Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1999, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1999, Blaðsíða 10
«*IU< / IBYRJUN apríl var Amsterdamborg ein- staklega aðlaðaðandi í'yrir ferðalang norð- an úr Reykjavík þar sem vorið var enn í viðjum vetrar. Hinn kunni sprengikraftur vorsins gerði að verkum að miðborg Am- sterdam er í mínum huga þróttmikil og spennandi. Magnólíublómin liðuðust um gráar greinar trjánna sem brátt yrðu iðja- grænar og allt var umlukið fyrirheitanna sindrandi tærleika, viðkvæmnislegum og skörpum í senn. Nú er mikilvægt að halda vök- unni, allt getur gerst. Miðborg Amsterdam er full af litlum torgum og þröngum götum með mjóum húsum, sem standa þétt hvert upp við annað. AIls staðar eru veitingastaðir, kaffihús og krár. Og búðir, litlar sérverslanir í löngum röðum og fyrir næsta hom. Verslun virðist lífs- list í Amsterdam, viljirðu ganga um og skoða amast enginn við því. Viljirðu ræða við búðar- fólkið um fallega hannaða muni, föt, matvöru er það auðsótt. Og aldrei hef ég rápað jafn mikið í búðir án þess að kaupa nokkurn skapaðan hlut. En margt var þarna fallegt, allt var fallegt. Engin yfirfull vöruhús, að minnsta kosti kaus ég að sjá þau ekki en beina fremur athygli minni að fallega innréttuðum, rótgrónum smáverslunum þar sem boðið er upp á frumlega hönnun af öll- um toga enda var það yfirlýstur tilgangur ferða- lags míns að skoða hönnun. Hönnun i Amsterdam Fyrir tíu árum heyrði ég sagt: Heimilin eru farin að líkjast verslunum æ meir, verslanimar verða hins vegar stöðugt heimilislegri. Þessi þróun er komin langt í Amsterdam, að minnsta kosti í verslunum, huggulegheit og verslun, feg- urð og notagildi. Kannski engin tilviljun að í borgarlistasafninu í Amsterdam, Stedelijk-safn- inu, skuli vera til eitt stærsta yfirlitssafn yfir norræna hönnun utan Norðurlandanna. Og kannski var það heldur engin tilviljun að sýning- in sem var opnuð í svokölluðum nýja væng safnsins nú á vordögum skyldi bera yfirskriftina Het Transparante Noorden - norræna gagnsæ- ið, norræni tærleikinn. Það var mikil örtröð við opnun sýningarinnar, þeirrar síðustu sem hald- in verður í nýja vængnum. Hér var þó ekki um neina útfór eða kveðjustund að ræða þrátt fyrir að glervængurinn sem nú er aðeins 25 ára verði innan skamms jafnaður við jörðu og ný viðbygg- ing reist. Nei, hér áttu sér stað endurfundir, Stedjelijk-safnið, nánar tiltekið listhönnunar- deild þess var að endurnýja kynni sín við list- hönnun Norðurlandanna sem safnið lagði fyrr- um svo ríka áherslu á. Allt frá árinu 1938 og fram á áttunda áratuginn voru sýningar á nor- rænni hönnun reglulegir listviðburðir í Amster- dam. Á sama tíma keypti Stedjelijk-safnið ekki færri en 400 ólíka hluti sem hönnuðir í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku voru höfundar að. Ein- hverra hluta vegna náði þessi athygli áhuga- manna um hönnun í Hollandi hvorki til Noregs né íslands. Forsvarsmenn safnsins halda því íram að á þessum tíma hafi lítið sem ekkert ver- ið að gerast í hönnun þessara landa. Ekki skal ég sverja hversu áhugaverð norsk hönnun var upp úr miðri öldinni en þykir líklegt að þeir hafi eins og íslendingar átt frumlega hönnun þótt kannski hafi hún ekki verið stór í sniðum fremur en hér. En þótt orðið hönnun væri á þessum tíma ekki orðið fleygt í íslenskri tungu þá fóru íslendingar til náms í þessu fagi bæði til Þýska- lands og Danmerkur þegar fyrir 1930. Má þar til að mynda nefna Jónas Sólmundsson hús- gagnahönnuð sem rak smíðastofuna