Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.09.1998, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 12.09.1998, Qupperneq 7
ins? Og er það ekki vegna þess að hún gefur nánast samband við hrynjandina, sem virðist standa bak við alla hluti.“ Sú aðferð Harðar að bera abstrakt tjáningarform í myndlist saman við tónlist var velþekkt úr ritum helstu frumkvöðla abstraktlistarinnar. I grein sinni, „Nonfígúratív list“, sem birtist í Birtingi árið 1955 greip Þorvaldur Skúlason til sama ráðs og líkti starfi málarans við starf tónskáldsins. Með því vildi hann leggja áherslu á að málar- inn ynni á grundvelli tilfmningar sinnar fyrir og skilnings á eigindum myndlistarinnar, þ.e. formum og litum, eins og tónskáldið sem þekkja verður öll hljóðfæri hljómsveitarinnar út í ystu æsar. I greininni fjallaði Þorvaldur á skilmerkilegan hátt um ýmis grundvallaratriði abstraktlistar og gerði skýran greinarmun á henni og því sem hann kallaði natúralíska list. Eins og aðrir formælendur hinnar geó- metrísku abstraktlistar lagði hann áherslu á byggingu „nonfígúratíva málverksins" sem hann sagði vera sköpun málarans í einu og öllu og túlka „innri sjón hans á liti og form.“ Enn fremur lagði hann áherslu á að losa þyrfti lit- ina við tengingar við það sem menn þekktu úr umhverfinu til að komast að eðli þeirra og eig- in merkingu. í grein sinni kom Þorvaldur einnig inn á hugmyndir sem rekja má til kenn- inga Mortensens um málverkið sem rými, þar sem hann talaði um að formin ættu sitt sér- staka rúm og væru misjafnlega opin og lokuð. Á sama hátt benti hann á mismunandi áhrif litanna á skynjun manns, en í þeim samleik forma og lita á fleti sagði hann felast „rúm og dýpt hinnar nonfígúratívu myndar, sprottin úr formkennd og hugsun málarans.“ Um það leyti, sem grein Þorvalds birtist, hafði geó- metrísk abstraktlist náð að skapa sér traustan sess í íslenskri myndlist. Listamennirnir, sem höfðu verið í París um og eftir 1950, voru flest- ir komnir heim og höfðu myndað ákveðna fylk- ingu um hina nýju stefnu í íslensku myndlist- arlífi. Skýrust teikn um heimkomu þeirra voru sýningar sem komu í kjölfar síðustu Septem- bersýningarinnar veturinn 1952-53. Meðal þeirra, sem efndu til einkasýninga þann vetur, voru Gerður Helgadóttir, Eiríkur Smith, Karl Kvaran og Valtýi- Pétursson, en listmálararnir þrír höfðu allir átt geómetrísk verk á Septem- bersýningunni. Á næstu árum rak hver sýn- ingin aðra, jafnt einkasýningar sem samsýn- ingar, þar sem listamenn sýndu aðallega geó- metrísk abstraktverk, og má segja að svo hafi verið næstu fímm til sex árin.. Gerður Helga- dóttir var meðal þeirra listamanna, sem fyrst- • ir tileinkuðu sér geómetríska myndgerð, og gerðist hún brautryðjandi á því sviði í ís- lenskri höggmyndalist. Skiptu þar miklu kynni hennar af járnverkum Roberts Jacob- sens sem urðu til þess að hún sagði skilið við klassíska uppbyggingu þegar árið 1951 og fór þess í stað að vinna að gerð massalítilla og op- inna járngrindarverka. Gerður settist að í París og var mjög virk í myndlistarlífi þar. Jafnframt tók hún virkan þátt í að ryðja geó- metrískri abstraktlist braut hér á landi með þátttöku í sýningum og hafði áhrif á íslenska myndhöggvara, svo sem Ásmund Sveinsson, sem eftir það vann að jafnaði með konstrúktífa formgerð í verkum sínum. Haustið 1953 efndi Þorvaldur Skúlason til einkasýningar í Listamannaskálanum og sýndi þar eingöngu geómetrísk verk. Þorvaldur hafði farið sér hægar í átt að geómetrískri abstraksjón en félagar hans, sem voru mun yngri, og voru abstraktverk hans í fyrstu var- færnisleg og einkenndust af lágstemmdum jarðlitum. Kynni hans af verkum Magnellis og Vasarelys í París 