Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1998, Blaðsíða 14
4
STÆRSTA hengibrú heimsins nær yfir tvö sund í námunda við Hong Kong.
Mesta og stærsta byggingasvæði heimsins er nú um
stundir í námunda við Hong Kong þar sem m.a. er
verið að byggja dýrasta flugvöll heimsins, ævintýraiega
langar hengibrýr og stór umferðarmannvirki.
RISASTÓR
GÖNGU
VIÐ HONG
ISIÐASTLIÐNUM júlí lauk brezkum
yfirráðum í Hong Kong og þetta merki-
lega borgríki varð hluti af Kína. Illa
hafði verið spáð íyrir þeim umskiptum
og einhverjir hafa flúið með aurana
sína, en á undirbúningstímanum hefur
hvorttveggja gerzt að vestræn stórfyr-
irtæki hafa haslað sér völl í Kina og
eins hitt, að Kínverjar virðast komnir á þá
skoðun að þeirra eigin kommúnismi og vest-
rænn kapítalismi sé ágæt blanda. Að minnsta
kosti lítur út íyrir að Hong Kong verði áfram
umsvifamikil viðskiptamiðstöð eins og áður.
Nú er skrifað í blöð að Hong Kong og næsta
nágrenni á Kínaströnd séu að verða nýr „að-
alinngangur" í Kínaveldi. Hvergi í veröldinni
er byggt annað eins á tiltölulega litlu svæði.
Raunar er einnig bent á, að þama sé aðeins
byrjunin á risavaxinni uppbyggingu í þessu
fjölmennasta ríki heimsins.
En hvað er það einkum sem er verið að
gera við aðalinnganginn og forstofuna? Það
er til dæmis Chek Lap Kok-flugvöllurinn;
nýr flugvöllur á uppfyllingu út frá Lantau-
eyju, sem síðan þarf að tengja við megin-
landsströndina og Hong Kong með feiknar-
legum hengibrúm. Flugvöllurinn var for-
senda þess að Hong Kong gæti haldið lykil-
hlutverki sínu. Búið var að þjarma svo að hin-
um eldri flugvelli í Kowloon með háum bygg-
ingum, að ekki var talin framtíð í honum.
' Vonir standa til að nýi flugvöllurinn verði
tekinn í notkun á þessu ári og kostnaðaráætl-
unin hljóðar uppá 21 milljarð Bandaríkjadala
- 1512 þúsund milljónir íslenzkra króna, ef
einhver skyldi treysta sér til að ná utanum
slíka upphæð. Haft var á orði í bandaríska
tímaritinu Scientific American, að slíkt gæti
aðeins gerzt í Hong Kong að annað eins
mannvirki sé skipulagt, fjármagnað og byggt
á sjö árum.
Fyrir skömmu var sagt í Lesbók frá
stærsta einstaka byggingarverkefni sem
Bandaríkjamenn hafa ráðizt í: Getty-lista-
safninu í Los Angeles. Eins og að líkum lætur
er það aðeins smáræði hjá því sem nú er að
rísa í Kína. Flugvöllurinn í Hong Kong, segir
tímaritið, er viðamest allra opinberra verk-
efna, sem nokkru sinni hefur verið ráðizt í.
Kannski er það rétt. Það skyldi þó aldrei
vera að tímaritinu og öðrum sem mikla þetta
SÉÐ yfir nýja flugvöllinn við Hong Kong. Til
dæmis um hvað flugstöðin er stór má geta
þess að ranninn út úr henni er 1,3 km
fyrir sér hafi yfirsést um Kínamúrinn, sem er
víst enn þann dag í dag eina mannvirkið sem
sést frá Tunglinu. Og hvað ætli það mundi
kosta núna að byggja pýramídana í Egypta-
landi?
Þó talað sé um nýjan flugvöll spannar
framkvæmdin allmiklu meira. Leiðin á hann
er eins og rúmlega hálfa leið á Keflavíkur-
flugvöll frá Reykjavík, 34 km. Hluti þessara
samgöngumannvirkja við Hong Kong felst í
að leggja nýjar hraðbrautir og járnbrautir.
Nú er þróunin að færast í þá átt að geysilega
hraðskreyðar þotulestir á einum, sverum
teini, skutli þotuliðinu af flugvöllunum á örfá-
um mínútum inn í miðjar borgir og svo verð-
ur það í Hong Kong.
Nú hagar svo til að frá Lantau-eyju, þar
sem flugvöllurinn er, liggur leiðin til Hong
HONG KONG, borg á örlagaríkum tímamót-
um, en virðist ætla að halda stöðu sinni sem
afar þýðingarmikil miðstöð heimsviðskipta.
Kong fyrst yfir á smáeyju, síðan á aðra
stærri eyju og yfir mjórra sund unz komið er
upp á kínversku ströndina, eða „fastalandið"
eins og menn mundu segja í Vestmannaeyj-
um. Þaðan þarf að komast yfir enn eitt all-
breitt sund, ef leiðin liggur til Hong Kong, og
þar hafa menn grafið jarðgöng í stað þess að
brúa.
Fyrir 8 árum var komið á fót einskonar
samþættingarstofnun New Airport Projects
Coordination Offíce, skammstafað NAPCO,
þar sem mest mæðir á bandarísku verktaka-
fyrirtæki sem heitir Bechtel. Foster Asia,
útibú brezka arkitektsins Normans Foster,
fékk það verkefni að hanna flugstöðina, sem
sést hér á loftmynd og ber varla með sér
hveru stór hún er. Flatarmál flugstöðvarinn-
ar er nærri 52 hektarar og ofanfrá að sjá lík-
ist hún flugvél. Það gefur einhverja hugmynd
um stærðina að raninn sem gengur út úr að-1
albyggingunni og sést á myndinni er 1,3 km á
lengd. Við hann geta komizt að í einu 39
Boeing 747 farþegavélar.
Nærri 200 þúsund manns munu vinna við
flugvöllinn og flug-
stöðina og þótti
nauðsynlegt að
byggja sérstaka
borg í næsta ná-
grenni til að hýsa
allt það fólk. Borgin
heitir Tung Chung
og er á byrjunar-
stigi, en eins og
myndin sýnir er ris-
inn þéttur klasi há-
hýsa og mun ekki af
veita að byggja nok-
uð hátt ef þessi
fjöldi á að komast
fýrir á því litla svæði
sem þama sýnist
vera til ráðstöfunar.
Stærsta hengi-
brú heimsins
TUNG CHUNG, borg á byrjunarstigi. Á þessum bletti er byrjað að
byggja borg fyrir 200 þúsund manns sem starfa munu við flugvöllinn.
Tvær hengibrýr
tengja Lantau-eyju,
^14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21.MARZ1998
4