Lesbók Morgunblaðsins - 27.02.1999, Qupperneq 2
GARÐAR Cortes stjórnar kóræfingu fyrir tónleikana í Laugardalshöll.
Morgunblaðið/Golli
SINFONIAN OG GESTIR FLYTJA TURANDOT I LAUGARDALSHOLL
Viðamesta verkefnið til þessa
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands ásamt
einsöngvurum og kórum flytur óperuna
Turandot eftir Giacomo Puccini í Laugardals-
höll laugardaginn 6. mars kl. 16. Stjórnandi
verður Rico Saccani og kórstjóri Garðar
Cortes.
Að sögn Helgu Hauksdóttur tónleika-
stjóra Sinfóníuhljómsveitar íslands er þessi
uppfærsla á Turandot viðamesta verkefni
sem hljómsveitin hefur tekist á hendur til
TÓNLEIKAR Kammermúsíkklúbbsins verða í
Bústaðakirkju á sunnudag kl. 20.30 og eru þeir
fímmtu í röð tónleika á þessum vetri sem
klúbburinn gengst fyrir.
Að þessu sinni verða fluttir strengjakvar-
tettar eftir Edvard Grieg og Ludwig van Beet-
hoven. Flytjendur eru þau Auður Hafsteins-
dóttir, 1. fiðla, Greta Guðnadóttir, 2. fíðla, Guð-
mundur Kristmundsson, lágfíðla, og Bryndís
Halla Gylfadóttir, knéfíðla.
A fyrri hluta tónleikanna verður fluttur
strengjakvartett í g-moll op. 27 eftir Edvard
Grieg frá árinu 1878. Eftir hlé verður fluttur
strengjakvartett í a-moll, op. 132 eftir Ludwig
van Beethoven sem saminn var árið 1825.
I efnisskrá segir um tónskáldin: „Grieg
samdi sinfóníu í c-moll, sem var frumflutt 1864.
En þessa sinfóníu dró hann til baka og lagði
bann við að hún yrði flutt. Það vakti furðu, en
ástæðan er talin vera, að eftir frumflutninginn
heyrði hann fyrstu sinfóníu vinar síns, Johans
Svendsens, og fannst hún miklu betri en sín.
Bannið var ekki rofið fyrr en 1981 í Bergen.
Hljómsveitarstjóri var þá Karsten Andersen.
Ekki samdi Grieg aftur sinfóníu og ekki önn-
ur verk í stóru eða ströngu formi en píanó-
konsertinn alkunna, op. 16 og svo strengja-
kvartettinn op. 27, sem nú er fluttur í fyrsta
sinn í Kammermúsíkklúbbnum. Grieg samdi
reyndar vel fyrir hljómsveit, en líkt og
Schumann lét honum best að semja ljóðræn pí-
anólög og ijóðasöngva. Hann var ágætur pí-
anóleikari og tilfinningaríkur stjórnandi.
Árið 1824 veiktist Beethoven illa og þótti
honum horfa þunglega um líf sitt. En hann
náði sæmilegri heilsu á ný. Þá tók hann að
semja strengjakvartetta. Það hafði hann ekki
gert um árabil.
Kvartettamir eru op. 127, 130, 131, 132, 135
og „Stóra fúgan“ op. 133. Þeir eru taldir til
stórvirkja í tónlistinni. Þrír þeirra eru þó
þessa og hefur ekkert verið til sparað til að
gera hana sem glæsilegasta. Þátttakendur
eru á þriðja hundrað talsins, níu einsöngvar-
ar, 115 kórsöngvarar og 80 manna hljóm-
sveit.
Til að bæta aðstöðu tónleikagesta í Laugar-
dalshöll verða gerðar breytingar á áhorfenda-
gólfi, sætaraðir verða hækkaðar upp. Þá segir
Helga að nýjustu tækni verði beitt til að gera
hljómgæði eins mikil og kostur er.
stærstir í sniðum, op. 130,131 og 132. Miðkafl-
inn, sem er hægur, ber yfirskriftina: „Heilagur
þakkaróður til Guðdómsins frá manni, sem hef-
ur fengið bata - í lýdiskri tóntegund“. Og yíír
fjórða kafla stendur: „Mér vex þróttur á ný“.