1950-51 leiddu til flóknari formgerðar þar sem láréttum og lóðréttum litaflötum var teflt á móti oddhvössum form- um jafnframt því sem fletirnir mynduðu ákveðna lagskiptingu. Með því móti skapaðist margrætt myndrými þar sem fletirnir ýmist leituðu fram á við eða drógust saman fyrir augum áhorfandans. Var þetta samspil forms og litar, sem átti eftir að einkenna geómetrísk abstraktverk Þorvalds, í fullu samræmi við þær hugmyndir sem hann setti fram í ræðu og riti. Verk þeirra íslenski'a listmálara, sem að- hylltust geómetríska abstraksjón, báru flest áþekk heildai’einkenni, svo sem auðsæja bygg- ingu, vel aðgreind form og hreina liti og slétta yfirborðsáferð án pex-sónulegrar pensilskrift- ar, og var það í samræmi við hinar formalísku hugmyndir í franskri abstraktlist eftirstríðs- áranna. Innan þess ramma mátti hins vegar greina tvær meginformgerðir, annars vegar hið flókna myndrými sem telst til helstu ein- kenna geómetrískrar abstraktlistar eftir- stríðsáranna og hins vegar einfalda formgerð þar sem lögð er áhersla á flatarkennd og rekja má til konkretisma 4. áratugarins. Flókið myndrými einkenndi verk manna eins og Val- týs Péturssonar, Harðar Ágústssonar og Benedikts Gunnarssonar auk Þorvalds Skúla- sonar. Voru verk Valtýs gjarna byggð út frá ákveðinni formgerð með ýmsum tilbrigðum þar sem litafletir voru látnir skarast og við það kalla fram tilfinningu fyrir rými og hrynjandi. HJÖRLEIFUR Sigurðsson: Málverk,1955-56. HÖRÐUR Ágústsson: Stóraborg, 1954. KARL Kvaran: Án heitis. Formgerðin í verkum Harðar var mun flókn- ari og rýmið margræð- ara. Hann hafði snemma fengið áhuga á formfræði og á grundvelli formathug- ana leitaði hann ein- faldleika bæði í foi-mi og lit. Einkenndust mörg geómetrísk verk hans frá 1953-54 af sparneytni í lit, jafn- framt því sem dökkir litir og sterk ljósbrigði kölluðu fram víddir á fletinum. Verk þeirra Hjörleifs Sigurðsson- ar, Karls Kvarans, Ei- ríks Smiths og Nínu Tryggvadóttur voru hins vegar í ætt við konkretismann. Helstu einkenni þeirra voru skýr formgerð og heilir, blæbrigðalausir litafletir sem kölluðu fram sterka flatar- kennd. Af þeim voru verk Hjörleifs hrein- ræktuðust flatamál- verk þar sem lögð var áhersla á hinn tvívíða flöt og unnið með inn- byrðis virkni horn- réttra litaflata. Sama formalíska hugsun lá að baki konkretverkum Karls Kvarans. Þar vottaði hins vegar fyrir lagskiptingu án þess að dregið væri úr flatarkennd. Einkenndust verk hans á tímabili af þétti’iðnu neti hornréttra lína á einlitum fleti, en þá formgei-ð þróaði hann áfram í gvassmyndum sem einkenndust af sterkri grind í dökkum eða svörtum lit á móti geómetrískum formum í lágstemmdum litum. Það hefur þótt vera til marks um að geó- metríska abstraktlistin hafi fljótt náð fótfestu í íslenskri myndlist að árið 1953 voru haldnar tvær stórar samsýningar undir formei-kjum hennar í Listamannaskálanum í Reykjavík. Var önnur að vori, en hin að hausti. Á Vorsýn- ingunni áttu vei'k þau Ásmundur Sveinsson, Benedikt Gunnarsson, Gei'ður Helgadóttir, Guðmunda Andrésdóttir, Hjörleifur Sigurðs- son, Valtýr Pétursson og Þorvaldur Skúlason, en á Haustsýningunni þeir Eiríkur Smith, Hörður Ágústsson, Karl Kvaran og Svei'rir Haraldsson, auk Svavars Guðnasonar (1909- 1988) sem var géstur sýningarinnar. Af þess- um tveim sýningum var Haustsýningin hrein- ræktuðust, ef svo má að orði komast, en hún var fýrsta sýningin hér á landi þar sem ein- göngu voi-u sýnd geómetrísk abstraktvei'k. Þar flutti Hörður Ágústsson, aðalhvatamaður sýningarinnar, ræðu við opnunina eins og fyrr er getið og efnt var til kynningar og umræðna um myndlist. Svavar Guðnason, sem áður hafði verið boð- beri