Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1997, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1997, Side 5
ins, stefnuna frá árunum 1848-51, sem fólst í innlendri landsstjóm og jafnrétti við Dani, voru þeir einlægt sammála. Þess skal getið sem dæmi um hvert mat manna á Jóni Guðmundssyni var, að á hundrað ára afmæli hans árið 1907 var hans minnzt í flestum dagblöðum Reykjavíkur. Þá sagði Jón Ólafsson, ritstjóri, í blaði sínu „Reykjavík", að „frá miðbiki 19. aldar, fram að dánardægri Jóns, vann enginn íslendingur þjóð sinni jafn- mikið til nytsemdar sem hann, að Jóni Sigurðs- syni einum fráskildum.“ 3. Jón Guðmundsson og Hólmfríður Þorvalds- dóttir eignuðust þrjú böm, sem öll voru fædd á Kirkjubæjarklaustri: Synirnir tveir, Þorvaldur og Sigurður, og einkadóttirin Kristín, áður nefnd, amma Helgu Krabbe. Eldri sonurinn, Þorvaldur, var fæddur 3. september 1837. Hann gekk menntaveginn, lauk stúdentsprófi í Latínuskólanum, árið 1857, fór síðan í læknisfræðinám í Kaupmannahöfn, en hélt því síðan áfram í Reykjavík hjá Jóni Hjaltalín, landlækni, og var útskrifaður hjá honum haustið 1863. Sama haust varð hann héraðslæknir í norðurhéraði Vesturamts, og átti búsetu á ísafirði alla tíð. Hann var starf- andi læknir til haustsins 1900, er hann fekk lausn frá embætti. Á ísafirði var Þorvaldur jafnframt póstafgreiðslumaður, bóksali og sparisjóðsstjóri, en síðasta áratug ævinnar var hann útibússtjóri Landsbankans í kaupstaðn- um. Þorvaldur var vel metinn borgari á ísafirði og lét mjög að sér kveða í félagslífi staðarins. Hann var brautryðjandi skáklistarinnar hér- lendis, talinn einn bezti skákmaður landsins á sinni tíð, enda stundaði hann skákina á fræði- legan hátt og fylgdist með því, sem erlendis gerðist á því sviði, eins og getið er í fyrsta íslenzka skáktímaritinu, „í uppnámi“, árið 1903. Þorvaldur lézt á ísafirði 24. júlí 1916, tæplega 79 ára gamall. Þorvaldur læknir var kvæntur Þórunni Jóns- dóttur, prests á Gilsbakka Hjartarsonar, og áttu þau sjö börn, fímm dætur og tvo syni. Yngsta dóttir þeirra skal hér sérstaklega nefnd. Hún hét Sigríður, var fædd 1875, og giftist 1902 jafnaldra sínum og frænda í Kaupmanna- höfn, Thorvald Krabbe, verkfræðingi. Þeim fæddist dóttir 25. ágúst 1904 og er þar komin oftnefnd Helga Krabbe. Aðra dóttur eignuðust þau frændsystkinin ,Thorvald og Sigríður, á aðfangadag árið eftir, en sá sorglegi atburður gerðist, að eiginkonan unga lézt af þeim barns- förum, aðeins þrítug að aldri, en yngri dótt- irin, skírð Sigrid, dó vorið eftir. Af því, sem hér hefur verið frá greint, er Þorvaldur læknir afi Helgu Krabbe, svo að skyldleika sinn rekur hún til Jóns Guðmunds- sonar og Hólmfríðar Þorvaldsdóttur bæði í föðurætt og móðurætt. Þannig er það einnig, að ekki aðeins Kristín, föðuramma Helgu, er fædd á Kirkjubæjarklaustri, heldur líka móður- afí hennar, Þorvaldur læknir. Yngri sonur Jóns og Hólmfríðar, Sigurður, var eins og systkini hans fæddur á Kirkjubæjar- klaustri, 31. janúar 1839. Hann lærði ungur beykisiðn og stundaði hana um skeið. Arið 1874 réðst