Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1984, Side 15
gagn er áberandi og aðlaðandi í senn. Við-
artegundin og aðferðin við að meðhöndla
viðinn hefur einnig mikið að segja, alveg
eins og það atriði, að stóllinn eða borðið
eiga að vera „húsmóður-hollir" munir —
það er að segja ekki of þungir í vöfum og
heldur ekki þannig, að þeir safni sérstak-
lega miklu ryki.
— Hugtakið „dansk design" var skapað
af litlum hópi hönnuða á borð við Hans
Wegner, Borge Mogensen, Finn Juhl, Mog-
ens Koch, og reyndar einnig fyrir atbeina
undirritaðs. Þeir — eða öllu heldur við —
mótuðu einnig vissa hefð, sem svo allt of
margir aðilar hafa síðan leikið allgrátt.
80—90% þeirra dönsku húsgagna, sem
flutt eru út nú á dögum, eru ekki smíðuð af
lærðum húsgagnasmiðum, heldur eru það
þannig húsgögn, að þau hefðu alveg eins
vel getað verið framleidd í Kóreu. Við get-
um ekki haldið ýkja lengi áfram á þeirri
braut, og það er þess vegna sem ég hef
reynt að hverfa aftur til snikkara-hefðar-
innar. Það væri víst heldur sterkt til orða
tekið að fara að tala um, að nýtt blóma-
skeið sé að hefjast í dönskum húsgagna-
iðnaði, en ég hef leitast við að taka aftur
upp þann þráð, sem raunverulega á að ein-
kenna danska hönnun og reynt að laða
fram nýjan vaxtarbrodd.
— Sem húsgagnahönnuður og framleið-
andi ætti maður ekki að kippa sér sérlega
upp við það, þegar blöðin taka að reka upp
ramakvein yfir því, að ekki komi fram
neinar nýjungar á sviði húsgagnafram-
leiðslu. Vitanlega getum við unnið að því
að betrumbæta verulega þau húsgagna-
form, sem þegar eru fyrir hendi, en við
getum hins vegar ekki breytt sköpulagi
mannslíkamans; líkaminn heldur áfram að
vera með því sama sniði og hann hefur alla
tíð haft. Það hafa að vísu verið búin til
nokkur setgögn, sem menn eiga einna
helzt að hringa sig ofan í, en hið einasta,
sem menn hafa upp úr því er bakverkur og
tak.
Plasthúsgögn Eiga Framtíð
Fyrir Sér
Efniviðurinn hefur alltaf haft mjög
mikla þýðingu í hönnun Poul Cadovius.
Hin aldna kempa innan
danskrar húsgagna-hönnun-
ar fer hörðum orðum um þá
skammsýni og þann skort á
sveigjanleika, sem sé ríkj-
andi í dönsku þjóðfélagi.
Þessi afstaða komi í veg
fyrir allt, sem heiti frum-
kvæði hjá mönnum, og nýr,
ferskur hugsunarháttur eigi
erfitt uppdráttar af sömu
ástæðum. Samtímis hefur
hann ásett sér, að allt, sem
hann muni framvegis hanna,
skuli taka mið af lögun
hrings og kúlu.
Þegar hannaður er stóll, sem í öllum smá-
atriðum á að bera vott um sérstaklega
vandaða smíði, þá skiptir viðurinn, sem í
stólinn er valinn, meginmáli. En samtímis
því, að Cadovius segist hafa hið mesta yndi
af æðunum í fallegum viðarbút, viður-
kennir hann blygðunarlaust, að plastið sé
efniviður framtíðarinnar. Hann hefur
einnig staðið að framleiðslu á bæði stólum
og seglbátum úr trefjagleri.
— Eftir um það bil tuttugu ár verður
viður orðinn svo sjaldgæfur, að viðarhús-
gögn, sem framleidd eru nú á dögum,
verða orðin að forngripum — eða að
minnsta kosti mjög eftirsótt vara. Við
munum að meira eða minna leyti verða
neydd til að nota plast eða áþekk efni í
húsgagnagerð.
Cadovius hefur aldrei látið gera neina
forspá um söluhorfur né látið framkvæma
markaðskannanir, áður en hann hefur haf-
ið framleiðslu nýrrar húsgagnasamstæðu
frá sinni hendi. Hann heldur sig nefnilega
við sína eigin einkakenningu um markað-
inn.
