Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1997, Síða 20
KAPELA Krakowska setur svip á borgartorgið.
ÞEMA Kraká er hið andiega í listinni.
ÞAR SEM STRAUMAR MÆTAST
ÞARSEM LÍFIÐ ERLIST
KRAKÁ í Póllandi er ein af
níu menningarborgum Evr-
ópu árið 2000. Borgin var
höfuðborg Póllands fram til
loka 16. aldar en þá tók
Varsjá við því hlutverki.
Engu að síður hefur Kraká
haldið hlutverki sínu sem
miðstöð menningar og lista í Póllandi og er
aðsókn í leikhús og á aðra listviðburði mun
meiri þar en annars staðar í Póllandi. í
Kraká eru árlega haldnar um fjörutíu lista-
hátíðir af ýmsu tagi og því hafa íbúar borg-
arinnar, sem eru um ein milljón, úr nógu
að velja.
„Kraká er hjarta listarinnar hér í Póllandi
og því er ávallt mikið um að vera. Þannig
er ekki hlaupið að því koma fram með eitt-
hvað nýtt og spennandi,“ segir Boguslaw
Sonik sem nýlega var fenginn til að annast
framkvæmd og stjóm menningarátaksins
árið 2000. „Til þess að dagskráin verði viður-
kennd þarf hún að höfða til almennings.
Þess vegna förum við til fólksins með hug-
myndir okkar og sköpum þannig nauðsyn-
lega umræðu. - Það er jú betra að gagnrýn-
in umræða eigi sér stað áður en ráðist er í
framkvæmdina en eftir að allt er afstaðið."
Spennandi samvinna vió
Reykjavikurborg
Avignon, Bergen, Bologna, Brussel, Hels-
inki, Prag, Reykjavík og Santiago de Compo-
stela eru hinar borgimar átta sem voru
valdar menningarborgir Evrópu árið 2000.
Sonik leggur áherslu á mikilvægi samvinnu
milli borganna. „Samvinnan gefur menning-
arárinu mikið gildi og býður upp á nýjung-
ar. Hún er samt ekki einföld því hver borg
hefur sitt sterka sérkenni og það getur vald-
ið árekstrum." Borgimar níu hafa hver sitt
þema að vinna út frá sem myndar ramma
utan um dagskrána. Þema Krakár er hið
andlega í listinni og Sonik segir áhugavert
að tengja það við 1000 ára afmæli kristni
á íslandi. „Samstarfíð við Reykjavíkurborg,
sem er almennt lítt kunn hér i Kraká, finnst
mér mjög spennandi og við höfum mikinn
áhuga á að tengjast þema Reykjavíkurborg-
ar sem er menning og náttúra."
Nú þegar hafa menningaryfirvöld í Kraká
farið af stað með undirbúningsverkefni sem
gefur tóninn fyrir árið 2000. Hvert ár er
tileinkað ákveðnu efni sem tekið er fyrir á
ólíkan hátt. í fyrra var evrópsk leiklist í
brennidepli og þá setti leikstjórinn Andrzej
Wajda rúmlega tíu verk á svið. í ár er ljóð-
listin í fyrirrúmi með nóbelsskáldin Czeslaw
Milosz og Wislawa Symborska í farar-
broddi. En auk þess að beina athyglinni að
listamönnum frá Kraká taka erlendir lista-
menn þátt í verkefninu og Sonik segist hafa
áhuga á að komast í samstarf við íslenska
ljóðasöngvara. Á næsta ári verður áherslan
lögð á nútímatónlist og mun tónskáldið
Krysztof Penderecki, sem kennir m.a. við
tónlistarakademíuna í Kraká, sjá um skipu-
Liósmyndari/Anna María Bogadóttir
BOGUSLAW Sonik.
Fulltrúar menningarborgg Evrópu árió 2000
hafa átt nokkra fundi og nú í vikunni sinn fyrsta
í Reykjavík. ANNA MARÍA BOGADÓTTIR hitti
Boguslaw Sonik, framkvæmdastjóra Kraká, nýlega
að máli á heimaslóðum.
lagninguna. Árið 1999 verður síðan helgað
Mið- og Vestur-Evrópu og mun það leiða
inn í hátíðahöldin sem standa allt árið 2000.
Frumkvwdi I ólksina
„Það eru margir möguleikar og mismun-
andi aðferðir við að koma á fót og skipu-
leggja listahátíðir," segir Sonik. „Ein aðferð-
in er að fá aðkeypta listamenn til að flytja
list sína fyrir almenning. Einnig er hægt
að virkja hugmyndir sem fæðast í hverri
borg og spretta frá íbúunum sjálfum. Mér
finnst mikilvægt að virkja vísinda- og menn-
ingarstofnanir hér í Kraká, því allir sem
hafa áhuga á og vilja, eiga að geta tekið
þátt í verkefninu. Mitt hlutverk er því að
hvetja stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga
til þess að gera eitthvað upp á eigin spýt-
ur. Þar á ég við t.d. listasöfnin, nemendafé-
lög og ýmiss konar félagasamtök sem geta
komið hugmyndum sínum á framfæri og
sameinað verk sín árið 2000. Nú þegar er
ég að farinn að kynna þessar hugmyndir í
menningar- og vísindastofnunum borgarinn-
ar og það er síðan þeirra að koma til okkar
með sínar eigin hugmyndir. Ég veit að fólk
býr yfir mörgum góðum hugmyndum og því
er þetta tækifæri til þess að framkvæma
þær. Okkar er að mynda tengsl milli ólíkra
aðila auk þess að tengja saman ólíkar hug-
myndir. Helst vildi ég t.d. að söfnin og aðr-
ar menningarstofnanir tækju tillit til heildar-
innar og þannig yrði heildaryfirbragð á öllu
menningarárinu“.
