Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.1983, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.1983, Qupperneq 14
Jl Rabelais Kristinn Magnússon 1 BOMBAN { Það er keyrt á fullu í tilraunastofum stórveldanna svo tilgangurinn helgi hvellinn sem heyrast mun um heimsbyggðina ogfær mannkynið til að rísa uppá afturlappir nýrra árdaga í sátt við steinöxina sem var kveikjan að bombunni. i Ef heppnin er með og mannvitsbrekkur rísa úr öskunni verður framhaldsfundur í öryggisráðinu. FÓTSPOR Svartklæddi sjen tilmaðurinn í Austurstræti var svo óskiljanlega útskeifur og afslappaður að þeir sem vóru stressaðir og innskeifir sáu ekkert stefnumarkandi í fótsporum hans. En svartklædda konan niðrí skó seldi Herópið í takt við fótatak þeirra sem spígsporuðu Austurstræti. (^argantúí Ilin stór-hrikalegu ceviscigti Gargantúa hins niiklci föður Pantagrúls forðum sett saman af meistara Alkófrýbasi Fhnmtí hluti Þýðandi: Erlingur E. Halldórsson Tíundi kapítuli Hvað litirnir hvítt og blátt tákna. HVÍTT táknar því gleði, hugg- un og fögnuð, og þetta er enginn uppspuni heldur er það stutt traustum rétti og góðum heim- ildum, eins og þið fáið að sannprófa ef þið leggið hleypi- dómana til hliðar og hlustið á það sem ég ætla nú að útskýra. Aristóteles segir, að ef teknir eru tveir hlutir sem eru í eðli sínu andstæðir, svo sem gott og illt, dyggð og löstur, kalt og heitt, hvítt og svart, sæla og kvöl, gleði og sorg, og svo fram- vegis, og þeim skipað þannig að fyrri liður einnar gagnstæðunn- ar sé í röklegu samhengi við sama lið annarrar, þá leiðir af því að síðari liður einnar gagn- stæðunnar samsvarar sama lið annarrar. Dæmi: dyggð og löstur eru í eðli sínu samstæður, svo er og gott og illt. Ef annar liður fyrri gagnstæðunnar samsvarar sama lið hinnar síðari, svo sem dyggð og gott — en það er al- kunna að dyggð er góð — þá munu hinir liðirnir tveir — illt og löstur — gera það líka því að löstur er illur. Þegar þið hafið skilið þessa rökréttu reglu, takið þá andheit- in gleði og sorg; og síðan, hvítt og svart en þetta eru lífeðlislegar andstæður; ef svart merkir sorg, þá merkir hvítt réttilega gleði. Ekki er þessi merking ein- göngu byggð á mannlegum skilningi. Hún er studd því alls- herjar samkomulagi sem heim- spekingar nefna jus gentium, al- heimslög, og gildir um allar jarðir. Eins og ykkur er vel kunnugt þá er það háttur allra þjóða, hverrar tungu sem er og hvar sem er í heiminum — ég undan- skil íbúa Sýrakúsu hinnar fornu og nokkra Argverja sem voru haldnir óeðli — að ef menn vilja sýna hryggð sína hið ytra þá klæðast þeir svörtum búningi, og harmur er ávallt tjáður með svörtu. Þessi almenna siðvenja mundi ekki gilda nema fyrir þá sök að Náttúran leiðir að henni rök og styður hana, sem allir geta samstundis skilið af sjálfs- dáðum án frekari upplýsinga frá einum né neinum, — en þetta er það sem við köllum Náttúrurétt. Menn hafa því litið svo á, af sömu náttúrlegu hvötum, að hvítt merkti gleði, ánægju, huggun, fögnuð og velsælu. Fyrr á tímum auðkenndu Þrakverjar og Kríteyingar gleði- og happadaga með hvítum steinum, dapra og gæfusnauða daga með svörtum. Er ekki nóttin hryggileg, döp- ur og þungbúin? Hún er svört og myrk af skorti. Gerir ekki ljósið gervalla Náttúruna glaða? Það er hvítara en nokkuð annað hér í heimi. Sem sönnun þess get ég komið með tilvitnun úr bók Lár- usar Valla gegn Bartolusi. En vitnisburður úr guðspjöllunum mun fullnægja ykkur. í Matteusi xvii segir við ummyndun vors herra, vestimenta eius facta sunt alba sicut lux, klæði hans urðu hvít eins og ljós, — en með þess- ari hvítu birtu brá hann upp fyrir lærisveinunum ímynd og veru hinnar eilífu sælu. Við ljós gleðjast allir menn, og því til staðfestingar hafið þið orð gam- allar konu sem átti ekki annað eftir nema eina tönn í munnin- um, en sagði þó: Bona lux — Blessað ljósið. Og þegar Tobit (v. kap.) hafði misst sjónina