hann í stöðu fangavarðar við ný- reist fangahús við Skólavörðustíg í Reykjavík, sem hann gegndi síðan allar götur til ársins 1907. Sigurður þótti löngum atorkumikill starfsmaður, áhugamaður um bindindissemi, sundmaður góður, og frumheiji skákiðkunar, líkt og bróðir hans. Sigurður fangavörður var tvígiftur. Með fyrri konu sinni, Þuríði Guðmundsdóttur (d. 1866), átti hann eina dóttur, Hólmfríði (f. 1864), sem að móður sinni látinni, var tekin hálfsannars árs í fóstur til ömmu sinnar og afa, Hólmfríðar og Jóns Guðmundssonar. Síð- ari kona Sigurðar var dönsk að ætt, Marie Nissen. Þau eignuðust 8 börn, sem upp kom- ust, 4 syni og 4 dætur. Auk þess átti hann eina dóttur utan hjónabands. Af Sigurði er kominn mikill ættbogi. Ekki er unnt að til- greina allt það fólk, en þó langar mig að nefna hér sérstaklega þrjú barnabörn hans. Sonur elztu dótturinnar, Hólmfríðar, var Jón G(uð- mundsson) Maríasson (f. 1898), sem lengi var bankastjóri Landsbankans, síðar Seðlabank- ans. Einn sonarsonur og alnafni var Sigurður Jónsson (1910-86), alltaf kallaður Siggi flug, enda fyrsti íslenzki atvinnuflugmaðurinn. Þá vil ég nefna annan sonarson, Harald Ágústs- son (f.1910), fyrrverandi yfirkennara við Iðn- skólann í Reykjavík, og sérfræðing á sviði viðarfræði, en hann var svo vinsamlegur á sínum tíma að hafa samband við mig og færa mér „Niðjatal“ ættmenna sinna, sem Thorvald Krabbe, frændi hans, gaf út árið 1913. - Sig- urður Jónsson, fangavörður, lézt í Reykjavík 21. apríl 1909, sjötugur að aldri. 4. Þá er röðin komin að yngsta barni Hólmfríð- ar og Jóns Guðmundssonar, Kristínu, föð- urömmu Helgu Krabbe, en ummæli Helgu í áðurgreindri blaðafrétt urðu tilefni þessara skrifa minna. Kristín, eina dóttir klausturhald- arahjónanna á Kirkjubæjarklaustri, fæddist þar HÚS Jóns Guðmundssonar í Aðalstræti 6 (fremst til vinstri). Teikning eftir dr. Harald Krabbe. 25. maí 1841. Hún var sex ára gömul, þegar foreldrar hennar og bræður fluttust til Reykja- víkur, þar sem faðir hennar gerðist aðstoðar- maður Stefáns Gunnlaugssonar, land- og bæj- arfógeta. Þau settust að í húsi við Aðalstræti, reist á tímum Innréttinganna á síðari hluta 18. aldar, nefnt lóskurðarstofan, en hafði síðar verið bústaður nokkurra landfógeta og loks notað til barnaskólahalds, þar til Jón og Hólm- fríður keyptu það. Á þessum stað í hjarta bæjarins óx Kristín litla Jónsdóttir úr grasi, eftirlæti foreldra sinna og eldri bræðra. Stundum hafði hún mátt sjá á bak föður sínum frá heimilinu um alllangan tíma, þegar hann dvaldist í Kaupmannahöfn veturinn 1848-49, svo og veturinn 1849-50, þegar hann gegndi starfí sýslumanns í Skafta- fellssýslu og hafði aðsetur í Norður-Vík í Mýr- dal, en fjölskyldan var í Reykjavík. Þegar hann fór svo til Kaupmannahafnar haustið 1850 til vetrardvalar í því skyni að ljúka prófí í dönsk- um lögum, tók hann konu sína og dótturina, þá níu ára gamla, með sér. Það voru fyrstu kynni Kristínar litlu af borginni við Sundið, þar sem síðar átti eftir að vera heimkynni hennar um nær fjóra áratugi. Þennan vetur í Kaupmannahöfn