Síðasti kaflinn er efni, sem Beethoven ætlaði
að nota í lokaþátt níundu sinfóníunnar, áður en
han ákvað að Ijúka henni með kórsöng.
Lýdiska tóntegund má heyra, ef slegnar eru
hvítu nóturnar á píanó og byrjað á F. Lýdia
var í fomöld nafn á landi vestast í Litlu-Asíu.
Þessir kvartettar urðu síðustu stórvirki
Beethovens og tónlistar-testament hans. Þar
losar hann um hefðbundin form og beitir
Gestir Sinfóníuhljómsveitarinnar á tónleik-
unum verða einsöngvararnir Veronika
Fekete, Daniel Munoz, Lucia Mazzaria,
Sergio Fontana, Þorgeir Andrésson, Bergþór
Pálsson, Istvan Rozsos, Ferencs Gerdesits og
Gábor Nemeth, auk Kórs Islensku óperunn-
ar, Unglingadeildar Söngskólans í Reykjavík
og Bamakórs Islensku óperunnar. Sviðsetn-
ingu annast Randver Þorláksson og
ljósameistari er Jóhann Bjarni Pálmason.
óvenjulegum samhljómum, sem sumir sam-
tímamennn töldu vera afleiðingu af heymar-
leysi hans, en nútímamenn láta sér vel líka. Og
Beethoven opnar hug sinn meira en í flestum
öðrum verkum sínum. Kvartettarnir eru ekki
auðveldir við fyrstu áheyrn en endast þeim
mun betur. Batinn, sem Beethoven þakkaði
Guðdómnum svo vel fyrir, varð ekki langur.
Tveimur ámm síðar var hann allur.
Kvartettinn op. 132 hefur einu sinni áður
verið fluttur í Kammermúsfkklúbbnum. Það
gerði Arco-kvartettinn frá Köln í Þýskalandi
árið 1978.“
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitss. á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Gallerí Fold, Kinglunni Hrafnhildur Bern-
harðsdóttir. Til 6. mars.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg Ómar Stefáns-
son. Til 14. mars.
Gallerí Horn Alan James. Til 3. mars.
Gallcrí Stöðlakot Gunilla Möller. Til 7. mars.
Gerðarsafn Svala Þórisdóttir Salman. Til 7.
febr.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg Þctta vil ég
sjá: Kristján Davíðss., Magnús Kjartanss. og
Sigtryggur B. Baldvinss. Til 28. febr.
Hallgrímskirkja Kristján Daviðss. 15. apríl.
Hafnarborg Gun Johansson. Sverrissalur:
Sigurlaugur Elíasson. Til 1. mars.
Ingólfsstræti 8 Ivar Valgarðsson. Til 21.
mars
Kjarvalsstaðir Austursalur: Jóhannes S.
Kjarval. Til 24. maí. Vestursalur: Britt Smel-
vær. Til 7. mars. Miðrými: Einar Garibaldi
Einarsson. Til 14. mars.
Listasafn ASÍ Ásmundarsalur og svalir:
Brynhildur Þorgeirsd. Gryfja: Steinunn
Helgadóttir, myndverk og hljóðverk Sveins
Lúðvíks Björnssonar. Til 7. mars Arinstofa:
Ný aðfóng.
Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti
Opið laugardaga og sunnudag 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Lislasafn íslands Salur 1: Fjórir frumherjar;
Þórarinn B. Þorláksson, Ásgrímur Jónsson,
Jón Stefánsson og Jóhannes S. Kjarval. Til
11. apríl. Salur 3: Sigmar Polke. Til 28. mars.
Salur 4: Gunnlaugur Scheving, Jóhann
Briem, Jón Engilberts, Nína Tryggvadóttir,
Þorvaldur Skúlason og Snorri Arinbjarnar.
Til 18. apríl. Ljósmyndir Inez van
Lamsweerde. Til 14. mars.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Yfirlitssýn-
ing á verkum Siguijóns.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg 5 Sigurður
Magnússon. Til 6. mars.
Norræna húsið Aðalsalur: Líf og list H.C.
