Lesbók Morgunblaðsins - 29.06.1996, Blaðsíða 2
MYNDIN eins og hún lítur útfullgerð. Líkaminn og hreyfing ívatni er þema hennar.
ERRÓ GERIR VEGGMYND í NÝJA
BRAUTARSTÖÐ í LISSABON
MYNDLISTARMAÐURINN Erró er að
vinna 4x20 metra stórt málverk á
keramikvegg nýrrar neðanjarðar-
lestarstöðvar sem verið er að reisa í Lissabon
í Portúgal fyrir heimssýninguna árið 1998.
Erró sagði í samtali við Morgunblaðið að nú
væri verið að gera brennsluprufur með mis-
munandi efnum og litum. „Ég stækka verkið
upp og byija að setja á flísarnar. í september
og lýk því í október. Þær bíða svo uppsetning-
ar þar til stöðin verður fullbúin." Tólf lista-
menn frá jafnmörgum löndum eða álfum gera
verk í brautarstöðina og fá allir jafnstóra veggi
til umráða. Erró sagði að efnið entist vel.
„Það er hægt að þvo þetta eins og maður vill.
Það eru svipaðir veggir í Lissabon frá 15. og
16. öld sem ekkert sér á og þar er sama tækni
notuð og nú.“ Hann sagði að þessi myndagerð
væri hluti af myndlistarhefð Portúgals en yfir-
leitt væru keramikmyndir þeirra bláar og köll-
uðust aszelos. „Allar neðanjarðarstöðvar í
Portúgal eru skreyttar á þennan hátt af port-
úgölskum listamönnum en þessi nýja stöð er
PRUFUR af keramikflfsum sem Erró er að
vinna á neðanjarðarlestarstöð í Lissabon.
sú fyrsta sem er skreytt af alþjóðlegum lista-
mönnum. Ég er valinn sem fulltrúi Norður-
Evrópu."
Stöðin heitir Hafið og vann listamaðurinn
verkið sérstaklega með fólk í sjó sem þema.
í því má meðal annars sjá portúgalska land-
könnuðinn Vasco da Gama við stýrið á skipi
sínu, frændur Andrésar andar í hraðbát og
menn í baráttu við sjóskrímsl. „Líkaminn og
hreyfing í vatni var þemað sem ég gekk út frá.“
Erró kvaðst ánægður með að prófa nýtt efni
og samstarfið við keramikverksmiðjuna var
einkar ánægjulegt að hans sögn. Aðspurður
sagðist hann vonast til að geta unnið fleiri verk
í keramik í framtíðinni og þá væri einkar freist-
andi að skreyta veggi á veitingastað. „Flísarn-
ar eru ódýrar í framleiðslu miðað við hvað þær
eru sterkar og endingargóðar. Þær kosta um
54 þúsund krónur fermetrinn," sagði Erró.
Sýningarsyrpa med pólitískum
myndum
20. september verður opnuð í Hannover
þemasýning á 80 pólitískum myndum Errós,
sem mun ferðast um allt Þýskaland næstu tvö
og hálfa árið. Hún fer einnig til Póllands,
Tékklands og Slóveníu. Erró sagði að þetta
væri í fyrsta sinn sem búin væri til farandsýn-
ing á verkum hans sem fjölluðu um eitt ákveð-
ið þema.
TRÍÓ Nordica.
Nýtt íslenskt verk á
tónleikum Tríós Nordica
Eurimages styrk-
ir tvær myndir
unnar með Is-
lendingum
STJÓRNARFUNDI kvikmyndasjóðs Evrópu-
ráðsins lauk á miðvikudag og fengu sextán
leiknar myndir styrk, þar af tvær unnar í sam-
vinnu við íslendinga.
Önnur þeirra heitir Maria, eftir Einar
Heimisson, en myndin er unnin í samvinnu við
Þjóðveija og Dani. Maria var styrkt um 9,1
milljón króna og hefjast tökur á henni í ágúst
Hin myndin nefnist Armon Aika, Days of
Grace, eftir Jaakko Pyala en hún er unnin í
samvinnu Islendinga, Finna og Dana. Sigurður
Örn Brynjólfsson verður listrænn ráðgjafi
myndarinnar og munu íslenskir tæknimenn og
leikarar starfa við gerð myndarinnar, sem hlaut
13 milljón króna styrk.
Að auki hlutu styrk þijár heimildarmyndir
unnar af Þjóðveijum, Frökkum, Pólveijum,
Grikkjum og Belgum.
