Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1984, Blaðsíða 5
framkoma íslenskra karlmanna.
Þeir gættu þess vandlega að dam-
an gengi alltaf fjær gangstéttar-
brúninni og svo varð maður líka
að bíða eftir því að þeir opnuðu
huröina á leigubílnum og hleyptu
manni út. Því máttu trúa, að það
tók mig svolítinn tíma aö venjast
þessu. Svona framkoma var mér
algjörlega framandi!“
„Bandaríkjamenn voru um-
hyggjusamari en íslenskir menn.
Þeir voru opnari og frjálslegri og
ekki eins tilfinningalega bældir
... Eins fannst mér þeir sýna kon-
um meiri virðingu."
Afbrýðisemi Og Ógnun Við
Sjálfstæði Þjóðarinnar
Nú má spyrja, ef sambönd íslenskra
kvenna og erlendra hermanna voru al-
mennt ósköp venjuleg ástarsambönd ungs
fólks, af hverju voru þau talin svo slæm?
Hið neikvæða viðhorf til sambanda er-
lendra hermanna og íslenskra kvenna er
einnig sögulegs eðlis. íslenska þjóðin hafði
smátt og smátt verið að komast undan
veldi Dana og sá í upphafi stríðsins fram á
að öðlast fullt sjálfstæði. Hernám Breta og
síðan koma Bandaríkjamanna var í augum
margra bein ógnun við væntanlegt sjálf-
stæði þjóðarinnar.
Hugtökin kona og þjóð eru nátengd. Þau
eru bæði kvenkyns, ímynd íslensku þjóðar-
innar er Fjallkonan og svona mætti lengi
telja. Ein af grundvallarhugmyndum
sjálfstæðisbaráttunnar var að þjóðin væri
í raun öll heimilin í landinu samanlögð og
velgengni hennar og sjálfstæði stæði og
félli með gæðum þeirra. Konur, sem mæð-
ur og húsmæður, höfðu því sérstaklega
mikilvægu hlutverki að gegna í sjálfstæð-
isbaráttunni. Sem húsmæður byggðu þær
grundvöll þjóðarinnar og sem maður og
uppalendur báru þær ábyrgð á framtíð
hennar.
Þessar hugmyndir hafa komið konum
bæði í hag og óhag. Upphaf íslenskrar
Saumaklúbbur íslenskra kvenna íSuður-Kaliforníu. Frá bægri, efri röð: Ragna Kristjánsdóttir
Cooper, Helga Broshears, Valgerður Ólafsdóttir Linden, Elísabet Axelsdóttir Thomas Day,
Margrét Pétursdóttir Wise (látin), Lóa Tómasdóttir Meeks, Ingunn Jónsdóttir Freeberg,
Sigríður Axelsdóttir Nash. Neðri röð frá bægri: Ida (?) giftist eftir 1950, Hulda Hafliðadóttir
Backmann, gift íslenskum manni, Ólafi Backmann, Hulda Jónatansdóttir Dunbar. Myndin
var tekin á heimili Huldu Dunbar í Long Beach 1952 eða 1953.
Agnes Guðmundsdóttir Baukol og Warren Baukol í Starbuck í Minnesota ásamt tíu barna-
börnum. Myndin var tekin síðastliðið haust við skírn þess yngsta. Agnes var fædd og uppalin
í Reykjavík og var sveitalífi lítt kunn þegar hún flutti á alnorskan sveitabæ í miðju Minne-
sota-fylki áður en stríðinu lauk. En hún var ung og dugleg og lærði fljótt að bjarga sér og hefur
unað hag sínum vel í sveitinni og haldið uppi félagslífi.
Af hverju fengu konur á sig óorð fyrir að
fara út með hermanni?
Títtnefnd skýring er afbrýðisemi ís-
lenskra karlmanna. Þeir, sem áður höfðu
verið nær einráðir á „hjónabands-
markaðnum", sáu veldi sínu skyndilega
ógnað. Þeir brugðust við með því að for-
dæma þá, sem ekki „hlýðnuðust" þeim
lengur, en slík viðbrögð eru algeng meðal
þjóðfélagshópa í svipaðri aðstöðu. Konum
var fátt jafn dýrmætt og óflekkað siðferði
og því var það mjög öflugt vopn að ákæra
þær um lauslæti eða jafnvel vændi.
