Lesbók Morgunblaðsins - 09.05.1998, Page 16

Lesbók Morgunblaðsins - 09.05.1998, Page 16
Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræðingur, hefur á undanförnum misserum kynnt til sögunnar nýja aðferðafræði í söqurann- sóknum hér á landi, eiíT söguna. ÞRÖSTUR HELGASON bað Sigurð Gylfa að skýra hvar ein- sagan stendur í heimi ís- lenskrar sagnfræði, hverj- ar eru aðferðir hennar oq markmið oq bar undir hann gagnrýni sem heyrst hefur á þessar hugmyndir. EINSAGAN (e. microhistory) er til- raun til að nálgast viðfangsefni sagnfræðinnar á nýjan hátt. I stað þess að einbeita sér að formlegum stofnunum samfélagsins og ein- staka mönnum sem taldir eru hafa haft mikil áhrif á framgang sög- unnar skoðar einsagan hvar ein- staklingurinn stóð í þessu stóra gangvirki. Einsagan hefur beint sjónum sínum að ein- staklingum sem ekki hafa átt upp á pallborð sagnfræðinga hingað til, alþýðumönnum og -konum sem skildu einhverra hluta vegna eftir sig heimildir um líf sitt og hugsanir. Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræðingur, er frumkvöðull að einsögurannsóknum hér á landi en einsagan á upptök sín á Italíu fyrir um það bil tveimur áratugum. Ohætt er að segja að Sigurður Gylfi hafi hleypt lífi í íslenska sagnfræði. Hann hefur sjálfur verið mjög af- kastamikill undanfarin misseri við að kynna einsöguna, jafnt í bókum sínum, Menntun, ást og sorg. Einsögurannsókn á íslensku sveita- samfélagi 19. og 20. aldar og Bræður af Ströndum. Dagbækur, ástarbréf, almenn bréf, sjálfsævisaga, minnisbækur og samtíningur frá 19. öld, sem komu báðar út í fyrra, sem og í tímaritsgreinum og námskeiðum sém hann hefur kennt í Háskóla Islands. Eftir eitt þess- ara námskeiða stofnaði hann umræðuhóp í samvinnu við Erlu Huldu Halldórsdóttur, for- stöðumann Kvennasögusafns Islands, um ein- sögurannsóknir ásamt nemendum sínum, hóp sem starfað hefur í tvö ár en ritið, Einsagan - Olíkar leiðir. Atta ritgerðir og eitt myndlistar- verk, sem nýlega kom út hjá Háskólaútgáfunni undir ritstjórn Erlu Huldu og Sigurðar Gylfa er afrakstur þess starfs. Viðtökurnar hafa hins vegar verið misjafnar; . sumir hafa tekið þessum nýju straumum sem ferskum andblæ inn í sagnfræðina en aðrir hafa sagt að aðferðafræði einsögunnar sé ótraust, að lítið sé hægt að fullyrða um sögu- lega þróun á grundvelli persónulegra og brota- kenndra heimilda. Enn aðrir hafa svo sagt að engin nýmæli séu af einsögunni, slíkar rann- sóknir hafi menn löngum fengist við. Ljóst má vera að einsagan er hluti af hinum miklu hræringum sem eiga sér nú stað í húmanískum vísindum á íslandi og því þótti mér hnýsilegt að heyra Sigurð Gylfa segja nánar frá aðferðum og markmiðum einsögunn- ar um leið og hann svaraði þessari gagnrýni. Sá fyrir mér að ég yrði úthrópaður i faginu Sigurður Gylfi segir að kynni sín af einsög- unni hafí átt sér langan aðdraganda. Hann hafi í raun allan sinn fræðaferil verið að leita að að- ferð til að nálgast einstaklinginn í sögunni. „Eg hef alltaf haft áhuga á því að skoða hvemig einstaklingunum hefur reitt af í gegn- um söguna eða hvernig sagan lítur út frá sjón- arhóli einstaklinganna og alþýðunnar. Eg skrifaði B.A.-ritgerð frá Háskóla íslands um kreppuna miklu hérna fyrr á öldinni en sú rit- gerð var síðar gefin út á bók hjá Sagnfræði- stofnun undir heitinu Lífshættir í Reykjavík 1930-1940. I stað þess að leita eingöngu uppi einhverjar tölulegar heimildir um þetta tíma- bil, um afkomu fyrirtækja, stöðu ríkissjóðs og slíkt, þá kannaði ég hvemig fimm íslenskar fjölskyldur höfðu það á þessum tíma og beitti til þess viðtölum. Ég fór ósköp einfaldlega og tók viðtöl við fólk sem tilheyrði þessum fjöl- skyldum og skrifaði síðan um reykvískt fjöl- skyldulíf á krepputíma út frá þeim. Ut úr þess- ari rannsókn kom alveg ný mynd af kreppuár- 4^ Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir SIGURÐUR Gylfi Magnússon EINSAGAN - ÓSKRIFUÐ SAGA unum, þetta vom nefnilega ekki eins slæm ár og hinar opinbem tölur gefa til kynna, í það minnsta ekki fyrir hinn venjulega borgara. Petta vora alveg þokkalega góðir tímar, fólk svalt ekki, öfugt við þá ímynd sem við höfum af kreppunni, og kjörin voru bara þokkaleg, þeir sem áttu í erfiðleikum vora