Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1998, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1998, Síða 11
ESALINGARNIR eftir Victor Hugo í leikgerð og leikstjórn Gunnars R. Hansen. Einar er lengst til hægri á myndinni í hlutverki Enjolvas. :RUMRAUN Einars sem leikstjóra var óperan Miðillinn eftir Gian-Carlo Menotti. Steindór Hjör- leifsson, Guðmunda Elíasdóttir og Þuríður Pálsdóttir í hlutverkum sínum. TEHÚS ágústmánans, sem Einar leikstýrði í Þjóðleikhúsinu 1956, varð vinsæl sýning. Lárus Pálsson og Valur Gíslason í hlutverkum sínum. tundum en án allrar geðvonsku. Ég man eftir ví einu sinni fyrir sýningu á Einkalífi að hann ar að tjaldabaki og hamaðist mikið, hljóp á taðnum o.þ.h. Aðspurður sagðist hann vera að ita sig upp. „Byggja, byggja, bang,“ sagði ann og hamaðist áfram.“ Þessi setning varð eyg í leikhúsinu og var kennd við hann löng- m síðar og höfð til marks um ákafa hans við úkstjórn gamanleikja. Tvö frumsamin leikrif Eftir Einar liggja tvö leikrit sem hann samdi í yrjun sjöunda áratugarins. Hið fyrra, einþátt- ngurinn Trillan, hlaut fyrstu verðlaun í leikrita- amkeppni sem Menningarsjóður efndi til 1961 n hefur aldrei verið sviðsett. Þremur árum síð- r flutti Leikfélag Reykjavíkur leikþátt hans Irunnir kolskógar á listahátíð 1964 sem Banda- ig íslenskra listamanna efndi tO. Þetta leikrit ar svo tekið upp og flutt í Ríkisútvarpinu 1978. „Einar átti óskaplega auðvelt með að skrifa og g var oft að hvetja hann til að skrifa meira af íikritum. En hann sagðist ekki hafa áhuga á því g vildi ekki eyða dýrmætum tíma sínum í það,“ egir Þuriður Pálsdóttir. Einnig þýddi Éinar okkuð af leikritum, m.a. gamanleikina Dorothy eignast son (LR 1951) og Inn og út um gluggann (LR 1955) og einþáttunginn Hæ, þarna úti (LR 1957) eftir William Saroyan. Stuttur leikferill Ferill Einars sem leikara varð ekki langur, því hann lék sitt síðasta hlutverk 1953 og voru þá einungis fimm ár liðin frá því hann lauk námi. Stærsta hlutverkið, Elyot Chase í Einkalífi Noels Coward, lék hann í Þjóðleikhúsinu vorið 1953 í leikstjórn Gunnars R. Hansen. Hlutverk Einars hjá Leikfélaginu urðu sjö talsins og virð- ist sem hann hafí lagt leikinn á hilluna um svipað leyti og hann fór á verulegt skrið sem leikstjóri. Sitt fyrsta hlutverk hjá LR lék hann 1949, Mosco í Volpone og síðan Fortinbras í Hamlet. Næsta ár lék hann einnig þrjú hlutverk, í Marm- ara Guðmundar Kambans, í Önnu Pétursdóttur og í gamanleiknum Dorothy eignast son. Næst lék hann leikárið 1952-53 í eigin uppfærslu á Góðir eiginmenn sofa heima og sitt síðasta hlut- verk hjá LR lék hann sama ár í rómaðri upp- færslu Gunnars R. Hansen á Vesalingunum eftir Victor Hugo. Nokkru fyrr hafði hann leikið hlut- verk í Konu ofaukið í Þjóðleikhúsinu, auk Elyots í Einkalífí sem áður var nefnt. ERLINGUR Gíslason og Róbert Arnfinnsson í hlutverkum bræðranna Edmunds og Jamie Tyrone í Húmar hægt að kveldi eftir Eugene O’Neill, sem Einar leikstýrði í Þjóðleikhúsinu 1959. Sem áður sagði leikstýrði Einar eingöngu gamanleikjum hjá Leikfélaginu ef undan er skil- in óperan Miðillinn. Leikfélagið var á þessum ár- um sem og löngum síðai’ háð tekjum af aðgöngu- miðasölu og því vai’ stöðugt verið að reyna að finna gamanleiki sem líklegh’ þættu til vinsælda. Einar þótti sérlega laginn við sviðsetningu þeirra. „Hann er líklega einn besti leikstjóri farsa sem við höfum eignast, en farsaleikstjórn er gríðai-legur vandi og fáum gefínn,“ segir Sveinn Einarsson. Einar virðist sjálfur ekki hafa verið alls kostar sáttm- við sinn hlut og sótti fast að fá annars konar verkefni til leikstjómar, dramatísk verk sem reyndu meira á listræna hæfíleika hans. Grípum niður í Aidarsögu Leik- félags Reykjavíkur þai’ sem segir frá samskipt- um Einars við stjórn Leikfélagsins og hverjar málalyktir urðu. Bitastseðari leikrit „Þrátt fyrir góð tök á hlátursleikjum hafði Einar Pálson ekki ótakmarkaðan áhuga á þeim, hugurinn stefndi hærra. Hann vildi setja metn- aðarfyllri sýningar á svið enda sýnt hvers hann var megnugur með Miðlinum og í framhaldinu átt von á því að fá fleiri viðamikil og krefjandi verkefni hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Þar kom að hann setti hnefann í borðið og ritaði stjórninni bréf síðla árs 1954, sagðist „á undanfornum ár- um hafa afsalað sér oft á tíðum uppsetn(ingum) á viðamiklum verkefnum til Gfunnars R.) Han- sen og sjálfur tekið önnur, síður vænleg til þroska eður álitsauka.