Önnur orsök er nátengd djúpstæðum
viðhorfum til stöðu og réttinda kvenna.
Konur ólust upp við að æðsta takmark
þeirra væri að gifta sig og eiga börn. En
um leið og þeim var sagt að óeigingjörn ást
væri æðst allra dyggða, var þegar á reyndi
ekki sama hver naut hennar. Það er engin
nýlunda í sögu kvenna, að konum hafi ver-
ið refsað fyrir að elska mann, sem sam-
kvæmt ríkjandi skoðunum var ekki „rétti"
maðurinn.
kvenréttindabaráttu á að hluta rætur sín-
ar að rekja til þeirra. Ef við erum svona
mikilvægar, sögðu konur í lok 19. aldar, af
hverju höfum við hvorki stjórnmála-
réttindi né tækifæri til menntunar?
Hvernig getur ísland orðið sjálfstæð þjóð,
ef staða þeirra sem byggja grunn hennar
er þrælahaldi líkust?
Þessi viðhorf voru einnig notuð til að
réttlæta að verkahringur kvenna, giftra
sem ógiftra, takmarkaðist við heimilið.
Ungar aldamótastúlkur, sem kusu fremur
að vinna í búð en að vera vinnukonur voru
til dæmis ásakaðar um að vinna gegn
sjálfstæði þjóðarinnar. Svipaðra viðhorfa
gætti til kvenna, sem fóru út með her-
mönnum. í augum margra var samband
þeirra táknræn holdgun á djúpstæðum og
fyllilega réttmætum ótta, að Island yrði í
raun aldrei sjálfstæð þjóð, heldur yrði
bara um herraskipti að ræða og konurnar
voru ásakaðar um að vera leiða íslenskt
þjóðerni til glötunar.
Sjálfstæði íslands var öllum þeim kon-
um, sem ég hef haft samband við fram til
>essa (um það bil sextíu talsins), mikið
hjartans mál og þær sem höfðu aldur til og
möguleika, greiddu atkvæði með sam-
bandsslitum íslands og Danmerkur. En þó
að þær teldu húsmæðra- og uppeldisstörf
mikilvægasta hlutverk kvenna, þá skynj-
uðu þær það eðlilega ekki sem eitt valda-
mesta hlutverk þjóðarinnar né sýndist
>eim framtíðarheill hennar hvíla á herð-
um kvenna. Það voru stjórnmálamennirn-
ir, — og þeir voru allir karlmenn á þessum
tíma, — sem réðu í raun framvindu
sjálfstæðismálanna. Ef hætt var við að ís-
lenska þjóðin glataði sjálfri sér um og eft-
ir stríð, þyrfti að leita lengi að konu, sem
átti þar hlut að máli.
Hvernig Vegnaði Þeim?
Þegar ég hef sagt Islendingum frá við-
fangsefni mínu hef ég iðulega verið spurð:
„Ertu að kanna hvers konar „týpur“ þetta
voru?“ og „Vegnaði þeim ekki frekar illa?“
Þessar spurningar endurspegla í fyrsta
lagi það 'viðhorf, að aðeins ákveðin kven-
gerð, helst lauslát og illa gefin, hafi farið
út með hermönnum; í öðru lagi þá trú að
lífið refsi konum, sem hlýða ekki í öllu
>eim reglum, sem samfélagið setur þeim.
Konurnar koma úr öllum stéttum ís-
lensks þjóðfélags. Þær eru dætur bænda,
verkamanna- og kvenna, sjómanna, iðnað-
armanna, verslunarmanna, opinberra
starfsmanna og embættismanna. Allar
luku skyldunámi, meirihluti þeirra tók
vinkonu sinnar. Ellefu konur fóru út í at-
vinnulífið eftir að börnin uxu úr grasi.
Þær stunda flestar dæmigerð kvenna-
störf. Þær vinna (eða hafa unnið) í þvotta-
húsum, í saumaverksmiðjum, sem ganga-
stúlkur, skrifstofustúlkur, snyrtisérfræð-
ingar, afgreiðslukonur, við bókhald og
bankastörf. Það eru nokkur dæmi þess að
þær hafi unnið sig upp í ábyrgðarstöður.
