Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1985, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1985, Side 7
stjóri jarlsins í sex ár, fékk sanngjarna upphæð, 75 pund. Þetta var sætt af þér, gamli minn, hugsaði Gerald. Nægir fyrir miða til Parísar á fyrsta farrými, svo sannarlega. Burt frá þessum kvenvargi mínum. Meginhluti auðæfanna, 400 þúsund pund, og Murfee-óðalið að auki, rann til rannsókna og lækningastofunnar vegna flogaveiki, þar sem jarlinn hafði þjáðst af þessum sjúkdómi í mörg herrans ár. Lloyds-maðurinn fékk fyrirmæli um að af- henda Dover Bank-manninum tryggingafé jarlsins, sem aftur var gert að skipta arf- inum milli erfingjanna. „Erfðaskráin skipar svo fyrir að loka læknisrannsókn skuli farafram ájarlinum áður en grafhvelfingin er innsigluð," sagði lögfræðingurinn. „Ef þér vilduð gjöra svo vel læknir." Læknirinn færði sig að lík- börunum með hlustunarpípu og lagði hana að brjósti jarlsins. Því næst tók hann um úlnlið líksins með þumal- og vísifingri. Að lokum hélt hann litlum spegli upp að að- skildum vörunum í nokkrar sekúndur. „Ég finn hvorki hjartslátt né púls,“ mælti hann.“ Og engin móða myndast á glerinu. Ég lýsi því hér með enn yfir að Sir Tyron Murfee, jarl af Sheel, er látinn." „Þá ætti öllum formsatriðum að vera fullnægt," sagði lögmaðurinn. „Ef þið vilj- uð gjöra svo vel að koma út fyrir og vera vitni að innsiglun grafhýssins." Lögfræðingurinn með skjalatöskuna í annarri hendi og autt skartgripaskrínið í hinni setti öxlina í hurð grafhýssins og lokaði henni að viðstöddum fulltrúunum og þjónustufólkinu. Hann átti í basli með lykiíinn að grafhýsinu með fangið fullt og þá steig Gerald Stander fram enn á ný. „Ég skal rétta þér hendi, herra,“ mælti hann brosandi. Hann tók þungan lykilinn úr hönd lögfræðingsins, stakk honum í skrána og snéri honum heilan hring. Hár hvellur heyrðist þegar hurðin small í lás. Stander fjarlægði lykilinn, stóð þétt upp að hurðinni og lagðist á slána til að reyna lásinn. Hurðarlokan haggaðist ekki. Stand- er rétti úr sér, þandi ánægður brjóstið og snéri aftur að lögmanninum. „Ójá,“ svaraði hann, „innsiglað er það.“ „Gott og vel. Þessari athöfn er þar með lokið. Ég vil þakka ykkur öllum fyrir nærveru ykkar.“ Samkoman leystist smam saman upp en Finch, ásamt Gerald Stander, dokaði við rétt hjá dyrum hvelfingarinnar, tróð rólega í pípu sina og hleraði óáreittur samræður læjknisins og lögfræðingsins. „Hvaða vesen var þetta með loka læknis- rannsókn?" heyrði Finch lögfræðinginn segja. „Varkárni held ég,“ ansaði læknir- inn. „Sá gamli var flogaveikur i mörg ár eins og þú veist. Einhversstaðar heyrði hann gróusögur um kviksetningu fólks sem virtist vera dáið en var það ekki. Sagan segir að eftir 12 til 15 klst. vakni líkaminn sprellifandi úr dáinu. Að sjálfsögðu skelfa svona kjaftasögur flogaveikissjúkling." „Já, mig skal ekki undra," mælti lög- maðurinn. Hann leit aftur á innsiglaðar dyrnar. „Þú... hérna... þú ert alveg viss í þinni sök, er það ekki?“ „Nei, heyrðu nú, málafærslumaður góð- ur,“ mótmælti læknirinn móðgaður. „Hvernig fyndist þér að ég færi að efast um réttmæti erfðaskrárinnar?" „Já ég sé hvað þú átt við,“ sagði lög- maðurinn. „Afsakaðu. Jæja, ég verð að fara að drífa mig ef ég á að ná síðustu lest til London." „Mér væri sönn ánægja að aka yður, herra," mælti Gerald Stander. „Ég er með óðalsbílinn hérna rétt hjá.