Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1999, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1999, Blaðsíða 6
HUGLEIKUR / / A F í ágúst í f „SALNA- :LAKKI" ^rra fór leikfélagið Hugleikur á norður- evrópska áhugaleiklistarhátíð í Harstad í \ o —I CD CQ Sýning hóp sins á söngleiknum Sálir Jónanna ganga aftur í leikstjórn Viðars Eggertssonar vakti kátínu og viðbrögð leikhúsáhuggfólks og áður en Hugleikur vissi af sat hann uppi með boð til Litháen og Færeyja SÆVAR SIGURGEIRSSON, einn Hugleiksmanna, rekur ferðasögu þessa siglda leikfélags. FÆST okkar tóku því alvarlega þegar menningarvitar frá Lithá- en komu að máli við þáverandi formann félagsins í Harstad og buðu okkur að sýna þar. Fréttin gekk milli manna í hópnum eins og góður brandari og eiginlega vissi enginn hvort um var að ræða Eistland, Lettland eða Litháen. Svo var hlegið að öllu saman. Nógu erfitt hafði nú ver- ið að klöngrast þetta norður fyrir heimskauts- bauginn, auk þess sem við eftirlétum frænd- um okkar leikmyndina í spónamat. Innst inni held ég þó að flestir hafi hugsað: „Auðvitað förum við.“ I vetur kom svo staðfesting á boð- inu og í vor hófst skipulögð fjáröflun og undir- búningur en þar bjuggum við að dýrmætri reynslu frá Noregsævintýrinu. Viðar Egg- ertsson leikstjóri var fenginn til að enduræfa með okkur verkið, ný leikmynd var smíðuð, og Leikfélag Mosfellssveitar lánaði Bæjar- leikhúsið til æfinga síðustu vikuna. Miðvikudaginn 14. júlí var svo lagt í hann með millilendingu og gistingu í Kaupmanna- höfn. Þar bættust í hópinn tveir dyggir áhangendur auk síðasta leikarans sem nú er búsettur í Danmörku og missti því af æfing- um hér heima. Það varð því úr að við hefðum textaæfingu fyrir hann á Kastrup daginn eftir og þó að hópurinn reyndi að láta lítið fara fyr- ir sér vakti uppákoman engu að síður athygli nokkurra ferðalanga og góðlátleg hjón hentu tyrkneskri smámynt til einnar prímadonn- unnar þar sem hún brast í söng á flugvellin- um. Þaðan flugum við svo 29 talsins til Vilnius og komum til Trakai seinnipart fimmtudags. Trakai er ótrúlega heillandi borg, umlukin stöðuvötnum og á lítilli eyju í Galvé-vatni trónir stolt bæjarbúa, Trakai Pilis, kastali frá 14. öld eins og leikmynd úr ævintýri. Hann hefur reyndar verið eyðilagður nokkrum sinnum gegnum tíðina en var síðast endur- byggður milli 1930 og 1950. Þar hefur miklu sögusafni verið komið fyiir en auk þess að vera eitt helsta aðdráttarafl ferðamanna á þessu svæði gegnir kastalinn miklu menning- arhlutverki, ekki síst í tengslum við Trakai Festival sem er ekki leiklistarhátíð heldur al- menn listahátíð. Þar eru gjarnan mikilsháttar tónlistaruppákomur á útisviði sem reist hefur verið í miðjum kastalagarðinum og tónleika- uppfærslur á óperum Verdis og Puccinis voru nýafstaðnar. Þama var okkur einnig ætlað að sýna. Okkur brá nokkuð í brún þegar við sá- um sviðið. Það minnti helst á sautjándajúníp- all á Lækjartorgi sem tjaldað var yfir með hvítu tjaldi og g-ólfið ljósar spónaplötur. Þama hafði aldrei verið leikið áður og framkvæmda- stjóri hátíðarinnar skildi ekki alveg kröfur okkar um svört leiktjöld og bauð grænan tjalddúk. Með nokkru harðfylgi tókst okkur þó að kippa í þá spotta sem til þurfti til að breyta umgjörðinni í viðunandi leikhús sem félli að sýningunni. Við þessar nýju aðstæður náðum við einni æfingu að kvöldi föstudags en sýningin var á laugardegi. Honum eyddum við í bæjarrölt og afslöppun, söngæfingar og fínni lagfæringar á sviðinu. Lýsingin var nokkurt vandamál þar sem leikritið hefst í Myndin sem birtist í Lietuvos Rytas. Einar Þór Einarsson í hlutverki Kölska. helvíti og krefst myrkurs og rauðra vítisloga. Ljósameistari alheimsins var ekki á því að veita okkur það myrkur sem þurfti og í hálfr- ökkri hófst sýningin, eilítið skrykkjótt framan af, en tókst af viðtökum að dæma að ná hylli þeirra tæplega 600 áhorfenda sem lögðu á sig að fylgjast með þeirri stíltegundasúpu sem fram var borin á óskiljanlegu tungumáli, ís- lensku. Vilja, ein af kunningjum okkar úr lit- háíska leikhópnum, sem einnig átti sæti í framkvæmdanefnd hátíðarinnar flutti ávarp fyrir sýningu og rakti söguþráð verksins á lit- háísku og henni kipptum við inn sem