Ein kona stundaði fasteignasölu um ára-
tugaskeið, önnur var skrifstofustjóri hjá
virtu byggingarfyrirtæki, ein var verslun-
arstjóri, önnur hefur verið deildarstjóri í
banka síðastliðin 25 ár og ein gegnir mik-
ilvægri stöðu hjá dómsmálaráðuneytinu í
einu stærsta ríki Bandaríkjanna. Ein
kona, sem nú er látin, lauk snemma dokt-
orsprófi í bókmenntum og var háskóla-
prófessor. Sjö konur hafa sest á skólabekk
á undanförnum árum. Ein þeirra lauk
hjúkrun og starfar nú sem hjúkrunarkona
en önnur lauk BA-prófi og stundar nú
framhaldsnám í öldrunarfræðum.
Rannsóknir sálfræðinga hafa sýnt að
andlegt heilbrigði og aðlögun innflytjenda
ræðst að miklu leyti af því hversu vel þeim
tekst að rækta tengsl við uppruna sinn og
halda honum á loft. íslensku konurnar
áttu því láni að fagna að Norðurlandabúar
njóta almennt góðs álits í Bandaríkjunum
og má að hluta rekja velgengni kvennanna
til þess. Ein kona komst svo að orði: „Ég
held að ég hefði aldrei komist svona vel af
hér nema af því ég er íslendingur." ís-
lenskur uppruni þeirra vakti áhuga og vin-
áttu fólks og þeim var tekið sem jafningj-
um en um leið var þeim fært að halda
uppruna sínum á loft. „Þegar fólk spyr mig
Fólk spyr hvort þessum konum hafi ekki yfirleitt vegn
að frekar illa. Spurningarnar endurspegla í fyrsta lagi
það viðhorf, að aðeins ákveðin kvengerð, helzt lauslát
og illa gefin, hafi farið út með hermönnunum; í öðru
lagi þá trú, að lífið refsi konum, sem hlýða ekki í öllu
þeim reglum, sem samfélagið setur þeim.
gagnfræðapróf, allmargar luku kvenna-
skóla- og verslunarskólaprófi og tvær urðu
stúdentar.
Eins og við er að búast, bæði meðal ein-
staklinga, sem eyða ævinni í sínu heima-
landi sem og á erlendri grund, þá hefur
þessum konum vegnað misjafnlega vel.
Eru nokkur dæmi þess að líf einstakra
hafi verið mjög erfitt, jafnvel átakanlegt,
og má í nokkrum tilfellum rekja raunir
þeirra beint eða óbeint til þess að þær
giftust hermönnum og fluttust úr landi.
En meirihluta þessara kvenna hefur þegar
á heildina er litið vegnað vel og ræður þar
margt.
Þær hófu búskap á einu mesta blóma-
skeiði í sögu Bandaríkjanna. Efnahags-
uppgangur eftirstríðsáranna virtist tak-
markalaus og bandarískt miðstéttarþjóð-
félag varð til eftir stríð. Bandarískum her-
mönnum, sem börðust í seinni heimsstyrj-
öldinni, var hampað við heimkomuna. Þeir
nutu forgangs á vinnumarkaðnum og
fengu hagstæð lán til húsakaupa. Þeim
voru einnig veittir styrkir til framhalds-
náms og margur maðurinn, sem ella hefði
ekki gengið menntaveginn, lauk háskóla-
prófi og hlaut vellaunað starf. í röðum
eiginmanna íslensku kvennanna má finna
verkamenn, bændur, verslunar- og sölu-
menn, lögfræðinga, verkfræðinga, kenn-
ara, háskólaprófessora, flugmenn, at-
vinnuhermenn, opinbera starfsmenn,
bankastjóra og ljósmyndara.
Það er margkveðin vísa, að efnahagsleg
velgengni ein og sér ráði ekki hamingju
fólks. Annar mælikvarði á velgengni
kvennanna er hversu vel hjónabönd þeirra
hafa enst. Sex af þeim sextíu konum, sem
ég hef haft samband við fram til þessa, eru
fráskildar. Það væri hægt að draga þá
ályktun út frá þessari tölu að tíunda hvert
íslenskt/bandarískt hjónaband, sem stofn-
að var til á stríðsárunum, hafi endað með
hjónaskilnaði. Hinar umræddu sex konur
skildu eftir alllangt hjónaband og eru allar
búsettar hér vestra. Mér hefur verið tjáð,
að nokkrar hafi skilið fljótt eftir að þær
komu og flutt heim aftur. Það verður ekki
fyrr en ég hef aflað mér upplýsinga um
fjölda þeirra og haft samband við fleiri
konur hér, að hægt verður að segja með
nokkurri vissu um tíðni hjónaskilnaða. Og
þá fyrst verður hægt að kanna hvort fjöldi
þeirra hafi verið hærri, lægri eða sá sami
og meðal íslenskra hjóna af sömu kynslóð.
