Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1999, Page 19

Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1999, Page 19
4. MÁLÞING NORRÆNNA MENNINGARNETA MENNINGARNET OPNA ■ ÓTEUANDI DYR ÍSLENSKA menningarnetið er í góðum fé- lagsskap þar sem eru menningarnet hinna Norðurlandanna. Netin eru ólík innbyrðis en þar sem þau deila markmiðum og metnaði hittast umsjónarmenn þeirra reglulega til þess að bera saman bækur - eða öllu heldur - heimasíður sínar. Þema 4. málþings norrænna menningarneta var „staðbundin menningar- net“ og var vöngum velt yfu- gildi héraðs- og landsneta í smáu og stóru samhengi. Norrænu menningametin eru starfrækt af menningar- eða menntamálaráðuneyti hvers lands fyrir sig. Um er að ræða upplýsinganet sem tengja saman vefí menningar- og lista- stofnana og auðvelda almenningi aðgang að menningai'tengdu efni á Netinu. Á Menning- arneti Islands (www.menning.is) er til dæmis að finna tengla við heimasíður Rithöfunda- sambands Islands og íslensku menningai'- samsteypunnar art.is, svo dæmi séu nefnd, og opnast þannig á einum stað dyr að mörgum og ólíkum menningarkimum Netsins. Salvör Gissurardóttir er nýr formaður stjórnar Menningarnets Islands, en forveri hennar, Gunnar Harðarson, greindi frá bauta- steinum síðasta starfsárs á málþinginu. Hann upplýsti að ensk útgáfa vefjarins væri nú loks komin í gagnið og meðal nýrra tengla minntist hann á Upplýsingamiðstöð myndlist- ar, sem er gagnabanki um listamenn og myndverk. Gerjun á öllwm vígstöðvum Menningamet Danmerkur (www.kultur- net.dk) og Svíþjóðar (www.kultur.nu) eiga það sameiginlegt að gegna tvennskonar hlutverki. Annars vegar höfða þau til almennings á sömu forsendum og hið íslenska, en hins vegar eru þau nokkurs konar hjálparhella þeirra sem vinna við menningarmiðlun á Netinu. Á sænska menningametinu er til að mynda boðið upp á námskeið í heimasíðugerð, auk þess sem stjóm vefjarins hefur dreift fræðsluefni um út- gáfumál á Netinu. „Athuganir sýna að um helmingur Svía hefur reynslu af því að vafra um Netið og æ fleiri gefa út eigið efni á Net- inu,“ sagði Cissi Billgren Askwall, verkefnis- stjóri Menningamets Svíþjóðar. Sænsk yfir- völd veita hvað mest fé til reksturs menningar- nets af öllum Norðurlöndunum og starfa nú sex manns í fullu starfi við rekstur vefjarins. Fulltrúi Noregs lýsti þeirri framtíðarsýn að Menningarnet Noregs (www.kulturnett.no) ætti ekki einungis að vera vefur um menningu heldur vefur með menningarlegu innihaldi. Aðrir fulltrúar sögðu markmið sitt það sama, en eigin framleiðsla menningarefnis er þó enn skammt á veg komin hjá flestum menningar- Tölvutæknin þarf ekki að drepa hefðbundinni list- iðkun á dreif heldur getur samvinna nets og veru- leika styrkt staðbundið menningarlíf verulega. SIGURBJÖRG ÞRAST- ARDÓTTIR sat 4. málþing norrænna mennmgar- neta í Reykjavík. netunum. Finnska netþjónustan Kulttuuri- sampo (www.kulttuurisampo.fi) er sér á báti að því leyti að meginmarkmið vefjarins er að vera vettvangur lifandi menningai’umræðu. „Á vefnum er m.a. rekinn fréttabanki um menningarlíf, auk þess sem við starfrækjum