Lesbók Morgunblaðsins - 10.01.1998, Page 10
Fyrirmynd - FIT, samtök myndskreyta innan Félags ís-
lenzkra teiknara eru ársgömul og standa nú í fyrsta sinn
að sýningu sem opnuð verður í dag í Asmundarsal. Af
___3ví tilefni hitti GISLI SIGURÐSSON að máli Kristínu
Rögnu Gunnarsdóttur, grafískan hönnuð, sem er í for-
svari fyrir þessu framtaki og fræddist um stöðu þeirra
sem teikna myndlýsingar í blöð, bækur og fleiri miðla.
Nútíma fólk hefur myndir
fyrir augunum hvert sem
litið er. Utanhúss geta það
verið risastórar bíóauglýs-
ingar á húsgafli, auglýs-
ingamyndir utan á flutn-
ingabílum eða flettiskilti.
Allskonar miðlar eru
hlaðnir myndum, allt frá auglýsingabækling-
um sem streyma inn um bréfalúgur til bóka,
blaða, tímarita, veggspjalda, umbúða, kvik-
mynda og sjónvarps. Þetta er gífurlegt áreiti;
enginn getur einbeitt sér að öllu þessu, eða
munað eftir því og þessvegna stendur slagur-
inn um að ná athyglinni með einhverjum sér-
stökum brögðum.
Elzta aðferðin til myndrænnar framsetn-
ingar er teikningin. Þótt ótrúlegt geti virzt
hefur hún haldið sínum hlut í samkeppni við
ljósmyndir og kvikmyndir. Hvað sem líður
tæknibrellum er ekkert sem gerir teikningar
úrelt fyrirbæri og eru mýmörg dæmi um að
teikning þyki vænlegri til að fanga athygli en
ljósmynd. Nægir í því sambandi að benda á
bókarkápur.
En eru teikningar í blöð og bækur listgrein?
Eg lagði spurninguna fyrir Kristínu Rögnu
Gunnarsdótttur, grafískan hönnuð, sem er í
forsvari fyrir sýningu 25 myndhöfunda í As-
mundarsal. Hún sagði að vissulega væri þetta
listræn iðja; nytjahst, en samt á gráu svæði.
Nokkrir úr hópnum eru þekktir myndlistar-
menn og hafa haldið sjálfstæðar sýningar. Af
verkum þeirra á sýningunni í Asmundarsal
má glöggt sjá hversu bilið er mjótt milli þess
sem unnið er undir merki myndskreytinga og
hins sem þessir sömu einstaklingar hafa sýnt
undir merki myndlistar.
Með abstraktbylgjunni og hreyfingu
módemista um miðja öldina varð sú breyting
að fremur var litið niður á fígúratífa teikningu
og öfgamar voru slíkar, að það átti jafnvel að
vera kostur fyrir myndlistarmann að vera
slæmur teiknari. Aivömþmngnir merkisberar
stefnunnar vildu sem minnst láta á því bera ef
þeir gátu teiknað. Það hafði þó gerzt skömmu
áður að einn áhrifamesti boðberi abstraktlist-
arinnar, Þorvaldur Skúlason, hafði ásamt
Snorra Arinbjamar og Gunnlaugi Scheving
teiknað myndlýsingar í Brennunjálssögu sem
út kom 1945. Ekki er nóg með það að teikn-
ingar Þorvaldar sé með því bezta sem eftir
hann liggur, heldur má líta svo á að þær séu
hátindurinn á lýsingum í íslenzkum bókum.
Þorvaldur sýndi og sannaði að þegar bezt læt-
ur em lýsingar í bókum og blöðum eins góð
myndlist og hver önnur.
Ef hægt er að tala um íslenzkan brautryðj-
anda á sviði bóka- og blaðateikninga, þá er
það Tryggvi Magnússon. Þeir sem nú era
komnir til vits og ára ólust upp við teikningar
hans í bamabókum og hinir eldri skemmtu sér
við skopteikningar hans í Speglinum. Tryggvi
var líka fyrsti auglýsingateiknarinn þegar
hann teiknaði Rafskinnu á fyrstu áram henn-
ar. Tryggvi er annar tveggja teiknara á þess-
ari öld, sem segja má að hafl orðið þjóðinni
hjartfólgnir. Hinn var Halldór Pétursson, sá
frábæri teiknari sem betur en nokkur annar
hefur skilgreint í myndum kjama þess að vera
Islendingur. Þar að auki vora hestar sérgrein
hans.