Reyni til 1937 og hannaði einnig í samvinnu við fyrirtæk- ið Stálhúsgögn sem margir muna eftir. Fleiri húsgagnahönnuði mætti nefna, einnig silfur- smiði, en lítið sem ekkert hefur enþá verið rann- sakað á þessu sviði hér á landi. Vissulega var framleiðsla hér aldrei stórvirk og tiltölulega ein- angruð en líklegasta ástæðan fyrir því að for- svarsmenn hönnunardeildar Stedelijksafnsins komu ekki auga á neina hönnun á íslandi á þessum tíma er sú að engin áhersla var lögð á að kynna slíkt. Nú hefur íslensk hönnun hins vegar eignast framvarðarsveit. Á síðustu tuttugu árum hefur fjöldi fslendinga sótt hönnunarmenntun til út- landa, séð hvað kollegar þeirra þar eru að gera og að hönnun á framtíð fyrir sér ef rétt er á mál- um haldið. Galopnir markaðir örva og hvetja hönnuði til dáða þótt margir heltist sannanlega úr lestinni í sjóðbullandi samkeppninni. Fjöl- margir íslenskir hönnuðir starfa fyrst og fremst fyrir erlend framleiðslufyrirtæki vegna skorts á tækifærum hér heima. Eigi að síður er íslensk hönnun komin inn á kortið þótt spyrja megi hversu sterkum böndum hún tengist hinni svokölluðu norrænu hönnunarhefð. Á sýning- £i.í í iiiimu IíÉ )IUIU uuii4 •s UttJUÍ IríUijl ;Jfe! r uuílí: taa jjmil. ffiuwuu -SJHUUl :ifÍHUVLV Iffiiííípi 'Uuuu : .0 Qmu4| í; jí íurarifj l jultftttu S 3 jj umkÆ UUV- 11H 1 oinuuiJ tiuimiJj trtvti. ITitttt ÍUUUIIU. Ullli: titintiti ínimui-. iiimuim iummuh iíiffl Ljósmyndir/Helga P. Brynjólfsdóttir TVÖFALDUR textfll skorinn með leysigeisla eftir Margréti Adolfsdóttur. Amsterdam í baksýn og Faxastóll Sigurðar Gústafssonar í forgrunni. NORRÆNA HÖNNUNARSÝNINGIN HET TRANSPARANTE NOORDEN EFTIR JÓRUNNI SIGURÐARDÓTTUR Greinarhöfundurinn var viðstaddur opnun stórrar nor- rænnar hönnunarsýningar í Amsterdam. Stedjelijk-safnið, nánar tiltekið listhönnunardeild þess, var að endurnýja kynni sín við listhönnun Norðurlandanna sem safnið lagði fyrrum svo ríka áherslu á. I ræðu við opnunina var sagt að íslensk hönnun væri annars vegar geggjuð og hins vegar jarðbundin. Þar á milli væri ekki neitt. unni Het Transparante Noorden getur að líta fiskivog eftir Ingólf Guðmundsson sem Marel framleiðir og fiskikassa frá fyrirtækinu Sæplast á Dalvík, sjóhatt úr steinbítsroði eftir Erlu Þór- arinsdóttur, þrykktan textíl eftir Helgu Pálínu Brynjólfsdóttur og leysigeislaskorinn textíl eftir Margréti Adolfsdóttur sem starfar í Bretlandi. Hörpudisklampi Þorsteins Geirharðssonar á fæti sem er sjóbarið grjót er afar íslensk hönn- un, ef svo má að orði komast. Hver lampi er ein- stakur í samruna tækni og náttúrulegs hráefnis sem fullnægir sterkri þörf íslendinga, ekki bara neytendanna heldur og hönnuðanna, fyrir því sem er einstakt. Sá böggull fylgir þó skammrifi að einmitt hið einstaka hentar illa fjöldafram- leiðslu fyrir alþjóðlegan markað. Hreinsaðar og litaðar þvagblöðrur svína sem hver og ein hefur að geyma völubein er einfold og stflhrein hönn- un Valdísar Harrysdóttur á minjagrip, þjóðleg- ur, fágaður og flottur í senn. Af húsbúnaði vekja stólar Sigurðar Gústafssonar ekki síst athygli. Sigurður er arkitekt, menntaður í Noregi og viðurinn er hans efni. Hann kýs þó ekki að fylgja náttúrulegum lín- um hans, láta hann leiða sig eins og hin skandin- aviska hefð segir fyrir um. Nei, hann beygir hann og sveigir, saumar saman stóla eða býður upp í tangó. Það er kokhreysti í þessum stólum Sigurðar, sem báðir eru framleiddir af sænska fyrirtækinu Kállemo, en þeir búa líka yfir sann- færandi formrænum glæsileik. Hér er vissulega aðeins