sjálfspx'ottinnar tjáningar, þróaði mynd- gerð sína í átt að flatamálverki laust eftir 1950. Hefur Halldór Laxness orðað það svo að hann hafi gegnt sinni geómetrísku herskyldu. Geómetrísk verk hans báru samt sem áður ög- uðum vinnubrögðum vitni og einkenndust af einfaldri foi-mgerð og næmu litaspili sem teflt var þar á móti. Svavar vann með litinn um- fram formið sem tjáningai’form og nýtti sér mismunandi efnisáferð sem tjáningai-miðil, enda þótt slíkt bi’yti í bága við það sem við- gekkst í geómetríska málverkinu. Geómetríska abstraktlistin var orðin ráð- andi stefna í íslenskri myndlist um miðjan 6. áratuginn og má fullyrða að fáar listastefnur hafi náð jafn stei'kum tökum á heilli kynslóð listamanna. Gengu flestir listamenn, sem komu fram á sjónarsviðið í lok 5. áratugarins og byrjun þess 6., til liðs við hana og unnu undir formei'kjum hennar í lengri eða skemmri tíma. Meðal þein'a yngstu sem til- einkuðu sér geómeti-ískt myndmál voru Bi-agi Ásgeirsson og Hafsteinn Austmann sem komu fram undir lok þess skeiðs sem geómetrían var ráðandi stefna. Líklegt má telja að ein ástæða hins mikla fylgis hennar hafi verið sú að geómetrískt myndmál hafi virst alþjóðlegt og fi'jálst í senn, jafnfi-amt því sem menn töldu sig geta tengt það í'ökhugsun og uppbyggingu sem var í samræmi við nútímalega hugsun að margi’a mati. Þar að auki mun orði'æðan sem um hana skapaðist, þar sem formalískar hug- myndir um hið eiginlega gildi listavei'ka voru reifaðar, hafa haft hvetjandi áhrif á listamenn. Geómetríska absti’aktlistin höfðaði hins vegar til lítils hóps í samfélaginu og braut í bága við hugmyndir flestra annarra um hvað list væri. Listamennirnir seldu lítið og sumir ekkert, ef það er mælikvarði á hvaða augum menn litu verk þeirra. Samstaða þeirra var hins vegar mikil sem gat leitt til þess að margir þeirx-a gei'ðust dómharðir í garð þeiri’a sem aðhyllt- ust aðrar stefnur í myndlist. Að mati Valtýs Péturssonar var sú harka nauðsynleg til þess að festa módernismann í sessi hér á landi. í því sambandi er vert að minna á viðtal sem Thor Vilhjálmsson íithöfundur hafði við Nínu Tryggvadóttur árið 1955. Þar gagnrýndi hún það forræði geómeti’íunnar hér á landi og benti á að til væi'i fjöldi annarra stefna í París sem vert væri að gefa gaum, svo sem „org- anísk“ absti'aktlist. Átti hún þar við ljóðræna abstraktlist sem hún var sjálf farin að hallast að. í viðtalinu við Nínu kemur fram að ekkert í'úm hafi verið í íslensku listalífi fyrir nema eina listastefnu sem allii' fylgi. Ári síðar sendi Hörður Ágústsson Bii-tingi bréf frá París þar sem hann sagði frá því sem þar bar hæst í heimi lista og minntist á hina ljóðrænu abstra- kjón sem andstæðu við þá geómetrísku. Af grein hans má þó finna að hann hefur haft efa- semdir um hina nýju stefnu. Hér á landi sem annai's staðar vonx fylgismenn geómetrísku absti'aksjónai'innar fullir efasemda um hina ljóði'ænu abstraksjón og enn fi'ekar tassis- mann. Kom sú afstaða mjög vel fram í viðtali sem Bjöx-n Th. Björnsson hafði við Karl Kvar- an árið 1958 og birtist í Birtingi. Þar sagði Karl að myndlistin yrði að skapast af tilfinn- ingunni sem málarinn hefði fyrir hlutunum og af dómgreind hans, en ekki tilviljun einni sam- an. Átti hann þar við tassismann sem þá var farinn að gera vart við sig í íslenskri myndlist, en þetta sama ár hélt Kristján Davíðsson sýn- ingu á abstrakt-expressjónískum verkum í Bogasal Þjóðminjasafnsins sem talin er hafa markað upphaf endaloka geómetríska tíma- bilsins í íslenskri abstraktlist Höfundurinn er listfræðingur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 12. SEPEMBER 1998 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.