“ „Fallega gert,“ sagði lögfræðingurinn. Finch horfði á þá fara. Þegar þeir voru komnir úr augsýn flýtti hann sér áhyggju- fullur að kofanum sinum, að göngunum sínum. Göngin, sem lágu frá varðmannskofan- um að Murfee hvelfingunni, voru rétt mátulega stór að ummáli til að Finch gæti skriðið á fjórum fótum alla leið. Finch hafði grafið síðustu þrjá metrana þennan sama dag og hafði rétt nýlokið verkinu þegar komið var með kistu jarlsins frá Óðalinu. Göngin voru þétt og vel byggð, skorðuð upp til hliðanna og styrkt í loftinu meö samskonar timbri og notað var til að taka grafir í úrhellisrigningu. Jafnvel lík- vagn beint yfir þeim hefði ekki skemmt göngin hið minnsta. Klukkustundu eftir a hvelfingin hafði verið innsigluð sat Finch við tréborð í nöturlega, litla kofanum, drakk úr stíru Whiskey-glasi og starði án afláts á opið í gólfinu fyrir framan hann, innganginn að göngunum sem hafði tekið hálft ár að grafa. Honum rann kalt vatn milli skinns og hörunds við tilhugsunina um það sem hafði farið inn um göngin, eða það sem enn viðbjóðslegra var, það sem hafði komið út úr þeim. Neðanjarðarmokstur í mold og leðju var svo sem nógu slæmur, en þegar moldin Qg leðjan voru blönduð leifum... Finch hryllti sig og hvolfdi í sig Whi- skeyinu. Skiptir engu, hugsaði hann. Nú er allt búið, allt nema gullmoksturinn sjálfur. Hann stóð upp og leit á vasaúrið. Lögfræðingurinn væri nú í þann mund að stíga upp í lestina. Eftir hálftíma yrði kirkjugarðurinn almyrkur. Það var eins gott að ljúka því af. vörðurinn skellti skóflu og klaufjárni yfir öxlina, hengdi ljósker um hálsin og lét sig síga niður í holuna. Síðan teygði hann sig í tréfleka og skorðaði hann vel yfir gangna- opið svo engin ummerki sáust. finch fékk yfirleitt ekki gesti en í kvöld var ástæðu- laust að taka nokkra óþarfa áhættu. Hler- inn leyndi göngunum fullkomlega. Eins og vanalega voru göngin dimm og rök en í þessari siðustu ferð sinni stóð Finch nokkurn veginn á sama þótt væntan smygi upp eftir buxna skálmunum, þótt hann rifi sig á stöku steinnibbu, jafnvel þótt hann rækist á úldnar líkamsleifar á miðri leið, því þessa stund hafði hann þráð og dreymt um á löngum, einmanalegum kvöldum. í kvöld mundi hann hefja nýtt og betra líf. Hann skreið áfram með skóf 1- una og klaufjárnið á öxlinni. Hann skreið þótt ólin á ljóskerinu særði hann illilega á hálsinum. Áfram skreið hann þótt flón- elsbuxurnar væru orðnar gegnblautar, þótt ýlduþefurinn fyllti vitin, þrátt fyrir loftley- sið í göngunum. Hann skreið og hann skreið og hann skreið. Að lokum hjó hann hressilega upp á við og braut sér leið gegnum síðasta metrann inn í grafhýsi jarlsins af Sheel. Finch vóg sig upp, móður og másandi, og hallaði sér upp að veggnum. Hann brá upp ljóskerinu þar til hann kom auga á hálffullan olíu- lampa sem hafði verið skilinn eftir í jarða- förinni fyrr um daginn. Hann kveikti á eldspýtu og bar hana að kveiknum. Lamp- inn sendi daufa birtu um grafhýsið og Finch slökkti á ljóskerinu. Hljóður i bragði virti hann fyrir sér þetta herbergi dauðans. Hárin risu á höfði hans, hann kingdi í sífellu. Best að hugsa ekki um þá dauðu, sagði hann við sjálfan sig. Hugsaðu um þá sem lifa, hugsaðu um sjálfan þig maður. Finch lagði klaufjárnið upp að einni kistunni og gekk yfir að opinni kistu jarls- ins. Hann hóf að safna saman djásnum þeim sem lögfræðingurinn hafði dreift umn kistuna. Hann týndi þau varfærnis- lega upp hvert á fætur öðru með vísi- og þumalfingri, stakk þeim í jakkavasa sinn og taldi þau jafnóðum í huganum. Skyndilega fraus blóðið í æðum hans og hann stirðnaði af skelfingu. Snöggur smell- ur heyrðist frá hurðinni. Einhver var að koma inn í hvelfinguna. Hurðalokunni var ljrft hljóðlega. Finch komst aftur nægilega til sjálfs sín til að hraða sér út í dimmt hornið. Augnabliki síðar steig Gerald Stander inn og lokaði þungri hurðinni varlega á eftir sér. Ungi bílstjórinn hikaði andartak, skelkaður vegna ósandi olíulampans. Síðan áttaði hann sig, ákvað að lampinn hefði verið skilinn eftir fyrr um daginn og hraðaði sér að