Lesbók Morgunblaðsins - 10.01.1998, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 10.01.1998, Page 2
NYLISTASAFNIÐ ASINU ALDURSARI 20. / ÁR eru tuttugu ár liðin frá stofnun Nýlistasafnsins og mun því verða fagnað með öflugri sýningardagskrá bæði er- lendra gesta og innlendra listamanna auk annarra atburða sem verða kynntir síðar. Fyrstu sýningar ársins í Nýlistasafninu verða opnaðar laugardaginn 10. janúar. Þrír erlendir gestir sýna í boði safnsins að þessu sinni. Þar ber fyrst að nefna hjónin Matjaz Stuk og Alena Hudocovicoca sem hing- að koma frá Hollandi. Alena er fædd í fyrrver- andi Tékkóslóvakíu og Matjaz í Júgóslavíu sem var, en bæði stunduðu nám sitt í Hollandi þar sem þau búa. Innsetningu sína kalla þau „Kortaherbergi Gúllivers og vitna þannig til hinnar kunnu sögu Jonathans Swift um Ferðir Gúllivers". Verkinu er þó ekki ætlað að vera myndskreyting á sögunni og má raunar segja að frásögn þeirra Alenu og Matjas taki frekar við þar sem saga Swifts endaði. Einhverskonar nútímaævintýri eða dramatík um persónuleg og opinber landamæri, jafnt hugans sem í bók- staflegum skilningi. Táknmálskór kirkju heymarlausra mun vera í hlutverki sögumanns á opnun sýningarinnar. Þriðji boðsgestur safnsins er Englending- urinn Chris Hales, en hann sýnir 7 margmiðl- unarkvikmyndir í Svarta sal. Kvikmyndirnar eru sýndar í sérstökum tölvutengdum útbún- aði sem listamaðurinn hefur hannað til að áhorfandinn geti haft virk áhrif á framvindu þeirra. Verk Chris hafa verið sýnd á kvik- myndahátíðum víða um heim en hann starfar jafnframt sem kennari við Listadeild Háskól- ans í heimabæ sínum Bristol. Á sama tíma opna þrír íslenskir listamenn sýningar í safninu: Pálína Guðmundsdóttir sýnir nýleg mál- verk í Forsal safnsins. Pálína stundaði mynd- listarnám í Hollandi þar sem hún var meðal annars nemandi málarans Marlene Dumas sem verður gestur Nýlistasafnsins í mars. Þetta er sjöunda einkasýning Pálínu, en hún býr og starfar á Akureyri. Hildur Bjarnadóttir sýnir verk unnin í textíl. Hún nam við Textíldeild Myndlista- og handíðáskóla Islands áður en hún fór í fram- haldsnám við Pratt Institute í New York. Hildur sýnir í Bjarta sal safnsins. Verk sín segir hún vera á mörkum skreytingar og hug- myndalistar og færir hún áhersluna frá nota- gildi eða fegurð textílsins í átt að einfaldleika aðferðarinnar sjálfrar og að þeim eiginleikum sem efniviðurinn býr yfir. Einar Garibaldi Eiríksson sýnir nýleg landslagsmálverk í Súmsal. Verkin hafa orðið til á undanförnum árum og eru að vissu leyti hylling brautryðjenda íslenskrar myndlistar, en bæði fyrirmyndir og efniviður verkanna er sótt á þær slóðir sem voru þeim sérstaklega hugleiknar. Einar stundaði framhaldsnám í Listaakademíunni í Mílanó að loknu námi í Myndlista- og handíðaskóla íslands. Sýningarnar eru opnar daglega nema mánudaga frá kl. 14-18 og þeim lýkur 25. janúar. Aðgangur er ókeypis. Bestu blaðaljósmyndir órsins ÁRLEG sýning á bestu blaðaljósmyndum nýliðins árs verður opnuð í Gerðarsafni í Kópavogi í dag kl. 14. Verð- laun verða veitt fyrir bestu mynd í hverjum efnisflokki og jafnframt útnefnd ljósmynd ársins. Sýningin verður opin daglega til 25. janúar. Á myndinni sjást þrír af ljósmynd- urum Morgunblaðsins, Þorkell Þorkelsson, Kristinn Svavarsson og Kjartan Þorbjörnsson, raða upp myndum á sýninguna. MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Sýning vetrarins, Svífandi form. Verk Sig- urjóns Olafssonar. Safnið verður opið samkvæmt samkomulagi í janúar. Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar. Ásmundarsalur, Freyjugötu 41 Fyrirmyndarfólk sýnir myndskreytingar til 25. jan. Kjarvalsstaðir - Flókagötu Líkamsnánd, norrænt sýningai-- og safn- fræðsluverkefni til 1. mars. Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaða- stræti 74 Kyrralífs- og blómamyndh- ásamt mynd- um úr Reykjavík og nágrenni. Til febrúar- loka. Þjóðarbókhlaðan „Verð ég þá gleymd“ - og búin saga? Brot úr sögu íslenskra skáldkvenna. Sýning á ritum og munum úr Kvennasögusafni. Til 31. jan. Nýlistasafnið Matjaz Stuk, Aiena Hudocovicoca. Chris Hales, margmiðlunarkvikmyndir. Pálína Guðmundsdóttir, Hildur Bjarnadóttir og Einar Garibaldi Eiríksson. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn Steinunn Helgadóttir og Kjartan Ólafs- son. Urval bestu frétta- og blaðaljós- mynda ársins 1997. Til 1. febr. Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6 Snorri Ásmundsson. Til 19. jan. Gallerí Sævars Karls, Bankastræti Jón Óskar, Harlequin. Til 4. febr. Sýning á ljósmyndum á almanökum frá Lavazza. Til 6. febr. Gallerí Fold Jónas Viðar Sveinsson. Til 25. janúar. Galleríkeðjan Sýnirými Sýnibox: Þriðja árs nemar gi-afíkdeildar MHÍ. Gallerí Barmur: Húbert Nói. Gallerí Hlust: Hljóðmynd verksins „Af- þreying fyrir tvo“ eftir Pétur Örn Frið- riksson. Síminn er 551 4348. 20 m2 Egill Sæbjörnsson. Til 25. jan. Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8 Haraldur Jónsson sýnir til 11. jan. Gerðuberg Vaidimar Bjarnfreðsson. Til 18. janúar. TÓNLIST Laugardagur 10. janúar Ráðhús Reykjavíkur: Lúðrasveit verka- lýðsins kl. 14. Mánudagur 12. janúar Gerðarsafn: Auður Gunnarsdóttir og Jónas Ingimundarson, ki. 20.30. Fimmtudagur 15. janúar Háskólabíó: SÍ - 50 ára afmæli STEFs. Hljómsveitarstjóri Petri Sakari. LEIKLIST Þjóðleikhúsið Yndisfríð og ófreskjan, frums. sun. 11. jan. Hamlet, fim. 15. jan. Fiðlarinn á þakinu, lau. 10., fös. 16. jan. Grandavegur 7, sun. 11. jan. Borgarleikhúsið Feður og synir, fim. 15. jan. Galdrakariinn í Oz, lau. 10. jan. Augun þín blá, sun. 11. jan. Njála, lau. 10. jan. Hár og hitt, lau 10., fös. 16. jan. Loftkastalinn Fjögur hjörtu, sun. 11., fim. 15. jan. Listaverldð, lau. 10., fös. 16. jan. Kaffileikhúsið Revian í den, fös. 16. jan. Leikfólag Akureyrar Á ferð með frú Daisy, lau. 10., fös. 16. jan. VIÐURKENNING FYRIR NÁMSEFNI í KRISTNUM FRÆÐUM UNDANFARIN ár hefur Hagþenki, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, veitt viðurkenningu fyrir framúrskarandi fræði- störf og samningu fræðirita og námsefnis. Sérstakt viðurkenningarráð, skipað fulltrú- um ólíkra fræðigreina og kosið til tveggja ára í senn, ákveður hver viðurkenninguna hlýtur. Viðtakandi fær viðurkenningarskjal og fjárhæð sem nú er samtals 300.000 kr. Viðurkenningu Hagþenkis 1997 hljóta Ið- unn Steinsdóttir rithöfundur og sr. Sigurð- ur Pálsson, „fyrir að semja vandað og vekj- andi námsefni í kristnum fræðum" eins og segir í skjali því sem fylgir viðurkenning- unni. Höfundarnir hafa unnið saman nýtt námsefni í greininni fyrir 4.-7. bekk grunnskóla sem tekur við af þýddu og stað- færðu efni. I greinargerð viðurkenningar- ráðsins segir m.a.: „Með verki þeirra Ið- unnar og Sigurðar koma út kennslubækur í K r™ jj I Morgunblaðið/Ásdls SR. Sigurður Pálsson og Iðunn Steinsdóttir taka við viðurkenningunni úr hendi Gísla Sig- urðssonar formanns Hagþenkis. kristnum fræðum fslenskar frá grunni. Þar endurheimta valdar sögur úr Biblíunni gamalt virðingarsæti. En að þessu sinni eru þær teknar óvenjulegum tökum sem ekki eru á allra færi. Nú fylgir sögunum fjöl- breytt efni til fróðleiks og íhugunar. Texti sagnanna er vel saminn, einfaldur og læsi- legur og honum fylgja spurningar og verk- efni sem eru vel til þess fallin að auka skilning nemenda og víðsýni." Ennfremur segir í greinargerðinni að þetta verk sé Námsgagnastofnun og rit- stjóra af hennar hálfu, Ragnheiði Gests- dóttur, til mikils sóma. Val mynda af lista- verkum og safngripum, svo og teikningar Önnu Cynthiu Leplar, er einnig talið gefa bókunum sérstakt gildi. Viðurkenningarráð Hagþenkis skipa Gunnar Karlsson sagnfræðingur, Kristín Bragadóttir bókmenntafræðingur, Margrét Eggertsddttir bókmenntafræðingur, Sig- urður Steinþórsson jarðfræðingur og Torfi Hjartarson námsefnisfræðingur. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 10. JANÚAR 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.