styrkir hún betur kynnin við Jón forseta og Ingi- björgu, konu hans, sem höfðu hafizt, þegar þau urðu vinafólk foreldra hennar og heimsóttu tíðum heimilið í Reykjavík á þingárunum eftir 1845. Þá urðu þeir Jónarnir nánir samheijar í stjómmálum og persónulegir vinir. Hún hefur auðvitað verið alin upp í aðdáun á Jóni forseta, og það fór líka vel á með þeim alla tíð. Hann kallaði hana alltaf „sinn góða vin“, og þau skrifuðuzt á. Þær mæðgur, Hólmfríður og Kristín, hafa einnig dvalizt um tíma í Kaupmannahöfn vetur- inn 1851-52, þegar Jón Guðmundsson fór á konungsfund, og þær hafa komið með 'honum aftur heim um vorið. Það er dálítið gaman, að a.m.k eitt lítið bréf hefur varðveitzt í fórum Jóns Sigurðssonar frá Kristínu litlu, skrifað þegar hún er nýkomin heim frá Höfn, 21. maí 1852. Þá er hún að verða ellefu ára. Hún skrifar eftirfarandi (með hennar stafsetningu): „Minn góði vin. Þó jeg ekki kunni að skriva, verð jeg þó endilega einusinni að skriva mínum góða vin eina línu. Við vórum ekki nema 12 daga á sjónum núna, enn hefðu þér verið með, þá mundum við hava orðið 4um sinnum 12 daga, samt var jeg altaf að gráta þegar við komum nærri landi, því það var bæði þoka og regn því þá gat jeg ekki brúkað fallega Hattinn minn rauða, enn það varð sólskin og blíða . Við búum í Aðalstræti Nr. 6 á fyrsta sal, M.Gr. [Magnús Grímsson] í stofunni og Kötturinn á öðrum sal, eða sem dónarnir kalla hanabjálkalopt. Jeg ætla að byðja yður um að kaupa fyrir mig og senda mjer með næstu ferð Comidíuna „Abekatten" og legg hjer inn- aní 2 Mörk og ef það ekki er nóg. ætla þjer [?] að gjöra svo vel að borga það sem vantar. Jeg byð kærlega að heilsa öllum, einkum frúnni og Sigríði. Yðar góði vin. Stína Jónsdóttir". Vorið 1852, þegar þau komu heim frá Höfn, var faðir Kristínar atvinnulaus vegna atvinnu- banns stjórnvalda í kjölfar þjóðfundar. Þá um sumarið var honum falin ritstjórn Þjóðólfs, eina blaðsins í bænum löngum. Þar með var heimil- ið í Aðalstræti 6 staðsett um þjóðbraut þvera, þar sem ritstjórann, alþingismanninn og helzta þjóðfrelsisfyrirliðann í bænum var að finna í einni og sömu persónu. Þessi óvenjulegi lífs- máti, sem fjölskylda Kristínar hefur mátt búa við, hefur gert æskudaga hennar sérstæða og sett með einhveijum hætti mark sitt á þroska- feril hennar. Kristín Jónsdóttir hefur ekki átt þess kost að setjast á skólabekk, þar sem enginn barna- skóli var við lýði í Reykjavík á uppvaxtarárum BREF frá Kristínu Jónsdóttur til Jóns for- seta, dagsett 21. mai 1852, þegar hún var nýkomin heim frá Kaupmannahöfn með foreldrum sínum, 11 ára gömul. hennar, og kom ekki fyrr en árið 1862, en þá var hún orðin tvítug. Faðir hennar hafði barizt fyrir stofnun bamaskóla, strax og hann settist í bæjarstjórn 1856, en það tók sinn tíma. Þrátt fyrir það varð Kristín ein af „bezt menntuðu stúlkum hér í bæ á þeim árum“, að sögn Guð- rúnar Borgfjörð. Hún hefur auðvitað lært hjá foreldrum sínum og einnig notið kennslu einka- kennara, því að hún mun hafa talað, auk dönsku, bæði ensku og frönsku. Enn fremur var hún vel að