Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1984, Page 13
Hugmyndir
iænbandi
ann hefur
verið kallaður „kjarnorku-
danskri húsgagnafram-
Hsprengjan
leiðslu og hlaut viðurnefnið „klikkaði
Daninn“ þegar hann fyrir mörgum árum
kom fram með hugmyndina um að hengja
hillur upp á vegg. Sjálfur segir Poul Cado-
vius, uppfinningamaður, arkitekt og hönn-
uður, að hann hafi víst alltaf verið á undan
sinni samtíð, og af því hefur hann vissu-
lega fengið margan eftirminnilegan skell-
inn.
En það er alveg sama hve oft Poul Cado-
vius hefur fengið á baukinn, hann hefur
alltaf risið aftur upp. Eftir að hafa orðið
gjaldþrota í sambandi við Sirkilhúsið
úti við Helsingor-hraðbrautina, átti
hann frumkvæðið að því að bjarga hinu
fyrrverandi húsi stúdentafélagsins við’
H.C. Andersens Boulevard í Kaupmanna-
höfn frá tortímingu og notaði eigið fé til
að gera húsið upp; þar skóp hann svo sína
eigin Cado-miðstöð.
Núna er hann búinn að koma undir sig
fótunum aftur.
Cado-miðstöðin og öll önnur starfsemi,
sem hann hefur haft með höndum, tilheyr-
ir núna liðinni tíð, en Cadovius tókst að
koma í veg fyrir, að hann yrði með öllu
gerður eignalaus eftir gjaldþrotið fyrir
nokkrum árum. Reyndar hefur síðan allt
snúist á betri veg fyrir honum, þannig að
hann er núna fastráðinn hönnuður hjá öll-
um þeim fyrirtækjum, sem hann starfaði
áður við — en þau eru þrjú í Danmörku og
22 í útlöndum. Og það er ekki nóg með
þetta, því að hann, sem var höfundur hús-
gagna-samstæðanna Cado og Royal-sam-
stæðunnar, hefur nú fyrir skemmstu kom-
ið fram með algjörlega nýja húsgagnasam-
stæðu, Jubile.
Hvorki hinir mörgu ósigrar, sem hann
hefur beðið, né heldur sú staðreynd, að
honum finnst að yfirvöldin og dönsk lög
hafi stöðugt verið að bregða fæti fyrir sig,
hefur þó getað haldið aftur af þessum
rúmlega sjötuga þúsundþjalasmið við að
sýna umheiminum, að ennþá er unnt að
skapa eitthvað nýtt.
Hann Er Þrár Og Eigingjarn
Poul Cadovius líkir sjálfum sér við
íþróttamann, sem vill ná framúrskarandi
árangri, hvað sem það kostar.
— Hvað er það, sem kom Poul Elvstrom
til þess að hanga á hverjum degi í tvö ár í
tógi í þvottahúsi móður sinnar niðri í
kjallara? Það er nákvæmlega sami bar-
áttuandinn og sama þrákelknislega eigin-
girnin, sem hefur verið driffjöðrin hjá mér
og öðrum þeim, sem gerst hafa sjálfstæðir.
Þrákelknin getur á stundum haft það í
för með sér, að mönnum verði á mistök.
Það á bæði við um íþróttamanninn og
þann, sem vill gerast sjálfstæður. Poul
Cadovius segir hreint og beint, að það sé
rangt að álíta, að unnt sé að komast hjá
mistökum, ef menn hafi sett sér önnur og
háleitari markmið en allur fjöldinn. Hins
vegar sé danskt þjóðfélag því miður svo
snubbótt að allri gerð, að það rúmi ekki
mistökin.
— Hver sá, sem vill fitja upp á einhverju
nýju og nýstárlegu, hvort sem hann fæst
við að smíða húsgögn eða vélar — og lend-
ir við það í fjárhagsörðugleikum eða verð-
ur jafnvel gjaldþrota, á sér ekki framar
minnstu viðreisnar von. Og það er alveg
botnlaus heimska, því sé maðurinn í raun
og veru frumkvöðull að einhverju nýju og
gagnlegu, þá hefur þjóðfélagið hreinlega
ekki efni á því að vera án hans.