Sjóðnum berast yfir 200 umsóknir ár hvert
en aðeins standa eftir milii 30 og 50 sem koma
til álita. Úr þeim eru sí.ðan valdar þær 15 til
20 myndir sem fá að lokum styrk.
Norræni menningarsjóóurinn
Styrkir fjóra
íslenska aðila
NORRÆNI menningarsjóðurinn hefur varið
samtals 61 milljón króna til 72 verkefna, en
þar af deilist hálf önnur milljón milli ijögurra
íslenskra verkefna.
Bjami Pétursson fær 342 þúsund krónur til
uppsetningar á „ísland í 1200 ár“ í Byggða-
safni Hafnarfjarðar, en sýningin stendur frá
október nk. til janúar á næsta ári.
Óskar Ingólfsson fær 285 þúsund krónur
til að standa fyrir Norrænum músíkdögum frá
september tii október á þessu ári.
Kári Bjamason fær mestan styrk, eða 513
þúsund krónur, til að standa fyrir þremur fund-
um með samstarfsaðilum frá Noregi, Dan-
mörku og íslandi til að rannsaka nótur og lag-
boða sem skrifaðar hafa verið inn í íslensk
kvæðahandrit frá fomu fari. Verkefnið ber
yfirskriftina „íslenski tónlistararfurinn frá
1100-1950.
Sigrún Valgarðsdóttir fær 342 þúsund króna
styrk til að standa fyrir jafnréttisráðstefnu sem
fram fer í september nk.
TRIO Nordica heldur tónleika í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar næstkomandi þriðju-
dag kl. 20.30. Tríóið skipa þær Auður
Hafsteinsdóttir fiðluleikari, Bryndís Halla
Gylfadóttir sellóleikari og Mona Sands-
tröm píanóleikari. Á tónleikunum flytja
þær þijú píanótríó; Tríó í g-moll eftir eft-
ir Haydn, tríó í c-dúr eftir Brahms og
frumflytja tríó eftir Þórð Magnússon sem
er samið sérstaklega fyrir Tríó Nordica.
Bryndís Halla sagði í samtali við Morg-
unblaðið að tríóið myndi lítið hafa sig í
frammi í sumar þar sem hún væri nýbúin
að eignast barn og Auður ætti von á sér
í ágúst. Þó er ýmislegt fram undan eins
og einleikstríókonsert þeirra með Sinfón-
íuhljómsveit íslands næsta haust þar sem
þær Ieika vinsælt tríó eftir Beethoven.
^ Auk þess eru þær með umboðsmann í
Svíþjóð sem sér um að bóka þær á tón-
leika í Scandinavíu. „Það er nauðsynlegt
að hafa umboðsmann því annars fer allur
okkar tími í að skipuleggja tónleika og
annað umstang,“ sagði Bryndís.
Þær gáfu út geisladisk í fyrra sem
hefur verið dreift í Skandinavíu og hefur
fengið lof hjá sænskum gagnrýnendum.
Aðspurð sagði Bryndís að þær hefðu um
20 tríó á efnisskrá sinni, sem þær geta
valið úr, og sagði að stefnan væri sett á
að hafa 40 verk. „Það er mjög gott að
læra öll þessi hefðbundnu tríó eftir tón-
skáld eins og Brahms, Beethoven og
Schubert.“
Hefdbundid og framsaekió
Píanótríó Þórðar Magnússonar er fyrsta
verk hans sem flutt er opinberlega en
hann lauk námi frá Tónfræðadeild Tón-
listarskólans í Reykjvík nýlega. Þórður
er eiginmaður Bryndísar Höllu og því
hafa verið hæg heimatökin við að semja
verk fyrir tríóið. „Ég hef borið ýmsa hluti
undir hana og hún hefur fengið að segja
sitt álit. Þetta verk er blandað. Það er
bæði hefðbundið og framsækið í senn.
Ég hef samið kammerverk áður fyrir
stærri hljómsveitir en þetta er mitt fyrsta
fyrir litla kammersveit," sagði Þórður
en hann ætlar að sækja einkatíma í tón-
smíðum næsta vetur en stefnir því næst
erlendis til framhaldsnáms.
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn
Mótunarárin í list Ásmundar Sveinssonar.
Kjarvalsstaðir
Náttúrusýn í ísl. myndlist til 31. ágúst.
Listasafn Islands
Veggmyndir Kjarvals í Landsbankanum til
30. júní. Sýn. á verkum Egon Schiele og
Arnulf Rainer til 14. júlí.