umræðutorg fyiir almenning," sagði Marita Muukkonen, liðsmaður ritstjórnar. Að hennar sögn snýst Kulttuurisampo um menning- arpólitík en annað menningarnet, Kulttu- urinet (wwwr.kulttuuri.net) sinnir almennum listviðburðum. Undirbúningur er hafinn að Menningarneti Álandseyja og greindi Lotta Marshall frá því að heimasíður landsstjórnarinnar, bókasafns- ins og allra skóla eyjanna yrðu senn tengdar með kerfisbundnum hætti. Martin Næs, starfsmaður Landsbókasafns Færeyja, upplýsti málþingsgesti um að Menningarnet Færeyja hefði ekkert stai'fslið og enga peninga en forsíða vefjarins væri þó tilbúin. Ymis færeysk söfn og menningar- stofnanir státuðu af ágætum heimasíðum og færeysk stjórnvöld hefðu fyrir skemmstu loks svarað endurteknum bréfaskriftum bóka- safnsmanna um að hefja nú formlegan undir- búning að Menningarneti Færeyja. Skortur á fé og starfsfólki hindrar að sama skapi uppsetningu menningarnets á Græn- landi, en Grænlendingar áttu þó fulltrúa á málþinginu. „Áhugi okkar beinist fyrst og fremst að fræðsluneti fyrir skóla, en á næsta ári stendur til að nettengja helstu mennta- stofnanir landsins, sem er skref í áttina að sameiginlegu menningai'neti," sagði Ole Fredriksen. I! -e . -► . a 1 3 5 53 5 v Frá Menningarneti íslands má meðal annars tengjast Upplýsingamiðstöð myndlistar. Svseðisnet fyrir heimamenn og gesti Fyrri degi málþingsins lauk með því að kynnt voru staðbundin menningamet, eða svæðisnet. Saamiweb (www.saamiweb.org) er menningar- og fréttavefur Sama sem skrifað- ur er á sex tungumálum: samísku, norsku, sænsku, finnsku, ensku og spænsku, en for- svarsmenn Saamiweb leggja mikið upp úr miðjuleysi Netsins. „Við völdum til dæmis endinguna .org á vefslóðina af ásettu ráði. Við vildum ekki tengja vefinn ákveðnu landi með því að nota einkennisstafina .no, .fi eða .se því vefurinn þjónai’ samísku byggðunum í heild sinni,“ útskýrði verkefnisstjórinn Ole Isak Mienna. Hann benti á að með því að þýða efni yfir á jafn útbreidd tungumál og spænsku og ensku væri markhópurinn í raun heimurinn allur og þannig væri nýttur til hins ýtrasta styi'kur Netsins sem fjölmiðils. „Á fréttasíð- um Saamiweb eru stórir og smáir atburðir nær og fjær skoðaðir með augum Sama - í því liggur sérstaða vefjarins í flórunni." Héraðsvefurinn Kulturnett Hordaland (hor- daland.kulturnett.no) er staðbundið menning- arnet í Noregi og þjónar 430 þúsund íbúum héraðsins Hörðalands. Synnove Gjermundnes kynnti vefinn, sem geymir upplýsingar um bóka- og listasöfn, menningarviðburði og fleira, auk tengla við undirvefi eins og Hörða- land í stríði og Vef eldri borgara. I Svíþjóð er rekið menningarnetið Kult- urnát Dalarna (www.knd.nu) fyrir 500 þúsund íbúa héraðsins Dalama og aðra áhugasama. „Eitt af markmiðunum er að kynna menningu svæðisins fyrir fólki sem hyggst heimsækja héraðið," sagði Lars Wikström, ritstjóri vefj- arins. „Jafnframt er hugmyndin að hvetja innfædda listamenn til þess að kynna sér möguleika Netsins og nýta sér það sem sinp, eigin tjáningarmiðil. Við styrkjum til dæmis útvalin verkefni ólíki'a listamanna og skipu- leggjum námskeið um skipulag menningar- starfsemi.