Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.1983, Síða 1
3íVot0imW
SALTFISKURINN
OG PLÁSSIÐ
Aö venju hafa margir ráöizt í aö sýna verk sín á þessu vori, þar á meðal Sveinn Björnsson,
sem hélt svipmikla og athyglisverða sýningu á Kjarvalsstööum.
Sveinn hefur kjark til að ráðast í stórverk, sem eru þó einatt óseljanleg. Myndin aö neöan
heitir „Þjóöarhagur" og er 4 metrar á breidd. Hér er horft aftur í tímann: Skútuöld og
saltfiskur breiddur til þerris. Um leiö eru þetta persónulegar minningar: „Viö biöum eftir því aö
sjá flaggaö í Firðinum og þá fór mamma meö okkur krakkana, fimm talsins, aö breiöa saltfisk."
Þetta er þó ekki endilega Hafnarfjöröur á myndinni, segir Sveinn, heldur íslenzka sávarþorpið
hvar sem er. Á efri myndinni er Sveinn meö sjálfsmynd, sem var á sýningunni á Kjarvalsstöðum.