinn 0,39,
sem verður að teljast mjög hag-
stæð útkoma.
Nýja gerðin af Mazda 929 er
tíu millimetrum lengri og tíu
millimetrum hærri en fyrri
gerðir. Pjarlægðin milli hjól-
anna og breidd yfirvagnsins er
aftur á móti svo til óbreytt.
Rýmið svarar alveg til þess, sem
er í öðrum sambærilegum teg-
undum í flokki meðalstórra bif-
reiða: Þar er nægilegt rými fyrir
5 manna fjölskyldu.
Það er sömuleiðis nægilegt
pláss fyrir farangurinn, því far-
angursgeymslan er 379 lítrar.
Framsætin, klædd góðu
áklæði, reynast lika einkar
þægileg’; þegar bíllinn tekur
krappar beygjur, kemur m.a. í
ljós, að sætin hafa rétta lögun
og veita stuðning. Þá ber að
nefna enn einn kostinn: Öku-
maðurinn getur stillt sæti sitt á
alls 8 mismunandi vegu. Þar
sem stýrið sjálft er stillanlegt í
öllum Mazda 929-bílum, getur
ökumaðurinn fundið þægi-
— en að vísu ekki fyrr en eftir
allmargar tilraunastillingar.
Vélin er svo til alveg óbreytt
frá fyrri gerðum Mazda 929, að
örfáum minniháttar breyting-
um þó undanskildum, og einnig
að því er varðar þyngd vélarinn-
ar sjálfrar, en hún er núna orðin
tíu kílóum léttari en áður.
Tveggja lítra — fjögurra
strokka vélin í Mazda 929, sem
einnig er að finna í Mazda 626
coupé, er mjög nýtízkulega
hönnuð, en í reynd er þessi vél,
sem nær 90 hestafla hámarks-
afköstum við 5000/mín þó ekki
beinlínis bezta útgáfan af bílvél.
Hún virkar tiltölulega dræm
og heldur treg í snúningi; þegar
hún hefur náð hámarkssnún-
ingshraða verður hún svo há-
vær, að ökumaðurinn kýs heldur
að halda henni á lægri snún-
ingshraða til lengdar. Gang-
setning og sjálfur gangur vélar-
innar í köldu veðri uppfyllir
heldur ekki strangar kröfur.
Þegar mjög kalt er í veðri,
krefst gangsetning vélarinnar
bæði alllangs tíma og nákvæmr-
ar stillingar á innsoginu.
Sparneytni er heldur ekki
sterkasta hlið vélarinnar í
Mazda 929, því á mesta hraða
notar hún 12,8 lítra á 100 km.
Með tilliti til ökuhæfninnar,
sem ekki getur talizt neitt sér-
stök (viðbragð í 100 km/klst er
nákvæmlega 14,1 sekúnda, en
hámarkshraðinn verður 162,2
km/klst), er benzínnotkunin al-
veg greinilega of mikil.
Ástæðan fyrir því, að Mazda
929 skortir nokkuð skerpu eru
þau hlutföll sem Japanirnir
hafa á gírunum. Þetta hefur í
för með sér, að í hraðakstri
neyðist ökumaður Mazda 929 oft
á tíðum að skipta upp í þriðja
gír til þess að komast greitt
áfram. Gírskiptingar eru hins-
vegar liprari. Gírstöngin gengur
auðveldlega og nákvæmlega í
rásina, nema í 5. gír.
Japönsku bílasmiðirnir hafa
lagt mjög mikið upp úr breyt-
ingum á undirvagninum. Fyrir-
komulagi hjólafestinga og fyrir-
komulagi á festingum kúlunnar
hefur verið breytt og auk þess
eiga diskahemlar á afturhjólum
að sjá um betri og jafnari heml-
Nýtt útlít, sem einkennist af einfðldum Ifnum: Snotur bíll.
Kflformið enn einu sinni: Skottið sveigist upp, er þykkara en áður og
farangursrými því meira.
Afskaplega japanskt mælaborö, en engu að siöur vel hannað.
Mazda 929 er það stór, að rými er sæmilega gott, bæði að framan og
aftan.
Mazda - 929
Útbúnaður
• styrkt framrúða
• litskyggning á rúöum
• halogen-framljós
• útispeglar, hægra og
vinstra megin, stillan-
legir að innan
• hægt aö stilla hæö stýr-
isins
• miðstýrð læsing á dyrum
• check-control
• mælir f. aksturslengd
• klukka
• aðvörunarbjalla, sem
hringir, þegar bílnum
hefur verið lagt en
gleymzt að slökkva öku-
Ijósin.
• hitun á afturrúðu
• ökuijós fyrir akstur aftur
á bak
• þokubakljós
• farangursrými og loku
yfir bensínstút er hægt
að opna aö innan
Kostir
• einföld yfirbygging
og nóg rými
• mikið af búnaði
fylgir í kaupunum
• hagstætt verð
Ókostir
• getur verið vara-
samur í beygjum
• heldur ónákvæmur í
stýri
• fjöðrun ekki sérlega
þýð
• hemlun of rykkjótt
• er frekur á benzíniö
un. En þrátt fyrir ýmsar meiri-
háttar breytingar á undirvagn-
inum, er raunar heldur lítið
jákvætt um þær að segja. Það
má í því sambandi nefna, að
frammistaða Mazda 929 í svig-
akstri er eiginlega helzt til þess
fallin að skjóta ökumanni skelk
í bringu. Bíllinn hefur nefnilega
ríka tilhneygingu til að rása út
undan sér í beygjum, og alveg
sérstaklega, þegar hann er hlað-
inn. Sá sem grípur til þess ráðs
að sleppa benzininu í beygjum,
verður um leið að snúa stýrinu
af festu til þess að ná valdi á
aftari hluta bílsins, sem vill
skrika út, miðað við aksturs-
stefnuna.
Ekki er heldur hægt að hrósa
því, að Mazda 929 sé sérlega
þýður bíll í akstri, því hann
virðist skorta nokkuð á fullt
samræmi milli fjöðrunar og
höggdeyfa. Bíllinn stendur
fremur vel af sér hristinginn af
lengri og ávalari ójöfnum á veg-
inum, en á þvottabrettum kemst
hristingurinn og aksturinn
næstum alveg órofinn í gegn.
Þýzka bílablaðið Auto Motor
und Sport endar þessa gagnrýni
á Mazda 929 með því að undir-
strika, að þrátt fyrir allt sé
verðið einkar hagstætt, þegar
haft sé í huga, hversu ríkulega
bíllinn er búinn. Og þá er rétt að
bæta því við til upplýsingar
fyrir íslenzka lesendur, að verð-
ið hefur einnig verið mjög hag-
stætt hér, miðað við aðra bíla
sambærilega. Fyrir gengisfell-
inguna var lægsta verð 150 þús-
und, en eins og fram kemur í
greininni er um margskonar
aukabúnað að ræða og var hann
með sjálfskiptingunni einni
saman á 161 þúsund en með öll-
um þeim aukabúnaði, sem völ er
á, kostaði Mazda 929 192 þús-
und.