Lesbók Morgunblaðsins - 09.05.1998, Side 10
KIRKJULIST
EFTIR GÍSLA SIGURÐSSON
Fyrir páska voru selt upp í Fella- og Hólakirkju verk úr stein-
du gleri og samsvarandi kirkjuskrúði verður brátt tekinn í
notkun. Hjónin Leifur Breiðfjörð og Sigríður Jóhannsdóttir
eru sameiginlega höfundar þessarar nútímalegu kirkjulistar.
FELLA- og Hólakirkja var vígð 27.
marz, 1988. Þar sameinuðust tvær
sóknir í Efra-Breiðholti um stóra
kirkju, sem ekki er þó hægt að
segja að láti mikið yfir sér með
íbúðabyggð á þrjár hliðar, en bezt
sést kirkjan frá óbyggða svæðinu
vestan við Elliðaárnar. Ásamt með
safnaðarheimili og skrifstofum er byggingin
106o fermetrar og í hæsta máta nútímaleg;
minnir að utanverðu á ýmis tónlistarhús þar
sem konsertsalur skagar uppúr. Klukkuturn-
inn gefur þó augljósa vísbendingu um það
hverskonar hús þetta er, en auk hans setur
sérstakan svip á kirkjuna að grasi grónir jarð-
vegsfláar ná upp að byggingunni og jarðtengja
hana ef svo mætti segja.
Að aflokinni samkeppni valdi dómnefnd til
útfærslu tillögu arkitektanna Ingimundar
Sveinssonar og Gylfa Guðjónssonar, en fyrsta
skóflustungan var tekin í apríl 1982. Form
kirkjunnar og lögun mótast m.a. af hugmynd-
um höfundanna um samnýtingu kirkjuskips,
safnaðarheimilis og kennslustofu sem notuð er
við fermingarundirbúning.
Með samnýtingu geta fjöl-
mennar athafnir farið fram
í kirkjunni, en innra skipu-
lag er sveigjanlegt og
hentar ijölbreyttu safnað-
arstarfi. Þar er bæði hægt
að tengja saman rými og
afskerma með felhveggj-
um. Kirkjuskipið rúmar
um 250 manns, en um 400
manns geta verið við
stærri athafnir þegar opn-
að er inn í safnaðarsal.
Að utanverðu eru stein-
aðir, steyptir fletir. Dökk-
ar steinflísar eru á gólfum
kirkjuskipsins og sér-
kennilegt að þær ná einnig
rúma mannhæð upp á
veggina. Veggir og loft eru
klædd viði sem hefur
dökknað, en milli tré-
klæðningarinnar og stein-
flísanna er mjó ræma;
gluggi sem ef til vill hefur
verið ætlað að létta á þeim þunga sem þessar
klæðningar skapa óhjákvæmilega. Glugga-
ræman hefur síðan verið nýtt á frumlegan og
listrænan hátt fyrir steint gler.
Metnaður forráðamanna Fella- og Hóla-
kirkju stóð til þess að prýða þetta glæsilega
hús með kirkjulistaverkum úr steindu gleri. A
því sviði ber Leifur Breiðfjörð höfuð og herðar
yfir aðra íslenzka listamenn og er óhætt að
segja að orðstír hans hefur borizt um alla
heimsbyggðina. í þetta sinn var bæði leitað til
Leifs og konu hans, Sigríðar Jóhannsdóttur
textfllistakonu og þau hafa sameiginlega unnið
að hönnun listaverkanna. í ljós kom að ákjós-
anleg skilyrði voru á tveimur stöðum í kirkj-
unni fyrir hangandi verk úr steindu gleri.
Þesskonar verk eftir Leif hafa landsmenn til
dæmis séð í Leifsstöð og Borgarleikhúsinu.
Þessi ákjósanlegu skilyrði í Fella- og Hóla-
kirkju voru annarsvegar stór, þríhymdur þak-
gluggi yfír miðju kirkjuskipinu og hinsvegar
breiður, heillegur flötur innst í kór, þar sem
ofanbirta verður til þess að hangandi glerlista-
verk nýtur sín afar vel.
Bæði verkin eru eftir venjulegri skilgreim
inu abstrakt, þó ekki algerlega non-fígúratíf. í
samræmi við form þakgluggans hefur verið
unnið þríhymt verk í bláum lit og hvítum, sem
táknar sjö náðargáfur mannsandans. Þetta
verk hangir niður úr loftinu undir glugganum.
