Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1997, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1997, Side 2
ÓBUNDINN AF ÖLLU NEMA EIGIN SKÖPUNARMÆTTI SÍÐUSTU tónleikar Schubert-hátíðarinnar í Garðabæ verða haldnir í dag kl. 17 í safnaðar- heimilinu Kirkjuhvoli við Vídalínskirkju í Garðabæ. Þar mun hollenski píanóleikarinn Gerrit Schuil, sem jafnframt er listrænn stjórnandi hátíðarinnar, flytja píanóverk eftir Franz Schubert. islendingar frábærir áheyrendur Gerrit sagði í samtali við Morgunblaðið að hátíðin hefði tekist einkar vel. „í raun hefur hátíðin tekist alveg ótrúlega vel. Allir tónleikarnir hingað til hafa verið mjög sér- stakir, andrúmsloftið á þeim hefur verið svo gott. Það hefur verið alveg einstök tilfinning í salnum sem áheyrendur hafa skapað; ég held að íslendingar geri sér ekki grein fyrir því sjálfir hvað þeir eru frábærir áheyrend- ur, þeir eru svo þögulir, einbeittir og athugul- ir að það er einstakt. Það er ekki bara ég sem held þessu fram heldur hafa þeir erlendu gestir sem hafa komið fram á hátíðinni talað sérstaklega um þetta. Það er manni sérstök ánægja að spila fyrir þá.“ Gerrit segist vera ánægður að það hafi verið hægt að hleypa þessari hátíð af stokk- unum. „En ég er líka himinlifandi að hún skuli vera að klárast. Þetta hefur verið gríðar- leg vinna og erfitt að halda úti nýrri efnis- skrá á tveggja vikna fresti. Skipulagningin hefur líka verið flókin og allt sem þessu fylg- ir. Ég hefði auðvitað aldrei getað þetta nema með styrk frá öllu því fólki sem hefur starf- að með mér að þessu og frá Garðabæ sem ljáði okkur aðstöðuna, þennan frábæra sal sem ég held að sé einn besti tónleikasalur á landinu. Það var hugmynd mín frá upphafi að halda þessa hátíð með vinum mínum, það er að fá til liðs við mig innlenda og erlenda tónlistar- menn sem ég þekki. Mér tókst að fá þijá frábæra tónlistarmenn frá Hollandi sem allir eru í hópi þeirra allra bestu í heiminum á sínu sviði, Hans Zomer, Elly Ameling og Robert Holl. Síðan fékk ég fólk héðan frá íslandi sem er líka allt í heimsklassa til að taka þátt í þessu þannig að þetta gat ekki orðið betra." Gerrit segist hafa lagt mikla áherslu á að GERRIT Schuil segist afar ánægður með hvernig Schubert-hátíðin hafi tekist og þakkar það ekki síst hversu frábærir áheyrendur íslendingar séu. flytja ekki aðeins kunn verk eftir Schubert á hátíðinni heldur einnig verk sem ekki hafa heyrst hér áður. „Ég held að við höfum frum- flutt hér á landi um tuttugu til þijátíu verk eftir Schubert. Þetta hefur hitt í mark því við höfum fengið geysilega góðar viðtökur; ég hef fengið bréf og símtöl frá áheyrendum sem hafa þakkað fyrir hátíðina. Það er fátt sem gleður mann meira.“ Lífió i allri sinni fegurd Tónleikarnir í dag hefjast á Sextán þýsk- um dönsum sem skipa sérstakan sess meðal einleiksverka Schuberts fyrir píanó. Annað verkið á efnisskránni er sónata í a-moll D 784 sem samin er árið 1823, eða skömmu eftir að ljóst varð að Schubert þjáðist af banvænum sjúkdómi. Tónleikunum íýkur svo með sónötu í G-dúr D 894, en um hana sagði Robert Schumann: „Fullkomið verk að inntaki og formi.“ Verkið er samið árið 1826. Gerrit segir að hvergi finnist honum Schu- bert gerast jafn opinskár um eigin tilfinning- ar og hugsanir en í þessum sónötum frá síð- ustu æviárunum. „Hann er óbundinn af öllu nema eigin hugmyndaauðgi og sköpunar- mætti. I hreinum tónlistarlegum skilningi stendur túlkandinn frammi fyrir ótrúlegum vandamálum við flutning þessara verka. Fyrstu þættirnir eru bæði langir og hægir og þess vegna kostar það snarpa glímu að koma hinni sterku innri spennu þeirra til skila. Meginstef|'ahugmyndirnar mynda held- ur ekki andstæður eins og við eigum að venj- ast í hefðbundnum sónötum heldur er þeim ætlað að styðja og ítreka hvor aðra en í úr- vinnslu þeirra erum við aftur á móti leidd fram á ystu nöf örvæntingar og þær tilfinn- ingar er nauðsynlegt að hemja, þótt erfitt sé, svo að dýpt þeirra komist til skila. Frammi fyrir kröfu tónskáldsins um að lýsa lífinu í allri sinni fegurð og örlæti, í öllu sínu mis- kunnarleysi og grimmd.