Lesbók Morgunblaðsins - 22.08.1987, Page 16

Lesbók Morgunblaðsins - 22.08.1987, Page 16
Hallir sumarlandsins yið Hvassahraun egar komið er framhjá Kúagerði á leiðinni frá Keflavík til Reykjavíkur, blasir allt í einu við ein- kennileg byggð í hraun- inu, sem hlýtur að gefa ókunnum útlendingum einkennilega hugmynd um menningu og bústaði landsmanna. Glöggskyggn gestur sér að vísu af Keflavík- urveginum, að naumast geti verið búið í þessum kofum, því þar er yfírleitt ekki til gler í gluggum, heldur gapa augntóftir hús- anna við vegfarendum, eða þá að neglt hefur verið fyrir þær. Og einn er brunninn til ösku. Þetta gæti minnt víðförla ferða- menn á hreysin í fátækrahverfum Mexiko City og Hong Kong, sem byggð hafa verið úr kassafjölum, en að vísu mun þéttar en hallir sumarlandsins við Hvassahraun. Þar er heldur ekki tijágróður til að fela óþrifnað af þessu tagi; hann blasir við svo skýrt sem framast má verða og eru spýtnahrúgur og ryðbrunnar olíutunnur hafðar með til skrauts. A sólbjörtum sumardegi, þegar undirritaður tók myndimar, virtist ekki nokkra lifandi veru að sjá þama utan mó- fugla og kríu, sem gerði harða hríð að komumanni. Litlu síðar hitti ég tvo útlend- inga á bílaleigubíl ogtil að kanna viðbrögðin, benti ég þeim á kofana og spurði hvort þeir vissu hvaða bær þetta væri. Þeir vissu það að sjálfsögðu ekki, en annar sagði: „Það virðist vera draugabær" (It seems to be a ghost town). Einhver hlýtur að eiga þetta land og hef- ur þá heimilað þessi sorglegu hús, ef hús skyldi kalla. Einhveijir hljóta að eiga þau og einhver yfírvöld hljóta að geta ráðið því, hvort þau fá að standa svona áfram, gestum til furðu og okkur til lítils sóma. GÍSLI SIGURÐSSON

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.