Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.2000, Síða 16
litáili
Henri Matisse: Vinnustofan, 1902. Henry Ossawa Tanner: Boöun Maríu, 1898.
VEIZLA FYRIR AUGAÐ
1900 - LIST á krossgötum
heitir sýning, sem nú
stendur yfir í The Royal
Academy of Arts í
London. Þar eru sýnd
250 verk 180 listamanna
frá 28 löndum. FREY-
STEINN JÓHANNSSON
skoðaði sýninguna; varð
agndofa yfir umfangi
hennar, framlag nor-
rænna listmálara kom
honum skemmtilega á
óvartog Þingvallamynd
Þórarins B. Þorlákssonar
á einum veggnum var
fagnaðarfundur.
Þórarinn B. Þorléksson: Sumarnótt á Þingvöllum, 1900.
RÆTUR sýningarinnar liggja í
heimssýningunni í París árið
1900. Mörg verkanna í Royal
Academy voru á heimssýning-
unni í París, önnur eru eftir
listamenn, sem áttu verk í
París, en þó ekki þau sem hér
eru sýnd. í þriðja hópnum eru
svo verk listamanna, sem ekki voru með í
París, en eru engu að síður taldir ómissandi í
þessum hópi, sem á að sýna okkur í hnot-
skurn listsköpun í Evrópu og reyndar
Ameríku líka í kringum 1900; frá 1897-1903.
A það hefur verið bent til þess að staðsetja
þennan tíma, að þá hafí Cézanne og Gauguin
verið komnir af léttasta skeiði, Degas, Ren-
oir, Munch og Rodin verið enn upp á sitt
bezta, en Picasso, Mondrian, Kandinski og
Matisse að ryðja sér til rúms. Það hefur verið
vandi að velja og finna verk á þessa sýningu.
Á heimssýningunni í París voru sýnd um
5000 listaverk og starfsmenn Royal Aca-
demy hafa í þrjú ár verið að leita þau uppi
svo og önnur listaverk, sem til greina komu.
En þótt listin nái aftur á 19. öldina, er
auglýsingatæknin skilgetið afkvæmi nú-
tímans. Sýningin er auglýst sem keppni
þungavigtarmannanna og auglýsingaspjöldin
sett upp eins og um hnefaleika sé að ræða,
þar sem nýlistin og hefðin takast á.
Sýningin í Royal Academy er auglýst sem at
milli þess hefðbundna og hins nýja.
Munch og Klimt með flest verk
Af þeim 180 listamönnum, sem eiga
verk á sýningunni, eru 23 frá Norður-
löndunum, þar á meðal sá málari, sem við
annan mann á flest verk; Norðmaðurinn
Edward Munch, en þarna eru sex verka
hans. I þessum hópi eru sex Danir, sex
Finnar, sex Svíar, 4 Norðmenn og 1 Is-
lendingur. Þeir, sem í þessum hópi eiga
fleiri en eitt verk á sýningunni eru auk
Munch; Finninn Elin Danielson-Gambogi,
Svíarnir Eugéne Jansson og Anders Zorn
og Daninn Peder Severis Kroyer, sem allir
eiga tvö verk hver, en samtals eru 32 mál-
verk norrænna listamanna á sýningunni.
Langflest listaverkanna 250 eru eftir
evrópska listamenn, en auk þeirra eru verk
eftir þrjá Ástrala, 14 Bandaríkjamenn, tvo
Kanadamenn, einn Mexíkana og tvo Japani.
Af Evrópumönnunum eru Frakkar flestir,
eða 38, Þjóðverjar eru 16, Bretar 15, Rússar
12, Belgar 11, Italir 9 og Hollendingar 7, en
færri eru frá Austurríki, Tékkóslóvakíu, Ung-
verjalandi, írlandi, Póllandi, Portúgal, Spáni,
Sviss og Norðurlöndunum sem fyrr segir frá.
Austurríski málarinn Gustav Klimt á sex verk
á sýningunni, eins og Munch, en fímm verk
eru eftir Frakkana Paul Cézanne, Edgar
Degas, Henri Matisse og Auguste Rodin og
Spánverjann Pablo Picasso, fjögur eru eftir
Þjóðverjann Franz von Stuck, þrjú eftir
Svisslendinginn Ferdinand Hodler, Belgann
Constantin Menuir og Frakkana Paul Gaugu-
in, Aristide Maillol, Claude Monet, Pierre-
Auguste Renoir og Henri de Toulouse-Laut-
rec. Aðrir eiga eitt og tvö verk á sýningunni.
Elfur tímans áfram rennur
Sýningin 1900 - list á krossgötum er í öll-
um þrettán sölunum á aðalhæð Royal Acade-
my. I fyrsta salnum eru eingöngu verk, sem
voru sýnd í París 1900 og eru sett hér saman
sitt úr hverri áttinni til að gefa okkur hug-
mynd um þá fjölbreytni, sem ríkti í París.
Fyrstur blasir við Koss Rodin í bronzi. Mér
hefur alltaf þótt vænt um Kossinn og þótt
hann eigi í mínum huga fyrst og fremst sitt
Lundúnaheimili á gangi Tate-safnisns, þá
fannst mér hann hér lofa einkar góðu um
framhaldið. Þarna varð mér starsýnt á mál-
verk eftir Frakkann Alfred Guillou af kveðj-
ustundinni, þar sem hafið er að krefjast sinna
fórna. Þessi mynd er fljót að kalla sögu fram í
hugann. Eins er með málverk eftir Tékkann
Frantisek Kupka af bókamanninum. Það er
auðvelt fyrir mann ofan af íslandi að renna
inn í myndir um heima hafs og bókar.
í sal númer tvö eru nektarmyndir og mál-
verk af baðferðum. Nektin er bæði í bronzi og
olíu, en það er mynd Paul Chabas af gáska-
1 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 29. JANÚAR 2000