“ Gerrit Schuil hefur verið búsettur hér á landi síðastliðin fjögur ár og tekið virkan þátt í tónlistarlífí Islendinga. Hann nam píanóleik við Tónlistarháskólann í Rotterdam en stundaði því næst framhaldsnám í London hjá John Lill og Gerald Moore og síðan í París hjá Vlado Perlemuter. Hann hefur hald- ið píanótónleika í flestum löndum Evrópu og í Bandaríkjunum og komið fram á alþjóðleg- um tónlistarhátíðum. Árið 1978 hóf Gerrit Schuil nám í hljómsveitarstjórnun hjá rúss- neska hljómsveitarstjóranum Krill Kondras- hin og eftir þau kynni hlotnaðist honum sá heiður að verða eini nemandi Kondrashins síðustu æviár hans. Árið 1979 réðst Gerrit til Sinfóníuhljómsveitar hollenska ríkisút- varpsins, sem á þeim árum var jafnframt aðalhljómsveit hollensku ríkisóperunnar í Amsterdam og þar starfaði hann sem stjórn- andi um árabil. Einnig hefur hann stjórnað fjölmörgum hljómsveitum í Evrópu og í Bandaríkjunum, bæði í óperuhúsi og tónleika- sal. Roni Horn sýnir í Ingólfsstræti 8 BRAGÐ AF LANDSLAGINU BANDARÍSKA listakonan Roni Horn heldur sýningu í galleríi Ingólfsstræti 8 sem verður opnuð í dag kl. 17. Verk Horn er erfitt að skilgreina enda eru þau af margvíslegum toga; teikningar, ljósmyndir, bækur, textar og verk unnin í málma. Hún hefur komið reglulega til íslands frá áriðnu 1975 í leit að innblæstri og miðlað þeirri reynslu sinni í verki sem enn hefur ekki verið fullklárað og nefnist „To Place“. Um þetta verk segir hún: „Verkið hlutgerist í formi texta, teikninga eða ljósmynda og birtist í þessum bókum næstum eins og samtal. Hvert bindi er óður um ákveðinn þátt gagnkvæmra hrifa milli mín og íslands. Það er ekki beinlínis um ís- land og ekki beinlínis um mig, heldur um gagnkvæm tjáskipti við ákveðinn stað í heim- inum. í rauninni vissi ég aldrei af hverju ég fór til íslands fyrr en ég byijaði að lesa Emily Dickinson. EG var svo djúpt snortin af því. Þar var ekkert fólk og víðast hvar engir veg- ir. ÉG ef snúið til baka svona um það bil 20 sinnum; einu sinni til tvisvar á ári án þess að vita hvers vegna, knúin af einhvers konar innri þörf. Þetta varð eins og farfuglalíf. Ég minnist þess að hafa lesið um það í einu bréfa Dickinson hvernig hún fór upp í svefnherberg- ið sitt og læsti sig þar inni, fyrir hana varð herbergið uppspretta frelsis, hennar staður til að vera fijáls. Og ég held að lestur minn á Dickinson hafi komið mér í skilning um að ísland er sá staður í heiminum þar sem ég hef svigrúm til að vera eins og leyst úr fjötr- um. ísland er staður þar sem maður getur lokað augunum og fundið bragð af landslag- inu. Það er svo áþreifanlegt. Og að því bein- ist oft brennipunkturinn í mínum skúlptúrum. Ég lít á ísland sem vinnustofuna mína.“ TÓNLISTARHÁTÍÐ í REYKHOLTI TÓNLISTARHÁTÍÐ, sem hlotið hefur nafnið Reykholtshátíð, verður í fyrsta sinn haldin í Reykholti dagana 25.-27. júlí nk. Heimskringla Snorrastofu ehf. stendur að þessari hátíð, listrænn stjórnandi hennar verður Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanó- leikari. Á þessari fyrstu hátíð verður gestur hátíðarinnar einn kunnasti fiðluleikari Lit- háen, Martynas Svégzda, sem nýlega var kjörinn listrænn sendiherra heimalands síns. Að sögn Steinunnar verður flutt sígild tónlist í sögulegu umhverfi og lögð áhersla á tónlist og tónlistarmenn frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Þá verða einnig frumflutt ný verk eftir norræn tónskáld og tónskáld frá Eystrasaltsríkjunum. Á efnis- skránni verða jafnframt ýmsar perlur tón- bókmenntanna og á þessari fyrstu hátíð verða m.a. flutt verk eftir Schubert, Brahms, Grieg, Mozart, Arensky, Ravel, o.fl. Samstarf við Eystrasaltsríki Steinunn sagði að hugmyndin væri m.a. að kynna tónlist Norðurlandanna og stuðla að menningarlegu samstarfí við Eystrasalts- ríkin og fá erlenda gesti til liðs við þá inn- lendu. I ár verða flytjendur Zila-píanókvart- ettinn sem auk