“ Nú vildi hann vita hver staða sín hjá félaginu væri. Miklar bollalegging- ar urðu um málið í stjórn og næstu vikur var reynt að fínna á því lausn, stundum urðu um- ræður heitar. Niðurstaðan varð uppfærsla á tveimur gamanleikjum sem hvorugur gekk vel (Inn og út um gluggann og Kvennamál Kölska). Haustið 1955 settist Einar síðan á rökstóla með stjórn Leikfélagsins til að ræða af alvöru fram- tíðarstörf sín. Þar óskaði hann eftir því að fá fastan samning um það hvað hann ætti að gera hjá félaginu á því leikári sem var nýhafíð. Þetta gat stjórnin ekki samþykkt en bauð honum enn á ný gamanleik sem ágóðavon væri í þar sem fjárhagsástand félagsins væri bágborið. Hins vegar mætti hann búast við að fá annað leikrit síðar á vetrinum. Einar sætti sig illa við þessa tillögu, „talaði um að Gunnari (R) Hansen væru falin öll veigameiri verkefni hjá L(eikfélagi) R(eykjavíkur) en hann fengi ekkert nema far- sauppsctningar. “ Hann vildi a.m.k. eitt „gott verkefni" á leikárinu. Áfram var haldið samningaumleitunum og á miðju leikárinu bauð stjómin Einari að stjórna gamanleik sem hann afþakkaði. Einar rak eigin málaskóla og kvaðst tapa svo miklu fjárhagslega á því að láta af störfum þar að hann gæti ekki fórnað því nema fyrir veigamikið verkefni. Auk þess væru sér boðin annars staðar þau verkefni og kjör sem freistuðu meir. Stjórn félagsins kvaðst ekki treysta sér til að setja upp leikrit að svo stöddu nema sem fjárvon væri í. Samskipt- um Einars Pálssonar leikstjóra og stjórnar Leikfélagsins var þó ekki alveg lokið því hann bauðst til þess snemma árs 1956 að setja á svið fyrir félagið leikritið Regn eftir sögu Somerseth Maugham en stjórnin tók ekki því tilboði. Þar með hætti Einar Pálsson leikstjórn fyrir Leikfé- lag Reykjavíkur, listrænum metnaði hans var ekki fullnægt til lengdar með gamanleikjum og fórsum.“ (LR - Aldarsaga 243-44.) Þjóðleikhús og útvarp Ekki eru allir tilbúnir að fallast á þá skýringu sem hér er sett fram um brotthvarf Einars frá Leikfélaginu. „Ég heyrði aldrei talað um að ágreiningur hans við stjórn Leikfélagsins hafi verið mjög djúpstæður,“ segir Sveinn Einars- son. Þuríður systir Einars telur einnig að ágreiningur Einars og stjórnar Leikfélagsins hafi ekki ráðið úrslitum um hverja stefnu hann tók næstu árin. Öllu heldur má segja að sam- stai-f Einars og Leikfélagsins hafi smám saman mnnið út í sandinn á þessum árum. Engum dyr- um hafi verið lokað, heldur hafi með tímanum komið í Ijós að ekki yrði úr frekara samstarfi. „Hann vann í Þjóðleikhúsinu og fyrir útvarpið í mörg ár eftir þetta," segir Þuríður. Afskiptum Einars af leiklist var sumsé hvergi nærri lokið þó hann ætti ekki eftir að starfa frekar með Leikfélag Reykjavíkur. Næstu þrjú árin starfaði hann að leikstjórn við Þjóðleikhúsið og setti þar upp þrjár sýningar. Tehús ágústmánans (1956) sem varð mjög vin- sæl sýning. Haust eftir Kristján Albertsson (1958) og Húmar hægt að kveldi eftir Eugene O’Neill (1959). Einar hafði einnig unnið talsvert sem leikstjóri útvarpsleikrita og hélt því áfram til ársins 1963. Óhætt er að álykta að listrænum metnaði Einars til leikstjórnar dramatískra verka hafi verið fullnægt með þeim verkefnum sem hann tók að sér fyrir Þjóðleikhúsið og Rík- isútvarpið. Því verður að leita annarra skýringa á því hvers vegna hugur hans snérist smám saman í aðra átt. Um ástæður þess að Einar hvarf að lokum alveg frá leiklistinni segir Þuríður Pálsdóttir margt hafa komið til. „Ég held að hann hafi aldrei kunnað almennilega við sig í því andrúmslofti sem stundum þrífst í leik- húsinu. “ Steindór Hjörleifsson tekur undir þetta og bætir við: „Ég hafði alltaf á tilfinning- unni að leiklistin ætti ekki hug Einars allan. Það kom mér því ekki beinlínis á óvart að Einar skyldi hverfa af vettvangi leiklistarinnar og snúa sér að öðru.“ Þetta skýrist enn betur þegai’ haft er í huga að töluvert löngu áður en Einar hætti beinum af- skiptum af leiklistinni hafði hann stofnað Mála- skólann Mími (1953) og i’ak hann óslitið til 1982. Einar sökkti sér einnig niður í fræðistörf og í meira en 30 ár fékkst hann við rannsóknir og rit- störf með aðaláherslu á fornfræði, miðaldafræði og táknmál goðsagna. Hélt hann íyi’irlestra um þessi mál bæði heima og erlendis og ritaði fjölda bóka bæði á íslensku og ensku, m.a. ritsafnið Rætur íslenskrar menningar , sem út kom á ár- unum 1969-81 í ellefu bindum. Árið 1995 var Einar sæmdur fálkaorðunni fyrir fræðistörf. Einar Pálsson lést hinn 30. október 1996 tæp- lega sjötíu og eins árs að aldri. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 17. OKTÓBER 1998 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.