Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1997, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1997, Síða 8
4- DRAUMSTAFIR 3 í óræk spor þín féll ímynduð birta míns ullhvíta draums. Ég sá andlit þitt speglast í innhverfri bylgju hins öfuga straums. Og svipur þinn rann eins og svalkaldur skuggi milli svefns míns og draums. STEINN STEINARR Timinn og vatnió HVAÐ ER innsæi? Sam- kvæmt orðanna hljóðan er það; að sjá inn eða inn- sýn, væntanlega í það sem er venjulega hulið í mannlegu eðli, það er að segja, innra líf okkar, það andlega, huglæga, sem er innan meðvitundar. í Orðabók Menningar- sjóðs er sagt að innsæi sé hæfileiki til að fínna sannleika án reynsluþekkingar eða rannsóknar; getspeki; djúpur, næmur skiln- ingur. í orðabók Máls og menningar, Orða- stað, er talað um að vera gæddur næmu inn- sæi á mannlegt eðli og að lýsa sálarlífi. Sem sagt, innsæi er að finna og skilja sannleika og sálarlíf, án ytri efnismeðferðar og að- stæðna. Að „fínna" það sem rétt er, en ekki skilgreina það, með vísindalegum aðferðum. Að skilja það sem rétt er, án utanaðkomandi tilsagnar og skynja hið góða án predikunar. Skynja eðli hlutanna og hlutverk tilverunnar frá innri veruleika sínum og tengslin við Guð. Með öðrum orðum, að vera í sambandi við þrískipta vitund sína og andlegan veru- leika, þar sem hin fljótandi hugsun er meðvit- uð og innsæið því sjálfsagt ferli. Innsýn Öll höfum við þennan hæfileika sem við köllum innsæi, en erum misvel opin fyrir þessum mikilvæga þætti tilveru okkar. Þá notum við öll orðatiltæki sem tengjast inn- sæinu. „Þetta er góð hugmynd"; „mér datt það í hug“; „ég fann það á mér“; „ég hafði óljósan grun“; „því var eins og hvíslað að mér“; „hún hefur innsýn í málið"; „hann er svo næmur“; „hún las mig eins og opna bók“; „hann veit lengra nefi sínu“. Og svo mætti lengi telja um orðtök sem vitna til innsæis og við notum meðvitað og ómeðvitað í dag- legu tali, en án frekari ígrundunar um merk- ingu orðanna. Þegar við, einhverra hluta vegna, erum látin taka sálfræðipróf um innra eðli okkar, þykir alltaf merkilegt ef við lend- um hátt á innsæisskalanum og erum „næm“, það veit á gott efni í skáld, sálfræðing eða listamann. Jafn slæmt þykir þegar „nærnur" einstaklingur og efni í skapara, þolir ekki álag harða efnishyggjuheimsins og „fer yfir- um“, missir geðheilsu og þar með hæfíleik- ann til að þroska hæfileika sína í tengslum við aðra. En innsæi eða „næmi“ virðist ein- mitt algengt hjá geðveiku fólki og er það oft ótrúlega næmt á umhverfi sitt og hugsanir annarra. En ekki eru allir geðveikir sem næmir eru, og hafa innsýn í innra líf sitt og veruleika. Rudolf Steiner, 1861-1925, er einn margra sem vann með innsæi sitt og gerði það að lífsstarfi sínu. Ásamt góðri skipulagsgáfu vann hann meðvitað að virkjun innri afla til velfarnaðar í ytra lífi. 1909 stofn- aði hann hreyfingu byggða á hugsun sinni og tengslum við innra lífið, hreyfíngu sem hafði það að markmiði að finna lífinu gagn- legar leiðir með aðstoð lista og menningar, í samhljóm við náttúruna, og virkja þessi öfl í daglegum störfum ásamt innsæinu, mannin- um til andlegs og líkamlegs velfarnaðar. Honum tókst að framkvæma þessa hugmynd sína og enn í dag eru menn að framkvæma kenningar Steiners og ala upp einstaklinga í andlegum veruleika. Sjáandi Hvernig nálgumst við okkur sjálf og inn- viði okkar? Með hugleiðslu, innhverfri íhug- un, bæn og jóga? Jóga er talið mjög góður kostur til að opna fyrir orkuflæðið (prana) milli vitundarhvelanna og að innsæinu, sem opnar leið í innra líf okkar, bætir heilsuna og heldur elli kerlingu í skefjum. Þá er ljóða- lestur og önnur andleg ræktun, svo sem hlust- un á klassíska tónlist og skoðun myndlistar, göfgandi þættir til að laða fram innsæið og tengslin við vitundina. En annar þáttur, jafn mikilvægur fyrir ræktun og eflingu innsæis og anda eru draumarnir. Draumarnir eru DRAUMURINN er spegilmynd sálarinnar og sjálfsins. Málverk eftir Kristján Kristjánsson. drauminn, gefur okkur vísbendingar og sýnir okkur í táknmyndum, svör við spurningum um lífið og tilveruna. Þessi draumavera er ímynd innsæisins og útsendari sálar og vit- undar, sem veitir okkur innsýn í dulda þætti til- verunnar, og fer með okkur út yfir rúm og tíma, ef henni sýnist svo, okkur til verndar og velsældar á leið