Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1997, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1997, Blaðsíða 15
„Frú Kristín var kvennafríóust sýnum, gáfuleg ogjjörleg í fasi> glaóvœr og söngvin. Hafói hún snemma yfir sér annaó fas og meira en vió hefói mátt húast afstúlku frá slíkum smáhœ sem Reykjavík var pá. “ sem hann er að klippa og snyrta myndir sín- ar og er niðursokkin í iðju sína. Sumar mynda hans bera þess merki að um tilraunir áhuga- manns er að ræða en aðrar sýna næmt auga fyrir myndefni og myndbyggingu. Myndefnið var margvíslegt. Auk þess að taka hefð- bundnar myndir af landslagi, fjölskyldu sinni og konu sinni þá myndaði hann skip og báta á höfninni, vinnubrögð við uppskipun kola og atburði í bæjarlífinu. Myndirnar eru sennilega flestar teknar á árunum 1911 til 1914, það er frá þeim tíma að verslunarrekstur hefst og þangað til að hann fer til Frakklands að verja land sitt. Allmargar myndir eru einnig frá lokum stríðs- ins og til 1923. Allir eiga að fara um borð. Síðasti farang- ur farþeganna svífur yfir höfðum þeirra og sveiflast upp á þilfarið. Sterklegur maður með belgmikinn sixpensara gefur bendingar með hægri hendinni. Hann veit hvað gerist næst en þau vita það ekki. Chouillou stingur silkihönskunum í vasana og grípur ákveðnum höndum um kaðalinn sitt hvorum megin á landganginum, hann lítur ekki við, hér ætl- aði hann að búa sér framtíð en hún er að engu orðin. Hann tekur stór og ákveðin skref. Kristín gengur hikandi en snýr svo við, ekki til að líta heim að Hafnarstrætinu heldur til að festa andlit systkina sinna og foreldra betur í minni sem standa þar ásamt tveimur ungum stúlkum með matrósahúfur í tví- hnepptum kápum, þær eru systurdætur Krist- ínar. Stúlkurnar hlæja og hoppa, þær eru að kveðja uppáhaldsfrænku sína og mann henn- ar sem hafði ekið með þær ótal sinnum í bílnum sínum. Bros systkinanna er blandið kvíða. Kvíðinn er ekki ástæðulaus því að það liðu tíu ár áður en þau sáu hana aftur. Hann kom ekki aftur til landsins. Á brottfararstundu liggja ljósmyndirnar hans Choullou í bastkistu ásamt persónuleg- um munum þeirra hjóna á geymslulofti á Vesturgötu 26B. í um það bil 10 ár lágu þessir munir óhreyfðir en vitað er að húsmun- ir sem verið höfðu í geymslu hjá Zöega voru seldir á uppboði árið 1933. Ekki er ólíklegt að smærri hlutir, svo sem borðbúnaður og skrautmunir hafi þá komist í eigu fjölskyldu Kristínar Chouillou en þeir eru stásshlutir enn í dag . Menn höfðu ekki áhuga fyrir myndunum svo að þær lágu óhreyfðar til ársins 1972 að húsið Vesturgata 26B var selt úr fjölskyld- unni. Mikill asi var á fólki við að tæma ► ÍTALSKI skókassinn er ennþá til og myndirnar hefur hann geymt vel. POURQUIS pas?, franska skipið sem fórst við Mýrar 1936. Myndin er tekin löngu áður, annaðhvort á árabilinu 1911-14 eða 1918-23. væri beiskur bikar hjónunum sem biðu þess að komast um borð í skipið sem átti að flytja þau frá landinu sem þau unnu bæði. Unga konan 26 ára hét Kristín Valgerður, dóttir Ólafs Eiríkssonar frá Hrosshaga í Bisk- upstungum, söðlasmiðs í Reykjavík og Theo- dóru Guðrúnar Þorkelsdóttur frá Ormsstöð- um í Grímsnesi. Kristín tók nafn eiginmanns síns er þau gengu í hjónaband 1922 og var síðan kölluð Kristín Chouillou. Kristín lauk stúdentsprófi 1916 en stundaði jafnframt nám í píanóleik hjá Herdísi Matthíasdóttur. Um Kristínu segir Bjarni Guðmundsson í minningarorðum sem birtust í Morgunblaðinu laugardaginn 13. desember 1951: Frú Kristín var kvenna fríðust sýnum, gáfuleg og fjörleg í fasi, glaðvær og söngvin. Hafði hún snemma yfir sér annað fas og meira en við hefði mátt búast af stúlku frá slíkum smábæ sem Reykjavík var þá. Auk þess hafði hún til að bera „charme“ í óvenju- lega ríkum mæli. Hefði legið nærri fyrir hana að ganga tónlistarbrautina, en í þá átt virt- ust allir hæfileikar hennar hníga enda þótt hún hefði einnig yndi af upplestri og leiklist. Eftir stúdentspróf dvaldi Kristín í Kaup- mannahöfn um tíma hjá bróður sínum en síðan við píanónám í París, hún hafði því lit- ið háreistar hallir handan hafsins og kannski var það þess vegna sem hún dróst að hinu erlenda glæsimenni, hallarbúa sem gat veitt henni allt sem hugurinn girntist. Ekki er ólík- legt að eðlislæg hjartahlýja og lífsgleði henn- ar hafi sefað sorg hans en eiginkona hans Marie lést langt um aldur fram árið 1920. Chouillou hafði fengið hina ungu og hæfi- leikaríku konu í vinnu til sín sennilega um það leyti sem konan hans lést. Kristín hafði numið erlend tungumál í Menntaskólanum og bætt við það nám í Frakklandi þannig að það var fengur fyrir Chouillou sem átti í við- skiptum við marga erlenda aðila að fá hana í vinnu. Chouillou gerði hins vegar aldrei til- raun til að reyna að læra íslensku. Starfsfer- ill hennar varð skammur því að sem eigin- kona Chouillou þótti ekki við hæfi að hún ynni í versluninni. Hún sneri sér að frúarhlut- verki sínu. Hafði þjónustustúlku til að vinna heimilisverkin og gat því sjálf verið spari- klædd alla daga og sat oft við flygilinn í stof- unni, flygil barónsins á Hvítárvöllum sem Chouillou hafði keypt og lék Chopin af mik- illi list. List hennar var svo mikil að í hvert sinn sem Chopin er leikinn finnst tveimur stúlkum sem nú eru á níræðisaldri að Kristín sé að leika. þær gætu hafa verið á hafnar- bakkanum þennan örlagaríka dag fyrir 73 árum. Chouillou var yfirstéttarmaður bæði til orðs og æðis, naut frítíma síns til hins ít- rasta hélt glæsilegar veislur með mat og drykk að frönskum sið. Hann ferðaðist um landið fyrst á hestum með eiginkonu sinni Marie en síðar á Unic bílnum sínum ásamt Kristínu og stundaði áhugamál sitt sem var ljósmyndun. Ekki er ljóst hvar Chouillou hafði aðstöðu til að framkalla og kópera myndirnar sínar en ekki er ólíklegt að aðstaðan hafi verið á fyrstu hæðinni inn af versluninni í Hafnar- stræti 17. Ein ljósmynd er til af honum þar OFAN við Bookles-bryggju í Hafnarfirði. Hér er landað kolum. CHOUILLOU til hægri á myndinni sitjandi á bryggjupolla á uppskipunarbryggju Mory & C.ie, beint framundan þar sem Svarta pannan er nú við T ryggvagötu. •4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 1. FEBRÚAR 1997 1 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.