Andersen. Til 14. mars. Anddyri: Ljós-
myndasýning af rithöfundum eftir Ulla
Montan. Til 21. mars.
Nýlistasafnið Kristján Steingrímur, Helga
Þórsdóttir, Gunnar Straumland og Jón Sæ-
mundur Auðai-son. Súmsalur: Safnsýning. Til
28. feb.
Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning.
Þriðj., mið., fim. 14-16. Til 14. maí.
Ráðhús Reylg'avíkur Akríl- og vatnslita-
myndir þroskaheftra. Til 7. mars.
TONLIST
Laugardagur Kirkjuhvolur, Garðabæ: Pí-
anókvartettar. Guðný Guðmundsdóttir,
Gunnar Kvaran, Helga Þórarinsdóttir og
Gerrit Schuil. Kl. 17.
Ráðhús Reykjavíkur: Stórsveit Reykjavíkur.
Kl. 17.
Sunnudagur Neskirkja: Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna. Einleikarar Áshildur Haralds-
dóttir og Elísabet Waage. Kl. 17.
Fella- og Hólakirkja: Tríó Reykjavíkur og
Alina Dubik. Kl. 17.
BústaðakirRja: Kammertónleikar. Auður
Hafsteinsdóttir, Greta Guðnadóttir, Guð-
mundur Kristmundsson og Bryndís Halla
Gylfadóttir. Kl. 20.30.
Þriðjudagur Salurinn, Kópavogi: Þorsteinn
Gauti Sigurðsson píanóleikari. Kl. 20.30.
Fimmtudagur
Háskólabíó: Sinfóníuhljómsveit íslands. Ein-
leikari Edda Erlendsdóttir. Ki. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið Brúðuheimili, lau. 27. febr.
Tveir tvöfaldir, lau. 6. mars. Bróðir minn
ljónshjarta, sun. 28. febr. Abel Snorko býr
einn, lau. 27. febr., lau. 6. mars. Maður í mis-
litum sokkum, lau. 27., sun. 28. febr., fim. 4.,
fös. 5., lau. 6. mars.
Borgarlcikhúsið Pétur Pan, lau. 27., sun. 28.
febr., iau. 6.mars. Horft frá brúnni, fós. 5.
mars. Sex í sveit, sun. 28. febr, lau. 6. mars.
íslenski dansflokkurinn Diving, Flat Space
Moving og Kæra Lóló, lau. 27. febr.
íslenska óperan Ávaxtakarfan, sun. 28. febr.
Hellisbúinn, sun. 28. febr., fös. 5., lau. 6.
mars. Hinn fullkomni jafningi, mán. 1., lau. 6.
mars.
Iðnó Leitum að ungri stúlku, mið. 3., fim. 4.,
fós. 5. mars. Rommí, sun. 28. febr. Frú
Klein, lau. 6. mars.
Loftkastíilinn Mýs og menn, fim. 4. mars
Kaffileikhúsið Hótel Hekla, fim. 4. mars.
Skemmtihúsið, Laufásvegi 22 Bertold
Brecht, sun. 28. mars.
Hugleikur: Nóbelsdraumur, lau. 27., sun. 28.
febr., fös. 5., lau. 6. mars.
Tjarnarbíó Svartklædda konan, lau. 27., sun.
28. febr., lau. 6. mars.
Möguleikhúsið v. Hlemm Snuðra og Tuðra,
sun. 28. febr. Hafrún, lau. 27. febr.
Snúður og Snælda Maðkar í mysunni og
Ábrystir með kanel, lau. 27., sun. 28. febr.,
mið. 3. mars.
Bing Dao-Renniverkstæðið á Akureyri
Rommí, lau. 27. febr., fim 4., lau. 6. mars.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg Þumalína
eftir H.C. Andersen, sun. 28. febr.
KAMMERMÚSÍKKLÚBBURINN
TVEIR STRENGJAKVARTETTAR
í BÚSTAÐAKIRKJU
Morgunblaöið/Keli
Á ÆFINGU fyrir tónleika sunnudagsins: Bryndís Halia Gylfadóttir, Greta Guðnadóttir, Auður
Hafsteinsdóttir og Guðmundur Kristmundsson.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 27. FEBRÚAR 1999