kostunni tilað taka þá skertgripi sem Finch hafði ekki heppnast að taka með sér. Finch fylgdist með honum, varð ævareiður. Hann færði sig inn í birtuna, krímugt andlit hans fölt af reiði. „Hættu þessu, þú viðurstyggilegi líkræn- ingi“, argaöi hann án þess að gera sér grein fyrir sinni eigin aðstöðu. Stander lá við yfiriiði af ótta er hann heyrði þessa ógnandi rödd. Hann staulaðist frávita frá börnunum. „Hvernig gastu opnað dyrnar?" heimtaði Finch. „Ég... ég lét lögmanninn fá rangan lykil". „Þýðir það,“ sagði rödd Finch varð há og skræk af réttlátri reiði, „að ég ég hafi þrælað og púlað í göngunum í heilt ár og þú... þú hefur bara stolið lyklinum?" „Grófstu þér leið hingað?“ spurði Stand- er vantrúa. Bílstjórinn, sem var óðum að ná sér leit i kring um sig og rak augun í skófluna rétt við gangnaopið. „Grófstu göng alla leið frá háinu í gegnum allar... allar grafirnar? Hverniggastu það?“ Allt í einu gerði hann sér grein fyrir veru Finch í hvelfingunni, hnykkti aftur höfðinu og skellihló. „Fíflið þitt,“ hreytti hann út úr sér. „Þú vesæla, heimska fífl. Mér tókst að afreka það á tveimur sekúnd- um sem þú hamaðist við í heilt ár. Það er engin furða þótt þú sért grafarvörður, þú ert alltof heimskur til að búa í heimi lif- enda.“ Andlit Finch afmyndaðist. Hann kreppti hnefana, kastaði sér á Stander og gaf honum svo vel ótillátið högg að hann endasentist að kistunni. „Þú skítuga svín,“ orgaði Stander og þurrkaði blóðtaum úr öðru munnvikinu. „Ég skal drepa þig.“ Finch hörfaði og varð snögglega gripinn ótta þegar bílstjórinn bjó sig undir að ráð- ast á hann. Hann hrasaði um kistuna eg ungur, sterkur handleggur Standers læst- ist um háls hans svo Finch lá við köfnum, Úr honum dró allan mátt. Þeir féllu á gólf- ið við hlið kistunnar og Finch var þess fullviss að sín síðasta stund væri upprunn- in. Þá varð fyrir honum klaufjárnið sem stóð upp við kistuna og hann fylltist aukn- um þrótti. Finch kreppti höndina um jár- nið, hóf það upp og barði því af öllu afli í hnakka Standers. Bílstjórinn greip um höfuðið og riðaði. Finch barði hann aftur, í þetta sinn ofan á hvirfilinn. Stander hneig á gólfið og lá þar hreyfingarlaus. Finch greip um ljóskerið og reiddi upp klaufjárnið fyrir þriðja höggið. Ljósið féll á opinn munn og brostin augu dauða mannsins. Finch steig aftur á bak másandi og blásandi. Hann lagði járnið og ljóskerið frá sér og néri auman hálsinn eftir fingur Standers. Fjandans fíflið var nærri búið að drepa mig, svei mér þá. Finch svipaðist um í grafhýsinu og barðist við að ná andan- um. Eg hreinsa bara úr kistu jarlsins, hugsaði hann taugaóstyrkur. Ég læt hinar eiga sig. Hann gekk nötrandi að kistu Tyron Murfee. I snatri lauk hann ætlunar- verkinu, greip hring hér, armband þar, silfurúr, gullsignet. Gimsteinadjásn She- el-ættarinnar lá í skrautlegri umgjörð við vinstri öxl jarlsins. Finch hrökk í kút og starði opinmynntur á andlit Tyron Mur- fees. Hann er með opin augu, hugsaði hann viti sínu fjær af hræðslu. Voru þau opin áður? Hann reyndi af alefli að rifja það upp. Já, auðvitað voru þau það. Nei... bíddu við, augu Standers voru opin. Stand- er sem lá dauður bak við aðra kistu, en jarlinn, hafði hann ekki verið með lokuð augun? Kaldur angistarsviti spratt út á Finch, hann fór að skjálfa. Hvað var læknirinn að tala um að flogaveiki gæti haft þau áhrif að fólk virtist dautt? Finch kippti að sér hendinni og hörfaði. Nú er nóg komið, hugsaði hann æstur. Éger farinn héðan áður en ég missi vitið. Hann greip ljóskerið og kveikti á því í skyndi. Hann kastaði handfylli af mold á olíulampann til að slökkva á honum. Svo þreif hann klaufjárnið og skófluna og kastaði þeim niður í opið. Er hann var í þann mund að stíga niður í