Lesbók Morgunblaðsins - 27.02.1988, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 27.02.1988, Page 11
U R MINU HORNI Bókmenntaleið til frægðar og vinsælda lítel Sorgarbók au eru ekki öll stór ljóða- kverin, sem koma út fyr- ir jólin. Ég bý í næstum því nama húsi og Bóka- safnið í miðbæ Kópavogs og hef því aðstöðu til að renna augum yfir öll dag- blöðin, tímaritin, nýju og gömlu bækumar um leið og öll þessi ósköp berast að. Ég geri það að sjálfsögðu nokkuð flausturslega, svona til að byrja með, kjmni mér hvað um er að vera. Leita svo síðar til þess efnis, sem ég hef hug á að lesa. Eitt minnsta kverið í ár heitir Bókin utan vegar eftir miðaldra konu, sem helgar hana syni sínum tvítugum, sem hún nýlega hefur misst af slysförum, áður höfðu þau séð á bak föður hans. Þetta eru harmljóð særðrar móður. — Hún hefur áður gefíð út smásög- ur, ljóð og bamabækur. Höfundur heitir Steinunn Eyjólfsdóttir, vestfirskrar ættar. Guðrún Svava Svavarsdóttir hefur lýst bók- ina með hóflega gerðum og smekklegum myndum, sem hæfa ljóðunum vel. „Þessi bók er ekki til ykkar sem ennþá þyrlist um vegina á glampandi tækjum með vindinn þjótandi um hár og vanga augun leiftrandi af lífsgieði ungar sterkar hendur krepptar um stýri brosandi lífsþyrstar varir. ... Hún er til ástvina ykkar þegar lokkamir ykkar fögru eru orpnir moldu augun lokuð að eilffu. ... Öll böm elska lífið blómin, kettlingana, lömbin. Þau gráta þegar við skjótum... Þú grést þegar stóri hvíti hundurinn var drepinn og þú sagðir. Hleypir Guð hundunum inn?“ Ég er ekki að ritdæma, aðeins benda á fallega, yfirlætislausa, umhugsunarverða bók. Braut Þyrnum Stráð Eins og við vitum er nú mikil gróska í útgáfu ungra manna, nokkrir tveggja til þriggja bóka höfundar em efnilegir. Við sem eldri emm í þessum greinum emm oft spurð, hvemig okkur lftist á þessa höfunda. Flest. okkar afgreiða slíkt með nokkmm tvíræðum orðum, því það sem við segjum, berst víðar en ætla mætti, og stundum með öðmm orðum en okkar, og getur valdið misskilningi. Oft hefur það verið sagt, og fátt er sann- ara, að listabrautin er þymum stráð. Það er nokkuð sama hvaða grein menn ætla að stunda og oft verða menn í upphafi að velja, því hæfileikar em fyrir hendi í fleiri en einni. Ég mæli með því að það sé fyrsta sporið. — Það er, held ég, nokkuð sama hvort við tilheyrum litlu eða stóm samfé- lagi, fámennri eða stórri þjóð. Miklir sigrar verða hvergi léttunnir. Hér er ekki rúm fyrir málalengingar, tölum því aðeins um rithöfunda. Næsta spor höfundarefnis er að afla sér þeirrar almennu menntunar, sem líklegust er að slíkum mönnum komi að gagni. Nú em meiri efnahagslegir möguleikar til skóla- göngu, jafnvel upp langan lærdómsstiga, en var á tíð minnar kynslóðar. Löng skóla- ganga á heldur ekki við alla, með sæmi- legri undirstöðu f skólum getur sjálfsnám fleytt efiiilegum mönnum furðu langt. Og víkjum aftur að framtíð höfundar. Utgáfa bókar á eigin kostnað, ótímabærar bam- eignir eða hjúskapur á fyrstu ámm höfund- arferils geta sett afdrifarík strik í framaupp- dráttinn. Hér gef ég engin ráð, bara nefni þetta. Ég mæli ekki með, beinlínis ræð ung- um mönnum frá of ömm bókaútgáfum. Þessa skoðun mína styður einmitt mikið byijunargengi nokkurra þeirra höfunda, sem nú láta mest á sér bera, og mest fá hrósið hjá velviljuðum, en _ að mínu viti skammsýnum