gesta- leikara í lokaatriði. Það vakti að vonum þakk- látan hlátur. Seinna sáum við í umfjöllun litháíska dagblaðsins Lietuvos Rytas nokkuð vel látið af sýningunni þótt blaðamaður sæi ástæðu til að telja Sunkus kelias i dangu (en svo hét leikritið upp á litháísku) nokkuð ólíkt verkum fyrirrennara okkar, þeirra Verdis og Puccinis. Eftir sýningu tók við íslenskur frumsýningarfagnaður í matsal hótelsins sem endaði með sundspretti í Galvé-vatni um miðja nótt. Gaman að vera íslendingur í Lithóen Daginn eftir var okkur ekið í skoðunarferð um höfuðborgina Vilnius í boði leikhópsins frá Trakai, sem við kynntumst á hátíðinni í Nor- egi í fyrra. Hún hófst við sjónvarpstuminn fræga, 356 metra hátt mannvirki, sem auk þess að hýsa veitingastað sem snýst er nú orð- ið einskonar minnismerki um harmleikinn 13. janúar 1990 þegar 14 óbreyttir borgarar létu lífið í skriðdrekaárás rússneska hersins eftir langt umsátur. Þar heíur verið sett upp safn til heiðurs fómarlömbunum og þaðan fer eng- inn ósnortinn. Með óhugnanlegum ljósmynd- um sem sýna í Smáatriðum hvar og hvemig hvert þeirra lést er maður óþyrmilega minnt- ur á hversu nálægt okkur þessir atburðir em bæði í tíma og rúmi. Skynjun manns á mikil- Trakai-kastali - eins og leikmynd úr ævintýri Greinarhöfundur vid eitt af uppáhaldsskiltum sínum á flugvellinum í Vágar. Bert starvsfólk f only vægi sjálfstæðis þeirra og stolts heimamanna verður enn sterkari fyrir vikið. Þó að það hljómi ankannalega þáer í ljósi frægrar sjálf- stæðisviðurkenningar íslendinga heldur ekk- ert leiðinlegt að vera íslendingur í Litháen, spássera um Islandijos- götuna í Vilnius og taki maður heimamann tali, berst talið fljót- lega að umræddri stuðningsyfirlýsingu og maður er umsvifalaust kominn nánast í dýrl- ingatölu. Eftir nokkrar kirkjur og hefðbundna túr- hestamennsku í Vilnius var okkur ekið aftur til Trakai en þar biðu vinir okkar úr leikfélag- inu með ferju við kastalann og tóku á móti okkur með bjórkútum og harmonikkuspili. Þaðan var siglt yfir Galvé-vatn í rjóður með stóru hringsviði, slegið upp varðeldi og glóð- aðar pylsur. Svo var sungið og dansað og farið í leiki og hóparnir hristust rækilega saman þrátt fyrir að örlaði á tungumálaörðugleikum. Aðeins einn úr þeirra hópi var slarkfær á ensku, ein konan talaði góða þýsku sem fá okkar töluðu af nokkru viti og því varð að treysta á önnur tjáningarform. Þarna komu Romualdas Petraitis, framkvæmdastjóri listahátíðarinnar, og Vitautas Mikalauskas, borgarstjóri Trakai, og skipst var á gjöfum og hlýlegum orðum. Þegar í land var komið flutt- ist fagnaðurinn upp á hótel og þaðan út í vatn. Að sjálfsögðu. Með trega kvöddum við svo vini okkar og vatnaparadísina Trakai á mánudagsmorgni, sumir héldu heim, en okkar hinna biðu þrír stórkostlegir sólarhringar á eigin vegum í Vilnius í sama 30 stiga hitanum og alla hina dagana. Vinir okkar eltu okkur reyndar með rútu þangað og buðu í skoðunarferð til Kaun- as sem er næststærsta borg Litháen, ekki langt frá Vilnius. Svo enn þurftum við að kveðja. Nú hefur hins vegar verið afráðið að NEATA (North European Amateur Theatre Association) muni halda leiklistarhátíð í Trak- ai að ári og má telja nokkuð öruggt að ein- hverjir úr hópnum muni leggja leið sína þang- að, þó ekki væri til annars en að slæða upp þau gleraugu sem týndust á nætursundinu. „Litli bróðir" staðfesti boðið Áður en við fórum til Litháen höfðu Færey- ingar ámálgað við okkur ósk um að sýna leikr- itið í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn í septem- ber í tengslum við aðalfund MÁF (Meginfélags áhugaleikara í Færeyjum) sem er samskonar batterí og BÍL (Bandalag ís- lenskra leikfélaga) hér heima. Sverre Eng- holm, formaður MÁF, hafði einnig séð sýn- inguna í Noregi og hrifist af. Þrátt fyrir að það boð hefði ekki fengist staðfest og nokkur- rar svartsýni gætti í hópnum um að við hefð- um möguleika á að fjármagna aðra ferð fyrir þetta stóran hóp á svo stuttum tíma, sendum við samt leikmyndina beint þangað frá Lithá- en til vonar og vara. Þeir gætu þá fargað henni fyrir okkur. Einnig töldum við útséð um 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 6. NÓVEMBER 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.