sér til handanna, stundaði hann- yrðir og saumaskap, og hefur þar óefað notið tilsagnar móður sinnar, sem þótti kunnáttu- manneskja á þá grein. Foreldrar Kristínar hafa ekkert viljað til spara, að einkadóttir þeirra hlyti hina beztu fáanlegu menntun þess tíma. Jafnvel tónlist var þar ekki undanskilin, og sú staðreynd tjáir raunar meira um menningarstig þessara merku hjóna en nokkuð annað, því að um miðja 19. öld var tónlistarkunnátta og hljóðfæraiðkun í landinu á algeru frumstigi. Þess vegna er skemmtilegt í þessu sambandi að segja hér litla sögu af Kristínu Jónsdóttur: Vorið 1855 verður hún 14 ára gömul og á að fermast, eins og lög gera ráð fyrir: Undirbúningurinn er hafínn snemma árs, einkadóttirin á að kom- ast í kristinna manna tölu með þeim hætti, sem bezt verður á kosið og ekkert skal til sparað. Þess vegna ritar Jón Guðmundsson vini sínum, Jóni Sigurðssyni í Kaupmannahöfn, eftirfar- andi 26. febrúar: „Þinn góða vin, stelpuaugasteininn minn, á nú að ferma í vor [... ] eg vildi gefa dóttur góðri gott pianoforte á fermíngardag hennar, og fel eg nú þér að kaupa það, svo gott og þó meðfram billega sem fæst [... ] Berggren [danskt tónskáld og þjóðlagasafnari], sem eg er svolítið málkunnugur, mundir þú fá til ráða- neytis með þér, ef þú vildir og bærir honum kveðju mína; eða þá einhvem annan áreiðanleg- an musicus, sem þú þekkir; síður vil eg kaupa brúkað, nema því áreiðanlegra og vissara væri, að það væri óskemmt að öllu og gott hljóð- færi [... ] „Skólann" fyrir pianoforte og smá- stykki auðveld vildi eg gæti fylgt með, ef fé væri til eða fengist á krít [. .. ] Eg vil ekki láta dóttur góða vita neitt af þessu fortep. fyr en hún kemur heim úr kirkjunni [...]“ Síðan koma fýrirmæli um að láta þetta fara leynt - “og hefír það annað hvort í þínu fari með póst- skipi, ef þú kemur með því sjálfur, eða sendir það með því undir þínu nafni og biður með línu Einar prentara að lofa því að standa í stofu sinni, þángað til þú komir eða gjörir um það ráðstöfun . Stilhoff [skipstjóra] hef eg talað við um að flytja það fyrir þig með maí- ferðinni [...]“. Flest hefur þetta gengið eftir, og ekki til lít- ils ætlazt af Jóni forseta að standa í svona út- vegi og hafa heilt píanó með sér í farteskinu, en sýnir gagnkvæma vináttu þeirra nafna. Hitt var svo annað mál, að þetta sumar kom Jón forseti alls ekki til þings, raunar í fýrsta sinn, en ekki fara sögur af píanóflutningi frekar. Kristín litla hefur fengið sitt hljóðfæri á ferming- ardaginn og getað fljótlega farið að læra „skól- ann“ og spila „smástykki auðveld". Fullyrða má, að þau heimili hafí mátt telja á fingrum annarrar handar, sem á þessum tíma höfðu af slíkum merkisgrip að státa sem píanó var. 5. Til þess að sýna enn betur úr hvaða jarðvegi Kristín, móðir þeirra Krabbebræðra og amma Helgu Krabbe, var sprottin, lang- ar mig til að skjóta hér inn í þessa frásögn um dótturina í Aðalstræti 6 nokkrum orðum um hið einstæða heimili foreldra hennar, hvílíkt það var og hvaða menningarhlutverki það gegndi sem minnisstæður og fastur punktur í lífí