Danmörk Verður Vanþróað
Land Að Lokum
Poul Cadovius hefur áður spáð því, að
Danmörk eigi eftir að verða eitt að van-
þróuðu löndunum, einmitt af því að þar sé
kúlulögun og hringlaga formi, sem leiddi
til þess, að Poul Cadovius fékk eina af
sínum snilldarlegu en mjög svo örlagaríku
hugmyndum, það er að segja hugmyndina
að Sirkilhúsinu. Þetta hús átti að gegna
því hlutverki að hýsa stærstu fastasýningu
Danmerkur á húsgögnum og listiðnaði; og
það var vissulega ekki lögun þess að
kenna, að húsið skyldi aldrei ná að afla sér
vinsælda, né rekstur þess geta gengið að
óskum, heldur var ástæðunnar miklu
fremur að leita í hinni allt of einstreng-
ingslegu afstöðu danskra yfirvalda til ým-
issa mála, sem snertu byggingu hússins.
— Frá því að Sirkilhúsið var reist, hafa
verið byggð mörg ávöl hús, og ég er sann-
færður um, að einbýlishús framtíðarinnar
verði í lögun ekki óáþekkt íglúum
Grænlendinga — það er að segja hálf
kúluhúsum þéim, sem Ínúítar hafa
um aldaraðir byggt úr snjó.
Kúlulögunin tryggir langbesta
nýtingu á hinu dýra bygg
ingarefni í hlutfalli við
rýmið, og sjálft bygg
ingarlagið er hið sterk
asta, sem þekkist. Gott
dæmi um það er eggið.
— Við höfum einungis
möguleika á að fjölda
framleiða íbúðarhús, ef
við notum kúlulögunina
til viðmiðunar. Ég sé
hluta hús fyrir mér í því
sambandi, hús sem eru
ekki stærri en svo, að unnt
er að flytja þau á staðinn
með þyrlu. Ef fjölskylda
hefur hafið búskap í þriggja
herbergja íbúð af þessu tagi en
þarf svo skyndilega á fjórða herberginu að
halda, þá er það ósköp ein faldlega þyrla,
sem kemur fljúgandi með það til þeirra.
Einföld aðferð og viðhlít- andi.
Af Poul Cadovius,
að hugvit og frjóar
ekkert svigrúm fyrir nýsköpun í neinni
mynd né heldur fyrir ferska hugsun.
— Tökum til dæmis eitthvert svið eins
og dönsk húsgögn og danska hönnun í
stórum dráttum. Dönsk hönnun nýtur að
vísu ennþá þó nokkurs álits erlendis, en
það álit á þó ekki eftir að vara um aldur og
ævi. Nú á dögum virðast allar góðar hug-
myn'dir enda að lokum í enn einni mála-
miðluninni af öllum hinum málamiðlunun-
um, og það er einmitt í þessu sem mistökin
liggja í allri þróun hjá okkur.
Sjálfur fellst Poul Cadovius ekki á neins
konar málamiðlun og hefur aldrei getað
fallist á neitt í þá veru. Afleiðingin hefur
svo orðið sú, að hann hefur oft á tíðum
verið of snemma á ferðinni með einhverja
nýja hugmynd.
— Iðulega hef ég orðið fyrir verulegum
skakkaföllum, af því að einhver hlutur
hefur ekki náð að afla sér almennra vin-
sælda þegar í stað. Hins vegar hef ég svo
líka fengið að reyna það, hvernig slíkir
hlutir gátu svo að nokkrum árum liðnum
slegið í gegn og fóru að seljast eins og
heitar lummur. Þessu gat ég hér áður fyrr
tekið með jafnaðargeði, en núna verð ég að
skapa eitthvað jarðlægt. Ég er alténd orð-
inn sjötugur að aldri og get því naumast
beðið eftir því, að þær nýjungar, sem ég
kem fram með í hönnun minni, taki að
ryðja sér til rúms fyrir alvöru eftir tíu ár
eða þar um bil.