Varðskýli og símaklefi
Frumgerðin af nýjum símaklefa úr trefja-
gleri, en lögun hans byggist á formi kúlunn-
ar; klefann má annars líka nota sem varð-
skýli.
Handiðn í hvívetna
Skákborð, smíðað úr palisander, með flötum
leðurpúðum til að láta hendurnar hvíla á.
Þetta borð mun vera einii af hinum minna
þekktu munum, sem Poul Cadovius hefur
hannað, en það hafa reyndar aðeins verið
smíðuð eitthvað um tuttugu eintök af því.
Skákborð þetta var hannað í tilefni afheims-
meistaramóti í skák og ber glöggan vott um
mjög vandaða smíði.
— Markaðurinn fyrir þau húsgögn, sem
ég hanna og læt framleiða, stendur í nán-
um tengslum við bifreiðaiðnaðinn, sem er
byggður upp líkt og pýramídi, með Rolls
Royce efst uppi á toppinum og Trabant í
neðstu lögunum. Sjálfur hef ég alltaf leit-
ast við að halda mig við Mercedes-línuna
— það er að segja að selja því fólki hús-
gögnin mín, sem er vant að kaupa sér
Mercedes. Þetta fólk hefur efni á að borga
þann kostnað, sem felst í vandaðri smíði,
og það skilur líka, að húsgögn í háum
gæðaflokki hljóta að kosta skildinginn.
Þegar mér verður litið út á dönsku þjóð-
vegina, sé ég, að það eru mjög fáir bílar í
þessum gæðaflokki þar á ferðinni, en snúi
ég mér hins vegar til Þýzkalands, þá sé ég
að þriðji hver bíll á þeim slóðum er Mer-
cedes. Þetta táknar því í mínum augum, að
ég geti selt mikið af mínum húsgögnum
þarlendis. Hið sama á við um lönd eins og
Spán, England og Bandaríkin.
Er Með Einkaleyfi Á
340 Uppfinningum
Poul Cadovius hefur fengist við að gera
alls konar tilraunir og unnið að uppfinn-
ingum, allt frá því á unglingsárunum, og
hann hefur núorðið einkaleyfi á 340 mis-
munandi framieiðsluvörum. Hann er al-
gjöriega sjálflærður á því sviði, en hiaut
starfsfræðslu sem veggfóðrari og skreyt-
ingameistari. Því segist hann vera feginn.
— Ég hef aldrei fundið fyrir þeim höml-
um, sem felast í því að menn þykjast vita
að einhver ákveðinn hlutur sé ófram-
kvæmanlegur.
Hann á ekki auðvelt með að útskýra,
hvaðan hugmyndir hans komi, en segir
einungis, að það sé að minnsta kosti ekki
hægt að ná fram góðri hugmynd með því
að teikna frumdrög eftir ákveðnu máli,
lengd, breidd og hæð. í slíkum tilvikum
verði niðurstaðan í hæsta lagi góð eftirlík-
ing af einhverju þekktu.
— Allt í einu hvarflar hugmyndin að
manni, oft á tíðum alveg úr heiðskíru lofti.
Þannig varð til dæmis skýlið til, sem er í
lögun einna líkast hálfum sveppi og getur
orðið að líta við svo að segja hverja ein-
ustu strætisvagnastöð í Danmörku.
Hugmyndina fékk ég að næturlagi, þegar
ég var eitt sinn á leið með ferjunni á milli
Árósa og Kalundborg. Og Abstracta, þessi
sexhyrndi kúði með sína óendanlega
mörgu möguleika, er alveg tvímælalaust
snjallasta uppfinningin mín. Hugmyndin
að Abstracta tók á sig endanlega lögun
þegar ég var dag nokkurn staddur á
skrifstofunni fyrir alþjóðaeinkaleyfi. Einn
af verkfræðingunum hafði þá orð á því, að
Hugvitsamleg bókagrind
Það er hægt að snúa gegnsæju akrylplötunni
þannig að leggja má bókina á hvolf ofan á
plötuna og lesa í gegnum hana. Hægt er að
hafa stöngina það háa, að maður getur lesið
standandi.