þeir sem höfðu ekkert húsnæði, það var auðvitað helvítis basl en yfirleitt hafði fólk það bara nokkuð gott á þeirra tíma mælikvarða. Þegar ég skrifaði þessa ritgerð hjá Birni Th. Björnssyni var ég, að segja má, í fræðilegu tómarúmi. Síðan fór ég út til Bandaríkjanna í skóla þar sem sagnfræðingar vora mjög töl- fræðilega sinnaðir og sögðust þess vegna loks- ins geta sýnt fram á að sagnfræðin væri raun- veruleg vísindi, þarna voru menn að drepast úr alvarlegum vísindakomplex. Sjálfur gleypti ég við þessum gorgeir þangað til ég tók að skrifa doktorsritgerðina þar sem ég notaðist við sjálfsævisögur. Ritgerðin er reyndar mjög í þessum vísindalega anda, í bandaríska félags- söguandanum sem er mótaður af megindlegri (tölfræðilegri) aðferðafræði, en ómeðvitað var ég í raun að vinna gegn þessari fræðilegu nálg- un því ég var að vinna með eigindlegar heim- ildir (frásagnarheimildir) eins og í B.A.-rit- gerðinni; ég var að fást við sjálfsævisögur og vildi nálgast einstaklinginn. Það var hins vegar ekki fyrr en ég var kom- inn hingað heim að ég kynntist einsögunni. Ég hafði verið að kenna námskeið við háskólann um sjálfsævisögur. Eftir að námskeiðinu lauk héldum við nemendumir áfram að hittast ásamt nokkram fræðimönnum úr ólíkum greinum og ræða vandann við að fást við per- sónulegar heimildir. Til að opna umræðumar skrifaði ég nokkurs konar kynningu á efninu. Ég gerði þetta um nótt og eftir að hafa komið á blað almennum hugleiðingum um stöðu ein- staklingsins í sögunni fór ég að hugsa að það hlyti einhver annar að hafa fjallað um þetta efni, hvemig maður rannsakar þátt einstak- lingsins í þróun og mótun samfélaga. Ég leit upp í hillu hjá mér og þar stóðu þá nokkrar bækur um einsöguna sem ég hafði keypt í Bandaríkjunum rétt áður en ég fluttist aftur heim. Þegar ég fór að glugga í þessi rit þá kviknaði ljós, þarna kom aðferðafræðin sem ég hafði verið að leita að upp í hendurnar á mér, aðferðin til þess að glíma við einstaklinginn sem ég hafði verið að reyna að nálgast svo lengi. Kynningin sem ég skrifaði þessa nótt varð síðar stofninn að innganginum að bók minni Menntun, ást og sorg. Og raunar skrif- aði ég þá bók um leið og ég var að kynnast þessari aðferðafræði. Hér á landi hafði enginn notað þessar aðferðir áður. Sem einsögurann- sókn er bókin framraun og fyrir vikið svolítið framstæð. Ég held að það sé hægt að ganga miklu lengra en ég gerði, ég bara þorði það ekki, ég viðurkenni það fúslega því að ég óttað- ist að ég yrði úthrópaður í faginu." Hefðbundin sagnfræði - lýðfræði - einsaga - Hvernig skynjar þú stöðu þína og einsög- unnar í íslenskri sagnfræði? Ertu í uppreisn gegn hefðbundinni sagnfræði? „Til þess að svara þessu þarf ég að skýra aðeins hvað hefðbundin sagnfræði hefur verið að gera í gegnum tíðina og hvar einsagan kemur inn í þá mynd. Hefðbundnir sagnfræðingar glíma mest við formlegar stofnanir samfélagsins. Stofnana- sagan byggist fyrst og fremst á því að það era til nægar heimildir um viðfangsefnið sem era til dæmis fjölskyldan, menntakerfið og póli- tískar hreyfingar. Rannsókn hins hefðbundna sagnfræðings hefst iðulega á spurningu og svo er leitað af sér allan grun, allar tiltækar heim- ildir eru kannaðar. Niðurstöðurnar era svo kynntar með þeim hætti að lesandinn fái það á tilfinninguna að sagnfræðingurinn viti ná- kvæmlega hvað hann er að gera, að hann hafi svarað spurningunni sem lagt var upp með, sama hversu stór hún var. Leyfðu mér að taka dæmi um þetta. í áður- nefndri bók minni Menntun, ást og sorg, fjalla ég meðal annars um menntun, eins og titillinn gefur til kynna. Ég byrja á því að feta hefð- bundna slóð og fjalla um hina formlegu hlið menntunarinnar eins og hún birtist í lögum og reglum um þennan málaflokk og í almennri umræðu, aðallega menntaðra karlmanna um hann. Næsta skref er að kanna hvað aðrir sagnfræðingar hafa gert og þeir hafa nær ein- göngu fjallað um stofnanaþáttinn sem áður var nefndur en að auki koma til tals hinir „miklu“ éinstaklingar sem hafa komið að skólasögunni og skólastofnanh-nar sjálfar, þróun þeirra og framganga. Iðulega hafa 16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 9. MAÍ1998 +

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.