Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.1989, Page 8
» * k
Léttir skilveggir með stórum og smáum glerrúðum afmarka skriístofumar.
Sævarhöfði 2
Nýtt hús Ingvars Helgasonar h/f
Arkitekt: EGILL GUÐMUNDSSON
o -o*
V ' ’' %V.&ír33§8«ilsS‘.4is»-j & i
1 m
Sýningarsalur fyrir nýja bíla. Horft niður af pallinum 6-aman við skrifstofurnar.
Vegfarendur um Ártúns-
brekku hafa á undan-
förnum mánuðum séð
rísa hús við mynni Ell-
iðaánna; það stendur eitt
sér eins og höfuðból und-
ir fallegri brekku.
Hvorki er það þó með
burstir né kálgarð framan við bæinn, enda
hentar annarskonar lag betur fyrir þá starf-
semi, sem hér er byggt yfir. Það er sem
sé Ingvar Helgason h/f með umboð fyrir
Nissan og Subaru eins og alþjóð er kunnugt
um, sem byggt hefur hér yfir starfsemi sína.
Það er sérhannað hús utanum bílaumboð
með skrifstofum, stórum sýningarsal, vara-
hlutaverzlun og sýningarsal fyrir notaða
bíla.
Það var Teiknistofan á Túngötu 3 sem
tók að sér að teikna og arkitektar hússins
eru Egill Guðmundsson, hálfbróðir Errós
málara og Þórarinn Þórarinsson. Segja má,
að óskalóð hafi fengizt; hvorttveggja er, að
rúmt er um húsið og það nýtur sín eins vel
og bezt verður á kosið, að minnsta kosti
þegar búið verður að fjarlægja nokkra
bráðabirgða rafmagnsstaura, sem ennþá
standa og eru til lýta. Kannski sýnist þetta
harla venjulegt hús þegar gjóað er á það
augum á fullri ferð í Ártúnsbrekkunni. En
þegar inn kemur verður ljóst, að það er um
margt harla óvenjulegt og virðist hafa tekizt
frábærlega vel að klæðskerasauma hús ut-
anum bílaverzlun.
Sjálfur sýningarsalurinn er framúrskar-
andi fallega gerður og skiptir þar mestu
máli, að burðargrindin er úr límté og því
þarf ekki að ijúfa þetta stóra, samfellda
rými með súlum. Það er líka ánægjulegt til
þess að vita, að hinir voldugu límtrésbitar
skuli vera íslenzk framleiðasla; þeir eru frá
Flúðum.
Það er þessi óvenjulega hæð undir loft,
Aðalinngangur með glerþaki tengir Anddyri með stiga uppá skrifstofuhæð-
saman sýningarsal og varahlutadeild. ina.
sem setur svo glæstan svip á salinn, en
innantil í honum er efri hæð með útsýnis-
palli, þaðan sem vel sést yfir salinn, - og
þar eru einnig skrifstofurnar með gluggum
inn í salinn og að sjálfsögðu út á við. Ing-
var Helgason kvaðst nú í fyrsta sinn hafa
fengið sérstaka skrifstofu og ekki meir en
svo að hann kynni við það; betra væri að
vera bara á sveimi eins og hann hefði löng-
um verið. Til sameiginlegra ákvarðana er
mjög sérstætt fundarherbergi, því yfir því
er að hluta pýramídi úr gleri.
Aðalinngangurinn í kverkina á milli sýn-
ingarsalarins og varahlutadeildarinnar er
líka fallega leyst hönnunardæmi og lofar
sinn meistara. Alls er þetta hús um 5000
fermetrar og var mun ódýrara á rúmmetra
en gengur og gerist í iðnaðar- og verzlunar-
húsum. Það er til marks um einföldun og
hagkvæmni, að málað er beint á þéttu hlið-
ina á steinullarplötunum, sem einangra öll
loft. Málningin lokar alveg og þarna spar-
ast klæðning á þessum stóra fleti. En að
utan er húsið klætt með bárujárni.
Gísli Sigurðsson
Hér er húsið séð fá brúnni yfír Elliðaárnar.
Ljósmyndir: Sverrir Vilhelmsson.
„Stjórnpallurinn“. Framan við skrifstofurnar veri
yfír sýningarsalinn.
Fundarherbergi. Endaveggurinn er ekki aðeins
gleri, sem ekki er hægt að ná á mynd innanfrá.