Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.1986, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.1986, Page 7
í leit að 19. öldinni Georg Berna,, Arnold Böcklin og ísland EFTIR FRANK PONZI Fyrir nokkrum árum kom ég í þýska stórborg, af því ég vissi að íslandsleiðangur einn á 19. öld hafði átt uppruna sinn þar, og ég vonaðist til að finna þar viðbótarheimildir vegna bókar sem ég vann að. En eftir margra langra daga leit í listasöfnun, bókasöfnun og ýmsum öðrum stofnunum, fann ég ekkert sem snerti atburð, sem orðið hafði fyrir 125 árum. Allar heimildir um þennan atburð virtust gersamlega horfnar. Vonsvikinn og þreyttur eftir kostgæfilega leit settist ég á bekk við árbakka í miðri borginni til að hugleiða málin og íhuga næstu skref. Eg horfði ögn öfundsjúkur á svani og pramma líða hjá á lygnu vatninu. Þeir vissu þó hvert stefndi. Dagurinn var bjartur og hlýr og bágt að trúa að þessi snyrtilega borg hefði orðið fyrir mikilli eyði- leggingu í seinni heimsstyijöldinni. Ég reyndi að ímynda mér hvernig þar hefði verið umhorfs í þá daga. Gat verið að það sem ég kom til að leita uppi hefði grafist undir rústunum? Meðan hugur minn reikaði þannig rak ég augun í undarlega byggingu, sem stóð andspænis mér handan árinnar. Það rann loks upp fyrir mér að þar var einn fárra staða sem ég hafði ekki sótt heim á löngum leitarferðum mínum. Þar sem þetta var minjasafn um sögu borgarinnar og áhuga- verðast fyrir heimamenn hafði ég sett safnið neðarlega á líkindalista minn og ekki farið þangað. En nú var eins og það benti mér að koma nær. Það var skömmu eftir klukkan eitt, að ég kom í afgreiðslu safnsins. Það var mér sagt að safnstjórinn væri enn í mat og ekki vitað hvenær hann kæmi aftur. Ég játaði mig sigraðan og hugðist snúa mér að undir- búningi að brottför úr borginni. En sem ég var kominn hálfa leið út um vængjadyrnar var ég kallaður inn aftur. Safnstjórinn hafði sést koma inn um hliðardyr ásamt öðru starfsliði. Lágvaxinn, grannur maður hátt á sextugsaldri með ótrúlega illa greitt grátt hár gekk á móti mér og heilsaði. Ég kynnti mig og greindi frá ástæðum mínum fyrir heimsókninni. Hann hlustaði kurteislega á mál mitt og sagði svo, tafarlaust, „Nein, nicht Island!“. Hann sneri sér að starfs- bræðrum sínum og spurði þá „Island?" Allir sem einn hristu þeir höfuðið til staðfesting- ar svari hans. Hann sneri sér aftur að mér. „Nicht Island!" endurtók hann og með þunga fullvissunar að þessu sinni. Þar með þakk- aði ég fyrir mig og bjóst enn til brottferðar, ánægður með það þó að hafa útkljáð málið í eitt skipti fyrir öll. En þá heyrði ég hann muldra, eftir stutt hik. „Kannski er eitthvað um Svalbarða?" Svalbarði!? En skrýtið, hugsaði ég, leklangurinn hafði einnig farið til Svalbarða. Ég spurði hvort ég mætti líta á það. „Jú, að sjálfsögðu, en það er best að skoða fyrst spjaldskrána á skrifstofunni minni!“ Og svo gengum við hratt af stað um safnið. Vegna þess hve hratt gestgjafi minn gekk sá ég aðeins bregða fyrir ýmsum skemmti- legum hlutum sem voru þar til sýnis úr fortíð borgarinnar. Svo komum við á þriðju hæðina, og þessi spræki forstjóri sneri inn dimman gang í átt að skrifstofu sinni og ég á hæla honum. Skyndilega tók ég eftir mjög stóru olíumálverki á veggnum. Ég snar- stansaði og starði vantrúaður á myndina. „Herr Direktor," kallaði ég á eftir honum. „Komdu og sjáðu hér, andartak." Hann stansaði og kom til mín. „Das ist Island" saði ég og benti á myndina. „Das ist Is- land?