“ Hornsteinn allra svæðisnetanna er við- burðadagatal, tímasett skrá yfir listviðburði sem á döfinni eru í grenndinni. Þar geta að- standendur viðburðanna sjálfir ritað upplýs- ingar á listann í gegnum tölvupóst. Ekki einsleit heild Að lokum flutti Bragi Halldórsson fyrir- lestur um veflist og gerði skýran greinarmun á list sem sköpuð er frá grunni á Netinu og myndverkum sem skönnuð eru inn á tölvu- skjá. Hið fyrrnefnda væri veflist.enda „stend- ur veflistaverk ekki undir nafni ef hægt er að leika sköpun þess eftir með öðrum miðlum." Bragi varpaði upp á skjá sýnishornum af eig-* in verkum við góðar undirtektir málþings- gesta. Talsverðai' umræður sköpuðust á þinginu um nauðsyn frekara samstarfs milli norrænu menningametanna. Allir voru sammála um nauðsyn þess að skiptast á hugmyndum og reynslusögum en efasemdir komu fram gagn- vart hugmyndinni um sameiginlegt menning- amet Norðurlandanna. Þjóðirnar væru ólíkar um margt og ættu ekki að reyna að steypa menningarkynningu sína í sama mót nema kannski með sameiginlegri forsíðu að þeim menningametum sem fyrir væm. „Norður-< löndin eru ekki einsleit heild, nema helst í augum Bandaríkjamanna eða annarra sem horfa á okkur úr fjarlægð," sögðu dönsku þátttakendurnir og bættu við: „Uppbygging Netsins er þannig að notendahópur jafnt svæðisneta sem landsneta er heimurinn allur. Það þarf ekki þverþjóðlegan vef til þess að ná til margra landa í einu - hver og einn getur náð víðtækri athygli á eigin forsendum.11 Kostum og göllum landfræðilegrar nálgun- ar vai' velt upp og rætt hvort fýsilegt væri að flokka upplýsingar um norræna menningar- starfsemi eftir efni (leiklist, tónlist, o.s.frv.) í stað uppruna. Þýsku gestirnir bentu á að vefir á Netinu yrðu stfellt umfangsmeiri og giskuðu á að ef Norðurlandanet myndi ekki taka við af landsnetum myndi allsherjar Evrópunet gera það á endanum. „Grunneiningarnar verða* áfram svæðisnetin, en þau munu smám saman tengjast og mynda þéttriðið net,“ sögðu Þjóð- verjarnir í lok líflegi'a umræðna. HJÁLPA LISTAMÖNNUM AÐ SKAPA SÉR LÍF Á NETINU KULTURSERVER, sem á íslensku mætti kalla Menningarmiðlai'a, er eins konar gras- rótarhreyfing listamanna á Netinu, í senn bundin við ákveðin svæði og opin öllum heim- inum. Þýska margmiðlunarfyrirtækið Ponton hefur þegar stofnað Kulturserver í fjórum sambandslöndum Þýskalands og einn í Kosovo, en þeim síðastnefnda er ætlað að styðja endurreisn menningarlífs og vera vett- vangur frjálsra skoðanaskipta í Kosovo. Tveir af forsprökkum Kulturserver, þeir Klaas Glenewinkel og Beryamin Heiders- berger, einn af fjórum eigendum Ponton, voru gestafyi-irlesarar á málþingi norrænna menn- ingarneta þar sem þeir greindu frá hugsjón- inni að baki Kulturserver. Jafnframt áttu þeir samtal við blaðamann Morgunblaðsins um til- urð og framtíð verkefnisins. Öllum frjúls aðgangur „Kulturserver er samfélag á Netinu, til þess hugsað að styrkja samskipti listamanna, menningarstofnana og neytenda á tilteknu svæði. Þetta er eins konar vefveröld sem veit- ir í senn yfirsýn yfir menningarlíf á Netinu sjálfu og utan