I DHIUH
Engar hvassar brúnir
Ein nýjasta húsgagnasamstæðan, sem Cado-
vius hefur hannað nefnist Jubile og einkenn-
ist afformi, sem er alveg laust við allar
hvassar brúnir, en hefur aftur á móti ein-
göngu mjúkar, ávalar línur til að bera. Sam-
tímis ber þessi samstæða vott um mjög vand■
aða smíði.
ég virtist vera mjög svo annars hugar. Ég
sagði þá við hann, að þetta væri alveg rétt
hjá honum og spurði, hvort hann hefði
ekki skrifborð aflögu, sem ég gæti fengið
að nota um stund. Þarna varð svo Ab-
stracta til og um leið var ég kominn með
undirstöðuna að 22 einkaleyfum um allan
heim á hlutum, sem byggjast á þessari
hugmynd.
Þá hefur Poul Cadovius einnig unnið að
því að fullgera frumgerðina að nýjum
símaklefa úr trefjagleri, en lögun hans
byggist í megindráttum á kúluformi.
— Það var opinber samkeppni um gerð
nýrra símaklefa haldin fyrir nokkrum ár
um, sem varð kveikjan að minni hugmynd
Ég tók sjálfur ekki þátt í þessari sam
keppni, en þegar verðlaunatillögurnar
höfðu verið birtar, var það samt mitt álit,
að það væri hægt að leysa þetta verkefni
betur af hendi. Nú á bráðum að fara að
fjöldaframleiða símaklefann minn, og ég
ætla að selja hann um allan heim. Það má
líka nota hann sem varðskýli, svo Atl
antshafsbandalagið á kost á að kaupa
hann og líka Rússar — ef þeir vilja.
Getur Ekki Verið
Aðgerðalaus
Poul Cadovius er núna búsettur
Svendborg og hefur dásamlegt útsýni til
Tásinge úr gluggunum á húsi sínu. Hann
hefur útbúið sér eins konar sambland af
skrifstofu og teiknistofu í kjallara hússins,
og þar á svo Cadovius-hönnun framtíðar-
innar eftir að líta fyrst dagsins ljós.
— Ég vinn miklu meira en 40 tíma
viku, því að ekkert fellur manni fyrirhafn
arlaust í skaut af himnum ofan nú á dög-
um. í gær vorum við, konan mín og ég, að
hamast við að búa um auglýsingabæklinga
til póstsendingar langt fram á kvöld og
höfðum bara reglulega gaman af því
stússi. Því er nú einu sinni svo varið, að ég
get bara ekki verið iðjulaus.
Hanne Hejberg
EITTHVAÐ FYRIR AUGAÐ
Líkt og úr ríki
náttúrunnar
Á bandarísku handíðarsýningunni á
Kjarvalsstöðum í vetur sáum við fram-
úrskarandi fágaða glerlist, en uppá síð-
kastið hefur glerið sem efniviður verið
tekið til rækilegrar meðferðar þar
vestra. Þá er ekki lengur verið að fást við
nytjahluti, heldur er hér sjálfstæð list-
sköpun, sem kemst næst því að vera
hliðstæð við skúlptúr. Mörkin á milli
listar og handíðar verða óljós hér; eins
og mörg góö list er þessi byggð að hluta á
sjálfu handverkinu. En fyrst og fremst
er verið að fást við form, áhrifjita og
ekki sízt áhrif birtunnar, þegar hún skín
í gegn.
Maður er nefndur Dale Chihuli og er
hann talinn í fremstu röð bandarískra
glerlistarmanna. Hann byrjaði raunar
sem innanhússarkitekt uppúr 1960, en
sneri sér síðan alveg að glerlist og stofn-
aði frægan sumarskóla í faginu, sem
heitir Pilchuck eftir indíánaþjóðflokki.
Frá 1969—79 veitti hann forstöðu gler-
listardeildinni við Rhode Island School
of Design, þar sem hann hafði sjálfur
numið áður — og nú hefur hann eins
konar heiðursaðsetur í skólanum.
Enda þótt hlutirnir, sem hér sjást, séu
meira eða minna í skálarlíki, eru þeim
engin skálarnot ætluð. Þessi glerlist er
þegar öllu er á botninn hvolft, merkilega
hliðstæð við sumt sem fundið verður í
ríki sjálfrar náttúrunnar og þá gjarnan
til orðið við háan hita eins og glerlist
Chihulis.
LESBOK MORGUNBLAOSINS 17. MARZ 1984 15