Höfóum ofurtrú ú f rjálshyggju
Sonik segist hafa verið hikandi þegar
borgarstjórinn í Kraká falaðist eftir því að
hann tæki að sér framkvæmdastjóm verkefn-
isins. Hann hafði allt eins hug á því að snúa
sér að fyrri iðju, lögmennsku, eftir að hafa
unnið í menningargeiranum í mörg ár en
síðastliðin sex ár veitti hann pólsku menning-
arstofnuninni í París forstöðu jafnframt því
að vera menningarfulltrúi pólska sendiráðsins
í Frakklandi. „Um leið og verkefnið er spenn-
andi er það mjög krefjandi og það þarf að
yfirstíga ýmis vandamál til þess að hlutimir
gangi upp. Það myndast jafnan mikil spenna
milli framkvæmdaraðila og listamanna sem
vilja oft leggja áhersluna á sköpunina ein-
göngu og gleyma stjómunarhliðinni. Vissu-
lega hafa þeir mikið til síns máls en hug-
myndavinnan er samt ekki nema hluti af
undirbúningnum, - það þarf einnig að útvega
fjármagn til að hægt sé að hrinda hugmynd-
unum í framkvæmd. Borgaryfirvöld í Kraká
em einu styrktaraðilar framkvæmdarinnar
enn sem komið er, en við vonumst til að ríkis-
stjómin muni einnig leggja sitt af mörkum,“
segir Sonik og heldur áfram. „í kjölfar hrans
kommúnismans hafa miklar breytingar átt
sér stað á uppbyggingu mennningarstarfsemi
í Póllandi og öðrum Mið- og Austur-Evrópur-
ríkjum. Fram að 1989 sáu ríkisstofnanir ein-
göngu um menningarmál. Listamenn voru
ríkislistamenn og þeim var verulega mismun-
að enda voru sumir í meira uppáhaldi en
aðrir. Eftir hrun kommúnismans gerðum við
fau mistök að trúa um of á fijálshyggjuna.
okkar huga varð listin að vera algerlega
markaðstengd eins og allt annað. Þetta hef-
ur m.a. haft þær afleiðingar að margar
stofnanir eins og bókasöfn og menningar-
söfn í dreifbýli hafa verið lagðar niður. En
breytingarnar hafa einnig verið til batnaðar
og nú ríkir mun meira jafnræði milli lista-
manna en áður. Borgaryfírvöld í Kraká
styrkja ýmiss konar uppákomur og veita
listamönnum þannig svigrúm til sköpunar.
í fijálsu markaðskerfi er það engu að síður
sá sem er útsmognastur sem fær mesta
athygli og græðir mest og þetta hefur haft
áhrif á listsköpunina."
Bygging lónliclarhúss
í Kraká, sem um margra alda skeið var
áfangastaður verslunarleiða milli austurs og
vesturs, norðurs og suðurs, gætir áhrifa víða
að. í borginni mætast ólíkir straumar og á
það verður lögð áhersla árið 2000. Um-
merki og minjar á hæðunum sem umlykja
borgina gefa til kynna búsetu manna allt
frá steinöld. Kraká, sem hefur ekki orðið
fyrir skemmdum af völdum styijalda og
náttúrahamfara, býður því upp á ferðalag
um ólík skeið sögunnar sem era greypt í
umgjörð borgarinnar og byggingarlist. En
Sonik bendir á að það nægi ekki að varð-
veita söguna í gömlum byggingum heldur
þurfí einnig að reisa nýjar og þannig geti
straumar ólíkra tíma mæst. „Vandamálið
hér í Kraká er að uppbygging í borginni
staðnaði árið 1985 þegar kommúnistar kom-
ust til valda. Kraká hefur ávallt verið kennd
við íhaldssemi og andkommúnisma. Til að
vega upp á móti íhaldslegu yfírbragði borg-
arinnar sem miðborgin ber vott um, lögðu
kommúnistar allt í að byggja upp verka-
mannahverfi sem hefði á sér svip kommúnis-
mans. Þannig hafa ekki verið reist hús fyr-
ir listastarfsemi og margar byggingar era
mjög gamlar og oft of litlar. Sem dæmi
má nefna að stærsta tónleikahúsið í borg-
inni sem hýsir óperana var byggt í lok 19.
aldar. Árið 2000 viljum við að allir sem vilja
geti komið og notið þess sem boðið verður
upp á, en vandinn liggur í húsnæðisskorti.
Vissulega er hægt að stefna á að halda
ýmsar uppákomur undir berum himni, - en
þar sem það rignir svo oft hér í Kraká er
það ekki ákjósanlegt,“ segir Sonik og bros-
ir. „Borgarstjórinn hefur skrifað undir samn-
ing um að byggt verði tónlistarhús og ég
vona að það gangi eftir.“
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 31.MAÍ1997