Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1999, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1999, Qupperneq 16
 Morgunblaðiö/Kristinn La Primavera, veitingahús. Hönnuðir Oddgeir Þórðarson og Guðrún Margrét Ólafsdóttir, innanhússarkitektar FHI. M''' * BREIDDIN ER OKKAR STYRKUR Húsgggna- og innanhússarkitektar í landinu hafa sótt í sig veðrið á þessum áratug. Þeir hafa styrkt stöðu sína hér heima og sjá ný sóknarfæri á erlendri grundu. ORRI PÁLL ORMARSSON sótti Guðbjörgu Magnúsdóttur, formann Félags húsgagna- og innanhússarkitekta, heim og ræddi við hana um uppsveifl- una í faginu, horfurnar, nýju bygginga- regli jgerðina, sem félagið gagnrýnir mjög, , og hugsanlegt nám í hönnunar- greinum h lér á landi í framtíðinni. Guðbjörg Magnúsdóttir lætur sig dreyma um hönnunarmiðstöð og hönnunarnám á háskólastigi hér á landi. HVERS vegna innanhússarki- tekt? spyr Félag húsgagna- og innanhússarkitekta í kynningarbæklingi sínum. Og ekki lætur svarið á sér standa: TO að fá vel skipu- lagða heildarmynd af um- hverfi þínu; til að móta um- hverfi, þar sem vellíðan einstaklings er í önd- vegi; til að hagkvæmni náist í nýtingu rýmis; til að lækka framkvæmdakostnað og til að spara þinn eigin tíma. Allt lætur þetta vel í eyrum. En hverjir eru húsgagna- og innan- hússarkitektai- á íslandi og fyrir hvað standa þeir? Félag húsgagna- og innanhússarkitekta (FHI) var stofnað árið 1955. 84 eru skráðir í félagið í dag sem er mesti fjöldi frá upphafi. Félagið á aðild að regnhlífarsamtökum hönn- uða, Form ísland, auk alþjóðlegi-a samtaka. Stofnendur FHI voru flestir húsgagnaarki- tektar og voru þeir, að sögn Guðbjargar Magnúsdóttur, formanns félagsins, atkvæða- mestir innan þess fyrsta kastið. „Frumherj- arnir voru mjög virkir og héldu stórar og miklar sýningar á sínum tíma. íslensk hús- gagnahönnun og -framleiðsla var í blóma á þessum tíma eða þar til tollfrjáls innflutning- ur á erlendum húsgögnum var leyfður snemma á áttunda áratugnum. Pá varð hrun í faginu án þess að nokkur fengi rönd við reist, ódýr erlend húsgögn flæddu inn í landið. Það er sorglegt til þess að hugsa hvað við töpuð- um miklu á þessu. Þar á ég við verkkunnáttu, vélakost og margt fleira. Þetta gekk mjög nærri íáginu - og iðngreinum yfir höfuð - og það hefur verið gífurlega erfitt að byrja upp á nýtt.“ Vægi innanhússarkitekta var minna en húsgagnaarkitekta á fyrstu árunum en hefur að sögn Guðbjargar farið stigvaxandi á síð- l 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 9. OKTÓBER 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.