Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.1983, Síða 8
Verk sem lofa meistar
Með myndavél á lofti á höttunum eftir ýmsu því f
sem vel hefur verið gert í byggingarsögu okkar
Noröarlega viö Laufásveginn
(nr.8) stendur Þrúðvangur, vel
þekkt hús og byggt á þeim
tíma, þegar þótti góð latína að
hús hefði ekki bara númer,
heldur einnig nafn. Þetta tígu-
lega steinhús var samþykkt í
byggingarnefnd 1915. Arkitekt
hússins var Einar Erlendsson,
húsameistari ríkisins og höf-
undur nokkurra ágætra húsa.
En sá sem byggði hét Ó. For-
berg og ekki er staðurinn slor-
legur, með útsýni vestur yflr
tjörnina. Margir kannast við
Þrúðvang vegna þess að Einar
Benediktsson skáld bjó þar um
tíma á síðari hluta ævinnar og
löngu síðar var Söngskólinn
þar til húsa. Þetta er elzta
steinhúsið, sem hér er brugðið
mynd af og hefur húsameistar-
inn látið gera úr steinsteypu
einskonar vindskeiðar.
Húsið númer 9 við Njarðargötu
hefur fengið viðurkenningu
fyrir útlit og viðhald og vekur
alltaf athygli, þótt ekki sé það
stærðarinnar vegna. Tréð á
óneitanlega sinn þátt í því og
er ekki mörgum slíkum trjám
til að dreifa á voru landi. Enda
þótt húsið sé byggt í hefðbund-
um stíl lítilla timburhúsa, er
það ekki eins aldrað og ætla
mætti. Það var samþykkt í
byggingarnefnd 1923: Þorleif-
ur Ofeigsson teiknaði það fyrir
húsbyggjandann, Kristján
Snorrason. Þá tíðkaðist að
klæða hús af þessu tagi með
bárujárni en ekki reisifjöl, svo
sem hér má sjá, enda er ólíkt
að viðhalda timbri utanhúss nú
á dögum eftir tilkomu ýmissa
fúavarnarefna. Eitt af því sem
er sérlega fallegt við þetta hús
eru gluggarnir, — hvernig þeir
standa hvítir á dökkum viðn-
um, en einnig niðurskipan
þeirra í stórar og smáar rúður.
Hellusund í Þingholtunum er
kannski ekki mjög fjölfarin
gata og því gæti verið að mörg-
um hafl yfírsést þetta snotra
einbýlishús, sem þar stendur
og miðlar áhrifum frá klass-
ískri byggingarlist. Þetta hús er
komið til ára sinna; það var
samþykkt í byggingarnefnd
1916 og er þó einhver spurning
hvort upphaflega samþykktin
er ekki eldri. Það var Ágúst H.
Bjarnason prófessor, sem lét
byggja húsið og má láta sér
detta í hug að menntun hans og
áhugamál séu á bak við hin
klassísku einkenni, þar sem
allt er symmetrískt (báðir
helmingarnir eins). En verið
gæti einnig og ekki síður, að
hönnuðurinn, Finnur Ó. Thor-
lacius, hafi lagt til hugmynd-
ina.
Við höfum þau daglega fyrir augunum, sem
búum í Reykjavík og næsta nágrenni, en tökum
kannski alls ekki eftir þeim þessum húsum, sem
sum hver eru frá fyrstu áratugum aldarinnar.
Sum standa í fullmikilli nálægð við önnur; önn-
ur kunna að vera dálítið falin á bak við tré, sem
í upphafi hefur verið plantað fast upp við hús-
vegginn. Þau æpa yfirleitt ekki á athyglina, en
þegar betur er að gáð, sést að það er sitthvað
undur fallegt við þessi hús og mörg, mörg fleiri.
Stundum greinir maður listfengt handbragð og
tilfinningu í útfærslu á smáatriðum; stundum
lofar allt verkið meistarann.
Lesbókin mun nú og á næstunni flytj a þætti,
þar sem brugðið verður upp myndum af ýmsum
húsum úr höfuðstaðnum, sumum gömlum og
öðrum nýlegum. Til að fyrirbyggja allan mis-
skilning, skal það tekið fram, að þetta er engin
fegurðarsamkeppni. Við erum ekki að reyna að
finna fallegustu húsin í bænum að okkar mati.
Ætlunin er aðeins að vekja athygli á ýmsum
þáttum úr byggingarsögu okkar eins og þeir
þirtast vegfarandanum hingað og þangað um
bæinn. Þegar mikið er byggt eins og nú, er hollt
að gaumgæfa um ieið það liðna til að halda
einhverjum þræði og missa ekki sjónar á ýmsu
því, sem vel hefur verið gert.
Þegar farið er upp Skólavörðustíginn verður manni starsýnt á húsið númer 30,
sem þar er á hægri hönd. Það er reyndar engin tilviljun, að svo vel hefur tekizt
á sínum tíma; höfundur að útlitinu er enginn annar en Guðjón Saraúelsson,
húsameistari og einhver listfengasti arkitekt, sem hér hefur starfað. Húsið var
samþykkt í byggingarnefnd 1923 og húsbyggjandinn er Helgi Bergs forstjóri
Sláturfélags Suðurlands. Á þriðja áratugnum var steinsteypuöld gengin
í garð og menn leyfðu sér þá að gera nokkuð fyrir augað — í beinu framhaldi af
útskornum vindskeiðum bárujárnshúsanna — svo sem fram kcmur á göflum
hússins. Gluggahlerar eru næsta óvenjuleg sjón hér, en þeir eru sfðari tíma
viðbót — og blómakerin á steinstöplunum einnig. Viðhald og útlit hússins er
með þeim hætti að til fyrirmyndar má telja.
j
I
I
;
Þ
1
o
á
h
ei
i
a<
j*
I
já
s:
Oj
8