A sýningunni í Ásmundarsal má sjá að við
eigum álitlegan hóp góðra teiknara sem geta
tekizt á við myndlýsingar. Eg veigra mér við
að nota myndskreytingar, sem gefur ranglega
til kynna að teikningar séu einungis til
skrauts, - og skraut er út af fyrir sig eitthvað
sem hægt er að vera án.
Félagar í þessum samtökum hafa stundað
nám í Myndlista-og handíðaskólanum svo og
erlendis og vinna sumir sem grafískir hönnuð-
ir á auglýsingastofum, en aðrir hafa komið sér
upp aðstöðu heima hjá sér og vinna þar. Flest-
ir era að einhveiju leyti einyrkjar, sagði
Kristín Ragna. Það getur verið mjög einangr-
að að vinna þannig, en samtökin ættu að bæta
úr því. Stefnan er að halda sýningu árlega;
næst verður það ef til vill temasýning þar sem
félagarnir einskorða sig við ákveðið efni. Nú
er stefna að félagar í Fyrirmynd, sem era 26
talsins, komi sér upp heimasíðu á Netinu. Vef-
síða norrænna teiknara, NT, var hönnuð hér
og í kjölfar hennar munu koma undirsíður fyr-
ir Félag íslenzkra teiknara og Fyrirmynd.
Við myndlýsingar verður teiknarinn að geta
unnið eftir fyrirfram mótuðum hugmyndum.
Eðlilega leggur verkkaupandi stundum á
borðið með sér hugmyndir sem hann þarf að
fá útfærðar. Verkefnin era margskonar; unnið
er fyrir blöð, tímarit, bæklinga, veggspjöld,
sjónvarpsauglýsingar og barnaefni en enginn
teiknimyndaiðnaður er til hér á landi. Þar era
enn onýttir möguleikar.
Af myndunum sem hér eru birtar má sjá
að félagar í Fyrirmynd eru hver um sig með
persónulegan stíl, en sjálfsmyndirnar hafa
þeir kosið að hafa fremur á gamansömum
nótum. Hver þeirra verður með þrjú verk á
sýningunni, en sumt eru myndraðir. Myndir
sem sérannar eru fyrir sjónvarp, verða sýnd-
ar á sjónvarpsskjá. Því miður vantar í hópinn
teiknara sem unnið hafa myndlýsingar í Les-
bók og lesendur blaðsins þekkja ugglaust
betur en marga þá sem kynntir era á sýning-
unni.
Nú er hægt að kaupa teikniforrit í tölvur, en
getur slík tækni komið í staðinn fyrir fyrir
teiknara og gert þá úrelta? Kristín Ragna
sagði að það væri af og frá. Tölvur væra góðar
til síns brúks og flestir teiknarar nýttu sér
þessa tækni á einhverju stigi, en eftir stendur
að sá sem ekki getur teiknað getur ekki barið í
brestina með tölvu og teikniforriti. Hægt er að
fá búnað sem gerir manni kleift að teikna
beint á skerminn, en það er líka hægt að nota
tölvuna öðruvísi; mála til dæmis mynd með
vatnslitum á pappír, setja hana síðan inn í
tölvu og skeyta þar við hana pennateikningu,
svo dæmi sé tekið.
Sýningin í Ásmundarsal stendur til 25. jan-
úar og verður opin alla daga kl. 14-18, nema
mánudaga. Eftirfarandi félagar í Fyrirmynd
eiga verk þar: Aðalbjörg Þórðardóttir, Anna
Cynthia Leplar, Áslaug Jónsdóttir, Bjami
Hinriksson, Búi Kristjánsson, Erla Sigurðar-
dóttir, Freydís Kristjánsdóttir, Guðjón Ketils-
son, Guðrún Hannesdóttir, Gunnar Karlsson,
Halla Sólveig Þorgeirsdóttir, Halldór Bald-
ursson, Jean Antoine Posocco, Kristín Þóra
Guðbjartsdóttir, Kristín Ragna Gunnarsdótt-
ir, Kristín Þorkelsdóttir, Margrét E. Laxness,
Óíafur Pétursson, Pétur Halldórsson, Sara
Vilbergsdóttir, Sigrún Eldjám, Sigurborg
Stefánsdóttir, Sigurður Valur Sigurðsson
Soffía Ámadóttir og Þóra Sigurðardóttir.
KRISTÍN Ragna Gunnarsdóttir.
SIGRÚN Eldjárn.
KRISTÍN Þorkelsdóttir.
FREYDÍS Kristjánsdóttir.
ÁSLAUG Jónsdóttir.
HALLDÓR Baldursson.
JEAN Ant
10 ŒSBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 10. JANÚAR 1998