smábæjarins, þar sem tilveran mótaðist að öðru leyti af hversdagslegu brauðstriti fyrir langflesta. Lífið í húsi frú Hólmfríðar og Jóns Guðmundssonar var þess eðlis, að það hefur sett mark sitt á alla, sem þangað komu, og þá ekki sízt dótturina unga, sem þar óx úr grasi, ásamt bræð- rum sínum og öðrum meðlimum fjölskyld- unnar, en þetta unga fólk hafði að sjálf- sögðu sitt aðdráttarafl fyrir gesti og gang- ándi. Björn Bjarnason frá Viðfirði, tengda- sonur Þorvalds læknis, segir svo m.a. í eftir- mælum um Kristínu í „Óðni“, 1911: „Þetta bjarta æskuheimili frú K. hefur eflaust átt mikinn þátt í því, hvílík afburða- kona hún varð, hversu hún jafnan dreifði yl, gleði og göfgi kringum sig, gróf upp gullið í mannssálunum og örvaði gjörvileikaþrá þeirra, ekki með siðvendnis fortölum, heldur ósjálfrátt með viðmóti sínu og viðræðum, hvers efnis sem voru. Þegar í föðurhúsum var hún lífíð og sálin í glaðværð unga fólksins, innan húss og utan, enda víða vel sjeður gestur." Þess er að geta, að auk fjölskyldunnar í Aðalstræti 6 voru þar til heimilis þijú fóstur- börn: Hólmfríður Björnsdóttir (f.1842), bróður- dóttir Hólmfríðar húsfreyju, og Ólafur Rós- enkranz (f.1852), sonur hálfbróður húsbóndans (þau urðu hjón), ennfremur bættist í hópinn árið 1866 Hólmfríður („Utla-Fríða“, f. 1864), dóttir yngri sonarins, Sigurðar, sem áður hefur verið hér getið. Jón Guðmundsson var fjárhaldsmaður margra skólapilta, og sumir þeirra voru kost- gangarar á heimilinu. Um þingtímann borðuðu þar „ævinlega allmargir þingmenn, og oft var rifízt við borðið", segir Guðrún Borgijörð í „Minningum" sínum, en hún var meira og minna viðloðandi heimilið í æsku, m.a til að gæta „Litlu-Fríðu“. Enn fremur var heimilið griðastaður annars ungs fólks, sem einmitt kom til að hitta yngri kynslóðina, eða skálda og listamanna og annarra andans manna þessa tíma, sem kunnu vel að meta þann glaðværa brag, sem yfír þessu heimili var, og hið menn- ingarlega, borgaralega fijálslyndi, blandið ís- lenzkri þjóðemisvakningu tímans, sem sveif yfir vötnunum og kom fram í umræðum um listir og stjórnmál. Reglulega hvert sunnudagskvöld á vetrum var safnazt saman á heimilinu í Aðalstræti 6 við söng og hljóðfæraslátt, stundum dansað, menn hlýddu á innlendan og erlendan skáld- skap, sögur og ljóð, og ræddu bókmenntir. Húsbóndinn kunni að segja frá leiklist, eins og hann hafði kynnzt henni í Kaupmanna- höfn, þjóðsögur og önnur forn fræði hafði frú Hólmfríður sérstaklega á takteinum og kvaðst á við gestina, farið var í leiki, spilað og þreytt skáktafl, sem þeir bræðurnir á heimilinu léku af meiri list en aðrir í bænum. í fábreyttu félagslífi smábæjarins á þessum tíma var vel þegið að eiga athvarf á slíku heimili, eins og þeirra Hólmfríðar og Jóns Guðmundssonar. Það hefur áreiðanlega kunnað að meta sá framsýni listamaður, Sigurður málari, sem átti við harðan kost að búa vegna fátæktar og afskiptaleysis, jafnvel fyrirlitningar sam- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 31. MAÍ 1997 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.