Lesbók Morgunblaðsins - 14.11.1998, Qupperneq 20
FIMM EINKASÝNINGAR í NÝLISTASAFNINU
Fimm listamenn opna einkasýningar í Nýlistasafninu við
Vatnsstíg í dag kl. 16. Þóroddur Bjarnason sýnir í For-
sal, Lilja Björk Egilsdóttir í Gryfju, Aðalsteinn Stefónsson
í Bjarta sal, Pétur Guðmundsson í Svarta sal og Hjörtur
Hjartarson í Súm-sal. Sýningarnar eru opnar kl. 14-18
alla daga nema mónudaga og þeim lýkur 29. þ.m.
Morgunblaðið/Þorkell
LILJA Björk Egilsdóttir sýnir í Gryfju Nýiistasafnsins.
VATNSKEPPIR OG SNIFSI
SÝNING Lilju Bjarkar Egilsdóttur í Gryfju
er sú þriðja af fjórum í sýningarröð sem ber
yfirskriftina „The reaiity of time and place is
relative - So enjoy the moment".
„Flest mín verk eru búin til fyrir ákveðið
■ * rými en ég er samt að vinna með sömu verkin
aftur og aftur. Þau bæta við sig og em alltaf
að fæða af sér önnur, eldast og þroskast,
kannski vegna þess að mín heimspeki er
þannig að það er ekkert upphaf og enginn
endir. Það spilar inn í að ég vinn með efni úr
mínu nánasta umhverfi, blanda inn í mína
vinnu daglegu lífi - en ég er samt ekki með
neinn boðskap um samfélagið,“ segir Lilja
Björk. Hún segir ýmsa hafa lesið út úr verk-
um hennar pólitíska ádeilu á neysluþjóðfélag-
ið og mengunina, sem hún segir þó sjálf alls
ekki vera tilfellið. „Nema við erum auðvitað
hluti af þessum veruleika," segir hún.
Meðal verka á sýningunni nú eru vatns-
keppir unnir úr plastpokum, vatni og litarefn-
um, verk á vegg út latex og ýmsum snifsum
sem hún hefur safnað saman og verk úr app-
elsínuberki. „Yfirleitt_ blanda ég saman
nokkrum elementum. Ég mála en ég er ekki
málari, ég geri skúlptúra en er ekki skúlpt-
úristi," segir hún.
Þetta er sjötta einkasýning Lilju Bjarkar,
sú þriðja hér á landi, en hún hefur einnig tek-
ið þátt í nokkrum samsýningum hér jafnt sem
erlendis. Sýningin nú er sú þriðja af fjórum í
röð sem ber yfirskriftina „The reality of time
and place is relative - So enjoy the moment“.
Sú fyrsta var í Gallery Butenom í Haag
haustið 1997, önnur í Kleine Zaal de Vishal í
Haarlem fyrr á þessu hausti og sú fjórða
verður í Rumte Voor Beeldende Kunst, Grote
Markt í Haarlem í febrúar 1999. Lilja Björk
lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1991 og var við framhaldsnám I Frakk-
landi 1995-1996. Hún býr og starfar í
Hollandi.
Morgunblaðið/Þorkell
HJÖRTUFt Hjartarson og Harpa, dóttir hans.
MYNDLIST Á MÖRKUNUM
LJÓSMYNDASÝNING Hjartar Hjartarson-
ar í Súm-sal ber yfirskriftina „Dagskrá -
kyi'ralífsmyndir úr sjónvarpi". Hráefni mynd-
anna er að finna í dagskrá sjónvarpsins eina
kvöldstund og nú hafa myndirnar - úr íþrótt-
um, fréttum og sápuóperum - verið endur-
matreiddar, færðar yfir á striga og strekktar
á blindramma.
„Þetta er eitt kvöld, frá því ég kveikti á
sjónvarpinu þar til ég var búinn að fá dauðleið
á því og slökkti. Svo var ég líka búinn með
filmuna," segir Hjörtur. Hann kveðst þó ekki
hafa tekið myndimar hráar af skjánum, held-
ur reynt að kafa dýpra í myndræna verkun
þeirra með fegurðina að leiðarljósi, jafnframt
því að færa hversdagsleikann sem í henni
felst í klassískan búning. „Ég hef gaman af að
vinna beint með eitthvað sem er í daglegri
notkun og hefur raunverulega engan tilgang
annan en að þjóna deginum; það kemur og
fer. Mér hefur alltaf fundist gaman að vinna á
mörkum myndlistar og daglegs lífs, án þess
að segja neitt meira um það,“ segir hann og
bætir við, svona eins og til að koma í veg fyrir
misskilning, „ég ætla ekki að bjarga heimin-
um með þessu“.
Sýningin í Nýlistasafninu er önnur einka-
sýning Hjartar, en hann sýndi teikningar í
Bílum og list fyrr í haust. Hann hefur auk
þess tekið þátt í nokkrum samsýningum.
Hjörtur lauk námi frá Myndlista- og handíða-
skóla íslands árið 1996 og lagði stund á ljós-
myndun, teikningu og myndbandslist í há-
skólanum í Granada á Spáni 1996-1997.
TENGSL PÉTURS
PÉTUR Guðmundsson frá ísafirði er gestur
safnsins í Svarta sal, þar sem hann sýnir
verkið Tengsl. Það eru 12 myndir sem hann
hefur gert úr texta, rammað inn og hengt upp
á veggi og lýsa sýningaröð sem hann hefur
staðið fyrir frá því um síðustu áramót. Þar er
einnig stór mappa með ýmsum gögnum, sem
listamaðurinn kallar miðlægan gagnagrunn
en ófullkominn þó.