tekið til hluta þess sem íslenskir hönnuð- HORFT YFIR hluta af salnum á efri hæð safnsins - ungt og eldra í samspili. Islenki kiminn lengt í fjarska. RÝMIÍSLENSKU hönnunarinnar þótti ólánlegt. Spyrja mætti: Hver er að flytja hvert eða er þetta kannski hönnunarsýning? Mooi niáar Goed Beceute Aanwinsteu Riissischc Boektypoorafie Georg Baselitz Roíhl* íu dio Niedcrlamlu Tbicrrf Renard / Hugo Ciaus KunstökaarsboOkMiií' pelim Egan ■ 1 Amsterdam Exposé ít í } Het Transparante Noorden 3$.fj ► 'jiyýOfj David Salle , . ► American Adventures Festivalceiitrum: Nieuwo Vlcugcl shíftina Views ENGINN þarf að velkjast í vafa um hvað er að gerast í Stedjelijk safninu í Amsterdam. GRÆNN skorinn textfll, hangandi í glugga. DÆMIGERT DANSKT: frumlegt, flott og fyndið hvort sem um er að ræða hljómflutningstæki eða eldhúsílát. ir sýna á Het Transparante Noorden. Og það er ljóst að breiddin er mikil enda sagði Reyer Kras, forstöðumaður listhönnunardeildar Stedelijk, í ræðu sinni við opnunina að íslensk hönnun væri annars vegar geggjuð og hins veg- ar jarðbundin. Þar á milli væri ekki neitt. Og vist er hafdýpi frá Markúsarnetinu til leir- flautna þeirra Eddu og Koggu. Reyndar verður að segjast eins og er að hluta af íslensku hönn- uninni var alls ekki nægjanlega vel fyrir komið. Fiskikassarnir stóðu hver ofan á öðrum uppi við vegg, glerskápur með smærri munum á aðra hönd og eldvarnardyr á hina þannig að það var engu líkara en gleymst hefði að fjarlægja um- EITT SINN frumiegt nú sígilt. Eggið og Svanurinn eftir Ame Jacobsen (D). STÁTNIR stólar Sigurðar Gústafssonar og Erlu Sólveigar Óskarsdóttur undir leysigeislaskornum textfl Margrétar Adolfsdóttur. GÆÐINGAR íslenskra húsgagnahönnuða. Fremstir Generalen, Faxi og Tangó Sigurðar Gústafs- sonar, þá Jaki Erlu Sólveigar Óskarsdóttur og Sóley eftir Valdimar Harðarson. búðirnar sem munirnir voru fluttir í á milli landa. Þetta var leiðinlega áberandi því sýning- in var í heild vel upp sett. En eins og kannski má ímynda sér er ekld auðvelt að raða glæsilega upp svo margbreytilegu safni muna eins og fjöldasýning í hönnun hlýtur að vera. Hönnun er alls staðar, alltaf Sýningunni Het Transparante Noorden var ekki einungis ætlað að sýna það sem er að ger- ast í norrænni hönnun í dag. Eldri munir úr eigu safnsins skyldu líka varpa Ijósi á samhengi sögunnar. Á neðri hæð nýja vængsins eru ein- göngu eldri munir sem sýna glöggt hversu lífseig góð hönnun er. Margt af því sem þarna ber fyrir augu er kunnuglegt, jafnvel úr ný- framleiðslu enn þann dag í dag. En það sem á sínum tíma var byltingarkennt og frumlegt er nú klassískt. Á eftirstríðsárunum litu íbúar hinnar vesturlensku Mið-Evrópu gjarnan til norðurs eftir innréttingum, húsbúnaði og annarri hönnun. Form þessarar framleiðslu og efniviður voru innblásin af náttúrunni, miðluðu þokka og öryggiskennd í senn sem íbúar stríðs- hrjáðrar Evrópu tóku fagnandi. Stedelijk-safnið leit á það sem sjálfsagða skyldu sína að koma sér upp dágóðu safni þess- ara gripa eins og áður var getið. Auðvitað end- urspeglar þessi söfnun ekki skandinavíska hönnun í heild sinni heldur sýnir fyrst og fremst það sem Hollendingum þótti fallegt og áhuga- vert. Eigi að síður er safnið mjög heildstætt, einkum með tilliti til höfuðkappa norrænnar hönnunar, í Finnlandi, Danmörku og Svíþjóð. Nú þegar þeir Stedelijk-menn beina á ný sjón- um til Norðurlandanna vilja þeir greinilega gera betur. Þegar ákvörðun var tekin um nýja, stóra sýningu á norrænni hönnun í Stedelijk- safninu fyrir