Steinunnar Bimu skipa Auður Hafsteinsdóttir, fiðluleikari, Guð- mundur Kristmundsson, lágfiðluleikari, og Bryndís Halla Gylfadóttir, sellóleikari. Áðrir flytjendur verða Þorsteinn Gauti Sigurðsson, píanóleikari, og Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópr- ansöngkona. í vetur var vígður flygill í nýju kirkjunni í Reykholti sem notaður verður á hátíðinni. Hátíðin verður haldin ár hvert á Ólafs- messu (þriðju helgina í júlí). MENNING/ LISTIR í NÆSTU VIKU MYNDLIST Þjóðminjasafn íslands Sýningin Kirkja og kirkjuskrúð, miðalda- kirkjan í Noregi og á íslandi. Listasafn íslands yerk í eigu safnsins til sýnis út maí. Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveins- sonar Árbæjarsafn í sumar verða sýndar ljósmyndir frá Reykja- vík, ásamt ljóðum skálda. Listasafn ASÍ - Ásmundarsalur, Freyju- gðtu 41 Sigríður Siguijónsdóttir, Takashi Homma til 15. júní. Kjarvalsstaðir - Flókagötu Islensk myndlist til 31. ágúst. Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaða- stræti 74 Sýning á úrvali vatnslitamynda eftir Ásgrím til loka maímánaðar. Ráðhús Reykjavíkur Ríkey Ingimundardóttir sýnir til 9. júní. Gallerí Handverk og hönnun Elísabet Thoroddsen sýnir peysur til 26. júní. Gallerí Hornið Hildur Waltersdóttir sýnir til 18. júní. Gallerí Listakot Nina Kerola sýnir til 14. júní. Mokka - Skólavörðustíg Helgi Sigurðsson sýnir til 6. júní. Önnur hæð, Laugavegi 37. Max Nenhaus sýnir út maí. Gallerikeðjan - Sýnirými Sýningar í maí: Galíerí sýnibox: Ragnheiður Ragnarsdóttir. Gallerí Barmur: Bjarni H. Þórarinsson. Gallerí Hlust: Hannes Lárusson. Gallerí 20m2: Rúrí og ísak Eldh. Gerðarsafn — Hamraborg 4 Kóp. Anna-Eva Bergmann sýnir til 8. júní. Gallerí Myndáss Vilmundur Kristjánsson sýnir ljósmyndir til 31. maí. Hafnarborg - Strandgötu 34 Hf. Sýning hönnunarnema Iðnskólans í Sverris- sal til 2. júní. í Aðalsal er sýning á verkum úr eigu safnsins. Listasafn Sigurjóns - Laugarnestanga 70 Sumarsýning á völdum verkum Siguijóns. Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b Birgir Snæbjarnar Birgisson og Sigtryggur Bjarni Baldvinsson sýna til 8. júní. Skúlptúr í eigu safnsins eftir Jón Gunnar Árnason til 8. júní. Norræna húsið - við Hringbraut. Grímur Karlsson skipstjóri: Skipslíkön sýn. til 11. júní. Norrænir guilsmiðir sýna skartgripi til 8. júní. Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8 Roni Horn sýnir til 29. júní. SPRON, Álfabakka 14, Mjódd. Aðalheiður Valgeirsdóttir sýn. til 8. ágúst. Byggðasafn Hafnarfjarðar Undir Hamrinum — Af lífi hafnfírskrar al- þýðu til 30. sept. TONLIST Laugardagur 31. mai. Martial Nardeau og Guðrún Birgisdóttir halda tónl. f Norræna húsinu kl. 12.30. György Sebök heldur tónleika í íslensku óperunni kl. 16. Gerrit Schuil leikur á píanó í Kirkjuhvoli v/Vídalínskirkju kl. 17. Sunnudagur 1. júní. Kór íslensku óperunnar heldur tónl. kl. 16 og kl. 20. Dómkórinn og Skólakór Kársness verða á tónl. Kirkjulistahátíðar kl. 17 í Hallgríms- kirkju. Listdansskóli íslands heldur nemendasýn- ingu í Þjóðleikhúsinu kl. 14. Passíukórinn á Akureyri flytur Sköpunina e. Joseph Haydn kl. 17 í íþróttaskemmunni á Akureyri. Þriðjudagur 3. júní. Jón Aðalsteinn Þorgeirsson, Sigurður Hall- dórsson og Örn Magnússon halda tónl. kl. 20.30 í Listasafni Siguijóns Ólafssonar. Þjóðleikhúsið Fiðlarinn á þakinu lau. 31. maí, sun. 1., mið. 4., fös. 6. júní. Köttur á heitu blikkþaki, fim. 5. júnl. Listaverkið lau. 31. maí, sun. 1., fös. 6. júní. Þjóðleikhúsið Listdansskóli ísíands, nem- endasýning sun. 1. júní. Borgarleikhúsið íslenski dansflokkurinn 1. júní. Dómínó lau. 31. maí. Krókar og kimar, ævintýraferð um leikhús- geymsluna frá 13-18 alla daga og til kl. 22 sýningardaga. Loftkastalinn Áfram Latibær lau. 31. maí. Á sama tíma að ári lau. 31. maí. Leikfélag Akureyrar Vefarinn mikli frá Kasmír lau. 31. maí. Hermóður og Háðvör Að eilífu lau. 7. júní. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 31. MAÍ 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.