Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1997, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1997, Page 14
auðvitað aftur. Sbr. líka hér hugtakið framfar- ir (oftast í flt-mynd) um það þegar menn skilja einhveijar breytingar í rás aldar sem birtingar- myndir þeirrar færslu til þess betra fyrir mann og heim sem margir trúa eiginlcga á sem lög- málsbundna með nokkrum hætti. Trú þessi heit- ir sem kunnugt er framfaratrú og er mjög voldug, en af veldi hennargera stjómmálaflokk- ar víða um lönd sig sæla með því að kenna sig til hennar með sjálfum nöfnum sínum, svo sem er um framsóknar- eða prógressíva flokka. Sbr. einnig orðin framför (et) vs. afturför (et); en við *afturfarir (flt), sem andstæðu við þær framf- arir sem styðjast nú á dögum ennfremur við raunvísindatrú og tæknihyggju, er það ætlan mín að íslenzk tunga kannist ekki. 2) Þau óhreinindi sem hér er um að tala eru undirstöðuatriði í hugmyndakerfi manna í við- leitni þeirra aðgæta landamæra menningarheim- kynnisins og helzt að færa þau utar, á kostnað umheims sem æ er að einhveiju leyti villiheim- ur, óæðri. Villiheimurinn þarna utan við - en í vissum skilningi einnig inni á meðal okkar - er að skilningi okkar að nokkru leyti af eðli kaoss, óskepisins (upphaflega, íýmsum hugmyndakerf- um) sem í verunni er materían ósundurgreind, þ.e. óhreinindi, saur. Það er mikilvægt að benda á aðþessi saurindi eru hugmyndarskepna, magn- að mannfélagslegt tákn, og ber að hugsa um þau í því Ijósi, - á þann hátt sem Mary Dou- glas hefur t. d. gert grein fyrir í bók sinni um Hreinleika og váð (Purity and Danger. An analysis of the concepts of pollution and taboo. Kom fyrst út 1966). Menningin er hrein og góð. Mundi ekki margur kannast við að hafa verið alinn upp í þessu landi sem hreinn og góður lúteran?En þaðgagnstaðlega verður túlk- að sem óhreint, og vitanlega ekki gott. Saurindi þessi táknleg koma efnafræði náttúrubundins raunveruleika harla lítið við. En þegarþau skríða utan að og innan um annað í mannheimi, getur orðið vá fyrir dyrum eða inni á heimili menning- arinnar. Af þessu skýrist vitanlega hvemig á því stendur, að óvinur manna tengist sauri á einkanlegan hátt, en þar af skilst síðan samför vissra þátta í bölvi-og-ragni (t.d. helvítis rass- gat), sem annars er ekki skiljanleg. Þegar svo er komið, sem verið hefur um sinn á landi hér, að öllum almenningi hefur verið nálega allt óljóst um þetta samband, þá má spyija: Hefur menn- ingunni tekizt of vel að ala ungviðið upp í hug- myndarlegum hreinleika? Nei, varla. En hún hefur vanrækt að fræða um þennan grunnþátt í hugmyndaheimi tilverunnar. En af því mundi geta leitt þá vá, að það hið illa sem menn kunna ekki lengur að varast, það geti skreiðzt nær og mengað heiminn. Þessi grein hér sýnir einmitt dæmi um það, hve þessum hugmyndagrunni hefur með nokkrum hætti verið vikið út úr vit- und almennings. 3) Þessi samtalshluti af þjóðsögunni er hér tek- inn eftir safni Ólafs Davíðssonar í útg. Þorsteins M. Jónssonar, íslenzkar þjóðsögur, II (1939), bls. 353. - Svipaðar þjóðsagnir um kátleg svör heyrnardaufra eru á sveimi í munnmælum víða um lönd. Sjá Aarnes og Thompsons The Types of the Folktale (Folklore Fellows Communicati- ons No. 184. Helsinki 1973), nr. 1698. Um ísl. brigði sjá það sem Einar Ólafur Sveinsson til- greindi undir þessu sama númeri í Verzeichnis islándischer Márchenvarianten (FF Comm. No. 83. Helsinki 1929). 4) Kvæðið hefur Ó. D. tekið eftir kvæðabók Gunnlaugs Jónssonar á Skuggabjörgum, fyrsta bindi, JS 254 4to, þar sem það er nr. 156. 