Lesbók Morgunblaðsins - 22.03.1986, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 22.03.1986, Blaðsíða 16
FGmSKRiFSrOHIH f'Wdl einstök veðurblíða. í þjónustumiðstöðinni eru verslanir, veitingahús, diskótek, snyrtistofa, þvottahús, bar, bjórstofa, útitafl, sauna og barnaklúbbur. Þar er einnig líf og fjör; tennisvellir, squash, reiðskóli, hestaleiga, sundlaug, billjard og minigolf. Fallegt og spennandi nágrenni Á næstu grösum eru mörg hreinleg og ylvolg smávötn með sjóskíðum, seglbrettum og bátum. Þar er líka tilvalið að liggja í sólbaði og synda. örstutt er að heimsækja áhugaverða dýragarða, Hillesheim golfvöllinn (9 holur), Nurburgring kappakst- ursvöllinn (keppt allar helgar) og æsilega „gokart“ kappaksturs- braut. Fararstjórar Úrvals skipuleggja skoðunar- og skemmtiferðir um nágrannabyggðirnar. Mósel og Rín - hagstætt verölag Upplagt er að heimsækja borgirnarTriervið Mósel, Köln við Rín og hina víðfrægu Mósel- og Rínardali með sínu sérstæða og heillandi andrúmslofti. f Daun Eifel, Trier og Köln er mjög hagstætt að versla - sannkallað fríhafnarverð á flestum hlutum. Fantasíuland Ómissandi er fyrir alla Úrvalsfarþega í Daun Eifel að skjótast í 2ja stunda ferðalag til Fantasíulands, sem er risastór skemmtigarð- ur. Þar finnur þú m.a. gullgrafarabæ í villta vestrinu, Kínahverfi, breiðstræti frá Berlín, vatn með víkingaskipum, vatnsrennibrautir, rússíbana, silfurnámu, draugagöng, fornaldar- dýrabæ, apaleikhús, stjörnusal, galdrabíó, danssýningar, skotbakka og alls kyns tryllitæki til að tæta á. Óborganleg skemmtun. Gisting í Daun Eifel er hægt að velja um margs konar gistingu , allt frá 26 m2 stúdíóíbúðum fyrir 1 eða 2, uppí 4ra herbergja 95 m2 raðhús fyrir 9. öllum fbúðum fylgja mataráhöld og tæki, rúmfatnaður, sími og sjónvarp. Pantiö strax Munið að panta tímanlega. Það borgar sig að bóka sem fyrst. Allar nánari upplýsingar veita sölu- og umboðs- menn um land allt. s umarleyfisbærinn Daun Eifel í S-Þýskalandi er að verða einn vinsælasti áfangastaður Úrvalsfar- þega - og ekki að ástæðulausu. Þar er stórkostleg aðstaða fyrir alla aldurshópa að eyða áhyggjulausu sumarfríi við afslöppun og afþreyingu í mjúku suður-þýsku sólskini. Feröatilhögun Flogið er til Lúxemborg- ar. Þar bjóðum við uppá rútuferðir fyrir hópa og íslenska fararstjórn. Þar er einnig Continental bílaleigan til húsa og íslenskt starfsfólk afhendir Úrvalsfarþegum bílana. Við hvetjum eindregið alla til aö fá sér bílaleigubíl. það eykur ferðamöguleikana til muna og gefur þér kost á fjölbreyttara fríi. Frá Lúxemborg er aðeins um 2ja klst. akstur til Daun um fallegar og spennandi nágrannabyggðirnar. Daun Eifel Daun Eifel er ósvikinn leti- og skemmtigarður. Þar eru frábær húsakynni, fagurt umhverfi og Verðdæmi - sumarhús, flug og bílaleigubíll 5/4-14/6 og 6/9-25/10 14/6-26/7 22/3-5/4 og 26/7-6/9 Ein vika-frákr.: 18.618,- 19.330,- 19.940,- Tværvikur-frákr.: 22.136,- 23.558,- 24.880,- Þrjárvikur-frákr.: 25.654,- 27.787,- 29.820,- Innifalið: Flug, gisting, bflaleigubfll, söluskattur, ábyrgðar- og kaskótrygg- ing, ótakmarkaður akstur, rafmagn, hití og (slenskur fararstjóri f Daun. Verð miðað við gengi 7. janúar. Bamaafsláttur: 0-1 árs greiða 10%, 2-11 ára fá 6.300,- kr. afslátt. Brottfarlr: Alla laugardaga. Fyrsta brottför 22. mars. Úrvalsferð til Daun Eifel tryggir þér óvenju hagkvæmt, afslappandi og #tyggj Ferðaskrifstofan Úrval v/Austurvöll. Sími (91) 26900. 16

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.