tómið, datt honum annað i hug og stansaði. Dyrnar! Stander hafði opnað hurðina. Það var engin ástæða til að fara göngin, hann gæti sem best notað hurðina. Nei, bíddu við, hugsaði hann. Hvað ef einhver sér mig? Það er nú ekki líklegt en það eru alltaf einhverjir snuðrar- ar á ferli. Betra að vera varkár þó það kosti það að ég verði að fara helvítis göngin aftur. En dyrnar, ég get ekki skilið þær eftir ólæstar. Finch hraðaði sér yfir að likinu á gólfinu og fiskaði lykilinn upp úr vasa Standers. Hann gekk í humátt að hurðinni með ljóskerið í hendinni. Birtan féll á andlit Tyron Murfee og Finch fékk áfall þegar hann sá að augu jarlsins voru lokuð. Þau voru þó opin áðan, var það ekki? Hann hugsaði hratt í örvæntingu sinni. Eða voru það kannski augu Standers?. Bíddu, augu Standers voru opin og augu jarlsins voru lokuð. Já, þannig var það. Ég verð brjálaður ef ég kemst ekki út héðan í hvelli. Finch slökkti á ljóskerinu við dyrnar og lagði það frá sér. Hann opnaði smá rifu á þunga hurðina og gægðist út. Fullur mán- inn baðaði kirkjugarðinn silfurskini. Finch lagði við hlustir en heyrði ekkert. Hljóð- lega opnaði hann hurðina nægilega til þess að smeygja hendinni út að lokunni og setja hana niður. Síðan teygði hann sig í lásinn, stakk lyklinum í og snéri. Svona, hugsaði hann. Ef ég get svo lokað hurðinni að innanverðu er grafhýsið innsiglað aftur. Finch lagðist með öllum þunga sínum á hurðina. Hún small aftur og var rammlæst. Og þá er leiðin greið, hugsaði Finch. Með lykilinn inni í grafhýsinu yrði það aldrei opnað aftur. Hann tók upp ljóskerið og stefndi á göngin. Hann gat ekki varist þeirri hugsun hvort augu jarlsins væru opin eða lokuð. Um leið og hann gekk framhjá gjóaði hann augunum að líkinu. Finch varð máttvana af hryllingi og ótta, hann fann æðaslátt í höfðinu og munnur hans skrælþornaði. Líkkista Tyron Murfee, hinsta jarlsins af Sheel, var auð!! „Nei,“ hvíslaði Finch, titrandi röddu. „Nei, nei, nei, nei.“ „Ljóskerið féll úr hendi hans, ljósglamp- inn flögraði um grafhýsið þar til það hafn- aði á gólfinu milli Finch og gangnanna. Ljósið féll á opið i jörðinni, nú, einu leiðina út úr hvelfingunni. Og í holunni barðist risavaxinn búkur Tyron Murfee á hæl og hnakka, andlit hans afskræmt af hræðslu, því hann var gjörsamlega, endanlega, pittfastur. Finch með gagnslausan lykilinn í hend- inni... veinaði... Fyrir utan lagðist þögnin yfir kirkju- garðinn og hjúpaði hann ásýnd dauðans. Ragna Þorvaldsdóttir þýddi SVAVAR JÓNSSON Bara augun ein Augun þín, svo ómæld djúp, undurskær, íblárrifirð, sveipastnúna helgum hjúp, hátign, dýrð og stríðri kyrrð. Þau mérflytja lítið ljóð, ljúfan söng og klökkvan brag, dapurtkvæði, dýrðaróð, dægurvísu, sorgarlag. íþeim speglast alvaldstign, öskurbrim ogþungurfoss, þýður blærinn, lindin lygn, lítið blóm og heitur koss. íþeim sé ég brostinn barm, þar blasir við mér fátækt mín, leika stef um heimsins harm, heiðu, litlu augun þín. Þar er líka brosið blítt, brosið eina, kærtoghlýtt, saklaust, máttugt, miltogþýtt, mikilfenglegt, sættogfrítt. A ugnalok aðh vörm um höll, hljóðna válegfólskuköll, þagnar kliður, kafna sköll, kvæðið búið, sagan öll. Snemm- búið vor Erleikurum varir bernskubros og blíðfætt ergengið um freðinn svörð og bærast í vindi vöknuð strá og vorið er tekið ísátt á jörð þá brennur í mínu brjósti þrá að bræða aðglæða að elska ogfá. Höndum vermiéghrím ogkul, það hýrgast í breðanum máttur nýr, það leika í vindi vöknuð blóm. Vetur við mannheimum baki snýr. Það leggur af blænum hlýjan hljóm, það hlær við mér iífið með gleðiróm. Svavar Jónsson er nemandi I guölræðideild HásKóla Islands. LESBOK MORGUNBLAÐSINS 12. OKTÖBER 1985

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.