Lesbók Morgunblaðsins - 26.03.1983, Page 10

Lesbók Morgunblaðsins - 26.03.1983, Page 10
VATN Enginn vissi, hvað ölmusumaðurinn hugsaði, því sálarspeglar hans voru brotnir; augu hans tvær vatnslausar tjarnir og botnleirinn molnaði í breiskjunni. Ein setning var sögð á vegarbrún um miðjan dag: — Synd þín er fyrirgefin! — Það færðist líf í leirinn, lifandi vatn fyllti tjarnirnar. BIÐ Við sátum við borgarhlið og biðum konungsins. Margir fóru þar um, fátækir, ríkir, gangandi, ríðandi og í burðarstólum. Fáeinir fiskimenn og ungur smiður, sem sat ösnu, fóru inn í borgina. Við kváðum hátt um ólma stríðsfáka, blaktandi gunnfána, steinda skildi; um bitur vopn, háværar skrúðgöngur, blóðidrifinn sigurferil, því með glóandi gýfilkolum eru örvar harðstjórans hvesstar. Við biðum við hliðið þar eð við vissum, að konungs var von. Mikið skyldi veldi ríkisins mikil dýrð konungsins. Þegar hvítur múrinn roðnaði við sólarlag, kom gamall gráskeggur og mælti sprakri röddu: — Komið inn í borgina. Hann fór hjá í dag á ösnudróg. — En við hlógum háðslega og biðum konungsins uns verðirnir læstu hliðinu. Þrjú Ijóð á páskum við myndir eftir Jón Engilberts LOGI Sólheitir steinar glitra. Við lútum niður snertum þá rökum lófum. Andúðokkar hverfist í loga, sem á að læsast í álúta konu undir múr. Þögul lítur hún meistarann unga krota grönnum fingri í rykið. Hægt les hann orð sem fjúka fyrir blæ en greypast skír í huga: — Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrstur steini. — Bolli Gústavsson í Laufási 10

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.