Verkið í kórnum má segja að sé altaristafl-
an. Eins og vel sést af myndunum er þetta af-
ar formfagurt verk og enda þótt höfundamir
telji það táknmynd krossfestingarinnar og ía
að því með táknum eins og þyrnum og krossi,
er myndin margræð og má alveg eins líta á
hana sem táknmynd fyrir upprisuna eða trú-
arlega upphafningu. Hver kirkjugestur getur
fundið sína lausn á því.
í gluggaræmuna sem áður er nefnd voru
unnin afar sérstæð verk. Þar snýr steint gler
út, en fyrir innan eru sandblásnir speglar.
Myndræn form sem sandblásin eru í speglana
endurvarpa því innri birtu kirkjunnar þegar
myrkur er úti. Þegar birtir skína hinsvegar lit-
ir og form steinda gersins í gegnum sand-
blásna spegilinn. Þetta tækifæri hefur verið
notað fyrir ímyndir skriftar, en einnig einstök
orð og tilvitnanir úr Biblíunni.
Skrúði i stíl við glerlistina
Leifur Breiðfjörð hefur í mörg ár haft verk-
stæði við Sigtún í Reykjavík, en hefur nú flutt
sig um set í nýja, rúmgóða vinnustofu að Ný-
býlavegi 28 í Kópavogi og Sigríður hefur sína
vinnuaðstöðu einnig þar. Á veggjum vinnu-
stofunnar má sjá vinnumyndir af glermyndun-
um í Fella- og Hólakirkju og einnig frumgerð-
ir þeirra hjóna af skrúða kirkjunnar. Þegar
kemur að verklega þætt-
inum við skrúðann er
komið að yfirráðasvæði
Sigríðar og hún fagnaði
því mjög að hafa fengið
þetta tækifæri til að
standa að svo umfangs-
miklu, sameiginlegu verki
með Leifi. Að loknu vefn-
aðarkennaraprófi frá
MHÍ fór Sigríður til fram-
haldsnáms í Osló og í
Finnlandi, þar sem hún
lærði m.a. damaskvefnað.
Af frumdrögum að
skrúða kirkjunnar má sjá
að höfundamir hafa tekið
mið af formum og lit í
gerlistaverkunum og má
segja að þessi form haldi
áfram í skrúðanum til
þess að mynda fagra og
listræna heild. Svipað hafa
þau hjón áður gert í lítilli
kapellu í kvennadeild
Landsspítalans.
Þau hafa farið þá leið að hanna svokallaðan
yfirhökul, sem notaður er með öllum öðrum
höklum, þ.e. undir höklum í litúrgísku litun-
um. Til þess að hafa þá létta og þægilega er
yfirhökullinn ofinn, en samt léttur, og undir-
hökullinn er úr flaueli með ásaumuðu gull- og
silfurefni. Hverjum hökli íylgja síðan tvær
stólur, en stóla er borði sem lagður er yfir háls
prestsins.
Það eitt að útvega hin allra æskilegustu og
vönduðustu efni hefur útheimt langan tíma og
mikla leit og sú leit varð að fara fram úti í Evr-
ópu og jafnvel austur í Asíu. í Singapore
fannst til að mynda gullofinn dúkur frá Kína,
svo þéttofinn að það er nánast eins og að
snerta pappír. Af öðrum stranga sýnir Sigríð-
ur mér silfurofinn dúk og þann þriðja, þar sem
gull og silfur er ofið saman. Ekki nóg með það;
einstök myndræn form á höklunum eru „app-
líkeruð“ eða ásaumuð og útlínur þeirra brydd-
aðar með sérstökum snúrum, sumpart úr
gylltum þráðum eða öðru efni, og þessar snúr-
ur fundu þau í verksmiðju í Frakklandi sem
um langan aldur hefur sérhæft sig í þessum
iðnaði.
Það lá við að Sigríður iðaði af sköpunargleði
þegar hún sýndi mér þennan dýrmæta efnivið,
enda sagðist hún vera eins og barn í sand-
kassaleik með þetta verkefni í höndunum.
Góðir hlutir gerast hægt og þetta verður ekki
verk sem hún getur hrist framúr erminni,
enda ekki hægt að nota til þess saumavélar.
Ætlunin er að Sigríður fái þrjú ár til verksins,
en fyrsta höklinum mun hún skila í september
á þessu ári.
GLERLIST nærist á og lifnar við birtu
og svo fagurlega getur sólin blandað
sér í verkin í Fella- og Hólakirkju.
SÉÐ INN eftir kirkjuskipinu í Fella- og Hólakirkju. Glerlistaverkin eru undir þríhyrndum þakglugga, I
VERK SIGRÍÐAR OG LEIFS
1 O LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 9. AAAÍ 1998