5 Ég leyfi mér að vitna um þetta efni til grein- ar minnar JtFrá hrópi til saurs, allrar veraldar vegur", í Arbók hins ísl. fornleifafélags, 1994, bls. 137-148, en sjá einkum bls. 140-142. 6 Ýmis dæmi þessa minnis í myndlist má finna með því að fletta upp á djöflinum í ýmsum vel- þekktum alfræðibókum. 7 Sjá t.d. orðsifjabók Ásgeirs Blöndals Magnús- sonar. Það mætti virðast að mundu koma ákaf- lega vel og eðlilega heim við tveggjaheimasýn heimsmyndarinnar sem er grunnatriði þessa hugmyndafars, og því einnig grunnatriði undir fræðilegan skilning hugmyndanna, ef öll orðin á r + sjálfhljóð ( + eitthvað meira, oftast; oghljóð- viðsnúnu myndir þeirra) á sama merkingarsviði væri að rekja til sömu rótar. En svo virðist ekki vera. Ljóst er að lo. argur/ragur og no. ergi/regi eru samstofna, og svo virðist sem no. ars/rass (enn eitt orðið með V+r-/r+V- hljóðvíxlun á þessu svæði varasamra mála) myndi geta verið af sömu rót, nl. ie. *er-, með merkingunni rísa, hreyfast, en án þess viðskeytis sem áðurnefndu orðin hafa í sér, ef rétt er að rekja þau (Á. Bl. M.) til ie. *er(e)gh-, líklega með merkingunni titra, og ætlast á, að merkingarnar huglaus, lostafullur o. s. frv. í þessum orðum hafí kvísl- azt þaðan. Rækarl, rækall telur Á. Bl. M. hins vegar vera samandregna orðmynd úr rægikarl, sem er í sjálfu sér sennilegt kenningarnafn á fjandanum, þ.e. rógberi - sbr. einnig orð eins og rægirófa, rægitunga, og allt annarrar sifjar, að fullum líkindum þeirrar sömu og orðið rógur. Þetta er vitanlega fróðlegt, en það afnemur ekki á neinn hátt það sem fyrir liggur um sam- band fiandans og andstæðingsins við saur(hús), né heldur afnemur þetta þau hugmyndatengsl við menningarskæða kynferðisháttsemi, sem hér er ekki á dagskrá athugunar. --------«.------------------------------------- Höfundurinn er dósent vió Hóskóla Islands. ÞORRI Hringsson listmálari hefur einbeitt sér að því sem honum þykir skemmtilegast - Morgunblaðið/Ásdís matnum. LISTAMENN TAKI AFSTÖÐU TIL LIST- SKÖPUNAR SINNAR í myndlist sinni hefur Þorri Hringsson, listmálari og mynda- söguhöfundur, fundið leið til að sameina áhugamál sín og brauðstrit. Honum þyl- cir fátt skemmtilegra en matargerð og vínsmökkun og því lá beinast við að mála mat. ÞORMUNDUR JONATANSSON skoðaði matarbúr Þorra og fékkhann til að lýsa sýn sinni á listheiminn. EKKI ERU mörg ár síðan olíumálverkið hlaut upp- reisn æru í listheiminum með tilkomu hreyfíngar sem nefndist Nýja mál- verkið. Hingað til lands barst bylgja nýrra viðhorfa gagn- vart málverkinu í upphafi níunda áratugarins. Hlutbundin málverk komu í stað óhlutbundinna verka og konseptlistin vék af tindi tís- kunnar. Þegar nýja málverkið kom fram var myndmálið kraft- mikið og expressionískt, hlaðið tilfinningum. Síðan hefur heldur róast yfir þeim listamönnum sem mála og hversdagslegri blær færst yfir myndmálið og skírskot- anir listamanna. Þorri Hringsson er einn hinna ungu listamanna sem hófu feril sinn á 10. aratugnum, að loknu námi í MHÍ og í Jan van Eyck- listakademíunni í Hollandi. Miðlar hans í listinni eru einkum tveir, olíumálverkið og myndasagan. Þar ræður frásagnarlistin ríkjum, hvort sem um er að ræða dul- magnaðar innanhússmyndir, hæðnisfullar myndasögur eða munúðarfullar matarmyndir. Mála þaö sem mér þykir skemmtilegast Fyrir réttri viku opnaði Þorri 11. einkasýningu sína í Sjónar- hóli við Hverfisgötu en þar sýnir hann afrakstur vinnu síðustu missera, 14 