Þessar konur áttu að meðaltali þrjú
börn og rúmlega 80% þeirra helguðu
heimilinu alla sína krafta. Ellefu konur
unnu utan heimilisins að staðaldri, sex
höguðu því þannig að þær voru komnar
heim áður en skólanum lauk. Tengdamæð-
ur fjögurra gættu bús og barna meðan
konurnar sóttu vinnu en ein naut aðstoðar
hvaðan ég er svara ég frá íslandi með
stolti. „Ég er spurð að því á hverjum degi í
versluninni þar sem ég vinn, hvaðan ég sé
og mér finnst alltaf jafn gaman og ég er
alltaf jafn stolt af að geta sagt þeim að ég
komi frá íslandi."
Konurnar hafa ekki aðeins getað haldið
uppruna sínum á loft meðal Bandaríkja-
manna, þær hafa einnig flestar haldið góð-
um tengslum við fjölskyldu og ættingja á
íslandi og síðast en ekki síst við íslendinga
í Bandaríkjunum. Yfir helmingur þeirra
hefur stöðugt samband við íslendinga og
telur þá meðal sinna bestu vina.
Fáar af þeim fjöldamörgu spurningum,
sem ég lagði fyrir konurnar, vöktu jafn
sterk viðbrögð, jafnvel reiði, og sú hvort
þær hefðu valið sér erlendan eiginmann
yegna þess að þær vildu komast burt frá
íslandi, en þessi hugmynd kemur víða
fram í eftirstríðsbókmenntum. Konurnar
voru og eru miklir íslendingar og flestar
yfirgáfu landið með mikilli eftirsjá. En
þær voru uppeldi sínu trúar. Hjónaband og
barnauppeldi var þeirra æðsta takmark og
skylda og úr því að hinn eini „rétti" reynd-
ist útlendingur var ekki fyrir þær flestar
um annað að velja en að flytja frá íslandi.
Samkvæmt opinberum skýrslum giftust
332 íslenskar konur hermönnum og sjó-
mönnum, sem voru á íslandi á vegum
breska og bandaríska hersins. Af þeim
giftust 92 Bretum, 90 Norðmönnum, 2
Pólverjum, 1 Hollendingi, 1 Svía og 1
Finna, en 145 Bandaríkjamönnum. Þessar
tölur segja þó bara hálfa söguna. Banda-
rísk heryfirvöld og íslensk stjórnvöld
reyndu lengi vel að koma í veg fyrir þessar
giftingar á íslandi og fóru því margar kon-
ur ógiftar úr landi og giftu sig þegar til
Bandaríkjanna kom. Vegna þessa er ekki
vitað hversu margar konur giftust til
Bandaríkjanna um og eftir stríð.
Ég væri lesendum mjög þakklát, ef þeir
gætu sent mér nöfn og heimilisföng á kon-
um, sem þeir þekkja og giftust bandarísk-
um hermönnum (eða starfsmönnum hers-
ins) á árunum 1942—1949. Einnig þætti
mér vænt um að fá nöfn og heimilisföng
kvenna, sem giftust til Bretlands og Nor-
egs, því þó verkefnið takmarkist við konur
í Bandaríkjunum er ætlunin að skrá sögu
þeirra, sem fluttu til Evrópu, í framtíð-
inni.
Heimilisfang mitt er:
17 ’Æ Roberts Road,
Cambridge, Mass. 02138.
U.S.A.
Inga Dóra Björnsdóttir stundar nám í mannfélags-
fræði í Bandaríkjunum og hefur staðið aö rannsókn
á lífi ísl. kvenna, sem giftust hermönnum, og hefur
þessi rannsókn verið kostuð af Vísindasjóði Islands
aö hluta.
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 17. MARZ 1984
5