Galierí Fold
Ragna Sigrúnardóttir sýnir til 30. júní.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Höggmyndasýning tveggja listamanna, Páls
Guðmundssonar og Siguijóns Ólafssonar til
1. september.
Hafnarborg
íslensk portrett á tuttugustu öld til 8. júlí.
Norræna húsið
Pia Rakel Sverrisdóttir sýnir í anddyri og
kaffistofu. Karl Kvaran í sýningarsölum til
30 júní.
Þjóðminjasafnið
Sýning á silfri til loka sept.
Mokka
„Dauðinn í íslenskum veruleika", samvinnu-
verkefni Mokka og Þjóðminjasafns íslands
til 30. júní.
Við Hamarinn
Brynja Dís Björnsdóttir og Gunnhildur
Björnsdóttir sýna til 7. júlí.
Nýlistasafnið
Marianna Uutinen og Arnfmnur R. Einars-
son. Gestir safnsins í setustofu eru Gé Karel
van der Sternen og Ingdrid Dekker til 7. júlí.
Sjónarhóll
Andres Serrano: „Eitt sinn skal hver deyja“
til 30. júní.
Safn Ásgríms Jónssonar
Sumarsýn. á úrvali verka Ásgríms til 31.
ágúst.
Gallerí Sævars Karls
fris Eifa Friðriksdóttir sýnir.
Gallerí Greip
Guðbjörg_ Gissurardóttir sýnir til 10. júlí.
Gallerí Úmbra
Karen Kunc sýnir til 17. júlí.
Listhús Ófeigs
Margret Schopka sýnir til 13. júlí.
Listhús 39
Kristín S. Magnúsdóttir sýnir til 1. júlí.
Listasafn Kópavogs
Liisa Chaudhuri sýnir til 7. júlí.
Snegla
Elín Guðmundsdóttir sýnir verk sín í glugg-
um listhússins.
Ingólfsstræti 8
Ragna Róbertsdóttir sýnir til 30. júní.
Gallerí Fold
Ragna Sigrúnardóttir sýnir til 30. júní.
Gallerí Hornið
Árni Rúnar Sverrisson sýnir til 17. júlí.
Gallerí Gangur
Kocheisen og Hullmann til 29. júní.
Perlan
Heidi Kristiansen sýnir 18 myndteppi til 30.
júní.
Smíðar & skart
íva Sigrún Björnsdóttir sýnir til 12. júlí.
Ráðhúskaffi
Ingunn Benediktsdóttir sýnir til 30. júní.
Slunkaríki - ísafirði
Verk eftir Karólínu Lárusdóttur.
Kirkjuhvoll - Akranesi
Sýning frá Grænlandi til 30. júní.
Listasafnið á Akureyri
Karola Schlegelmilch sýnir.
Kaffi Hótel - Hjalteyri
Guðmundur Ármann Siguijónsson sýnir til
6. júlí.
Deiglan - Akureyri
Sýningin „Erótík" til 3. júlí.
Laugardagur 29. júní
Frönsk vísnatónlist á Hótel Búðum Snæfells-
nesi; Zita og Didier Laloux. Suðuer-amerísk
gítartónlist í Isafjarðarkirkju; gítardúettinn
Dou-de-mano kl. 17.
Sunnudagur 30. júní
Frönsk vísnatónlist á Hótel Búðum Snæfells-
nesi; Zita og Didier Laloux. Kammerkór Dóm-
kirkjunnar í Haderslev í Hallgrímskirkju kl. 17.
Þriðjudagur 2. júlí
Tríó Nordica í Listasafni Siguijóns Ólafsson-
ar kl. 20.30.
Miðvikudagur 3. júlí
Frönsk vísnatónlist í Tjöruhúsinu ísafirði kl.
21.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Taktu lagið, Lóa á Akureyri lau. 29. júní
og sun 30. júní, á Blönduósi mið. 3. júlí og
á Egilsstöðum fös. 5. júlí og lau. 6. júlí.
Light Nights - Tjarnarbíó
Öll kvöld nema sunnudagskvöld kl. 21; Leik-
þættir úr íslendingasögum og þjóðsögum.
Flutt á ensku.
LISTAHÁTÍÐ
í REYKJAVÍK 1996
Laugardagur 29. júní
Deutsches Symphonie-Orchester Berlin.
Stjómandi: Vladimir Ashkenazy. Laugar-
dalshöll: Tónleikar kl. 16.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 29. JÚNÍ 1996