Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1999, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1999, Blaðsíða 16
ENDURREISNARMAÐUR MYRTU R EFTIR JÓNAS KNÚTSSON Æ, þessar síbrotaástríður mínar sem eiga sér cngan samastað. Úr ljóði eftir Pasolini. ANNAN nóvember árið 1975 fannst illa leikið lík skáldsins og leikstjórans Pier Paolo Pasolini á ber- angri í Ostia á Ítalíu. Klukkan hálftvö sama dag veitti ítalska lögregl- an gráum Alfa Romeobíl eftirfór. Bifreiðin hafði verið í eigu Pasolini. Ódæðismaðurinn keyrði á grindverk og lög- reglan hafði hendur í hári hans. Fómarlambið Pier Paolo Pasolini fæddist 5. mars árið 1922, sama ár og Mussolini komst til valda. Faðir hans var atvinnuher- maður og fasisti. Brátt kom á daginn að son- urinn var hinn mesti ættleri og lítt til her- mennsku fallinn. Bróður Pasolini Guido kippti hins vegar i kynið. Hann gekk til liðs við andspymuhreyfínguna í heimstyrjöldinni seinni og féll í skæmm við aðra andspymu- menn. Pasolini var harmi sleginn. Faðir þeirra gerðist hneigður til drykkju og Bakkus lagði þennan gamla stríðsmann að velli. Pasolini dvaldi í Friuli á stríðsáranum og varð vitni að baráttu leiguliða við auðuga landeigendur sem vora í raun lénsherrar og höfðu ráð undirsátanna í hendi sér. Örlögin hlífðu Pasolini við að verða ' menntaskólakennari. Listamaðurinn kenndi við menntaskóla en árið 1949 var honum gert að sök að hafa gert sér dælt við nemanda. Hann var sýknaður en rekinn úr starfi og gerður brottrækur úr kommúnistaflokknum ítalska. Fyrsta ljóðabókin eftir Pasolini Aska Gramsei (Le ceneri di Gramsci) kom út árið 1956 en Gramsci þessi lést í fangelsi á valda- áram fasista. Pasolini var persónulegt og einlægt skáld. Rithöfundurinn Alberto Moravia sagði hann merkasta skáld á Italíu á ofanverðri öldinni. Pasolini var alla sína tíð milli steins og sleggju. Fasistar litu á hann sem byltingarsinna og fúlh'físmann; samherj- um hans á vinstri vængnum fannst hann hins vegar of einþykkur og borgaralegur. Pasolini var hvassyrtur pistlahöfundur og hlífði eng- um þegar hann hélt reiðilestur yfir samborg- uram sínum. Það segir sig sjálft að maður sem rekinn er úr kommúnistaflokki hlýtur að vera með afbrigðum réttsýnn. Eins og lang- flestir sem gæddir era pólitískri sannfær- ingu var Pasolini þröngsýnn og leiðinlegur þegar hann skrifaði um stjómmál. Á glapstigum Pasolini kom askvaðandi inn á ritvöllinn og gat sér gott orð fyrir næmar lýsingar á götulífinu í Róm. Hann fékkst fyrst við kvik- myndir sem handritshöfundur og starfaði með Federico Fellini að Nóttum Cabiriu (Le notti de Cabiria). Fellini vann að mynd um portkonu í Róm. Brátt kom á daginn að handritið var of ungmennafélagslegt, brodd- inn vantaði. Meistarinn þurfti á að halda * heimildarmanni sem gat lýst skuggahliðum Rómar svo að trúlegt væri og fékk götustrák til liðs við sig. Sá var enginn annar en Pier Paolo Pasolini. Handritshöfundinn dreymdi um að setjast í leikstjórastólinn og gerði stutta kynningarmynd sem hann sýndi Fell- ini en leikstjórinn lét sér fátt um finnast. Fyrstu mynd sína, Attacone, gerði Pasohni árið 1961 og sótti söguefnið í eigin smiðju. Segir þar frá undirmálsmanni einum sem býr í fátækrahverfi í Róm og er vita gagns- laus jafnt sjálfum sér sem öðram. Eigi að síður nær misindismaðurinn að vinna hug og hjarta áhorfandans. Næsta mynd eftir leik- stjórann, Á glapstigum (Una vita violenta), var af sama toga spunnin. Mamma Roma segir frá gleðikonu í Róm. Anna Magnani lék aðalhlutverk með miklum tilþrifum eins og við var að búast. Ekki fór á milli mála að Pa- solini var klaufskur leikstjóri. Þó lá mannin- um svo mikið á hjarta að hann gat hrifið PASOLINI deildi hart á valdatíð fasista í myndinni Salo. ENRIQUE Irazoqui í hlutverki frelsarans í Matteusarguðspjalli. áhorfendur með sér þrátt fyrir alla þá form- galla sem á myndum hans vora. Pasohni var stór sál. Þótt hann veldi ömurlegustu fá- tækrahverfi á ftalíu sem sögusvið skein virð- ing hans og samúð með sögupersónum í gegn um hvem myndramma. Skáldið gerði úrhrök mannkyns að marg- brotnum söguhetjum án þess að fegra eða draga glansmynd af þessari veröld eða reyna að gera hana þóknanlegri en efni stóðu til. Hann var laus við ræfladýrkun en sýndi blákalt heim þeirra sem minna mega sín. Hann efldi nýraunsæi sem raddi sér til rúms á eftirstríðsáranum og gekk feti framar. Pa- soMni hvarf frá nútímanum þegar frá leið og leitaði fanga í fortíðinni. Síðar meir reyndi hann að taka upp þráðinn en Pasolini átti í raun aldrei afturkvæmt á þessar slóðir. Myndimar Teorema og Svínastían (Poreile) era þunglamalegar ádeilur á samtímann, burgeisana og hvaðeina. Þær líða fyrir að sögusviðið er ekki fátækrahverfi á Mðandi stundu eða horfinn heimur svo að allir van- kantar og hnökrar era deginum ljósari, framstæð efnistökin kallast ekki lengur á við söguheiminn. Margir gerðu því skóna að brögð hefðu verið í tafli þegar PasoHni var myrtur og drápsmaðurinn hefði ekki verið einn að verki. Slíkt hefur aldrei sannast og fátt bendir til þess. Leikstjórinn Michelang- elo Antonioni sagði: „Hann féll fyrir hendi eigin sögupersónu". Pier Paolo Pasolini var dreginn fyrir rétt PASOLINI mundar myndavélina við tökur á Kantaraborgarsögum eftir Chaucer. FRANCO Citti lék ógæfumanninn Attacone í fyrstu mynd sem Pasolini gerði. PASOLINI í þungum þönkum. -A 16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 12. JÚNÍ1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.