Lesbók Morgunblaðsins - 16.04.1983, Qupperneq 7
um risti ekki djúpt. Þegar þeir
eru spurðir hvort þeir sinni ekki
barni sínu, þá svara sumir
glaðbeittir, jú, jú, þeir borgi
alltaf meðlagið eða að þeir gefi
barninu afmælis- og jólagjafir.
Það getur varla talist að sinna
barni.
En það getur líka oft verið
vandkvæðum bundið að halda
sambandinu svo gagn sé að fyrir
barn og foreldra. Stundum er
kominn nýr aðili og þá vill verða
breyting á í sambandi við börn
af fyrra hjónabandi. Þó finnst
mér breyting á betri veginn
einkum hjá ungum feðrum.
Oftast eru það mæður sem
hafa forræðið enda hafa feður
ekki sótt það fast yfirleitt. Feð-
ur voru áður nánast réttlausir
gagnvart umgengni í slíkum til-
vikum en nú þekkja þeir sinn
rétt eða ættu að geta kynnt sér
hann.
Varðandi afstöðuna svona
annars til félagsins á árum áður
gæti ég nefnt dæmi um hvað
menn hugsuðu ef til vill skringi-
lega um þessi mál: fyrir einum
tólf árum var ég fengin til að
tala á karlafundi og segja frá
félaginu. Þegar ég hafði lokið
máli mínu stóð maður upp og
spurði hvað við ætluðum að gera
við þetta félag þegar við værum
allar giftar aftur. Eg benti á að
sú staða mundi seint blasa við,
— ungar stúlkur mundu fram-
vegis sem fyrr eignast börn utan
hjónabands, fólk mundi sem áð-
ur lenda í skilnaði og yrði fyrir
því að missa maka sinn. Hópur-
inn héldi áfram að vera til þótt
hreyfing sé á fólki úr og í félag-
ið. Nú og loks væri það til í
dæminu að við gengjum bara
ekki út. v. þá sló vandræðalegri
þögn á hópinn.
Ef til vill má merkja mun á
þeim sem ganga í félagið núna
og þeim sem leituðu þangað á
fyrstu árunum þegar á heildina
er litið. Núna er meira um yngra
fólk sem þarf á tímabundinni
aðstoð að halda og ráðlegging-
um. Margir hætta því félags-
starfi fljótlega, við missum
sjónar af þeim, en fréttum af
Því er ekki að neita,
að hjá sumum er sú
eina brennandi spurn-
ing: „Hvað gerir félag-
ið fyrir mig?“ Félagið
á þá að vera einskonar
töfrasproti, sem leysir
allan vanda — gerir
allt
þeim eftir nokkur ár. Þetta er
svona upp og ofan.
Skrifstofuna í Traðarkots-
sundi rekur félagið enn og hún
er opin allan daginn. Stella Jó-
hannsdóttir er starfsmaður
okkar þar og auk hennar er
lögfræðingur til viðtals á
skrifstofunni einu sinni í viku og
veitir upplýsingar og ráðlegg-
ingar um lögfræðileg atriði.
Skrifstofar er góður tengiliður
milli félagsmanna og þar verða
fyrstu kynni fólks af félaginu.
Stella Jóhannsdóttir situr alla
stjórnarfundi sem haldnir eru
hálfs mánaðarlega og hún vinn-
ur með starfshópunum í fjáröfl-
unar- og skemmtinefnd til dæm-
is og sendir út fundarboð. Fé-
lagsbréf er gefið út þrisvar á ári
og þau þarf líka að senda út.
Þarna fer raunar ekki fram
neitt venjulegt skrifstofustarf
því margt getur komið upp á.
— Viltu segja svolítið frá húsa-
kaupunum í Skeljanesi?
— Það var sumarið 1976 sem
við réðumst í að kaupa þetta
hús. Því hafði ekki verið haldið
við í mörg ár en við sáum strax
að það bauð upp á ýmsa mögu-
leika til að leysa tímabundinn
húsnæðisvanda einstæðra for-
eldra. Við fengum smið til að
skoða húsið og leggja á það dóm
og við leituðum eftir fjárfram-
lagi hjá Reykjavíkurborg og
fengum það. Ráðamenn þar átt-
uðu sig á því að þetta var hið
gegnasta mál og borgin hefur
síðan lagt fram fé til reksturs
skrifstofunnar.