Hann Fær Aragrúa
Af Hugmyndum
Það er enginn skortur á hugmyndum hjá
danska hönnuðinum sem hefur sýnt og sannað
hugmyndir eru á við hvaða auðlind sem er
honum; að undanförnu hefur Poul Cadovi-
us teiknað meira en hann hefur komið í
verk á síðastliðnum 20 árum.
— í tímans rás hefur það orðið vani hjá
mér að gera riss af þeim hugdettum, sem
flögrað hafa að mér, svo að ég gleymdi
þeim ekki. Ég á fullar skúffur af slíkum
hugmydum, og það eru þær, sem ég er
byrjaður að vinna úr núna.
— Ég hef það fyrir vana að teikna á allt,
sem ég hef tiltækt, pappírsservíettur eða
-dúka, ef ekki er annað við höndina. Fyrir
mörgum árum fékk ég alveg bráðsnjalla
hugmynd, þar sem ég sat á veitingahúsi,
og af því að ég hafði engan pappír við
höndina rissaði ég hana í grófum dráttum
á dúkinn með kúlupenna. Skítt með það að
ég varð svo að borga 160 krónur í bætur til
þess að geta tekið dúkinn með mér, þegar
ég fór.
Sem hönnuður hefur Poul Cadovius alla
tíð verið afar hrifinn af kúlunni og hring-
laga formum. Hann játar, að þetta kunni
að virðast dálítið einkennilegt, sökum þess
að það, sem hefur gefið honum mest í aðra
hönd — það er að segja vegghillurnar — er
ekki í neinum minnstu tengslum við ávalar
línur.
— Sumt af því allra fyrsta, sem ég
hannaði, var grundvallað á lögum kúlunn-
ar, og ég hef ásett mér að láta kúluna og
hringlaga form verða undirstöðu alls, sem
ég hanna héðan í frá.
SlRKILHÚSIÐ - SNILLDARLEGT
OG ÖRLAGARÍKT
Það var þessi sama ákafa hrifning af
Hann Notar Hringlaga Form
Þótt Cadovius hafi fengið slíkan brenn-
andi áhuga á hringlöguninni, getur hann
vitaskuld ekki hannað eintóm kringlótt
húsgögn. En samt sem áður notar hann
ávöl form í hönnun sinni.
Jubile-samstæðan, sem Cadovius hann-
aði nýlega, spannar allt frá hillum yfir í
sófa, borð og stóla, og af öllum þeim hús-
gagnasamstæðum, sem hann hefur hann-
að, gerir þessi samstæða mestar kröfur til
þeirra húsgagnasmiða, sem vinna við
framleiðslu hennar. Þessi samstæða, sem
smíðuð er úr teak og öðrum gamalkunnum
viðartegundum, byggist á mjúkum línum.
Eins og Poul Cadovius kemst að orði: Ég
hef sagt skilið við kröpp horn fyrir fullt og
allt.
Það var ekki sett af stað nein ný hús-
gagnaiðja, þegar framleiðsla Jubile-
samstæðunnar hófst. Poul Cadovius hefur
gert samninga við þrjár eða fjórar fremur
litlar húsgagnaverksmiðjur um fram-
leiðsluna, þeirra á meðal við Tranekær
Furniture á Langeland.
— Þar sem nýtingin á afkastagetu
hinna minni húsgagnaverksmiðja er á
seinni árum orðin sáralítil, verður það að
teljast mun betri kostur að styðja þær,
heldur en að koma á fót nýjum verksmiðj-
um.
Húsmunir Eiga Að
Vera Áberandi
Samkvæmt skoðun Poul Cadovius felur
góð hönnun það í sér, að viðkomandi hús-
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. MARZ 1984 13