Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1997, Page 13
'
:
| 11 i|
'
. .
Morgunblaðið/Einar Falur
MINNINGAR
MÁLAÐAR
í HAFNARBORG,
menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarð-
ar, verður í dag opn-
uð sýning á verkum
eftir Einar G. Bald-
vinsson listmálara.
Einar er íslenskum
myndlistarunnendum
vel kunnur, enda hef-
ur hann haldið fjölda
einkasýninga frá því
að hann sýndi fyrst í
Bogasal Þjóðminja-
safnsins árið 1958.
„Þetta eru sjávar-
lífsmyndir og þorps-
myndir eins og ég hef
verið með,“ segir
Einar. „Það verður
held ég aldrei málað
of mikið af slíkum
myndum. Þarna
verða myndir af
ströndinni, sjávar-
gangi, bátum og ein
stór mynd af þorpi
sem á að vera af Eyrarbakka en þessi
þorp eru öll eins hér á íslandi, þetta er
allt sama tóbakið.“
Gleymir aldrei
gömlu döllunum
í sýningarskrá ritar Aðalsteinn Ing-
ólfsson listfræðingur og þar segir meðal
annars: „Einar G. Baldvinsson hefur
nánast alla starfsævi sína málað tilbrigði
um þann veruleik sem blasti við honum
á þroskaárum hans, þorpsstemmninguna
í Reykjavík, andrúmsloftið við höfnina,
sambýli þorps og hafs. Einar er maður
formfestu, skipulegrar myndbyggingar
og samræmdra lista. Hann er staðfastur
í trúnni á listrænt sannleikgsildi þessara
þátta og ann sér sjaldnast hvíldar fyrr
en þeim hefur verið haldið til skila. En
hann er líka Ijóðskáld og músíkant í lit-
um, tónlistin var enda hans fyrsta ást,
og fetar í myndum sínum mjótt einstigið
milli angurværðar og gleði. Umfram
allt er Einar heill og sannur í öllu sem
hann tekur sér fyrir
hendur.“
Einar segir að
hann máli þorpið
vegna þess að sér
þyki vænt um það.
„Mér þykir vænt um
allt gamalt. Ég kann
til dæmis miklu bet-
ur við gömlu dross-
íurnar en þessa
straumlínulöguðu
bíla sem menn
keyra í dag. Og
gömlu döllunum
gleymir maður aldr-
ei.
Maður er að mála
minninguna. Sem
krakki í Reykjavík
var maður alltaf að
flækjast; niður á
höfn og fjöru. Þang-
að hef ég sótt mynd-
efnið í gegnum tíð-
ina.“
Afstraktió smá-útúrdúr
Á tímabili málaði Einar afstrakt verk
en hann segir að það hafi bara verið smá
útúrdúr. „Eg var að dunda mér við þetta
um tíma, fyrir 25 eða 30 árum. Þetta
voru svona krúsídúllur, eða hvað maður
á að kalla það - náttúrustemningar
kannski. En svo þótti mér það eiga miklu
betur við mig að mála fígúratíft og hall-
aði mér að því. Og andskotinn ef ég sé
nokkuð eftir því. Mér þótti það svo sem
engin synd að hverfa frá afstraktinu því
það voru svo margir í því. Þar að auki
hlaut ég þannig uppeldi í listinni að það
lá beinast við að mála fígúratíft."
Unga fólkió i fjölmiólum
Einar segir að sér leiðist unga fólkið
sem er í myndlist í dag og leggur mest
upp úr því að komast í fjölmiðla. „Já,
mér leiðist þetta unga fólk sem er
kannski búið að vera í eitt eða tvö ár I
Myndlista- og handíðaskólanum og rýk-
ur svo til við að halda sýningu. Og svo
Einar G. Baldvinsson er
þekktur fyrir myndir sín-
ar af íslenska þorpinu.
Hann heldur sína fyrstu
einkasýningu um nokk-
urt skeið í Hafnarborg
og hefst hún í dag.
ÞRÖSTUR HELGASON
ræddi vió Einar gf
þessu tilefni um þorps-
þemað, afstraktið og
myndlistina í dag.
MÁLVERK eftir Einar G. Baldvinsson.
leggjast þau í rúmið ef þau geta ekki
verið nógu oft í fjölmiðlum. Þetta fólk
sem er alltaf í blöðum og sjónvarpi er
sýnist mér aðallega fólk sem ekkert
getur og ekkert kann. Annars er mynd-
listin misjöfn I dag eins og alltaf.“
Þetta er fyrsta einkasýning Einars um
nokkurt skeið, en hann hefur þó tekið
þátt í fjölda samsýninga.
Sýningin í Hafnarborg mun standa til
17. febrúar.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 1. FEBRÚAR 1997 13