“ sagði hann ráðvilltur og lagði áherslu á síðasta orðið. „Ja, das ist Þingvellir im Island, das ist von Hasselhorst" sagði ég, en ég var einmitt að leita að verkum hans og hélt mig hafa misst af slóðinni. Frammi fyrir okkur var yfirlitsmynd Hasselhorsts af Þingvöllum, sem hann málaði á Islandi 1861 og er málverkið um það bil tveir og hálfur metri á lengd. Þegar ég komst yfir undrunina yfir að hafa fundið myndina, varð ég einnig að fela furðu mína á safnstjóranum sem hafði gengið daglega um þennan gang í nærri tuttugu ár, án þess að vita af hvetju mynd- in var. (Síðan þá hef ég vanist því að útlendingar þekki ekki alltaf íslensk lands- lagseinkenni. Sum málverk fann ég síðan íslenzkur þjóðbúningur í þýzkum kastala. Ljósmynd frá 1895 eða þar um bil. En hvers vegna þessi prestakragi og höfuðbúningur? Sjá nánar í greininni. p^pi,§ r . .. * t ■ eingöngu með því að skoða sjálf verkin, þar sem þeim var ranglega lýst í erlendum safn- skrám. í Frakklandi voru málverk af Heklu og Geysi ranglega skráð sem „Landslags- myndir frá írlandi"; í Danmörku var málverk af Akureyri skráð sem „Höfn í Færeyjum" og enn önnur Þingvallamynd í Þýskalandi var kölluð „Taunuslandschaft, Deutschland" eða „Landslag úr Taunusfjöllum".) „Hvaðan er myndin upprunnin?“ spurði ég safnstjórann, sem var enn utan við sig vegna uppljóstrunarinnar. Vandræðalegur á svip leiddi hann mig að spjaldskránni. Þar var uppruni myndarinnar svo skráður á spjald, að hún hefði verið gefin safninu 28. nóvember 1961 og hefðu gert það tvær eldri konur sem byggju í gömlu kastala norðan við borgina. Gætu þær enn verið á lífi, eft- ir nítján ár, spurði ég? Við safnstjórinn leituðum saman í nokkrum símaskrám. í einni þeirra fannst nafn annars gefendanna. Ég skrifaði upplýsingarnar niður, þakkaði safnstjóranum fyrir hjálpina og fór vongóð- ur út. Ég komst fljótt að því að báðar konumar voru enn á lífi og fyrir atbeina þriðja aðila var mér boðið til tedrykkju með þeim klukk- an þijú daginn eftir. Dagurinn sá var grámuggulegur og vætusamur. Þar sem ég var ókunnugur lestarferðum og vegalengd- inni sem fara þurfti lagði ég snemma af stað og kom á jámbrautarstöðina klukkan 12. Ég ákvað að hringja á undan mér. Þjón- ustustúlka svaraði í símann og kallaði svo á húsráðanda. Ég sagðist hafa komið of snemma á stöðina fyrir misgáning og baðst afsökunar á að hringja svo snemma, rétt eftir hádegið. „Það er ekkert, komdu bara beint hingað," svaraði ellileg en skýr rödd í símanum og með enskum menntamanna- hreim bætti hún við „og snæddu með okkur hádegisverð." Fimmtán mínútum síðar hleypti leigubíl- stjóri mér út í rigninguna og grámann við hliðið. Aðaldymar opnuðust og lágvaxin, tiginmannleg kona heilsaði mér innilega og kynnti sig sem frú Maríu Sommerhoff. Hún var 88 ára gömul, með vökul ljósblá augu, skjannhvítt hár og blíðlegt, frítt andlit sem sjá mátti á a hún hafði verið fegurðardís í æsku. Hún var í svörtum kjól með hvítar blúndur við únliði og háls, þar sem hún bar demantsetta silfumælu eins og talið var viðeigandi fyrrum. Ekki var ég fyrr kominn inn í forstofuna og hafði tekið af mér yfir- höfn og regnhlíf en önnur hvíthærð kona svipuð að aldri og framkomu birtist. „Komdu sæll, ég er Cordelía, systir Maríu." „Cord- elía,“ endurtók ég og tók í smáa framrétta hönd hennar. „Já, eftir þriðju dóttur Lés kóngs," sagði hún ákveðið og bætti fljótt við „góðu dótturinni, þeirri sem hann sagði um, ég elska þig eins og salt." Og hún hló stríðnislega og leit á mig yfir þykk gleraug- un. Báðar áttu frúmar tvenn gleraugu. Þau héngu um háls þeirra á löngum silfurkeðjum og dingluðu laus þau sem ekki vom í notk- un hveiju sinni. Þegar þær höfðu beðist Heinrich Hasselhorst: Leiðangursmenn snæða saman um borð. Lengst til vinstri eru þeir Hasselborst og Bema. Næturgisting í kirkju í Laugardal (Miðdal, því annar kirkjustaður var ekki í Laug- ardal). Málmstunga eftir Heinrich Hasselhorst frá 1863. LESBÓK MÓRGUNBLAÐSINS 6. DESEMB£R 1986 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.