Kjallarinn í Skeljanesi reynd-
ist í mesta lagi fokheldur og í
raun þurfti að endurbyggja hús-
ið. Við gátum unnið töluvert í
sjálfboðavinnu, sérstaklega í
kjallaranum, en við fórum
okkur hægt því við þurftum að
borga húsið á einu ári. Það tókst
og þá var farið að laga hæðirn-
ar, lyfta þakinu og klæða húsið
utan með áli.
Hvert þessarra atriða var
mikið átak og mest var það fjár-
magnað með okkar starfi, en
Reykjavíkurborg lagði þó nokk-
uð af mörkum.
Húsið var svo opnað í apríl
1981 og nú hafa dvalist þar um
lengri eða skemmri tíma um 50
konur og 2 karlar, en meðal
dvalartíminn er 4 mánuðir.
Við miðum við lengstan dval-
artíma 6 mánuði en einstaka
sinnum hefur verið gerð undan-
tekning, t.d. þegar um námsfólk
er að ræða sem hefur fengið að
vera allan veturinn.
I húsinu eru 6 íbúðir og í ris-
inu 4 herbergi með sameiginlegt
eldhús og bað. Auk þess er sam-
eiginleg setustofa fyrir alla og
leikstofa fyrir börnin.
Já, mér finnst sambýlið hafa
gengið framar öllum vonum. Við
höfum sérstaka húsnefnd sem
kemur oft á staðinn svo íbúarnir
halda góðum tengslum við hana.
Ibúarnir borga sína húsaleigu
og verða að uppfylla viss skil-
yrði um umgengni og þrifnað.
Þeir verða sem sagt líka að
standa fyrir sínu og það er
hverjum hollt.
I húsinu er líka húsráðandi
með sína íbúð en húsráðandi er
ábyrgur um rekstur hússins
gagnvart húsnefnd.
Eg held að mér sé óhætt að
fullyrða að þarna hefur okkur
tekist að koma upp húsnæði
fyrir ákveðinn hóp sem þarf á
því að halda um stundarsakir og
þarna er það verndaða umhverfi
sem skilur — en auðmýkir ekki.
Vona ég.
H.V.
Jóhanna Kristjónsdóttir og húsið við Skeljanes í baksýn.
Magnea J. Matthíasdóttir
VORLJÓÐ
Sundurlaust — þrúgandi þefirnir
ieika sér ljúflega á sléttunni
einsog hálfmáni á hvítum himni
Vorið er komið!
Nýmálaðir brosa húsagarðarnir
við Ijóðinu
Léttfættir tifa valtararnir
handan við gluggann minn
snemmbærar kvígur undir símavírum
— langdrukknar —
Vorið er komið!
Mannshjartað kallar á eðli sitt
nýbakað úr ofni skaparans
sætabrauðsdrengur á vettvangi Hfsins
enn ungur — síungur
flugvélaalúmíníumstálplast á vellinum
Húsagarðar brosa
og skoða ástfangnir
trúlofunarhringalitmyndalistana
Blásteytt skærin tæta niður anddrjúga kókópöffspakkana
einsog uppskerusigðir negranna á bómullarekrunum forðum
þó eitt sé dans öldunnar og annað fólksvagen
í tækniþjóðfélagi
Víst veit ég
að fóstra mín grætur á kvöldin
Hrímfölar fylla verkfallsbeiðnirnar
frystikistur smælingjanna á Mæjorka
Hver átti upptök? Hvers er sökin?
En allir skeíla þeir skuldinni á Moggann
sem kemur ekki lengur — engin áskríft
var greidd
Og blaðburðarbörnin brenna Heiðmörk
á síðkvöldum
Vorið er komið!
Hlæjandi húsagarðar
kaupa DV í leit að einkamálum
Ástfangnar hjala ýturnar á horninu
haldast í tennur — ganga móti nýríki
með sól í stýrishúsi
— útopna —
Glórautt göngum við Disneyfólkið
mót ótækum örlögum frelsisherjanna
illþefjandi hjólandi og margdekkja
— heilsíða —