Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1987, Side 6
Þarna voru í kjöri Bergur
Jónsson sýslumaður,
sem varð að setja í
embætti með valdi, Gísli
Jónsson kenndur við
Bíldudal, Sigurður
Einarsson, síðar prestur
í Holti og Hallgrímur
Hallgrímsson.
Kosningadagur í Arnar-
firði fyrir hálfri öld
rá árinu 1937 er mér enginn dagur jafn minnis-
stæður og kosningadagurinn 20. júní. Hann
var hlýr og bjartur og lognið stafaði fjörðinn.
Ég var á níunda árinu og átti heima á Fífustöð-
í Fífustaðadal, næstysta byggða dalnum
um
Eftir séra SIGURJÓN
EINARSSON
sunnan megin Amarfjarðar. Á Pífustöðum
var þingstaður Ketildalahrepps, sem þá var
blómleg byggð þótt nú séu þar aðeins örfá-
ir bæir. Barðastrandasýsia var einmennings-
lqördæmi og barátta milli flokka og
frambjóðenda miklu persónulegri en síðar
varð.
Þennan dag lögðu hreppsbúar leið sína
heim að Fífustöðum að kjósa sér þingmann
til næstu flögurra ára. Aldrei fyrr hafði ég
séð svona margt fólk, aldrei fyrr hitt svona
marga frændur og frænkur. Akaflega
fannst mér þetta skemmtilegt og síðar eftir-
minnilegt enda fyrstu kosningar, sem ég
man eftir. Ég vissi að nú fékk miklu fleira
fólk að kjósa en nokkru sinni fyrr því að
kosningaaldur hafði verið lækkaður í 21 ár.
Ég var ekki á framboðsfundinum, sem
nokkru áður var haldinn í ungmennafélags-
húsi sveitarinnar á Bakka, en skynjaði, að
eftir þennan fund tók að hitna í kolunum
og urðu kosningamar helsta umræðuefni
fólksins. Þegar kosningadagurinn nálgaðist
var ég orðinn hörkupólitískur og fylgdi sama
flokki og foreldrar mínir.
BergurOgGísli
ÁTTUMESTFYLGI
Öllum var ljóst, að frambjóðendur Fram-
sóknar- og Sjálfstæðisflokks, þeir Bergur
Jónsson sýslumaður og Gísli Jónsson for-
stjóri, berðust um þingsætið, en hinir
frambjóðendumir, séra Sigurður Einarsson
og Hallgrímur Hallgrímsson, vom líka vask-
ir menn og líklegir til að ná töluverðu fylgi.
Bergur Jónsson hafði unnið þingsætið af
Hákoni Kristóferssyni í Haga vorið 1931,
þingrofsvorið fræga. Mátti Hákon eftir 16
ára þingmennsku láta sér lynda 332 at-
kvæði á móti 747, sem Bergur sópaði að
sér. Þá fékk þriðji frambjóðandinn, Ámi
Ágústsson alþýðuflokksmaður aðeins 61
atkvæði. Bergur Jónsson varð sýslumaður
Barðstrendinga í desember 1927 og var
kosningasigurinn 1931 ekki síst miklum
vinsældum hans að þakka. Setning Bergs
í sýslumannsembættið var þó bæði sérstæð
og söguleg. Dómsmálaráðuneytið hafði með