okk- ar um lífin. Austurríski sálkönnuðurinn og draumafræðingurinn Carl Jung, virkjaði hana fyrr á öldinni í rannsóknum sínum á sálarlífinu og draumum manna. Hann gaf henni gríska nafnið fyrir sál; Animum (hjá körlum) og Anima (hjá konum). Hann komst að því, að gegnum drauminn með Animu/s, fengjust svör við öllum spurningum mannlegrar tilveru, og því beitti hann þessu afli óspart í sál- og geðlækningum með góðum árangri. En þessi innri maður sem er sendiherra sálarin- anr, fulltrúi vitund- arinnar og boðberi inn- sæisins, er maður margra andlita og því oft erfitt að átta sig á hver hann er, hvar og hvenær. Draumarnir virðast oft ruglingsleg- ir og í þeim margar ólíkar persónur, kunn- ar sem ókunnar. Tákn- in oft yfirgengileg eða íjarstæðukennd, svo við hristum bara haus- inn yfir draumalífínu og gleymum öllu sam- an. En allt er þetta runnið frá rótum sálr- innar og kvíslast um farvegi vitundar, æðri sem lægri, meðvitaðrar sem duldinnar, uns stofn innsæisins drekk- EFTIR KRISTJAN FRIMANN A VITINNSÆIS Draumarnir eru spegilmyndir sálarinnar og sjálfsins. I tengslum vió þá opnast áóur ókunnar leióir inn-á- vió og -út, skilningur á duldum þáttum sjálfsins og tilverunnar skerpist, innsæió veróur virkt og nýjar víddir opnast. hvetjum og einum manni til staðar, hvar sem er og hvenær sem er, án kvaða, án predikana, án blygð- unar og ótta um það að hlutirnir gangi ekki og okkur takist ekki að skilja hvert annað eða sjálf okkur. Því draumarnir eru speg- ilmyndir sálarinnar og sjálfsins. í tengslum við þá opnast áður ókunnar leiðir inn-á- við og -út, skilningur á duldum þáttum sjálfsins og tilverunnar skerpist, innsæið verð- ur virkt og nýjar víddir opnast, inn-á-við og -út, í heim þess smáa sem stóra. Hinn mikli andi eða „orkan“, sem er í öllum hlutum og VIRKT innsæi. Málverk eftir Gunnar Örn. við samnefnum guð, verður sjálfsagður hluti af meðvitund okkar. Þessi orka (vit- undin?) sem talað er um af leikum sem lærðum, í bókum um andleg málefni, í kirkj- um og á mannamót- um, er alheimsorkan, krafturinn sem lætur allt snúast, lifna og dafna, deyja og endur- fæðast; dýr, plöntur, vatn, veður og vind, fólk, plánetur, sólkerfi og öll þau undur sem rúmast innan þessara hugtaka. Innri maóur 1 draumum okkar birtast ávallt ímynd karls eða konu sem leiðir okkur um ur í sig visku draumanna svo andi mannsins megi nærast, víkka og opnast. Táknin verða skýr, persónurnar kunnar og heildræn þekk- ing á eðli draumsins er ljós, innsæið er virkt og sálin hluti af meðvitaðri upplifun. Rósirnar þrjár Til þess að öðlast þennan hæfíleika, að opna rásir eigin visku, á stöðvar innsæis, sálar og vitundarhvela, ber þeim manni sem hyggur á hugaropnun, að vera/verða meðvit- aður um þessi þijú vitundarstig eigin sjálfs, og vera stöðugt vakinn fyrir tilvist þeirra. Þar eru draumarnir mjög mikilvægur þáttur til örvunar, með öllum sínum táknum og boðum frá vitundarstigunum þrem, merkjum frá fyrri tilvistarstigum og þeim komandi, sem og samræmingarmerkjum mannsins við tilveru hans, ytri sem innri. Til að hefja draumkönnun er beittasta vopnið, penni og blað þar sem allir draumar eru skráðir sem munaðir eru, jafnvel slitur úr draumi og sið- ar skilgreindir með hjálp huga, draumabóka og draumamanna. Fyrir svefnin er gott að íhuga komandi nótt og drauma, gefa þeim táknum sérstaka athygli sem eru óskiljanleg eða vekja furðu, og setja sig í spor þeirra persóna sem þig dreymir, til að skilja sam- hengi draumsins og næstu drauma. Vakna og hripa niður þær myndir sem skýrastar eru og íhuga örstutt drauma næturinnar, áður en haldið er út í lífið. Æfingin skapar meistarann og smám saman opnast nýjar og fleiri dyr að skilningi á draumunum og innra eðli mannsins. Jóga og íhugun er ferli á sömu rás, sem eykur flæði hugsana frá dul og yfirvitund til meðvitundar, sem aftur þrýstir á aukinn skilning á draumunum, og þar með eigin sjálfi og innsæinu. Ad lála hwgann reika Þegar dreymandinn er orðin meðvitaður um innra líf sitt og tengdur við innsæi sitt, þann innri heim sem hann ber og þann innri mann sem hann hefur að geyma, er kominn tími til að skilgreina huglægt líf, til að skilja betur eðli hlutanna, form tilverunnar og til- I 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 15. MARZ 1997 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.