Allt þetta ár hefur Pétur sent suður á
Nýlistasafn mánaðarleg skilaboð um hvað
hann sýni í það og það skiptið. Sem dæmi má
nefna marssýninguna, en viðfang hennar var
„þeir fuglar og fiskar, sem fólk kann að koma
auga á hér í Skutulsfirði á sýningartímanum,“
eins og hann orðaði það í bréfi til Nýlista-
safnsins. Hann hefur einnig sýnt fjögur fjöll,
sem hann sér öll af tröppunum heima hjá sér,
en það eru fjöllin Ernir, Kubbi, Eyrarfjall og
Snæfjallaströnd. Eins hefur hann beint sjón-
um sínum að sýningarstöðum eins og Edin-
borgarhúsinu, Slunkaríki og Kjarvalsstöðum.
Morgunblaðið/Þorkell
ÞÓRODDUR Bjarnason stendur fyrir Þingi fljótandi umræðu í Nýlistasafninu.
- UMRÆÐAN
FLÝTUR OG
SKÝTUR
RÓTUM
ÞÓRODDUR Bjarnason er upptekinn af
umræðunni. Ekki bara umræðu um menn-
ingu og listir, heldur umræðu almennt. „Þing
* fljótandi umræðu“ er yfirskrift sýningar
hans í Forsal Nýlistasafnsins. Þar fjallar
hann um umræðu almennt og hvernig hún
verður til í þjóðfélaginu, í misstórum hópum
manna, og fylgir þeim síðan þangað sem þeir
fara, svo umræðan flýtur út og skýtur rótum
á nýjum stöðum.
„Þessi umræða sem ég er einkum að velta
fyrir mér og öll mín verk snúast um er þegar
menn detta niður á persónulegan tón í um-
ræðunni og út úr þessu svokallaða dægur-
þrasi. En umfram allt snýst þetta um fegurð-
ina og fegurð andartaksins,1' segir Þóroddur.
Meðal verka á sýningunni verða frásagnir
af umræðu, myndrænt yfirlit yfir dreifingu
umræðunnar og dæmi um hvar umræða
hefur birst á undanförnum vikum og mán-
uðum. Á opnunardeginum munu þingmenn
fljótandi umræðu standa fyrir umræðu í
safninu og í framhaldinu lýsa þeir sig reiðu-
búna til að mæta á hvers kyns mannamót, í
afmæli, giftingar, fermingar, átthagasam-
komur og aðrar samkomur. Þar geta þeir
annars vegar blandað sér í umræðu, verið
kveikjan að nýjum umræðum eða hlustað og
svarað. Að sögn Þórodds eru þeir einnig
reiðubúnir að kenna og halda fyrirlestra,
allt til þess að umræðan fái flotið áfram.
Þingmenn fljótandi umræðu, sem nú eru
opinberlega þrír, eru auk listamannsins
sjálfs þeir Gunnar Hersveinn heimspeking-
ur og Þröstur Helgason bókmenntafræðing-
ur.
Þóroddur lauk námi frá Myndlista- og
handíðaskóla Islands 1996 og stundaði fram-
haldsnám í Center for Contemporary Art í
Kitakyushu í Japan 1997-1998. Þetta er fyrsta
einkasýning Þórodds eftir að námi lauk en
hann hefur tekið þátt í nokkrum samsýning-
um hér á landi og erlendis. Hann hefur tekið
virkan þátt í menningarumræðunni, einkum
með greina- og pistlaskrifum í Morgunblaðið.
DÝRMÆTIR
VÖKVAR
MINIR dýrmætu vökvar er yfirskrift sýningar
Aðalsteins Stefánssonai- í Bjarta sal og undir-
titillinn er Blóðið - Tárin - Munnvatnið -
Þvagið - Sæðið - Andinn - Tilfinningarnar -
Afneitunin - Girndin - Lífsneistinn. Með verk-
inu segist listamaðurinn vera að velta fyrir sér
spurningum um líkamsvökvana og tengslum
þeirra við hin ýmsu hugðarefni okkar.
„Þetta er Ijósmyndaverk unnið á undanföm-
um tveimur mánuðum í Kaupmannahöfn og
Gautaborg. Fyrir mér er þetta fyrst og fremst
rannsókn á sjálfum mér, þar sem efniviðurinn
er fimm vökvar sem ég fæ úr líkama mínum.
Um leið velti ég fýrir mér hugsunum okkar um
þessi sömu efni og hvernig við setjum þau í
samband við margskonar merkingarfræðileg
eða trúarleg hugtök eins og Andann - Tilfinn-
ingamar - Girndina - Afneitunina - Lífsneistr
ann.
Vökvana hef ég fengið úr líkamanum með
mismunandi aðferðum og síðan sett undir smá-
sjána, stækkunin á því stigi er frá xlO upp í x40,
þá hef ég tekið ljósmyndir sem ég stækka svo
enn meira og er stækkunin þess vegna á endan-
um orðin u.þ.b. xl600 til xl900. Ég hef einnig
skoðað faglegar útlistanir á efnunum frá læknis-
íræðilegu sjónarmiði, um innihald þeirra, sam-
setningu og hlutverk. Á sýningunni er að finna
útdrátt úr þessari rannsókn," segir hann.
Aðalsteinn er búsettur í Kaupmannahöfn,
þar sem hann stundar nám við Danmarks
Designskole, en hann lauk námi frá Myndlista-
og handíðaskóla íslands árið 1996.
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. NÓVEMBER 1998