Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1997, Page 20
1
Á samsýningunni í Hafnarborg verða verk eftir listamenn sem allir tengjast Hafnarfirði á einn eða annan hátt.
Morgunblaðið/Einar Folur
• :. ..
ssm
■■■■■■■PPPHHMpn
SAMSÝNING
í HAFNARBORG
HAFNARBORG, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, hefur boðið stór-
um hópi listamanna, sem flestir starfa
í Hafnarfirði, til sýningar sem verður
opnuð í dag. Ekki er um þemasýningu
að ræða, heldur er ætlunin að þetta verði
sýning þar sem gestum gefst kostur á
að sjá sitt af hverju og fylgjast með því
sem listamenn eru að gera.
Pétrún Pétursdóttir, forstöðumaður
Hafnarborgar, sagði í samtali við
Morgunblaðið að gengið hefði verið út
frá því að þátttakendur í sýningunni
hefðu ótvíræð tengsl við Hafnarfjörð.
„Flestir listamannanna eru héðan og aðr-
ir hafa verið búsettir hér og hafa starfað
hér. Okkur langaði til að sýna fram á
hvað væri mikil gróska í hafn
lífi en sýningin er afar fjölbreytt; hér
má sjá verk unnin í öll hugsanleg efni.
Á fjórða tug listamanna sýnir nú í
Hafnarborg. Þar er jafnt að finna olíu-
myndir sem höggmyndir, grafík, vatns-
litamyndir, glerverk og textíl, auk verka
með ívafi hugmyndalistar. Meðal þeirra
sem sýna eru listamenn sem löngu eru
orðnir þjóðkunnir og svo aðrir sem
minna hefur borið á. Nefna má Eirík
Smith, Svein Björnsson, Gest Þorgríms-
son, Sigrúnu Guðjónsdóttur, Jónu Guð-
varðardóttur sem starfar í Ungverja-
landi og Jón Thor Gíslason sem starfar
í Þýskalandi."
Sýningar af þessu tagi voru algengar
á árum áður og voru þá gjarnan nefnd-
ar salonsýningar eftir franskri hefð.
Slíkt sýningahald hefur að mestu legið
niðri hin síðari ár og er það miður því
á salon-sýningum gefst listamönnum
kostur á að sýna í óformlegu samhengi
hvert hugur þeirra stefnir og gestir fá
að kynnast því helsta sem er á döfinni.
Sýningin í Hafnarborg stendur til 17.
febrúar.
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 1. FEBRÚAR 1997
VERK eftir Tarvonen.
MIKKO Tarvonen
Mikko Tarvonen er fæddur í Hankasalmi
í Finnlandi 1954. Hann lauk prófi frá Lista-
skólanum í Nyslott og stundaði eftir það nám
við grafíkdeild Listiðnaðarskólans í Helsinki.
Tarvonen hefur víðtæka reynslu af starfinu
á auglýsingastofum en hann hefur í tuttugu
ár unnið ýmis störf á sviði auglýsinga og
grafískrar hönnunar. Nú starfar hann sem
hönnunarstjóri á auglýsingastofunni Kaisani-
emen Dynamo Oy í Helsinki.
Tarvonen hefur hannað fjölda verka, m.a.
fyrir finnska pappírsframleiðendur og prent-
iðnaðarfyrirtæki og hafa verk hans oft verið
verðlaunuð bæði í Finnlandi og erlendis. Við
útnefningu á helstu hönnuðum ársins í Finn-
landi hefur hann hlotið mörg verðlaun eða
verið um hann fjallað í árbókinni sem henni
fylgir, alls yfir fjörutíu sinnum. Árið 1995
var hann valinn grafískur hönnuður ársins í
Finnlandi.
í kynningu segir: „Sagt er að góður hönn-
uður verði sá sem vinnur af kappi og bytjar
á grundvallaratriðunum. óhætt er að segja
að Mikko Tarvonen hafi byijað á hinum ein-
földu grundvallaratriðum því að hann hóf
feril sinn sem skeytingamaður eða „límprins“
eins og það er kallað í Finnlandi."
0g ennfremur: „Meðal þeirra sem starfa
við grafíska hönnun er Tarvonen þekktur
fyrir að vera hönnuður af lífí og sál og fyrir
að slá aldrei af kröfunum. Hann hefur einlæg-
an áhuga á umhverfi sínu og fær stundum
hugmyndir að verkum sínum á ólíklegum
stöðum, í járnvöruverslun, í eldiviðarskúr eða
í ódýrum stórmarkaði. Hann notar ýmis efni,
setur þau saman af dirfsku og fær út glæsi-
lega heild. Hann lítur ekki á pappír sem
pappírinn eintóman heldur kemur þar eins
og annars staðar auga á ónýtta möguleika.
Hann fær efnið til að tala. Hann er ákveðinn
og áræðinn og aðrir hönnuðir geta af honum
lært.“
FINNSKUR GRAFÍSKUR
HÖNNUÐUR í
NORRÆNA HÚSINU
ÞAR SEM
- EFNIÐ
TALAR
SÝNING á verkum Mikkos Tarvonens, gra-
físks hönnuðar frá Finnlandi, verður opnuð
í anddyri Norræna hússins í dag kl. 16 en
hann hlaut á liðnu ári verðlaun Norrænna
teiknara (NT) fyrir grafíska hönnun og
myndskreytingar. í tengslum við afhendingu
verðlaunanna var haldin sýning á verkum
Tarvonens í Listiðnaðarsafninu í Helsinki og
er sýningin nú hingað komin. Fyrir henni
stendur Félag íslenskra teiknara í samvinnu
við finnska sendiráðið.
Þegar verðlaun NT eru veitt hefur dóm-
nefndin það að leiðarljósi að verðlaunahafi
hafi kjark og viðleitni til að leita út fyrir
eigin takmörk, auk sköpunargáfu og vilja til
að leggja í senn áherslu á glæsileika og ein-
faldleika í verkum sínum. „Sköpunargleði
sem helst í hendur við trausta og góða hönn-
un óháða tískusveiflum er um heim allan
mikilsmetið gæðamerki," segir í kynningu.
Um verk Mikkos Tarvonens hefur dóm-
nefndin þau ummæli að þau séu djörf og
frumleg en um leið svo skýr og einföld að
þau séu næstum óháð tíma. Hann er talinn
^ vera dæmigerður fulltrúi finnskrar hönnun-
ar, en í viðbót við þau þjóðlegu einkenni sem
eignuð eru finnskri hönnun sæki hann vel
valda þætti í nýjustu strauma á heimsvísu,
og þetta tvennt sameini hann á einkar per-
sónulegan hátt.