svaraði hann kveðju Rakelar: Hvernig má ég gleðjast sem sé ekki ljós himinsins? — Með þessum sama lit vitna englarnir um gleði allsherjar við upprisu frelsarans (Jóhannes xx) og himnaferð (Post. 1). Og slíkum búningi sá heilagur Jóhannes guðspjallamaður (Op. iv og vii) hina trúuðu klædda í fögnuði hinnar himnesku og blessuðu Jerúsalem. Lesið fornu sögurnar, jafnt Grikkja sem Rómverja. Þið munið komast að því að Alba- borg (fyrsti vísir Rómar) var valinn staður og nafn gefið vegna hvítrar gyltu sem fannst þar. Þið munið komast að því, að ef manni sem hafði borið sigur- orð af óvininum væri veitt leyfi með dómi til að efna til fagnaðargöngu inn í Rómaborg, þá ók hann í vagni sem hvítir hestar drógu; og það gerði líka sá sem fékk hyllingu; því ekkert tákn eða litur lýsti betur gleði heimkomunnar en sá hvíti. Þið munið komast að því að Peri- RABELAIS 1494—1553 Krukkan Jules Michelet, sem leit fyrstur svo á að endurreisnin væri sjálf- stæður sögulegur kafli á vegferð mannanna, skipaði Rabelais með Cervantes, Shakespeare, Calvin og Luther, og öðrum uppihalds- mönnum tímanna, en þessi skoðun hans hvúdi meira á skáldlegu inn- sæi en traustri þekkingu. Allt fram á 19. öld var Rabelais að heita má óþekkt nafn, líf hans og verk voru hulin móðu. Goðsagan blómstraði, og það var ekki fyrr en í byrjun 20. aldar að hafín var skipulögð rann- sókn undir leiðsögn Abel Lefrancs. Árið 1903 stofnaði hann „Societé des Études Rabelaisiennes“ og fór að gefa út tímarit í nafni þess fé- lags: „Revue des Études Rabelaisi- ennes“. Með markvissum rannsókn- um, sagnfræðilegum og málvísinda- legum, tókst Lefranc og samstarfs- mönnum hans (tam. Jean Platt- ard) að draga upp furðu nákvæma mynd af þessum brattsækna rithöf- undi, lífí hans og starfí. Árið 1912 birtist fyrsta bindið af hinni vísindalegu útgáfu á verkum Rab- elais, og það sjötta og síðasta kom út 1955. Aðdáendur bóka hans þurftu ekki lendur að velkjast i vafa um rithöfundinn sinn. En hvernig skyldi þessi frækni maður hafa litið út í eigin augum? Fáir eru þeir rithöfundar sem skilja ekki eftir mynd af sjálfum sér í verkum sínum, ef grannt er skoðað. Sá sem hefur lesið og lifað skáld- sögur Rabelais allt frá Gargantúa til Fjórðu bókar, er trauðla í nokkr- um vafa Formálinn að Gargantúa hefst á tilkomumiklu ávarpi: ,JTá- göfugu vínsvelgir, og þið velæru- verðu siffar!" Síðan fer Rabelais að rifja upp kafla íSamrædum Platons, þar sem Alkibíades líkir Sókratesi, fursta heimspekinga, við silenus: „En silenus varforðum tíðlít- il krukka af sama tagi og við sjáum nú í lyfjabúðum, máluð utan skýtnum og skemmtilegum fígúrum, svo sem harpíum, satýrum, beisluðum gæsum, hymdum hérum, söðluðum önd- um, vængjuðum geitum, her- tygjuðum hjörtum, og öðrum ámóta fyrirbærum uppfundnum ígríni til að skemmta náungan- um (svo sem var Silenus sjálfur, meistari hins mæta Bakkusar); en í krukkum þessum voru geymd fágæt lyf, svo sem bals- am, kardimommur, moskus, sí- vet, dýrir steinar og aðrir verð- mætir hlutir. Einmitt þannig krukka var Sókrates, eftir orðum Platóns. Hver sem hefði dæmt hann eftir útlitinu hefði ekki gefíð lauk- tætlu fyrir hann, svo óásjálegur var hann og afkáralegur í vexti; nefíð oddhvasst, augnaráðið nautslegt og svipurinn fá- ráðlingslegur; hann var einfald- ur í háttum og búralegur í klæðaburði, efnalítíll og illa kvæntur, og ófær um hvers kon- ar stjómarstörf; síhlæjandi og sídrekkandi hvað sem var með hverjum sem var, með eilíf fífla- læti, og yfirhylmandi hina guð- legu visku sína En ef krukkan var opnuð máttí finna í henni óviðjafnanleg himnesk lyf: ofurmannlegan skilning, und- ursamlegar dyggðir, óbilandi hugrekki, einstaka hófsemi, óbrigðult jafnaðargeð, fullkomið traust, og skefjalausa fyrirlitn- ingu á öllu því sem menn hafa í hávegum, keppa eftir, vinna fyrir, sækja um höf og berjast tiL“ 14

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.