ritdómumm. Ég óttast bak- slagið. Um þau em mörg dæmi hér og er- lendis. Of mikil velgengni getur leitt til slök- unar höfundanna á sjálfskröfum. Reynsla minnar kynslóðar af fómfysi og skilningi bókaútgefenda er yfirleitt ekki til þess að húrra fyrir. Jafnvel vinir, sem gerð- ust bókabissnessmenn, vom ekki lengur við- talshæfir fyrir barlómsvæli og ótta um að maður ætlaði að fara að pranga upp á þá handriti. Undirritaður komst jafnvel í þá aðstöðu að þurfa að líta í aðra átt eða taka á sig krók til þess að þurfa ekki að mæta gömlum kunningjum og.málvinum, sem áður gat verið gaman að tala við um bók- menntir. JÓN ÚS VÖR r BIRGITTA JÓNSDÓTTIR Plánetur hugans • / tákni boltans eru segulskaut °g dynjandi fossar. í hellum og íjöllum eru ókannaðar lendur. í óravídd óendanleikans eru plánetur hugans. Og andinn siglir um í anddyri holdsins. Námumenn Þrjúþúsund einlit spor. Djúpar grafir. í leit aö hamingju stingast skóflur dýpra inn i öldina sem leið. í fjarska eru jöklar ókannaðir. Heitir af visku. / mistrinu og dögginni sem drýpur eru óbeislaðir kraftar og auga. augalands Æsku-dauði Ljúfa jörð, þín lögun er lík lambi augað mótað úr jökli. Frostbitnir fætur snerta funheita mold þína. Langt í iðrum þínum er kraftur og ólgandi hiti jarðstöðva. Hver man ekki æsku og auga án sorgar. Kvöld eitt er brumið horfið og augað líflaust. Hin grimmu örlög enn að verki. Þó má fínna að nýtt líf er hafíð. Ég leggst á magann naflastrengur þrýstist inn í hörund þitt. Ég er föst, þó frjáls. Á botnum djúpra vatna hef ég leitað að hjartslætti þínum, sem er þung jaröhræring. Stund trega og sorgar senn á enda. Þvf með hvetju sáru spori lærist að þetta er aðeins stig frá stígi lfffrá Iffí. Höfundurinn er ung Reykjavíkurstúlka. ÞRÖSTUR J. KARLSSON Eitt síðsumars kvöld Við kneifuðum ljúfar veigar eitt síðsumarskvöld. Sfðan þá hefurðu lifað grandvöru Iffí og aldrei gert neitt er syndsamlegt getur talist — núna á þínum efsta degi var þér aðeins eitt í huga Ijúfast gamla flón — eitt sfðsumarskvöld. . Einn Á þilfarinu sit ég í mínum sólstól með minn gula stráhatt og sólgleraugu þjónn f stuttum hvítum jakka og svörtum buxum færir mér cuba libra Ég nýt þess að vera einn innan um allt þetta fólk Það er bætt í glas galdramannsins sé ég hinum megin við sundlaugina — Og lítíll strákur með luktir í augum hrópaði er við sigldum framhjá Waterloo: „Sjáið þið ekki skipin með svörtu seglin?“ Höfundurinn er rithöfundur í Reykjavík. ANNA S. BJÖRNSDÓTTIR Skin Og svo kom ég og truflaði sagðirðu og brostir. Truflaðir spurði ég undrandi með augun full af sólskini. Sólin truflar engan ástin mín sólin truflar engan. Höfundurinn er kennari i Reykjavík. ÞÓRUNN GUÐMUNDSDÓTTIR Snjókorn Snjókomin féllu jafnt og þétt, voru eins og veggur, heimurinn Ifkt og eitt herbergi sem sameinaði og þjappaði okkur saman. Við hlupum um geislandi af gleði sem gagntók hverja taug lfkamans og braust út f gáska og hlátri. Við veltumst um í snjónum, fundum hann bráðna á heitu hörundinu, hnigum niður örmagna en sæl í faðmi hvors annars. Stjömumar bmstu við okkur, skildu gleði okkar. Norðurljósin stigu dans. Það var sem við svifum um á dúnsæng í þessari snjóhvftu veröld. Höfundurinn er skrifstofustúlka í Reykjavík. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 27. FEBRÚAR 1988 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.