olíumyndir, en matur er viðfangsefni þeirra allra. Ekki er laust við að maður fái vatn í munninn þegar gengið er inn í sýningarsalinn og við blasa súkkulaðiterta með þeyttum ijóma, brauðterta með rækjum, söxuðum ólífum og eggjum og dýrindis dádýrshryggur. Raunar þarf ekki að koma á óvart að Þorri hafi valið að vinna með mat sem myndefni í verkum sínum. Hann er matgæðingur mikill og hefur unun af matar- gerð og vínsmökkun. Tildrög þess voru raunar tilviljunarkennd. „Árið 1993 fannst mér ég vera farinn að endurtaka mig og á þessum tíma sat ég eins og þung- lyndur unglistamaður og hugsaði hvum andsk... ég ætti að gera núna. Ég fékk síðan einskonar vitrun þegar ég fletti í gegnum gamla matreiðslubók hjá kunn- ingjafólki mínu. Þeirri hugmynd laust niður í mig að ég ætti að mála það sem ég hefði mestan áhuga á. Matur, matarsaga og vínsmökkun var þá orðið það skemmtilegasta sem ég fékkst við og hefur reyndar versnað," segir Þorri. Myndimar í gömlu matreiðslu- bókinni og fleiri bókum hafa síðan orðið uppspretta hugmynda fyrir Þorra. I myndum sínum málar hann rétti eins og þeir birtast í bókum og blöðum frá árunum 1930-1965. Þorri segir að fram- setningin á matnum, litirnir og skrautið hafi heillað sig og hann takist í verkum sínum á við að endurskapa og endurvinna þau áhrif. Þorri segir að hinar mörgu vísanir sem matur bjóði upp á séu heillandi en í sögu matar og mat- argerðar megi lesa þróun sem hægt sé að hlaða yfirfærðri merk- ingu. imyndir og framfaratrú í myndum sínum fæst Þorri m.a. við hugmyndir manna um ímyndir, þrá og framfaratrú. „Maðurinn lifir i þeirri trú að hið nýliðna sé hið versta og núið sé toppurinn. Núna séu til hrað- skreiðustu bílamir, besti maturinn og fallegustu fegurðardísimar. Eins og allt hafi verið undanfari að einhvers konar hámarki. Þetta er mannlegur veikleiki.“ Þorri fæst ennfremur við hug- myndir manna um ímyndir og hvað það er sem gerir einn rétt forsmáðan en annan eftirsóknar- verðan. Uppskriftir hafa margar tilvísanir að mati Þorra. Hann bendir á að matur sem kemst inn í matreiðslubækur sé sjaldnast hafragrautur eða brauð með kindakæfu. Matur sem kemst í matreiðslubækur og blöð er talinn eftirsóknarverður matur, nokkurs konar hátíðamatur. í þessu samhengi hefur Þorri leikið sér að því að heimfæra hugleiðingar sínar upp á list. „Ef myndlistin er andlegt fóður eru alls konar blöð og bækur um myndlist uppskriftir að því sem við hin ættum að leggja okkur til munns. Þau birta okkur það sem er eftirsóknarvert." Af þessu leið- ir, segir Þorri, að í öllum upp- skriftum, bæði í matreiðslubókum og listaverkabókum, leynist hug- mynd um að til sé útópía þar sem tiltekin list eða tiltekinn matur er góður og eftirsóknarverður. „Matreiðslublaðið er að lofa þér því að ef þú fylgir uppskriftinni náir þú galdrinum. Flestum nægir að lesa um það, að fá það á tilfinn- inguna að þeir geti búið til þessa rétti. Eins er þetta með myndlist- ina. Til er ógrynni af uppskriftum um myndlist. Birtingin á öllum snilldarverkunum sem listasagan töfrar fram. Hún felur í sér ögrun- ina: Ger þú betur! Hið stöðuga áreiti af öðru fóðri opinberar myndlistarmanni veikleika eigin verka. Sá sem ekki kann veit strax að hann getur ekki gert eins vel og í bókunum.“ Myndlislin hlwti nf tilverwnni Óþarfi er að velta fyrir sér hvernig Þorri fékk áhuga á mynd- list. Myndlistin hefur verið hluti 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 15. MARZ 1997 (•

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.