Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1999, Page 16
Morgunblaðiö/Kristinn
La Primavera, veitingahús. Hönnuðir Oddgeir Þórðarson og Guðrún Margrét Ólafsdóttir, innanhússarkitektar FHI.
M''' *
BREIDDIN
ER OKKAR
STYRKUR
Húsgggna- og innanhússarkitektar
í landinu hafa sótt í sig veðrið á þessum
áratug. Þeir hafa styrkt stöðu sína hér
heima og sjá ný sóknarfæri á erlendri
grundu. ORRI PÁLL ORMARSSON sótti
Guðbjörgu Magnúsdóttur, formann
Félags húsgagna- og innanhússarkitekta,
heim og ræddi við hana um uppsveifl-
una í faginu, horfurnar, nýju bygginga-
regli jgerðina, sem félagið gagnrýnir
mjög, , og hugsanlegt nám í hönnunar-
greinum h lér á landi í framtíðinni.
Guðbjörg Magnúsdóttir lætur sig dreyma um hönnunarmiðstöð og
hönnunarnám á háskólastigi hér á landi.
HVERS vegna innanhússarki-
tekt? spyr Félag húsgagna-
og innanhússarkitekta í
kynningarbæklingi sínum.
Og ekki lætur svarið á sér
standa: TO að fá vel skipu-
lagða heildarmynd af um-
hverfi þínu; til að móta um-
hverfi, þar sem vellíðan einstaklings er í önd-
vegi; til að hagkvæmni náist í nýtingu rýmis;
til að lækka framkvæmdakostnað og til að
spara þinn eigin tíma. Allt lætur þetta vel í
eyrum. En hverjir eru húsgagna- og innan-
hússarkitektai- á íslandi og fyrir hvað standa
þeir?
Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
(FHI) var stofnað árið 1955. 84 eru skráðir í
félagið í dag sem er mesti fjöldi frá upphafi.
Félagið á aðild að regnhlífarsamtökum hönn-
uða, Form ísland, auk alþjóðlegi-a samtaka.
Stofnendur FHI voru flestir húsgagnaarki-
tektar og voru þeir, að sögn Guðbjargar
Magnúsdóttur, formanns félagsins, atkvæða-
mestir innan þess fyrsta kastið. „Frumherj-
arnir voru mjög virkir og héldu stórar og
miklar sýningar á sínum tíma. íslensk hús-
gagnahönnun og -framleiðsla var í blóma á
þessum tíma eða þar til tollfrjáls innflutning-
ur á erlendum húsgögnum var leyfður
snemma á áttunda áratugnum. Pá varð hrun í
faginu án þess að nokkur fengi rönd við reist,
ódýr erlend húsgögn flæddu inn í landið. Það
er sorglegt til þess að hugsa hvað við töpuð-
um miklu á þessu. Þar á ég við verkkunnáttu,
vélakost og margt fleira. Þetta gekk mjög
nærri íáginu - og iðngreinum yfir höfuð - og
það hefur verið gífurlega erfitt að byrja upp á
nýtt.“
Vægi innanhússarkitekta var minna en
húsgagnaarkitekta á fyrstu árunum en hefur
að sögn Guðbjargar farið stigvaxandi á síð-
l 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 9. OKTÓBER 1999