tveimur árum var ljóst að sérstök áhersla yrði lögð á hönnun frá íslandi og í Nor- egi. Einnig mun hafa verið vilji fyrir hendi til að kaupa bæði íslenska og norska hönnun frá fyrri tíð. Safninu tókst að verða sér úti um fáeina muni frá Noregi en ekki frá íslandi af þeirri ein- fóldu ástæðu að ómögulegt reyndist er að koma höndum yfir þá litlu framleiðslu sem var hér fyrir þrjátíu árum. Hönnun fylgir okkur frá vöggu til grafar þótt við alla jafna tökum ekki sérstaklega eftir henni. En þegar við skoðun gamlar myndir af heimilum, horfum á gamlar bíómyndir, er það ekki síst hönnun fatnaðar og húsbúnaðar, munstrin í gólfteppum og gluggatjöldum sem skapa tíðarandann. Sum form eru fullkomnari en önnur, verða sígild og birtast aftur og aftur vegna þess að þar sameinast notagildi og fegurð með hvað fullkomnustum hætti. Ekkert er þó ei- líft og fólk gerir kröfu til breytinga. Eftirspurn- in eftir sífellt nýjum formum er þó ekki bara spuming um fagurfræði. Borgarsamfélög Vest- urlanda þar sem stöðugt fleiri ólíkir hópar búa þétt saman kalla fram þörf til að gera sérstöðu sínu sýnilega, að maður tilheyri þessum hópi en alls ekki hinum. Hönnun tækja er kannski ekki eins af þessum félagslegu rótum runnin heldur stöðugri sókn eftir því að gera tækin einfaldari þrátt fyrir flóknari verk, handhægari og í betra samræmi við allar aðstæður þar sem þau skulu brúkuð. Vog til að vega málma þarf að vera allt öðruvísi hönnuð en vog til að vega fisk eða ný- fæddan hvítvoðung þótt sá eiginleiki vogarinnar að sýna þyngd í ákveðnum einingum sé grund- vallaratriðið í öllum tilvikum. Tengingar i líma og rúmi Því verður seint neitað að norræn hönnun eða skandinavísk hefur ákveðinn heildarsvip sem um áratugaskeið hefur átt miklum vinsældum að fagna víða um heim. Og þessi andi svífur vissulega yfir vötnum þegar gengið er um nýja vænginn í Stedilijk-safninu þessar vikurnar. En eins og allar yfirlitssýningar segir þessi sýning ekki meiri sannleika en þann sem hún dylur eða eins og hinn aldurhnigni, virti, finnski hönnuður Antti Nurmesniemi hafði á orði: „Þetta er ein hlið á norrænni hönnun og alls ekki slæm en það eru líka önnur og villtari straumköst í hönnun- arflæðinu á Norðurlöndunum.“ Yfirleitt er erfitt að sjá í hendi sér frammi fyrir einum hlut hvort hönnun hans er bresk, frönsk, dönsk, finnsk eða ítölsk. En það er mun- ur á húsgönum Habitat og Ikea! Vigt frá Marel er ekki augljóslega íslensk hönnun ein og sér; enda hvaða máli skiptir það í raun og sann? I dag eru það fyrirtækin, vörumerki hönnunar- innar sem fyrst og fremst skapa henni sitt sér- staka yfirbragð. Þrátt fyrir það er það einmitt sérstaðan í hinum óvéfengjanlega heildarsvip sem gerir sýningar eins og Het Transparante Noorden áhugaverðar. En einnig tengslin sem verða sýnileg við hönnunarhefð hverrar þjóðar og eiga iðulega rætur 1 mjög hagnýtum þáttum. Þröng húsakynni í Finnlandi ólu af sér einfald- leika sem hefur þróast út í fágaðan mínímal- isma, hugvitsamleg en einföld tæki. Skortur á tækifærum til framleiðslu hér á landi, sam- keppnisleysið hefur gert íslenska hönnun flipp- aða sem stundum hittir beint í mark en geigar líka jafnoft. Fullkomið „hagnýti" og sterk tengsl við fortíðina og hið þjóðlega hafa verið áherslu- atriði Norðmannanna sem þreytast ekki á ^ GAGNSÆI TIL NORÐURS I AMSTERDAM 1 O LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 29. MAÍ 1999 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 29. MAÍ1999 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.