þess. Aðgangur er frjáls og þátttakendum er að auki hjálpað við að útbúa sína eigin heimasíðu endurgjaldslaust," út- skýi'ir Klaas sem situr við tölvuna. Hann slær inn slóðina www.kulturserver.de og bendir á þrjár spánnýjar heimasíður frá síðustu klukkustund, en alls eru heimasíður Kultur- seiwer um 1.300 talsins. Um leið og heimasíðan er komin í höfn fær eigandi hennar netfang í tölvupóstkerfinu „Webmail" og getur nálgast það úr hvaða tölvu sem er. „Þetta er óháð póstþjónustu- kerfi sem hentar vel þeim fjölmörgu lista- mönnum sem ekki líst á að leggja lag sitt við markaðsrisa á við Microsoft," segir Benjamin kíminn og vísar þar til póstkerfisins út- breidda, Hotmail. Skráðar heimsóknir í vefsamfélagið Kultur- server eru um 30 þúsund á mánuði en talan tvöfaldast að sögn félaganna á sex mánaða fresti. Áskrifendur að fréttabréfi Kulturser- Morgunblaðið/Ámi Sæberg Þjóðverjarnir Klaas Glenewinkel og Benja- min Heidersberger kynntust á netkaffihúsi í Japan og vinna nú saman að frjálsri miðlun menningar á Netinu. ver eru 2.500 og sívaxandi fjöldi listamanna tekur þátt í að móta viðburðadagatalið sem er hjai'ta Kulturserver á hverju svæði. Þar er öllum frjálst að skrá og auglýsa tónleika, upp- lestra, gjörninga og hvers kyns aðrar uppá- komur. „Kosturinn við Kulturserver er að það eru ekki bara stórar menningarstofnanir sem hafa efni á því að vera með. Þar mætast pönk- sveitir og óperuhús, óháðir listamenn og sam- tök. Við bjóðum ókeypis rými á Netinu og leggjum fólki lið við að senda út sitt eigið efni,“ segir Benjamin, en auk heimasíðutorgs starfrækh' Kulturserver útvarpsstöð á Netinu þai' sem hver sem er getur gerst dagskrár- gerðarmaður og sent út sjónvarps- eða hljóð- varpsefni úr stofunni heima hjá sér. Vilja bæta íslandi i hópinn Benjamin og Klaas hafa ferðast víða til þess að breiða út „fagnaðarerindi" starfsem- innar og mynda tengsl við listamenn. Nú síð- ast heimsóttu þeh' Kúbu og Eystrasaltslöndin í því skyni að kanna jarðveginn fyrh- útibú Kulturserver „og það má vel koma fram að» við höfum mikinn áhuga á að stofna „Kultur- server Iceland“,“ upplýsa þeir og útskýra að frumforsendur fyi’ir rekstri Kulturserver í hverju landi sé dugandi ritstjóri og fundvísi á fjármagn. í Þýskalandi er rekstur Kulturser- ver nú styrktur af stjórn viðkomandi sam- bandslands og Deutsche Telekom en draum- urinn er að vefsamfélagið fjármagni sig sjálft í framtíðinni, svo sem með auglýsingaborðum og miðasölu á listviðburði. „Aðalatriðið er að þátttaka í þessu netsamfélagi er frjáls og rit- skoðun er ekki beitt nema brýna nauðsyn beri til og birting brjóti augljóslega í bága við lög.“ I kvöld klukkan 18 að íslenskum tíma verð- ur sendur út á hljóð- og sjónvarpsstöðinh? Kulturseiwer TV - Radio þáttur í beinni út- sendingu um Island í umsjá Ástu Olafsdóttur og Wolfgangs Mueller. Fram koma meðal annars Gjörningaklúbburinn, hljómsveitin Stilluppsteypa, Oskakórinn og Birgir Örn Thoroddsen. Slóðin er www.kulturserver.de LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 9. OKTÓBER 1999 1 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.