Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.1997, Qupperneq 7
LOG SEM
TALA TIL
SAM-
TÍMANS
INGVELDUR Ýr mezzósópran og Gerrit Schuil píanóleikari æfðu í vikunni lög úr lífi og leikhúsi fyrir tónleika í Gerðubergi á sunnudag.
LÖG úr lífi og leikhúsi er yfirskrift
söngtónleika Ingveldar Ýrar Jóns-
dóttur mezzósóprans og Gerrits
Schuils píanóleikara i Gerðubergi
sunnudaginn 23. nóvember kl. 17.
Á efniskránni eru verk að mestum
hluta frá þessari öld. í lok þessa mánaðar
heldur Ingveldur Ýr utan til Lundúna þar
sem hún fer með eitt aðalhlutverkið i frum-
flutningi nútímaóperunnar The Cenci eftir
Havergal Brian.
Ingveldur Ýr segir að verkefnaval tón-
leikanna á sunnudag ráðist af því að sig
hafi langað til að velja saman lög sem höfð-
uðu til samtímans. Á efnisskrá er lagaflokk-
urinn Ljóð fyrir börn eftir Atla Heimi
Sveinsson við ljóð Matthíasar Johannessen
sem Ingveldur Ýr segir sérlega skemmtileg
í bamslegri einlægni sinni. Spænsk lög úr
Tonadillas eftir Enrique Granados, banda-
rísk ljóð og aríur og lög eftir Kurt Weill.
„Bandarísk klassík stendur mjög nærri
söngleikjunum. Textamir em mikilvægir
og ljá lögunum ákveðna dýpt og dramatík
á köflum," segir Ingveldur Ýr. „Kurt Weill
kemur sér beint að efninu. Þetta eru beitt
lög með hráum textum og þar er ekki ver-
ið að fegra sannleikann. Á tónleikunum
verður sungið af dramatík og styrk, stund-
um af sorg og stundum af gleði og með
húmor fyrir lífínu.“ Dagskráin er að mestu
leyti frá þessari öld en tónskálda og ljóð-
skálda þessarar aldar em hömlulaus í sköp-
un sinni og laus undan boðum og bönnum
liðinna alda. „Hlutverk okkar flytjendanna
er að færa tónlistina til fólksins í dag þann-
ig að hún verði áfram hluti af lífinu eins
og hún hefur alltaf verið,“ segir Ingveldur
Ýr. „Tónlist og orð eru svo sterkir miðlar
að saman geta þeir opnað hjörtu fólks."
Nútímaóperan The Cenci er eftir tón-
skáldið Havergal Brian. Óperan verður
frumflutt í Queen Elizabeth Hall og Ingveld-
ur Ýr fer með eitt aðalhlutverkið í óperunni
sem jafnframt er fmmraun hennar í Eng-
landi. „Tónskáldið lést fyrir nokkrum árum
og líkt og oft vill verða með tónskáld þá
er eins og verk Brians séu að slá í gegn
að honum látnum," segir Ingveldur Ýr. The
Cenci er höfuðverk tónskáldsins og tengist
fom rómversku sögunni af Lucreziu. „Verk-
efnin mín em mjög nútímaleg þessa dag-
anna og ekki nema gott eitt um það að
segja. Það er ágætt að minna stundum á
að við emm stödd hér og nú en ekki ein-
hvers staðar aftur í öldum."
MYNDLISTARKONAN Hafdís Ólafsdóttir er undir áhrifum frá ís og jöklum á sýningu
sinni í Ásmundarsal.
UMBREYTINGAR JÖKULSINS
ÍSFLETIR er yfirskrift sýningar Hafdísar
Ólafsdóttur í Asmundarsal, Listasafni
ASÍ, við Freyjugötu. Verkin eru gerð und-
ir áhrifum frá ísflötum í öllum sínum birt-
ingarformum. ísfletir eru liáðir tímanum
og umbreytast eftir stundum sólarhrings-
ins, árstíðum og árum.
Hafdís segist liafa fengist við náttúru-
form allan sinn feril. Á sýningunni eru
tréristur og monotýpur og liturinn er í
aðalhlutverki, hann formar sömu myndina
aftur og aftur í grænbláu, hvítum, gráum,
blágráum, grængráum, svörtu og brúnu,
- jafnvel gulu og áhrifin verða aldrei
tæmandi. „Ég hef gengið á jökla og fylgst
með því hvernig litbrigði jökuisins breyt-
ast eftir birtuskilyrðum og eftir tíma. Þau
áhrif sem ég verð fyrir breytast líka á
vinnuferlinu," segir Hafdís. í sumar dvaldi
list akonan í Róm þar sem hún heiliaðist
af litbrigðum gróðursins. Við heimkomu
sneri hún sér aftur að ísflötunum og með
Rómarhitann enn í blóðinu urðu græn lauf
suðursins að bláum íslaufum. „Það sem
heillar mig við jökulinn er þessi óviðráðan-
legi kraftur. Jökullinn er i senn fallegur
og ægilegur, hann rennur áfram og ryður
burt öllu sem á vegi lians verður. Að lok-
um bráðnar hann og verður aftur að
vatni.“
WHAT DO YOU
THE MAN WHO HAS
EVERYTHING...?
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 22. NÓVEMBER 1997 7